Kafli 38 Ýmsar kemískar vörur
Athugasemdir flokks
FLOKKUR VI
Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar
Athugasemdir:
1. A. Vörur (aðrar en geislavirkt málmgrýti) sem svara til vörulýsingar í nr. 2844 eða 2845 skulu flokkast undantekningalaust í þessa vöruliði.
B. Leiði ekki annað af A-lið hér að ofan skulu vörur sem svara til vörulýsingar í nr. 2843, 2846 eða 2852 flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.
2. Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér að ofan skulu vörur sem flokkast geta í nr. 3004-3006, 3212, 3303-3307, 3506, 3707 eða 3808, vegna þess að þær eru í afmældum skömmtum eða til smásölu, flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.
3. Vörusamstæður (sett) úr tveimur eða fleiri aðskildum efnisþáttum sem sumir eða allir teljast til þessa flokks og ætlast er til að blandað sé saman svo að úr verði framleiðsluvara sem telst til flokks VI eða VII skulu flokkast í þann vörulið sem sú vara fellur undir, enda uppfylli efnisþættirnir eftirtalin skilyrði:
a. Augljóst sé af frágangi þeirra að nota eigi þá saman án undanfarandi endurpökkunar.
b. Þeim sé framvísað saman.
c. Ljóst sé að þeir eigi fyllilega saman, annað hvort vegna eðlis þeirra eða magnhlutfalls þeirra innbyrðis.
[4. Svari vara til lýsingar eins eða fleiri vöruliða í flokki VI, vegna þess að henni sé lýst með nafni eða virkni, og einnig í nr. 3827, flokkast varan undir þann vörulið sem höfðar til heitis vörunnar eða virkni en ekki undir nr. 3827.][1]
[1] Sbr. 21. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
Athugasemdir kafla
38. KAFLI
Ýmsar kemískar vörur
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla teljast ekki:
a. Aðgreind kemískt skýrgreind frumefni eða sambönd með þeim undantekningum er nú greinir:
1. Gervigrafít (nr. 3801).
2. Efni til varnar gegn eða útrýmingar á skordýrum, nagdýrum, sveppum og illgresi, efni til að hindra spírun, efni til að stjórna plöntuvexti, sótthreinsandi efni og áþekkar vörur í því formi sem lýst er í nr. 3808.
3. Efni umbúin sem hleðslur fyrir slökkvitæki eða sem slökkvihylki (nr. 3813).
4. Staðfest viðmiðunarefni sem tilgreint er í athugasemd 2. hér á eftir.
5. Vörur tilgreindar í a- eða c-liða 3. athugasemdar hér á eftir.
b. Blöndur kemískra efna og fæðu eða annarra efna sem hafa næringargildi og notaðar eru við framleiðslu matvæla (yfirleitt nr. 2106).
[c. Vörur í nr. 2404.][1]
[d.][2]Gjall, aska og leifar (þar með talið dreggjar, þó ekki skolpdreggjar), sem innihalda málma, arsenik eða blöndur þeirra og uppfylla skilyrði í a- eða b-liða 3. athugasemd við 26. kafla (nr. 2620).
[e.][3] Lyf (nr. 3003 eða 3004).
[f.][4] Notaðir hvatar sem notaðir eru til vinnslu á ódýrum málmum eða til framleiðslu á kemískum samböndum úr ódýrum málmum (nr. 2620), notaðir hvatar sem aðallega eru notaðir til endurheimtu góðmálma (nr. 7112) eða hvatar myndaðir úr málmi eða málmblendi, t.d. í formi fínskipts dufts eða ofinnar grisju (flokkur XIV eða XV)
2. A. Sem staðfest viðmiðunarefni í nr. 3822 teljast viðmiðunarefni þegar þeim fylgir skírteini sem gefur til kynna gildi hinna staðfestu eiginleika, þær aðferðir sem notaðar voru til að ákvarða slík gildi og að hvaða marki treysta má hverju gildi, enda séu þau hæf til greiningar, kvörðunar eða viðmiðunar.
B. Að undanteknum vörum í 28. eða 29. kafla, skal nr. 3822 ganga fyrir öllum öðrum vöruliðum í tollskránni við flokkun staðfestra viðmiðunarefna.
3. Eftirtaldar vörur teljast undantekningarlaust til nr. 3824:
a. Ræktaðir kristallar (þó ekki optískar vörur) úr magnesíumoxíði eða úr halíðum alkalímálma eða jarðalkalímálma, 2,5 g að þyngd eða meira hver einstakur kristall.
b. Fúsilolía og Dippelolía.
c. Blekeyðandi efni í smásöluumbúðum.
d. Efni í smásöluumbúðum til leiðréttingar á stenslum, aðrir leiðréttingarvökvar og leiðréttingarbönd (þó ekki vörur í vörulið 9612).
e. Hitakeilur úr leir (ceramic firing testers), bræðanlegar (t.d. Seger-keilur).
4. Hvarvetna í tollskránni er með sorpi bæjar- og sveitarfélaga átt við sorp sem safnað er frá heimilum, hótelum, veitingastofum, spítölum, verslunum, skrifstofum, o.þ.h., uppsóp frá götum og gangstéttum, og einnig úrgang frá byggingarstarfsemi og niðurbroti. Í sorpi bæjar- og sveitarfélaga er venjulega fjölbreytt efni svo sem plast, gúmmí, timbur, pappír, spunavörur, gler, málmar, fæðuefni, skemmd húsgögn og aðrir skemmdir eða yfirgefnir hlutir. Sorp bæjar- og sveitarfélaga tekur þó ekki til:
[a. Einstakra efna eða hluta sem aðgreindir eru frá sorpinu, t.d úrgangur úr plasti, gúmmíi, timbri, pappír, spunavöru, gleri eða málmar, rafmagns- og rafeindaúrgangur og -rusl (einnig notaðar rafhlöður) sem flokkast í viðeigandi vöruliði tollskrárinnar.][5]
b. Úrgangs frá iðnaði.
c. Úrgangs lækningavara eins og hann er skýrgreindur í athugasemd nr. 4. k. við 30. kafla.
d. Klínísks úrgangs eins og hann er skýrgreindur í athugasemd nr. 6. a. hér á eftir.
5. Sem skolpdreggjar í nr. 3825 teljast dreggjar frá frárennsli hreinsistöðva í borgum, þar með talið úrgangur fyrir vinnslu, óhreinindi eftir hreinsun og óunnar dreggjar. Unnar dreggjar sem nothæfar eru sem áburður eru undanþegnar (31. kafli).
6. Sem annar úrgangur í nr. 3825 telst:
a. Klínískur úrgangur, það er mengaður úrgangur frá læknisfræðilegum rannsóknum, sjúkdómsgreiningu, meðferð sjúklinga eða öðrum störfum lyflækna, skurðlækna, tannlækna eða dýralækna, sem oft inniheldur sýkla og lyfjaefni sem þarfnast sérstakrar eyðingarmeðferðar (t.d. óhreinar sáraumbúðir, notaðir hanskar og notaðar sprautur).
b. Úrgangur lífrænna upplausnarefna.
c. Úrgangur af sýrubaði málma, vökvum fyrir vökvabúnað, hemlavökva og frostlegi.
d. Annar úrgangur frá kemískum eða skyldum iðnaði.
Sem annar úrgangur telst þó ekki úrgangur að meginstofni úr jarðolíum eða olíum fengnum úr tjörukenndum steinefnum (nr. 2710).
[7. Sem lífdísilolía (biodiesel) í vörulið 3826 teljast mono-alkylesterar úr fitusýrum sem notað er sem eldsneyti, fengið úr dýr-, jurta- eða örverufeiti eða -olíum, einnig notuðum.][6]
Athugasemdir við undirliði:
[1. Undirliðir 3808.52 og 3808.59 taka aðeins til vara í nr. 3808 sem innihalda eitt eða fleiri eftirfarandi efna: alaklór (ISO); aldíkarb (ISO); aldrín (ISO); asínfos-metýl (ISO); binapacrýl (ISO); camfeklór (ISO) (toxafen); kaptafól (ISO); karbófúran (ISO; klórdan (ISO); klórdímeform (ISO); klóróbensílat (ISO); DDT (ISO) (klófenótan (INN), 1,1,1-tríklóró-2,2-bis(p-klórófenýl)etan); díeldrín (ISO, INN); 4,6-dínítró-o-kresól (DNOC (ISO)) eða sölt þess; dínóseb (ISO), sölt þess eða esterar þess; endósúlfan (ISO); etýlendíbrómíð (ISO) (1,2-díbrómetan); etýlendíklóríð (ISO) (1,2-díkóróetan); flúoróasetamíð (ISO); heptaklór (ISO); heptaklóróbensen (ISO); 1,2,3,4,5,6-hexaklórósýklóhexan (HCH (ISO)), einnig lindan (ISO, INN); kvikasilfurssambönd; metamídófos (ISO); mónókrótófos (ISO); oxarian (etýlenoxíð); paraþíón (ISO); paraþíon-metýl (ISO) (metýl-paraþíon); pentaklórófenól (ISO), sölt þess eða esterar þess; perflúoróoktansúlfónsýra og sölt hennar; perflúoróoktansúlfónamíð; perflúoróoktansúfónýlflúoríð; fosfamídón (ISO); 2,4,5-T (ISO) (2,4,5- tríklórófenoxýediksýra), söld hennar eða esterar hennar; tríbútýltinsambönd; tríklórfón (ISO).][7]
2. Undirliðir 3808.61 til 3808.69 taka aðeins til vara í vörulið 3808 sem innihalda alfasípermetrín (ISO); bendíókarb (ISO); bífentrín (ISO); klórfenapýr (ISO); sýlútrín (ISO); deltametrín (INN, ISO); etófenprox (INN); fentríóþóín (ISO), lambda-sýhalótrín (ISO), malaþíón (ISO), pírimífos-metýl (ISO) eða própoxúr (ISO).
[3. Undirliðir 3824.81 til 3824.89 taka aðeins til blandna og framleiðslu sem inniheldur eitt eða fleiri eftirtalinna efna: oxíran (etylenoxíð); fjölbrómuð bífenýl (PBB); fjölklóruð bífenýl (PCB); fjölklóruð terfenýl (PCT); tris(2,3-díbrómprópýl) fosfat; aldrín (ISO); kamfeklór (ISO) (toxafen); klórdan (ISO); klórdekón (ISO); DDT (ISO) (klófenótan (INN); 1,1,1-tríklóró-2,2-bis(p-klórfenýl)etan); díeldrín (ISO, INN); eldósúlfan (ISO); endrín (ISO); heptaklór (ISO), mírex (ISO); 1,2,3,4,5,6-hexaklórósýklóhexan (HCH (ISO)), þ.m.t. lindan (ISO, INN); pentaklóróbensen (ISO); hexaklóróbensen (ISO); perflúoróoktansúlfónsýra, sölt hennar; perflúoróoktansúlfónamíð; perflúoróoktansúlfónýlflúoríð; tetra-, penta-, hexa-, hepta- eða oktabrómódífenýleterar; keðjustutt klóruð paraffín.
Keðjustutt klóruð paraffín eru blöndur úr efnum með hærra klórstigi en 48% miðað við þyngd með eftirfarandi sameindarformúlu: CxH(2x-y+2)Cly, þar sem x=10 - 13 og y = 1 - 13.][8]
4.][9] Sem úrgangur lífrænna upplausnarefna í nr. 3825.41 og 3825.49 telst úrgangur að meginstofni úr lífrænum upplausnarefnum, sem ekki er hæfur til frekari nota í því formi sem frumvara, einnig þótt hann sé ætlaður til endurvinnslu á upplausnarefnum.
[1] Sbr. 29. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[2] Sbr. 29. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[3] Sbr. 29. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[4] Sbr. 29. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[5] Sbr. 29. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[6] Sbr. 29. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[7] Sbr. 29. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[8] Sbr. 29. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[9] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
3801
Gervigrafít; hlaupkennt eða hálfhlaupkennt grafít; framleiðsla að meginstofni úr grafít eða öðru kolefni, sem deig, blokkir, plötur eða hálfunnið að öðru leyti:
Hleður tollskrárnúmerum...
3802
Ávirk kolefni; ávirk náttúrleg steinefni; dýrasverta, einnig notuð:
Hleður tollskrárnúmerum...
3803
Tallolía, einnig hreinsuð
Hleður tollskrárnúmerum...
3804
Úrgangslútur frá framleiðslu viðardeigs, einnig kjarnaður, sykursneyddur eða kemískt meðhöndlaður, þar með talin lignínsúlfónöt, þó ekki tallolía í nr. 3803
Hleður tollskrárnúmerum...
3805
Gúmkvoðu-, viðar- eða súlfatterpentína og aðrar terpenolíur framleiddar úr viði barrtrjáa með eimingu eða annarri aðferð; óhreinsað dípenten; súlfítterpentína og önnur óhreinsuð parakýmen; furuolía sem að meginstofni inniheldur alfaterpenól:
Hleður tollskrárnúmerum...
3806
Rósín og resínsýrur, og afleiður þeirra; rósínkjarni og rósínolíur; uppleysanleg gúmkvoða (run gums):
Hleður tollskrárnúmerum...
3807
Viðartjara; viðartjöruolía; viðarkreósót; viðarnafta (wood naphtha); bik úr jurtaríkinu; bruggarabik og áþekk framleiðsla að stofni til úr rósíni, resínsýru eða biki úr jurtaríkinu
Hleður tollskrárnúmerum...
