Kafli 30 Vörur til lækninga
Athugasemdir flokks
FLOKKUR VI
Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar
Athugasemdir:
1. A. Vörur (aðrar en geislavirkt málmgrýti) sem svara til vörulýsingar í nr. 2844 eða 2845 skulu flokkast undantekningalaust í þessa vöruliði.
B. Leiði ekki annað af A-lið hér að ofan skulu vörur sem svara til vörulýsingar í nr. 2843, 2846 eða 2852 flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.
2. Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér að ofan skulu vörur sem flokkast geta í nr. 3004-3006, 3212, 3303-3307, 3506, 3707 eða 3808, vegna þess að þær eru í afmældum skömmtum eða til smásölu, flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.
3. Vörusamstæður (sett) úr tveimur eða fleiri aðskildum efnisþáttum sem sumir eða allir teljast til þessa flokks og ætlast er til að blandað sé saman svo að úr verði framleiðsluvara sem telst til flokks VI eða VII skulu flokkast í þann vörulið sem sú vara fellur undir, enda uppfylli efnisþættirnir eftirtalin skilyrði:
a. Augljóst sé af frágangi þeirra að nota eigi þá saman án undanfarandi endurpökkunar.
b. Þeim sé framvísað saman.
c. Ljóst sé að þeir eigi fyllilega saman, annað hvort vegna eðlis þeirra eða magnhlutfalls þeirra innbyrðis.
[4. Svari vara til lýsingar eins eða fleiri vöruliða í flokki VI, vegna þess að henni sé lýst með nafni eða virkni, og einnig í nr. 3827, flokkast varan undir þann vörulið sem höfðar til heitis vörunnar eða virkni en ekki undir nr. 3827.][1]
[1] Sbr. 21. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
Athugasemdir kafla
30. KAFLI
Vörur til lækninga
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
a. Matvæli eða drykkjarvörur (eins og sjúkra-, sykursjúklinga- eða vítamínstyrkt matvæli, bætiefni, styrkjandi drykkjarvörur og ölkelduvatn), þó ekki framleiðsla til næringargjafar í æð (flokkur IV).
[b. Framleiðsla eins og töflur, tyggigúmmí eða plástrar (fyrir gegnflæði um húð), sem inniheldur nikótín og ætlað er til að aðstoða við að hætta tóbaksnotkun (vöruliður 2404.][1]
c. Gipsefni sérstaklega brennd eða fínmulin til nota við tannlækningar (nr. 2520).
d. Vatnskennt eimi eða vatnsupplausnir úr rokgjörnum olíum (nr. 3301), hæft til lækninga.
e. Framleiðsla í nr. 3303-3307, þótt hún hafi eiginleika til lækninga eða varnar gegn sjúkdómum.
f. Sápa eða aðrar vörur í nr. 3401 með viðbættum lyfjum.
g. Framleiðsla að stofni til úr gipsefnum til nota við tannlækningar (nr. 3407).
h. Blóðalbúmín ekki unnið til nota við lækningar eða til varnar sjúkdómum.
[ij. Prófefni í vörulið 3822.][2]
2. Sem ónæmisfræðilegar vörur í nr. 3002 teljast peptíð og próteín (aðrar en vörur í vörulið 2937) sem hafa bein áhrif á stjórnun ónæmisfræðilegra ferla svo sem einstofna mótefni (MABs), mótefnahlutar, mótefnaviðtengi (antibody conjugates) og mótefnahlutaviðtengi (antibody fragment conjugates), hvítfrumuboðar (interleukins), veiruvarnarboðar (interferons) (IFN), kemókíns (chemokines) og tilteknir æxlisdrepandi þættir (tumor necrosis factors) (TNF), vaxtaþættir (GF), blóðmyndunarþættir (hematopoietins) og þættir sem örva frumuskiptingu (CSF).
3. Varðandi nr. 3003 og 3004 og d-lið 4. athugasemdar þessa kafla telst eftirfarandi:
A. Sem óblönduð framleiðsla:
1. Óblönduð framleiðsla leyst upp í vatni.
2. Allar vörur sem teljast til 28. eða 29. kafla.
3. Einfaldir plöntukjarnar sem teljast til nr. 1302, einungis staðlaðir eða uppleystir með einhverju upplausnarefni.
B. Sem blönduð framleiðsla:
1. Hlaupkenndar upplausnir og jafndreifur (suspensions) (þó ekki hlaupkenndur brennisteinn).
2. Jurtakjarnar fengnir við vinnslu á efnablöndum úr jurtaríkinu.
3. Sölt og kirni fengið með þurrkun náttúrlegs ölkelduvatns.
4. Til nr. 3006 telst einungis eftirtalið sem flokka skal undantekningarlaust í þann vörulið tollskrárinnar:
a. Dauðhreinsað girni til skurðlækninga, áþekkt dauðhreinsað seymi (þar með talið dauðhreinsað upptækt (absorbable) girni til skurð- eða tannlækninga) og dauðhreinsað vefjalím til skurðlækninga.
b. Dauðhreinsað laminaria og dauðhreinsað laminariastifti.
c. Dauðhreinsuð upptæk (absorbable) skurð- eða tannlækningaefni til að stöðva blæðingar; dauðhreinsuð límhefti til skurð- eða tannlækninga, einnig upptæk.
d. Efni til skyggingar við röntgenrannsóknir og prófefni til læknisskoðunar sem gefin eru sjúklingum, enda sé um að ræða óblönduð efni í mældum skömmtum eða vörur úr tveim eða fleiri efnisþáttum sem blandað hefur verið saman til slíkra nota.
[e. Lyfleysa og búnaður til nota við viðurkennd klínisk blindpróf (eða tvöföld blindpróf), í mældum skömmtum, jafnvel þótt þau gætu innihaldið virk lyf.][3]
f. Tannsement og annað tannfyllingarefni; beinmyndunarsement.
g. Sjúkrakassar og -töskur til skyndihjálpar.
h. Kemísk getnaðarvarnarefni að stofni til úr hormón, öðrum vörum í nr. 2937 eða sæðiseyði.
ij. Hlaupkennd vara til nota í lyf manna eða dýra sem smurefni fyrir líkamshluta við uppskurði eða við líkamsskoðanir eða sem tengslaefni milli líkama og lækningatækis.
k. Úrgangur lækningavara, þ.e. vörur til lækninga sem ekki eru hæfar til þeirra nota sem þeim var ætlað í upphafi, t.d. vegna þess að þær eru útrunnar.
l. Búnaður augsýnilega til raufunarumhirðu (ostomy use), þ.e. tilsniðnir pokar fyrir ristil-, dausgarnar- og þvagrásarraufun og límborðar eða límfletir þeirra.
[Athugasemdir við undirliði:
1. Varðandi undirliði 3002.13 og 3002.14 telst eftirfarandi:
a. Sem óblönduð framleiðsla, hreinar vörur, einnig með óhreinindum;
b. Sem blönduð framleiðsla:
1. Framleiðsla sem um ræðir í a-lið leyst upp í vatni eða öðru upplausnarefni.
2. Framleiðsla sem um ræðir í a- og b-lið sem blönduð hafa verið bindiefni til að halda þeim í óbreyttu ástandi í geymslu eða flutningi.
3. Framleiðsla sem um ræðir í a-lið og 1. og 2. tölul. b-liðar með hvers konar öðrum íblöndunarefnum.
2. Undirliðir 3003.60 og 3004.60 taka til lyfja sem innihalda artemísínín (artemisinin) (INN) í sambandi við önnur virk efni í lyfjum til inntöku, eða sem innihalda eitthvert eftirtaldinna virkra efnisþátta, einnig í sambandi við önnur virk efni í lyfjum: amódíakín (amodiaquine) (INN); artelínsýru (artelinic acid) eða sölt þess; artenímól (artenimol) (INN); artemótíl (artemotil) (INN); artemeter (artemether) (INN); artesúnat (artesunate) (INN); klórókín (chloroquine) (INN); díhýdróartemísínín (dihydroartemisinin) (INN); lúmefantrín (lumefantrine) (INN); meflókín (mefloquine) (INN); píperakín (piperaquine) (INN); pýrímetamín (pyrimethamine) (INN) eða súlfadoxín (sulfadoxine) (INN).][4]
[1] Sbr. 24. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[2] Sbr. 24. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[3] Sbr. 24. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[4] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
3001
Kirtlar og önnur líffæri til lækninga, þurrkað, einnig í duftformi; kjarnar til lækninga, úr kirtlum eða öðrum líffærum eða úr seyti þeirra; heparín og sölt þess; önnur efni úr mönnum eða dýrum framleidd til lækninga eða varnar gegn sjúkdómum, ót.a.:
Hleður tollskrárnúmerum...
3002
Mannsblóð; dýrablóð framleitt til lækninga, varnar gegn sjúkdómum eða sjúkdómsgreiningar; mótsermi, aðrir blóðþættir og ónæmisfræðilegar vörur, einnig breyttar eða fengnar með líftæknifræðilegum aðferðum; bóluefni, toxín, ræktaðar örverur (þó ekki ger) og áþekkar vörur; frumurækt, einnig umbreytt:
Hleður tollskrárnúmerum...
3003
Lyf (þó ekki vörur í nr. 3002, 3005 eða 3006) gerð úr tveimur eða fleiri efnisþáttum sem blandað hefur verið saman til lækninga eða varnar gegn sjúkdómum, ekki í afmældum skömmtum, formuð eða í umbúðum til smásölu:
Hleður tollskrárnúmerum...
3004
Lyf (þó ekki vörur í nr. 3002, 3005 eða 3006) gerð úr blönduðum eða óblönduðum vörum til lækninga eða varnar gegn sjúkdómum, í afmældum skömmtum (þar með talið í formi fyrir gegnflæði um húð), formuð eða í umbúðum til smásölu:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
3005
Vatt, grisjur, bindi og áþekkar vörur (t.d. sáraumbúðir, heftiplástur og bakstrar), gegndreyptar eða húðaðar með efnum til lækninga eða í smásöluumbúðum til lyf-, skurð-, tann- eða dýralækninga:
Hleður tollskrárnúmerum...
3006
Vörur til lækninga sem tilgreindar eru í 4. athugasemd við þennan kafla:
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir