Flokkur 06 Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar
Athugasemdir flokks
FLOKKUR VI
Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar
Athugasemdir:
1. A. Vörur (aðrar en geislavirkt málmgrýti) sem svara til vörulýsingar í nr. 2844 eða 2845 skulu flokkast undantekningalaust í þessa vöruliði.
B. Leiði ekki annað af A-lið hér að ofan skulu vörur sem svara til vörulýsingar í nr. 2843, 2846 eða 2852 flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.
2. Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér að ofan skulu vörur sem flokkast geta í nr. 3004-3006, 3212, 3303-3307, 3506, 3707 eða 3808, vegna þess að þær eru í afmældum skömmtum eða til smásölu, flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.
3. Vörusamstæður (sett) úr tveimur eða fleiri aðskildum efnisþáttum sem sumir eða allir teljast til þessa flokks og ætlast er til að blandað sé saman svo að úr verði framleiðsluvara sem telst til flokks VI eða VII skulu flokkast í þann vörulið sem sú vara fellur undir, enda uppfylli efnisþættirnir eftirtalin skilyrði:
a. Augljóst sé af frágangi þeirra að nota eigi þá saman án undanfarandi endurpökkunar.
b. Þeim sé framvísað saman.
c. Ljóst sé að þeir eigi fyllilega saman, annað hvort vegna eðlis þeirra eða magnhlutfalls þeirra innbyrðis.
[4. Svari vara til lýsingar eins eða fleiri vöruliða í flokki VI, vegna þess að henni sé lýst með nafni eða virkni, og einnig í nr. 3827, flokkast varan undir þann vörulið sem höfðar til heitis vörunnar eða virkni en ekki undir nr. 3827.][1]
[1] Sbr. 21. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022