Flokkur 06 Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar

Kafli 37 Ljósmynda- eða kvikmyndavörur

Athugasemdir flokks

FLOKKUR VI
Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar

 

Athugasemdir:

1.      A.     Vörur (aðrar en geislavirkt málmgrýti) sem svara til vörulýsingar í nr. 2844 eða 2845 skulu flokkast undantekningalaust í þessa vöruliði.

          B.     Leiði ekki annað af A-lið hér að ofan skulu vörur sem svara til vörulýsingar í nr. 2843, 2846 eða 2852 flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.

2.      Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér að ofan skulu vörur sem flokkast geta í nr. 3004-3006, 3212, 3303-3307, 3506, 3707 eða 3808, vegna þess að þær eru í afmældum skömmt­um eða til smásölu, flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.

3.      Vörusamstæður (sett) úr tveimur eða fleiri aðskildum efnisþáttum sem sumir eða allir telj­ast til þessa flokks og ætlast er til að blandað sé saman svo að úr verði framleiðsluvara sem telst til flokks VI eða VII skulu flokkast í þann vörulið sem sú vara fellur undir, enda upp­fylli efnisþættirnir eftirtalin skilyrði:

a.      Augljóst sé af frágangi þeirra að nota eigi þá saman án undanfarandi endurpökkunar.

b.      Þeim sé framvísað saman.

c.      Ljóst sé að þeir eigi fyllilega saman, annað hvort vegna eðlis þeirra eða magnhlutfalls þeirra innbyrðis.

[4.      Svari vara til lýsingar eins eða fleiri vöruliða í flokki VI, vegna þess að henni sé lýst með nafni eða virkni, og einnig í nr. 3827, flokkast varan undir þann vörulið sem höfðar til heitis vörunnar eða virkni en ekki undir nr. 3827.][1]



[1] Sbr. 21. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Athugasemdir kafla

37. KAFLI
Ljósmynda- eða kvikmyndavörur

 

Athugasemdir:

1.      Til þessa kafla telst ekki úrgangur eða rusl.

[2.      Í þessum kafla tekur hugtakið ljósmynda- til aðferðar beint eða óbeint fyrir áhrif ljóss eða annarrar geislunar á ljósnæmt, einnig hitanæmt, yfirborð.][1]


[1] Sbr. 28. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

3701
Ljósnæmar plötur og filmur, flatar, ólýstar, úr hvers konar efni öðru en pappír, pappa eða spunaefni; filmur til skyndiframköllunar, flatar, ljósnæmar, ólýstar, einnig samlokur (packs):

Hleður tollskrárnúmerum...

3702
Ljósnæmar filmur í rúllum, ólýstar, úr hvers konar efni öðru en pappír, pappa eða spunaefni; filmur til skyndiframköllunar, í rúllum, ljósnæmar, ólýstar:

Hleður tollskrárnúmerum...

3703
Ljósmyndapappír, -pappi og -spunaefni, ljósnæmt, ólýst:

Hleður tollskrárnúmerum...

3704
Ljósmyndaplötur, -filmur, -pappír, -pappi og -spuna-efni, lýst en ekki framkallað:

Hleður tollskrárnúmerum...

3705
Ljósmyndaplötur og -filmur, lýstar og framkallaðar, þó ekki kvikmyndafilmur:

Hleður tollskrárnúmerum...

3706
Kvikmyndafilmur, lýstar og framkallaðar, einnig með hljóðrás eða eingöngu sem hljóðrás:

Hleður tollskrárnúmerum...

3707
Kemísk framleiðsla til ljósmyndunar (þó ekki lökk, lím, heftiefni og áþekk framleiðsla); óblandaðar vörur til ljósmyndunar í afmældum skömmtum eða smásöluumbúðum tilbúnar til notkunar:

Hleður tollskrárnúmerum...