3808
Efni til varnar gegn eða útrýmingar á skordýrum, nagdýrum, sveppum og illgresi, efni til að hindra spírun og efni til að stjórna plöntuvexti, sótthreinsandi efni og áþekkar vörur í formi eða umbúðum til smásölu eða sem blöndur eða hlutir (t.d. brennisteinsunnin bönd, kveikir og kerti, og flugnaveiðarar):
Hleður tollskrárnúmerum...
3809
Áferðar- og íburðarefni (finishing agents), litberar til að hraða litun eða festingu litunarefna og aðrar vörur og blöndur (t.d. fyllir og litfestir) sem notað er í spuna-, pappírs-, leður- eða skyldum iðnaði, ót.a.:
Hleður tollskrárnúmerum...
3810
Unnin sýruböð til yfirborðsmeðferðar á málmum; bræðsluefni og önnur hjálparefni til notkunar við lóðun, bras eða logsuðu; duft og deig til að lóða, brasa og logsjóða, úr málmi og öðrum efnum; efni til nota sem kjarni eða hjúpur fyrir rafskaut og stangir til logsuðu:
Hleður tollskrárnúmerum...
3811
Efni til varnar vélabanki, oxunartálmi, harpixtálmi, smurbætiefni, tæringarvarnaefni og önnur tilbúin íblöndunarefni, fyrir jarðolíur (þar með talið bensín) eða fyrir aðra vökva sem notaðir eru í sama tilgangi og jarðolía:
Hleður tollskrárnúmerum...
3812
Unnir gúmmíhvatar (rubber accelerators); samsett mýkiefni fyrir gúmmí eða plast, ót.a.; mótoxunarefni og önnur samsett varðveisluefni (stabilisers) fyrir gúmmí eða plast:
Hleður tollskrárnúmerum...
3813
Blöndur og hleðslur fyrir slökkvitæki; hlaðin slökkvihylki
Hleður tollskrárnúmerum...
3814
Lífræn samsett upplausnarefni og þynnar, ót.a.; unnir málningar- eða lakkeyðar:
Hleður tollskrárnúmerum...
3815
Kveikjar og hvatar fyrir efnahvörf og unnir hvatar, ót.a.:
Hleður tollskrárnúmerum...
3816
Eldfast lím, steinlím, steinsteypa og áþekkar samsettar vörur, einnig dólómítrammablanda (ramming mix), þó ekki vörur í nr. 3801
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
3817
Blönduð alkylbensen og blönduð alkylnaftalín, þó ekki þau sem eru í nr. 2707 eða 2902
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
3818
Kemísk frumefni efnabætt til nota í rafeindatækni, sem diskar, þynnur eða í áþekku formi; kemísk sambönd efnabætt til nota í rafeindatækni
Hleður tollskrárnúmerum...
3819
Hemlavökvi og annar unninn vökvi fyrir vökvaskipt drif sem inniheldur ekki eða inniheldur minna en 70% af jarðolíu eða olíu úr tjörukenndum steinefnum miðað við þyngd
Hleður tollskrárnúmerum...
3820
Frostlögur og unninn afísingarvökvi
Hleður tollskrárnúmerum...
3821
Tilbúin gróðrarstía til framleiðslu eða viðhalds örvera (þar með taldar veirur og þess háttar) eða plöntu-, manna- eða dýrafrumum
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
3822
Prófefni á grunni til greininga eða fyrir rannsókna-stofur, unnin prófefni til greininga eða fyrir rannsóknastofur, einnig á grunni, einnig útbúin sem sett, þó ekki þau sem eru í nr. 3006; staðfest viðmiðunarefni:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
3823
Einbasískar karboxyfitusýrur frá iðnaði; sýruolía frá hreinsun; feitialkóhól frá iðnaði:
Hleður tollskrárnúmerum...
3824
Tilbúin bindiefni fyrir málmsteypumót eða málmsteypukjarna; kemískar vörur og framleiðsla kemísks eða skylds iðnaðar (þar með taldar blöndur úr náttúrlegum efnum), ót.a.:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
3825
Úrgangsefni kemísks eða skylds iðnaðar, ót.a.; sorp bæjar- og sveitarfélaga; skolpdreggjar; annar úrgangur sem tilgreindur er í 6. athugasemd við þennan kafla:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
3826
Lífdísilolía og blöndur úr henni, sem innihalda ekki eða innihalda minna en 70% miðað við þunga af jarðolíu eða olíum unnum úr tjörukenndum jarðefnum
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
3827
Blöndur sem innihalda halógenafleiður metans, etans eða própans, ót.a.:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir