Athugasemdir flokks

FLOKKUR VI
Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar

 

Athugasemdir:

1.      A.     Vörur (aðrar en geislavirkt málmgrýti) sem svara til vörulýsingar í nr. 2844 eða 2845 skulu flokkast undantekningalaust í þessa vöruliði.

          B.     Leiði ekki annað af A-lið hér að ofan skulu vörur sem svara til vörulýsingar í nr. 2843, 2846 eða 2852 flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.

2.      Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér að ofan skulu vörur sem flokkast geta í nr. 3004-3006, 3212, 3303-3307, 3506, 3707 eða 3808, vegna þess að þær eru í afmældum skömmt­um eða til smásölu, flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.

3.      Vörusamstæður (sett) úr tveimur eða fleiri aðskildum efnisþáttum sem sumir eða allir telj­ast til þessa flokks og ætlast er til að blandað sé saman svo að úr verði framleiðsluvara sem telst til flokks VI eða VII skulu flokkast í þann vörulið sem sú vara fellur undir, enda upp­fylli efnisþættirnir eftirtalin skilyrði:

a.      Augljóst sé af frágangi þeirra að nota eigi þá saman án undanfarandi endurpökkunar.

b.      Þeim sé framvísað saman.

c.      Ljóst sé að þeir eigi fyllilega saman, annað hvort vegna eðlis þeirra eða magnhlutfalls þeirra innbyrðis.

[4.      Svari vara til lýsingar eins eða fleiri vöruliða í flokki VI, vegna þess að henni sé lýst með nafni eða virkni, og einnig í nr. 3827, flokkast varan undir þann vörulið sem höfðar til heitis vörunnar eða virkni en ekki undir nr. 3827.][1]



[1] Sbr. 21. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Athugasemdir kafla

31. KAFLI
Áburður

Athugasemdir:

1. Til þessa kafla telst ekki:

a.  Dýrablóð í nr. 0511.
b. Aðgreind kemískt skýrgreind sambönd (þó ekki sem lýst er í [a-lið 2., 3. eða 4. athugasemdar eða 5. athugasemd hér á eftir]1.
c. Ræktaðir kalíumklóríðkristallar (þó ekki optísk efni), minnst 2,5 g að þyngd hver kristall, í nr. 3824; optískar vörur úr kalíumklóríði (nr. 9001).

2. Til nr. 3102 teljast einungis eftirgreindar vörur, enda séu þær ekki í því formi eða umbúðum sem lýst er í nr. 3105: 

 [a.]2  Vörur sem einhver eftirfarandi lýsing á við:
  1. Natríumnítrat, einnig hreint.2. Ammóníumnítrat, einnig hreint.3.Tvísölt ammóníumsúlfats og ammóníumnítrats, einnig hrein eða blöndur kalsíumsúlfats og ammóníumnítrats.4.Ammóníumsúlfat, einnig hreint.5.Tvísölt (einnig hrein) eða blöndur kalsíumnítrats og ammóníumnítrats.6.Tvísölt (einnig hrein) eða blöndur kalsíumnítrats og magnesíumnítrats.7.Kalsíumcyanamíð (tröllamjöl), einnig hreint eða olíumeðfarið.8.Þvagefni, einnig hreint.
[b.]3 Áburður blandaður úr einhverjum þeirra efna sem lýst er í [ a-lið ]4 hér að ofan.
[c.]5 Áburður úr ammóníumklóríði eða einhverjum þeim vörum sem nefndar eru í [ a- eða b-lið ]6 hér að ofan blönduðum kalki, gipsi eða öðrum ólífrænum efnum sem ekki eru áburður.
[d.]7 Fljótandi áburður úr 2. eða 8. tölulið [a-liðar]8 að ofan, eða blöndum þessara vara í vatns- eða ammóníaklausn.

3. Til nr. 3103 teljast einungis eftirgreindar vörur, enda séu þær ekki í þeirri mynd eða um­búðum sem lýst er í nr. 3105: 

 [a.]9  Vörur sem einhver eftirfarandi lýsing á við:
  1. Tómasgjall.2. Náttúrleg kalsíumfosföt í nr. 2510, brennd eða meira hitameðfarin en til að fjarlægja óhreinindi.3. Súperfosföt (ein-, tví- eða þrígild).4. Kalsíumortóvatnsefnisfosfat sem inniheldur a.m.k. 0,2% af flúor miðað við þyngd þurrefnisins.
[b.]10 Áburður blandaður úr einhverjum þeirra efna sem lýst er í [a-lið]11 hér að ofan, án tillits til takmörkunar á flúorinnihaldi.
[c.]12 Áburður úr einhverjum þeirra vara sem lýst er í [a- eða b-lið]13 hér að ofan, án tillits til takmörkunar á flúorinnihaldi, blandaður kalki, gipsi eða öðrum ólífrænum efnum sem ekki eru áburður.

4. Til nr. 3104 teljast einungis eftirgreindar vörur, enda séu þær ekki í þeirri mynd eða um­búðum sem lýst er í nr. 3105: 5. Ammóníum díhydrógenorþófosfat (einhliða monoammóníumfosfat) og díammóníumhydró­genorþófosfat (díammóníumfosfat), einnig hrein, og blöndur þeirra innbyrðis flokkast í nr. 3105.6. Sem  annar áburður  í nr. 3105 teljast einungis vörur, sem notaðar eru sem áburður og inni­halda sem aðalefnisþátt að minnsta kosti einn af áburðarefnunum köfnunarefni, fosfór eða kalíum. 

 [a.]14  Vörur sem einhver eftirfarandi lýsing á við:
  1. Óhreinsuð náttúrleg kalsíumsölt (t.d. karnallít, kainít, silvít).
2. Kalíumklóríð, einnig hreint, sbr. þó c-lið 1. athugasemdar hér að framan.
3. Kalíumsúlfat, einnig hreint.
4. Magnesíumkalíumsúlfat, einnig hreint.
[b.]15 Áburður blandaður úr einhverjum þeirra efna sem nefnd eru í [a-lið]16 hér að ofan.

5. Ammóníum díhydrógenorþófosfat (einhliða monoammóníumfosfat) og díammóníumhydrógenorþófosfat (díammóníumfosfat), einnig hrein, og blöndur þeirra innbyrðis flokkast í nr. 3105.

6. Sem annar áburður í nr. 3105 teljast einungis vörur, sem notaðar eru sem áburður og innihalda sem aðalefnisþátt að minnsta kosti einn af áburðarefnunum köfnunarefni, fosfór eða kalíum.

 

1 Sbr. a-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007).
2 Sbr. b-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007).
3 Sbr. b-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007).
4 Sbr. b-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007).
5 Sbr. b-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007).
6 Sbr. b-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007).
7 Sbr. b-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007).
8 Sbr. b-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007).
9 Sbr. c-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007).
10 Sbr. c-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007).
11 Sbr. c-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007).
12 Sbr. c-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007).
13 Sbr. c-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007).
14 Sbr. d-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007).
15 Sbr. d-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).
16 Sbr. d-lið 28. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).


 

3101
Áburður úr dýra- eða jurtaríkinu, einnig blandaður saman eða kemískt unninn; áburður framleiddur með blöndun eða kemískri vinnslu afurða úr dýra- eða jurtaríkinu

Hleður tollskrárnúmerum...

3102
Köfnunarefnisáburður, úr steinaríkinu eða kemískur:

Hleður tollskrárnúmerum...

3103
Fosfóráburður, úr steinaríkinu eða kemískur:

Hleður tollskrárnúmerum...

3104
Kalíáburður, úr steinaríkinu eða kemískur:

Hleður tollskrárnúmerum...

3105
Áburður, úr steinaríkinu eða kemískur, sem inniheldur tvö eða þrjú af áburðarefnunum köfnunarefni, fosfór og kalíum; annar áburður; vörur sem teljast til þessa kafla í töflum eða áþekku formi eða í 10 kg umbúðum eða minni brúttó:

Hleður tollskrárnúmerum...