Kafli 35 Albúmínkennd efni; umbreytt sterkja; lím; ensím
Athugasemdir flokks
FLOKKUR VI
Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar
Athugasemdir:
1. A. Vörur (aðrar en geislavirkt málmgrýti) sem svara til vörulýsingar í nr. 2844 eða 2845 skulu flokkast undantekningalaust í þessa vöruliði.
B. Leiði ekki annað af A-lið hér að ofan skulu vörur sem svara til vörulýsingar í nr. 2843, 2846 eða 2852 flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.
2. Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér að ofan skulu vörur sem flokkast geta í nr. 3004-3006, 3212, 3303-3307, 3506, 3707 eða 3808, vegna þess að þær eru í afmældum skömmtum eða til smásölu, flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.
3. Vörusamstæður (sett) úr tveimur eða fleiri aðskildum efnisþáttum sem sumir eða allir teljast til þessa flokks og ætlast er til að blandað sé saman svo að úr verði framleiðsluvara sem telst til flokks VI eða VII skulu flokkast í þann vörulið sem sú vara fellur undir, enda uppfylli efnisþættirnir eftirtalin skilyrði:
a. Augljóst sé af frágangi þeirra að nota eigi þá saman án undanfarandi endurpökkunar.
b. Þeim sé framvísað saman.
c. Ljóst sé að þeir eigi fyllilega saman, annað hvort vegna eðlis þeirra eða magnhlutfalls þeirra innbyrðis.
[4. Svari vara til lýsingar eins eða fleiri vöruliða í flokki VI, vegna þess að henni sé lýst með nafni eða virkni, og einnig í nr. 3827, flokkast varan undir þann vörulið sem höfðar til heitis vörunnar eða virkni en ekki undir nr. 3827.][1]
[1] Sbr. 21. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
Athugasemdir kafla
35. KAFLI
Albúmínkennd efni; umbreytt sterkja; lím; ensím
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
2. Sem dextrín í nr. 3505 teljast vörur úr sterkjuúrgangi með lækkandi sykurinnihaldi 10% eða minna sem í þurru formi nefnast dextrósi.Slíkar vörur með lækkandi sykurinnihaldi meira en 10% teljast til nr. 1702.
a.
Ger (nr. 2102). b. Blóðefni (þó ekki blóðalbúmín sem ekki hefur verið unnið til nota við lækningar eða varnar gegn sjúkdómum), lyf eða aðrar vörur í 30. kafla. c. Ensímframleiðsla til forsútunar (nr. 3202). d. Ensímframleiðsla til skolunar eða þvotta eða aðrar vörur í 34. kafla. e. Hert próteín (nr. 3913). f. Gelatínvörur frá prentiðnaði (49. kafli).
3501
Kaseín, kaseínöt og aðrar kaseínafleiður; kaseínlím:
Hleður tollskrárnúmerum...
3502
Albúmín, (þar með talið kirni tveggja eða fleiri mysupróteína, sem innihalda miðað við þyngd þurrefnis meira en 80% af mysupróteínum), albúmínöt og aðrar albúmínafleiður:
Hleður tollskrárnúmerum...
3503
Gelatín (þar með talið gelatín í rétthyrndum (þar með talið ferningslaga) þynnum, einnig yfirborðsunnið eða litað) og gelatínafleiður; fiskilím; annað lím úr dýraríkinu, þó ekki kaseínlím í nr. 3501:
Hleður tollskrárnúmerum...
3504
Peptón og afleiður þeirra; önnur próteínefni og afleiður þeirra, ót.a.; duft úr húðum, einnig krómunnið
Hleður tollskrárnúmerum...
3505
Dextrín og önnur umbreytt sterkja (t.d. forgelatíneruð eða esteruð sterkja); lím að meginstofni úr sterkju eða dextríni eða annarri umbreyttri sterkju:
Hleður tollskrárnúmerum...
3506
Unnið lím og önnur heftiefni, ót.a.; vörur nothæfar sem lím eða heftiefni, umbúnar til smásölu sem lím eða heftiefni í 1 kg umbúðum eða minni nettó:
Hleður tollskrárnúmerum...
3507
Ensím; unnin ensím, ót.a.:
Hleður tollskrárnúmerum...