Flokkur 06 Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar

Kafli 34 Sápa, lífræn yfirborðsvirk efni, þvottaefni, smurefni, gervivax, unnið vax, fægi- eða ræstiefni, kerti og áþekkar vörur, mótunarefni, tannvax og tannlækningavörur að meginstofni úr gipsefnum

Athugasemdir flokks

FLOKKUR VI
Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar

 

Athugasemdir:

1.      A.     Vörur (aðrar en geislavirkt málmgrýti) sem svara til vörulýsingar í nr. 2844 eða 2845 skulu flokkast undantekningalaust í þessa vöruliði.

          B.     Leiði ekki annað af A-lið hér að ofan skulu vörur sem svara til vörulýsingar í nr. 2843, 2846 eða 2852 flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.

2.      Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér að ofan skulu vörur sem flokkast geta í nr. 3004-3006, 3212, 3303-3307, 3506, 3707 eða 3808, vegna þess að þær eru í afmældum skömmt­um eða til smásölu, flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.

3.      Vörusamstæður (sett) úr tveimur eða fleiri aðskildum efnisþáttum sem sumir eða allir telj­ast til þessa flokks og ætlast er til að blandað sé saman svo að úr verði framleiðsluvara sem telst til flokks VI eða VII skulu flokkast í þann vörulið sem sú vara fellur undir, enda upp­fylli efnisþættirnir eftirtalin skilyrði:

a.      Augljóst sé af frágangi þeirra að nota eigi þá saman án undanfarandi endurpökkunar.

b.      Þeim sé framvísað saman.

c.      Ljóst sé að þeir eigi fyllilega saman, annað hvort vegna eðlis þeirra eða magnhlutfalls þeirra innbyrðis.

[4.      Svari vara til lýsingar eins eða fleiri vöruliða í flokki VI, vegna þess að henni sé lýst með nafni eða virkni, og einnig í nr. 3827, flokkast varan undir þann vörulið sem höfðar til heitis vörunnar eða virkni en ekki undir nr. 3827.][1]



[1] Sbr. 21. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Athugasemdir kafla

34. KAFLI
Sápa, lífræn yfirborðsvirk efni, þvottaefni, smurefni, gervivax, unnið
vax, fægi- eða ræstiefni, kerti og áþekkar vörur, mótunarefni,
tannvax og tannlækningavörur að meginstofni
úr gipsefnum

 

Athugasemdir:

1.      Til þessa kafla telst ekki:

[a.      Ætar blöndur eða framleiðsla úr dýra-, jurta- eða örverufeiti og -olíum til nota sem losunarefni fyrir mót (nr. 1517).][1]

b.      Aðgreind kemískt skýrgreind sambönd.

c.      Hárþvottalögur, tannsnyrtiefni, rakkrem og rakfroða, eða baðvörur, sem innihalda sápu eða önnur lífræn yfirborðsvirk efni (nr. 3305, 3306 eða 3307).

2.      Sem sápa í 3401 telst einungis sápa sem leysist upp í vatni. Sápa og aðrar vörur í nr. 3401 geta verið blandaðar öðrum efnum (t.d. sótthreinsandi efnum, slípiefnum, fylliefnum eða lyfjum). Vörur sem innihalda slípiefni flokkast aðeins til nr. 3401 ef þær eru í stöngum, kökum eða mótuðum stykkjum eða myndum. Í öðru formi flokkast þær í nr. 3405 sem ræstiduft og áþekk framleiðsla.

3.      Sem lífræn yfirborðsvirk efni í nr. 3402 teljast vörur sem, blandaðar vatni við 0,5% þétt­ingu við 20 °C og látnar standa við sama hitastig í eina klukkustund:

a.      mynda gagnsæja eða hálfglæra vökva- eða óhvarfgjarna þeytu án þess að óuppleysanleg efni skilji sig,

b.      minnka yfirborðsspennu vatns í 4,5x10-2N/m (45 dyne/cm) eða minna.

4.      Sem jarðolíur eða olíur fengnar úr tjörukenndum steinefnum í nr. 3403 teljast vörur þær sem skýrgreindar eru í 2. athugasemd við 27. kafla.

5.      Sem gervivax og unnið vax í nr. 3404 telst aðeins, með þeim undantekningum sem að neðan greinir:

a.      Kemískt framleidd vaxkennd lífræn efni, einnig uppleysanleg í vatni.

b.      Vörur fengnar með blöndun mismunandi vaxtegunda.

c.      Vaxkenndar vörur sem að meginstofni eru gerðar úr einni eða fleiri vaxtegundum og innihalda feiti, resín, steinefni eða önnur efni.

Til þessa vöruliðar telst ekki:

a.      Vörur í nr. 1516, 3402 eða 3823 þótt þær séu vaxkenndar.

b.      Óblandað vax úr dýra- eða jurtaríkinu, einnig hreinsað eða litað, í nr. 1521.

c.      Steinefnavax eða áþekk framleiðsla í nr. 2712, einnig blandað innbyrðis eða aðeins lit­að.

d.            Vax, blandað með, dreift í eða uppleyst í vökva (nr. 3405, 3809 o.s.frv.).



[1] Sbr. 26. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

3401
Sápa; lífrænar yfirborðsvirkar vörur og framleiðsla til notkunar sem sápa, í stöngum, kökum, mótuðum stykkjum eða myndum, einnig með sápuinnihaldi; lífrænar yfirborðsvirkar vörur og framleiðsla til húðþvottar, í fljótandi formi eða sem krem og umbúið til smásölu, einnig með sápuinnihaldi; pappír, vatt, flóki og vefleysur, gegndreypt, húðað eða hjúpað sápu eða hreinsiefni:
Athugasemdir
Sbr. a-lið 22. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

3402
Lífræn yfirborðsvirk efni (önnur en sápa); yfirborðsvirk framleiðsla, þvottaefni (þar með talin hjálparefni til þvotta) og hreinsiefni, einnig með sápuinnihaldi, annað en í nr. 3401:

Hleður tollskrárnúmerum...

3403
Smurefni (þar með talin skurðarolíuefni, leysiefni fyrir bolta og rær, ryðvarnar- eða tæringarvarnarefni og mótaleysiefni að meginstofni úr smurefnum) og framleiðsla notuð við olíu- og fitumeðferð spunaefna, leðurs, loðskinna eða annarra efna, þó ekki framleiðsla sem inniheldur sem meginefni 70% eða meira miðað við þyngd af jarðolíum eða olíum fengnum úr tjörukenndum steinefnum:

Hleður tollskrárnúmerum...

3404
Gervivax og unnið vax:

Hleður tollskrárnúmerum...

3405
Fægiefni og áburður fyrir skófatnað, húsgögn, gólf, vagna, gler eða málm, ræstideig og -duft og áþekk framleiðsla (einnig í formi pappírs, vatts, flóka, vefleysu, gropplasts eða gropgúmmís, gegndreypt, húðað eða hjúpað þess háttar framleiðslu), þó ekki vax í nr. 3404:

Hleður tollskrárnúmerum...

3406
Kerti, kertakveikjur (taper) og þess háttar:

Hleður tollskrárnúmerum...

3407
Mótunarefni, þar með talin mótunarefni fyrir börn til dægradvalar; framleiðsla sem nefnd er tannvax (dental vax) eða tannmátefni (dental impression compounds), í vörusamstæðum, í smásöluumbúðum eða í plötum, skeifulaga, staflaga eða í áþekkri mynd; önnur framleiðsla til nota við tannlækningar, að meginstofni úr gipsefnum (úr brenndu gipsi eða kalsíumsúlfati):

Hleður tollskrárnúmerum...