Kafli 33 Rokgjarnar olíur og resinóíð; ilmvörur, snyrtivörur eða hreinlætisvörur
Athugasemdir flokks
FLOKKUR VI
Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar
Athugasemdir:
1. A. Vörur (aðrar en geislavirkt málmgrýti) sem svara til vörulýsingar í nr. 2844 eða 2845 skulu flokkast undantekningalaust í þessa vöruliði.
B. Leiði ekki annað af A-lið hér að ofan skulu vörur sem svara til vörulýsingar í nr. 2843, 2846 eða 2852 flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.
2. Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér að ofan skulu vörur sem flokkast geta í nr. 3004-3006, 3212, 3303-3307, 3506, 3707 eða 3808, vegna þess að þær eru í afmældum skömmtum eða til smásölu, flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.
3. Vörusamstæður (sett) úr tveimur eða fleiri aðskildum efnisþáttum sem sumir eða allir teljast til þessa flokks og ætlast er til að blandað sé saman svo að úr verði framleiðsluvara sem telst til flokks VI eða VII skulu flokkast í þann vörulið sem sú vara fellur undir, enda uppfylli efnisþættirnir eftirtalin skilyrði:
a. Augljóst sé af frágangi þeirra að nota eigi þá saman án undanfarandi endurpökkunar.
b. Þeim sé framvísað saman.
c. Ljóst sé að þeir eigi fyllilega saman, annað hvort vegna eðlis þeirra eða magnhlutfalls þeirra innbyrðis.
[4. Svari vara til lýsingar eins eða fleiri vöruliða í flokki VI, vegna þess að henni sé lýst með nafni eða virkni, og einnig í nr. 3827, flokkast varan undir þann vörulið sem höfðar til heitis vörunnar eða virkni en ekki undir nr. 3827.][1]
[1] Sbr. 21. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
Athugasemdir kafla
Rokgjarnar olíur og resinóíð; ilmvörur, snyrtivörur eða
hreinlætisvörur
| a. | Náttúrleg oleóresín eða jurtakjarnar í nr. 1301 eða 1302. |
| b. | Sápa eða aðrar vörur í nr. 3401. |
| c. | Gúmkvoðu-, viðar- eða súlfatterpentína eða aðrar vörur í nr. 3805. |
2. Sem ilmandi efni í nr. 3302 teljast einungis efni í nr. 3301, ilmandi efnisþættir aðgreindir frá þessum efnum eða syntetísk ilmefni.
3. Til nr. 3303-3307 telst m.a. framleiðsla sem nothæf er sem vörur í þessum vöruliðum og eru í umbúðum til smásölu til þeirra nota, einnig blandaðar (þó ekki vatnskennt eimi og vatnsupplausnir úr rokgjörnum olíum).
4. Sem ilm-, snyrti- eða hreinlætisvörur í nr. 3307 teljast m.a. eftirtaldar vörur: Ilmpokar; ilmvörur sem virka við bruna; ilmpappír og pappír gegndreyptur eða húðaður með snyrtivörum; lausnir fyrir snertilinsur eða gerviaugu; vatt, flóki og vefleysur, gegndreypt, húðað eða hjúpað ilm- eða snyrtivörum; hreinlætisvörur fyrir dýr.
3301
Rokgjarnar olíur (einnig terpensnauðar), einnig fastar eða fljótandi; resinóíð; úrdregin oleóresín; kjarnar úr rokgjörnum olíum í feiti, órokgjörnum olíum eða vaxi eða þess háttar, fengnir með "enfleurage" eða "maceration"; terpenríkar aukaafurðir frá terpensneyðingu rokgjarnra olía; vatnskennt eimi og vatnsupplausnir úr rokgjörnum olíum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3302
Blöndur af ilmandi efnum og blöndum (þar með taldar alkóhólupplausnir) að meginstofni úr einu eða fleiri þessara efna, til nota sem hráefni til iðnaðar; önnur framleiðsla að stofni til úr ilmandi efnum, til nota við framleiðslu á drykkjarvörum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3303
Ilmvötn og snyrtivötn:
Hleður tollskrárnúmerum...
3304
Fegrunar- eða förðunarvörur og framleiðsla til að vernda húðina (þó ekki lyf), þar með taldar sólvarnar- eða sólbrúnkuvörur; vörur til hand- eða fótsnyrtingar:
Hleður tollskrárnúmerum...
3305
Vörur fyrir hár:
Hleður tollskrárnúmerum...
3306
Vörur til munn- eða tannhirðu, þar með talið deig og duft til að festa gervigóma; garn til nota við hreinsun milli tanna (tannþráður), í aðgreindum smásöluumbúðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3307
Vörur til nota fyrir, við eða eftir rakstur, lyktareyðir fyrir menn, baðvörur, háreyðingarefni og aðrar ilm-, snyrti- eða hreinlætisvörur, ót.a.; lyktareyðir fyrir vistarverur, einnig ilmandi eða sótthreinsandi:
Hleður tollskrárnúmerum...