Flokkur 06 Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar

Kafli 28 Ólífræn efni; lífræn eða ólífræn sambönd góðmálma, sjaldgæfra jarðmálma, geislavirkra frumefna eða samsætna

Athugasemdir flokks

FLOKKUR VI
Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar

 

Athugasemdir:

1.      A.     Vörur (aðrar en geislavirkt málmgrýti) sem svara til vörulýsingar í nr. 2844 eða 2845 skulu flokkast undantekningalaust í þessa vöruliði.

          B.     Leiði ekki annað af A-lið hér að ofan skulu vörur sem svara til vörulýsingar í nr. 2843, 2846 eða 2852 flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.

2.      Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér að ofan skulu vörur sem flokkast geta í nr. 3004-3006, 3212, 3303-3307, 3506, 3707 eða 3808, vegna þess að þær eru í afmældum skömmt­um eða til smásölu, flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.

3.      Vörusamstæður (sett) úr tveimur eða fleiri aðskildum efnisþáttum sem sumir eða allir telj­ast til þessa flokks og ætlast er til að blandað sé saman svo að úr verði framleiðsluvara sem telst til flokks VI eða VII skulu flokkast í þann vörulið sem sú vara fellur undir, enda upp­fylli efnisþættirnir eftirtalin skilyrði:

a.      Augljóst sé af frágangi þeirra að nota eigi þá saman án undanfarandi endurpökkunar.

b.      Þeim sé framvísað saman.

c.      Ljóst sé að þeir eigi fyllilega saman, annað hvort vegna eðlis þeirra eða magnhlutfalls þeirra innbyrðis.

[4.      Svari vara til lýsingar eins eða fleiri vöruliða í flokki VI, vegna þess að henni sé lýst með nafni eða virkni, og einnig í nr. 3827, flokkast varan undir þann vörulið sem höfðar til heitis vörunnar eða virkni en ekki undir nr. 3827.][1]



[1] Sbr. 21. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Athugasemdir kafla

28. KAFLI
Ólífræn efni; lífræn eða ólífræn sambönd góðmálma, sjaldgæfra jarðmálma, geislavirkra frumefna eða samsætna
 

Athugasemdir:

1.   Leiði ekki annað af orðalagi skal til vöruliða þessa kafla einungis telja eftirfarandi:

a. Aðgreind kemísk frumefni og aðgreind kemískt skýrgreind sambönd, einnig með óhrein­indum.
b.  Vatnsupplausnir þeirra efna sem nefnd eru í a-lið hér að ofan.
c. Aðrar upplausnir þeirra efna sem nefnd eru í a-lið hér að ofan, enda sé vanalegt og nauðsynlegt að hafa efni þessi í uppleystu formi af öryggisástæðum eða vegna flutnings og upplausnarefnið geri efnið sjálft ekki hæfara til notkunar í sérstöku skyni en hinna almennu nota.
d. Efni sem nefnd eru í a-, b- eða c-lið hér að ofan og blönduð hafa verið nauðsynlegum efnum til að halda þeim í óbreyttu ástandi í geymslu eða flutningi (þar með talin efni til að hindra kekkjun).
e. Efni sem nefnd eru í a-, b-, c- eða d-lið hér að ofan og blönduð hafa verið rykvarnar- eða litarefni til auðkennis eða af öryggisástæðum, enda verði efnin sjálf ekki við þá blöndun hæfari til notkunar í sérstöku skyni en hinna almennu nota.


2.   [Auk díþíoníta og súlfoxýlata, sem haldið er í óbreyttu ástandi með lífrænum efnum (nr. 2831), karbónata og peroxókarbónata ólífrænna basa (nr. 2836), cyaníða, cyaníðoxíða og komplexra cyaníða ólífrænna basa (nr. 2837), fúlmínata, cyanata og þíócyanata ólífrænna basa (nr. 2842), lífrænna efna sem teljast til nr. 2843-2846 og 2852 og karbíða (nr. 2849), flokkast einungis eftirtalin kolefnasambönd til þessa kafla:]2

a. Oxíð kolefnis, blásýra og fúlmín-, ísócyan-, þíócyan- og aðrar einfaldar eða komplexar cyanósýrur (nr. 2811).
b. Haloxíð kolefnis (nr. 2812).
c. Dísúlfíð kolefnis (nr. 2813).
d. Þíókarbónöt, selenókarbónöt, tellúrókarbónöt, selenócyanöt, tellúrócyanöt, tetraþíó­cyanató­díammínókrómöt (reinecköt) og önnur komplex cyanöt ólífrænna basa (nr. 2842).
e. Vatnsefnisperoxíð fastmyndað með þvagefni (nr. 2847), kolefnisoxysúlfíð, þíókar­bónylhalíð, cyanógen, cyanógenhalíð og cyanamíð og málmafleiður þeirra (nr. [2853])3 önnur en kalsíumcyanamíð, einnig hrein (31. kafli).


