Flokkur 06 Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar

Kafli 36 Sprengiefni; flugeldavörur; eldspýtur; kveikiblendi; tiltekin eldfim framleiðsla

Athugasemdir flokks

FLOKKUR VI
Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar

 

Athugasemdir:

1.      A.     Vörur (aðrar en geislavirkt málmgrýti) sem svara til vörulýsingar í nr. 2844 eða 2845 skulu flokkast undantekningalaust í þessa vöruliði.

          B.     Leiði ekki annað af A-lið hér að ofan skulu vörur sem svara til vörulýsingar í nr. 2843, 2846 eða 2852 flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.

2.      Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér að ofan skulu vörur sem flokkast geta í nr. 3004-3006, 3212, 3303-3307, 3506, 3707 eða 3808, vegna þess að þær eru í afmældum skömmt­um eða til smásölu, flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.

3.      Vörusamstæður (sett) úr tveimur eða fleiri aðskildum efnisþáttum sem sumir eða allir telj­ast til þessa flokks og ætlast er til að blandað sé saman svo að úr verði framleiðsluvara sem telst til flokks VI eða VII skulu flokkast í þann vörulið sem sú vara fellur undir, enda upp­fylli efnisþættirnir eftirtalin skilyrði:

a.      Augljóst sé af frágangi þeirra að nota eigi þá saman án undanfarandi endurpökkunar.

b.      Þeim sé framvísað saman.

c.      Ljóst sé að þeir eigi fyllilega saman, annað hvort vegna eðlis þeirra eða magnhlutfalls þeirra innbyrðis.

[4.      Svari vara til lýsingar eins eða fleiri vöruliða í flokki VI, vegna þess að henni sé lýst með nafni eða virkni, og einnig í nr. 3827, flokkast varan undir þann vörulið sem höfðar til heitis vörunnar eða virkni en ekki undir nr. 3827.][1]



[1] Sbr. 21. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Athugasemdir kafla

36. KAFLI
Sprengiefni; flugeldavörur; eldspýtur; kveikiblendi; tiltekin eldfim framleiðsla
 

Athugasemdir:

1.   Til þessa kafla teljast ekki aðgreind kemískt skýrgreind sambönd önnur en þau sem lýst er í a- eða b-lið 2. athugasemdar hér að neðan.

2.   Sem vörur úr eldfimum efnum í nr. 3606 telst einungis:

a. Metaldehyð, hexametylentetramín og áþekk efni, mótuð (t.d. töflur, stafir eða áþekk mynd) til nota sem eldsneyti; eldsneyti að meginstofni úr alkóhóli og áþekkt unnið elds­neyti í föstu formi eða sem deig.
b. Fljótandi eldsneyti eða fljótandi gas í umbúðum sem notaðar eru til fyllingar eða endur­fyllingar á vindlinga- eða áþekka kveikjara og ekki taka meira en 300 cm3
c. Bik- og harpixblys, eldkveikjarar og þess háttar.
3601
Púður

Hleður tollskrárnúmerum...

3602
Unnið sprengiefni, þó ekki púður

Hleður tollskrárnúmerum...

3603
Kveikiþráður; sprengiþráður; hvell- eða sprengihettur; kveikibúnaður; rafmagnshvellhettur:
Athugasemdir
Sbr.  27. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

3604
Flugeldar, merkjablys, regnrakettur, þokublys og aðrar flugeldavörur:

Hleður tollskrárnúmerum...

3605
Eldspýtur, þó ekki flugeldavörur í nr. 3604

Hleður tollskrárnúmerum...

3606
Ferró-ceríum og hvers konar kveikiblendi; vörur úr eldfimum efnum sem tilgreindar eru í 2. athugasemd við þennan kafla:

Hleður tollskrárnúmerum...