3.   Leiði ekki annað af ákvæðum 1. athugasemdar við flokk VI telst ekki til þessa kafla:

a. Natríumklóríð eða magnesíumoxíð, einnig hrein, eða aðrar vörur í flokki V.
b. Lífræn-ólífræn sambönd, önnur en þau sem talin eru í 2. athugasemd hér að framan.
c. Vörur sem nefndar eru í 2., 3., 4. eða 5. athugasemd við 31. kafla.
[d. Ólífræn efni notuð sem ljóm (luminophores) sem teljast til nr. 3206, glerfrit og annað gler, sem duft, korn eða flögur sem telst til nr. 3207.]1
e. Gervigrafít (nr. 3801); efni umbúin sem hleðslur fyrir slökkvitæki eða sem slökkvihylki í nr. 3813; blekeyðandi efni í smásöluumbúðum í nr. 3824; ræktaðir kristallar (þó ekki optískar vörur) úr halíðum alkalí- eða jarðalkalímálma, 2,5 g að þyngd eða meira hver einstakur kristall, í nr. 3824.
f. Eðalsteinar eða hálfeðalsteinar (náttúrlegir, syntetískir eða endurgerðir) eða dust eða duft slíkra steina (nr. 7102-7105) eða góðmálmar eða góðmálmsblendi í 71. kafla.
g. Málmar, einnig hreinir, málmblendi eða keramíkmelmi, þar með talið glæddir málmkarbíðar (málmkarbíðar glæddir með málmi) í flokki XV.
h. Optískar vörur, t.d. úr halíðum alkalí- eða jarðalkalímálma (nr. 9001).


4.   Kemískt skýrgreindar komplexar sýrur myndaðar úr sýru málmleysingja í undirkafla II og málmsýru úr undirkafla IV skulu flokkaðar í nr. 2811.


5.   Til nr. 2826 til 2842 teljast einungis sölt eða peroxysölt málma eða ammóníums.      Leiði ekki annað af orðalagi flokkast tvöföld eða komplex sölt í nr. 2842.


6.   Til nr. 2844 telst einungis:

a. Teknitín (sætistala 43), prómeþín (sætistala 61), pólon (sætistala 84) og öll frumefni sem hafa hærri sætistölu en 84.
b. Náttúrlegar eða efnasmíðaðar geislavirkar samsætur (þar með taldar samsætur góðmálma eða ódýrra málma í flokki XIV og XV), einnig blandaðar.
c. Ólífræn eða lífræn sambönd þessara frumefna eða samsætna, einnig kemískt skýrgreind eða blönduð.
d. Blendi, dreifur (dispersions) (þar með talið keramíkmelmi (cermet)), leirvörur og blönd­ur sem í eru þessi frumefni eða samsætur eða ólífræn eða lífræn sambönd þeirra með tiltekna geislavirkni sem er meiri en 74 Bq/g (0,002 µCi/g).
e. Notaðir (geislaðir) orkugjafar (hleðslur) úr kjarnakljúfum.
f. Geislavirkar leifar, einnig nothæfar.

Sem samsætur í þessari athugasemd og í texta við nr. 2844 og 2845 teljast:

- Einstakir atómkjarnar, þó ekki þeir sem finnast í náttúrunni sem mono-samsætur.- Blöndur samsætna úr einu og sama frumefninu, að viðbættri einni eða nokkrum nefndra samsætna, þ.e. frumefni þar sem hinni náttúrlegu samsætusamsetningu hefur verið breytt með efnasmíði.
7.   [Til nr. 2853 telst koparfosfíð (fosfórkopar) sem inniheldur meira en 15% af fosfór miðað við þyngd.]5

8.   Kemísk frumefni (t.d. kísill og selen) efnabætt til nota í rafeindatækni teljast til þessa kafla ef þau eru í óunnu formi sem dregin, eða formuð sem hólkar eða stengur. Formuð sem skífur, þynnur og í áþekka lögun teljast þau til nr. 3818

[Athugasemd við undirliði:

Sem kemískt skilgreint í undirlið 2853.10 er átt við öll lífræn og ólífræn sambönd kvikasilfurs er fullnægja skilyrðum a- til e-liðar 1. athugasemdar 28. kafla eða a- til h-liðar 1. athugasemdar við 29. kafla.]4

1 Sbr. a-lið 19. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001). 
2 Sbr. a-lið 25. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).
3 Sbr. b-lið 25. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).
4 Sbr. a-lið 21. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 154/2011 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 15. desember 2011).
5 Sbr. c-lið 14. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármálaráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2017.

I Kemísk frumefni
2801
Flúor, klór, bróm og joð:

Hleður tollskrárnúmerum...

2802
Brennisteinn, þurreimdur eða útfelldur; hlaupkenndur brennisteinn

Hleður tollskrárnúmerum...

2803
Kolefni einnig kolefnissverta og aðrar gerðir kolefnis, ót.a.

Hleður tollskrárnúmerum...

2804
Vatnsefni, eðalgös og aðrir málmleysingjar:

Hleður tollskrárnúmerum...

2805
Alkalí- eða jarðalkalímálmar; sjaldgæfir jarðmálmar, skandín og yttrín, einnig innbyrðis blöndur þeirra eða málmblendi; kvikasilfur:

Hleður tollskrárnúmerum...

II Ólífrænar sýrur og ólífræn súrefnissambönd málmleysingja
2806
Vatnsefnisklóríð (saltsýra); klórsúlforsýra:

Hleður tollskrárnúmerum...

2807
Brennisteinssýra; oleum

Hleður tollskrárnúmerum...

2808
Saltpéturssýra; brennisteinssaltpéturssýra

Hleður tollskrárnúmerum...

2809
Dífosfórpentaoxíð; fosfórsýra; fjölfosfórsýrur, einnig kemískt skýrgreindar:
Athugasemdir
Sbr. c-lið 19. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

2810
Bóroxíð; bórsýra

Hleður tollskrárnúmerum...

2811
Aðrar ólífrænar sýrur og önnur ólífræn súrefnissambönd málmleysingja:

Hleður tollskrárnúmerum...

III Halógen eða brennisteinssambönd málmleysingja
2812
Halíð og haloxíð málmleysingja:

Hleður tollskrárnúmerum...

2813
Súlfíð málmleysingja; fosfórtrísúlfíð sem verslunarvara:

Hleður tollskrárnúmerum...

IV Ólífrænir basar og oxíð, hydroxíð og peroxíð málma
2814
Ammoníak, vatnsfrítt eða í vatnslausn:

Hleður tollskrárnúmerum...

2815
Natríumhydroxíð (vítissóti); kalíumhydroxíð (caustic potash); peroxíð natríns eða kalíns:

Hleður tollskrárnúmerum...

2816
Hydroxíð og peroxíð magnesíns; oxíð, eða hydroxíð og peroxíð strontíns eða baríns:

Hleður tollskrárnúmerum...

2817
Sinkoxíð; sinkperoxíð

Hleður tollskrárnúmerum...

2818
Gervikórúnd, einnig kemískt skýrgreindur; áloxíð; álhydroxíð:

Hleður tollskrárnúmerum...

2819
Krómoxíð og krómhydroxíð:

Hleður tollskrárnúmerum...

2820
Manganoxíð:

Hleður tollskrárnúmerum...

2821
Járnoxíð og hydroxíð; leirlitir sem innihalda 70% eða meira miðað við þyngd, af járnsamböndum, reiknað sem Fe2O3:

Hleður tollskrárnúmerum...

2822
Kóbaltoxíð og kóbalthydroxíð; kóbaltoxíð sem verslunarvara

Hleður tollskrárnúmerum...

2823
Títanoxíð

Hleður tollskrárnúmerum...

2824
Blýoxíð; blýmenja og gul menja:

Hleður tollskrárnúmerum...

2825
Hydrasín og hydroxylamín og ólífræn sölt þeirra; aðrir ólífrænir basar, önnur málmoxíð, hydroxíð og peroxíð:

Hleður tollskrárnúmerum...

V Sölt og peroxysölt ólífrænna sýrna og málma
2826
Flúoríð; flúorsíliköt, flúorálöt og önnur komplex flúorsölt:

Hleður tollskrárnúmerum...

2827
Klóríð, klóroxíð og klórhydroxíð; brómíð og brómoxíð; joðíð og joðoxíð:
Athugasemdir
Tollskrárnúmer 2827.3800 fellur brott, sbr. e-lið 19. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

2828
Hypóklórít; kalsíumhypóklórít sem verslunarvara; klórít; hypóbrómít:

Hleður tollskrárnúmerum...

2829
Klóröt og perklóröt; brómöt og perbrómöt; joðöt og perjoðöt:

Hleður tollskrárnúmerum...

2830
Súlfíð; pólýsúlfíð, einnig kemískt skýrgreind:
Athugasemdir
Sbr. f-lið 19. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

2831
Díþíonít og súlfoxylöt:

Hleður tollskrárnúmerum...

2832
Súlfít; þíósúlföt:

Hleður tollskrárnúmerum...

2833
Súlföt; álún; peroxósúlföt (persúlföt):

Hleður tollskrárnúmerum...

2834
Nítrít; nítröt:
Athugasemdir
Tollskrárnúmer 2834.2200 fellur brott, sbr. g-lið 19. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

2835
Fosfínöt (hypófosfít), fosfónöt (fosfít) og fosföt; fjölfosföt, einnig kemískt skýrgreind:
Athugasemdir
Sbr. h-lið 19. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

2836
Karbónöt; peroxókarbónöt (perkarbónöt); ammóníum karbónat sem verslunarvara sem einnig inniheldur ammóníum karbamat:

Hleður tollskrárnúmerum...

2837
Cyaníð, cyaníðoxíð og komplex cyaníð:

Hleður tollskrárnúmerum...

2839
Silíköt; alkalímálmsilíköt sem verslunarvara:

Hleður tollskrárnúmerum...

2840
Bóröt; peroxóbóröt (perbóröt):

Hleður tollskrárnúmerum...

2841
Sölt oxómálmsýrna eða peroxómálmsýrna:
Athugasemdir
Tollskrárnúmer 2840.4000 fellur brott, sbr. j-lið 19. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

2842
Önnur sölt ólífrænna sýrna eða peroxósýrna (þar með talin álsilíköt, einnig kemískt skýrgreind), þó ekki asíð:
Athugasemdir
Sbr. k-lið 19. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

VI Ýmislegt
2843
Hlaupkenndir góðmálmar; ólífræn eða lífræn sambönd góðmálma, einnig kemískt skýrgreind; amalgöm góðmálma:

Hleður tollskrárnúmerum...

2844
Geislavirk frumefni og geislavirkar samsætur (þar með talið kleyf eða auðganleg kemísk frumefni og samsætur) og sambönd þeirra; blöndur og leifar sem innihalda þessi efni:

Hleður tollskrárnúmerum...

2845
Samsætur sem ekki teljast til nr. 2844, lífræn og ólífræn sambönd slíkra samsætna, einnig kemískt skýrgreind:

Hleður tollskrárnúmerum...

2846
Ólífræn eða lífræn sambönd sjaldgæfra jarðmálma, yttríns eða skandíns, eða blandna þeirra:

Hleður tollskrárnúmerum...

2847
Vatnsefnisperoxíð, einnig bundið þvagefni

Hleður tollskrárnúmerum...

2849
Karbíð, einnig kemískt skýrgreind:

Hleður tollskrárnúmerum...

2850
Hydríð, nítríð, asíð, silísíð og bóríð, einnig kemískt skýrgreind, þó ekki sambönd sem einnig eru karbíð í nr. 2849

Hleður tollskrárnúmerum...

2852
Ólífræn eða lífræn sambönd kvikasilfurs einnig kemískt skýrgreind, þó ekki amalgöm:
Athugasemdir
Sbr. b-lið 21. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármálaráðuneytisins dags. 15.desember 2011, gildistökudagur 1. janúar 2012.

Hleður tollskrárnúmerum...

2853
Fosfíð, einnig kemískt skýrgreint, þó ekki járnfosfór önnur ólífræn sambönd (þar með talið eimað vatn, vatn til mælinga á rafmagnsmótstöðu og vatn af áþekkum hreinleika); fljótandi andrúmsloft (einnig sneytt eðalgösum); samanþjappað andrúmsloft; amalgöm, þó ekki amalgöm góðmálma:
Athugasemdir
Sbr. e-lið 14. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármálaráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2017.

Hleður tollskrárnúmerum...