Athugasemdir flokks

FLOKKUR VI
Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar

 

Athugasemdir:

1.      A.     Vörur (aðrar en geislavirkt málmgrýti) sem svara til vörulýsingar í nr. 2844 eða 2845 skulu flokkast undantekningalaust í þessa vöruliði.

          B.     Leiði ekki annað af A-lið hér að ofan skulu vörur sem svara til vörulýsingar í nr. 2843, 2846 eða 2852 flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.

2.      Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér að ofan skulu vörur sem flokkast geta í nr. 3004-3006, 3212, 3303-3307, 3506, 3707 eða 3808, vegna þess að þær eru í afmældum skömmt­um eða til smásölu, flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.

3.      Vörusamstæður (sett) úr tveimur eða fleiri aðskildum efnisþáttum sem sumir eða allir telj­ast til þessa flokks og ætlast er til að blandað sé saman svo að úr verði framleiðsluvara sem telst til flokks VI eða VII skulu flokkast í þann vörulið sem sú vara fellur undir, enda upp­fylli efnisþættirnir eftirtalin skilyrði:

a.      Augljóst sé af frágangi þeirra að nota eigi þá saman án undanfarandi endurpökkunar.

b.      Þeim sé framvísað saman.

c.      Ljóst sé að þeir eigi fyllilega saman, annað hvort vegna eðlis þeirra eða magnhlutfalls þeirra innbyrðis.

[4.      Svari vara til lýsingar eins eða fleiri vöruliða í flokki VI, vegna þess að henni sé lýst með nafni eða virkni, og einnig í nr. 3827, flokkast varan undir þann vörulið sem höfðar til heitis vörunnar eða virkni en ekki undir nr. 3827.][1]



[1] Sbr. 21. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Athugasemdir kafla

29. KAFLI
Lífræn efni

 

Athugasemdir:

1.      Leiði ekki annað af orðalagi skal til vöruliða þessa kafla einungis telja eftirfarandi:

a.      Aðgreind kemískt skýrgreind lífræn sambönd, einnig með óhreinindum.

b.      Blöndur af tveimur eða fleiri myndbrigðum (isomers) hins sama lífræna sambands (einnig með óhreinindum), þó ekki blöndur af myndbrigðum raðtengdra (acyclic) kolvatnsefna (þó ekki myndbrigðaspegilmyndum), einnig mettaðra (27. kafli).

c.      Efni í nr. 2936-2939 eða sykrueterar, sykruasetöl og sykruesterar og sölt þeirra í nr. 2940 eða efni í nr. 2941, einnig kemískt skýrgreind.

d.      Efni sem nefnd eru í a-, b- eða c-lið hér að ofan uppleyst í vatni.

e.      Efni sem nefnd eru í a-, b- eða c-lið hér að ofan leyst upp í öðru upplausnarefni en vatni, enda sé vanalegt og nauðsynlegt að hafa efni þessi í uppleystu formi af öryggis­ástæðum eða vegna flutnings og upplausnarefnið geri efnið sjálft ekki hæfara til notk­unar í sérstöku skyni en hinna almennu nota.

f.       Efni sem nefnd eru í a-, b-, c-, d- eða e-lið hér að ofan og blönduð hafa verið efnum nauðsynlegum til að halda þeim í óbreyttu ástandi í geymslu eða flutningi (þar með talin efni til að hindra kekkjun).

[g.       Efni sem nefnd eru í a-, b-, c-, d-, e- eða f-lið hér að ofan og blönduð hafa verið rykvarnar-, litar- eða ilmefni eða  uppsölulyfi til auðkennis eða af öryggisástæðum, enda verði efnin sjálf við þá blöndun ekki hæfari til notkunar í sérstöku skyni en hinna almennu nota.][1]

h.      Eftirtalin efni, þynnt í staðalstyrkleika til framleiðslu á asóleysilitum: Díasóníumsölt, tengilefni þeirra og díasóteranleg amín og sölt þeirra.

2.      Til þessa kafla telst ekki:

a.      Vörur sem teljast til nr. 1504 eða hrátt glýseról í nr. 1520.

b.      Etylalkóhól (nr. 2207 eða 2208).

c.      Metan eða própan (nr. 2711).

d.      Kolefnissambönd nefnd í 2. athugasemd við 28. kafla.

e.      Ónæmisfræðilegar vörur í vörulið 3002.

f.       Þvagefni (nr. 3102 eða 3105).

g.      Litunarefni úr jurta- eða dýraríkinu (nr. 3203); syntetísk lífræn litunarefni, syntetísk lífræn efni notuð sem flúrbirtugjafi eða ljóm (luminophores) (nr. 3204) eða leysilitir eða önnur litunarefni í þeirri mynd eða umbúðum sem ætlað er til smásölu (nr. 3212).

h.      Ensím (nr. 3507).

ij.      Metaldehýð, hexametylentetramín eða áþekk efni mótuð (t.d. töflur, stafir eða þess háttar) til notkunar sem eldsneyti, eða fljótandi eldsneyti eða fljótandi gas í umbúðum sem notaðar eru til fyllingar eða endurfyllingar á vindlinga- eða áþekka kveikjara og ekki taka meira en 300 cm3(nr. 3606).

k.      Efni umbúin sem hleðslur fyrir slökkvitæki eða sem slökkvihylki í nr. 3813; blekeyðandi efni í smásöluumbúðum í nr. 3824.

l.       Optískar vörur, t.d. etylendíamíntartrat (nr.9001).

3.      Vörur sem flokka má í tvo eða fleiri vöruliði þessa kafla skulu flokkaðar í síðasta vöruliðinn.


[1] Sbr. 23. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

I Kolvetnissambönd og halógen-, súlfó-, nítró-, eða nítrósóafleiður þeirra
2901
Raðtengd kolvatnsefni:

Hleður tollskrárnúmerum...

2902
Hringlaga kolvatnsefni:

Hleður tollskrárnúmerum...

2903
Halógenafleiður kolvatnsefna:
Athugasemdir
Tollskrárnúmer 2903.1600 fellur brott, sbr. b-lið 20. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

2904
Súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður kolvatnsefna, einnig halógen-myndaðar:

Hleður tollskrárnúmerum...

II Alkóhól og halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður þeirra
2905
Raðtengd alkóhól ásamt halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiðum þeirra:

Hleður tollskrárnúmerum...

2906
Hringliða alkólhól ásamt halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiðum þeirra:

Hleður tollskrárnúmerum...

III Fenól, fenólalkóhól og halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður þeirra
2907
Fenól; fenólalkóhól:
Athugasemdir
Tollskrárnúmer 2907.3000 fellur brott, sbr. e-lið 20. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

2908
Halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður fenóla eða fenólalkóhóla:

Hleður tollskrárnúmerum...

IV Eterar, alkóhólperoxíð, eterperoxíð, asetal- og hemiasetalperoxíð , ketonperoxíð, epoxíð með þríliðuðum hring, asetöl og hemiasetöl, og halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður þeirra
2909
Eterar, eteralkóhól, eterfenól, eteralkóhólfenól, alkó-hólperoxíð, eterperoxíð, asetal- og hemiasetalper-oxíð, ketonperoxíð (einnig kemískt skýrgreind), og halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður þeirra:
Athugasemdir
Sbr. e-lið 23. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

2910
Epoxíð, epoxyalkóhól, epoxyfenól og epoxyeterar, með þríliðuðum hring, og halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiðum þeirra:

Hleður tollskrárnúmerum...

2911
Asetöl og hemiasetöl, einnig með annarri súrefnisvirkni og halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður þeirra

Hleður tollskrárnúmerum...

V Sambönd með aldehyðvirk sambönd
2912
Aldehyð, einnig með annarri súrefnisvirkni; hringliða fjölliður aldehyða; paraformaldehyð:

Hleður tollskrárnúmerum...

2913
Halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður efna í nr. 2912

Hleður tollskrárnúmerum...

VI Ketonvirk og kínonvirk sambönd
2914
Keton og kínon, einnig með annarri súrefnisvirkni og halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður þeirra:

Hleður tollskrárnúmerum...

VII Karboxylsýrur og anhydríð, halíð, peroxíð og peroxysýrur þeirra og halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður þeirra
2915
Mettaðar raðtengdar monokarboxylsýrur og anhydríð, halíð, peroxíð og peroxysýrur þeirra; halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður þeirra:

Hleður tollskrárnúmerum...

2916
Ómettaðar raðtengdar monokarboxylsýrur, hringliða monokarboxylsýrur, einnig anhydríð, halíð, peroxíð og peroxysýrur þeirra; halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður þeirra:

Hleður tollskrárnúmerum...

2917
Pólykarboxylsýrur, anhydríð, halíð, peroxíð og peroxysýrur þeirra; halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður þeirra:

Hleður tollskrárnúmerum...

2918
Karboxylsýrur með aukasúrefnisvirkni og anhydríð, halíð, peroxíð og peroxysýrur þeirra; halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður þeirra:
Athugasemdir
Tollskrárnúmer 2918.1700 fellur brott, sbr. g-lið 20. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

VIII Esterar ólífrænna sýrna málmleysingja og sölt þeirra, og halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður þeirra.
2919
Fosfóresterar og sölt þeirra, þar með talið laktófosföt; halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður þeirra:
Athugasemdir
Sbr. u-lið 26. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007

Hleður tollskrárnúmerum...

2920
Aðrir esterar ólífrænna sýrna málmleysingja (þó ekki esterar vatnsefnishalíða) og sölt þeirra; halógen-, súlfó-, nítró- eða nítrósóafleiður þeirra:
Athugasemdir
Sbr. í-lið 20. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

IX Köfnunarefnisvirk sambönd
2921
Amínvirk sambönd:

Hleður tollskrárnúmerum...

2922
Súrefnisvirk amínósambönd:

Hleður tollskrárnúmerum...

2923
Kvatern ammóníumsölt og hydroxíð; lesitín og önnur fosfóramínólípíð, einnig kemískt skýrgreind:
Athugasemdir
Sbr. p-lið 20. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

2924
Karboxyamíðvirk sambönd; amíðvirk kolsýrusambönd:

Hleður tollskrárnúmerum...

2925
Karboxyimíðvirk sambönd (þ.m.t. sakkarín og sölt þess) og imínvirk sambönd:

Hleður tollskrárnúmerum...

2926
Nítrílvirk sambönd:

Hleður tollskrárnúmerum...

2927
Díasó-, asó- eða asoxysambönd

Hleður tollskrárnúmerum...

2928
Lífrænar afleiður hydrasíns eða hydroxylamíns

Hleður tollskrárnúmerum...

2929
Sambönd með annarri köfnunarefnisvirkni:

Hleður tollskrárnúmerum...

X Lífræn-ólífræn sambönd, heterohringliða sambönd, kjarnasýrur og sölt þeirra, og súlfóamíð
2930
Lífræn brennisteinssambönd:

Hleður tollskrárnúmerum...

2931
Önnur lífræn-ólífræn sambönd:
Athugasemdir
Sbr. j-lið 22. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármálaráðuneytisins dags. 15.desember 2011, gildistökudagur 1. janúar 2012.

Hleður tollskrárnúmerum...

2932
Heterohringliða sambönd einungis með súrefnisheterofrumeindum:

Hleður tollskrárnúmerum...

2933
Heterohringliða sambönd einungis með köfnunarefnisheterofrumeindum:
Athugasemdir
Vöruliður 2933 ásamt tollskrárnúmerum orðist, sbr. v-lið 20. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

2934
Kjarnasýrur og sölt þeirra, einnig kemískt skýrgreind; önnur heterohringliða sambönd:
Athugasemdir
Vöruliður 2934 ásamt tollskrárnúmerum orðist, sbr. w-lið 20. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

2935
Súlfónamíð:
Athugasemdir
Sbr. 15. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármálaráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2017.

Hleður tollskrárnúmerum...

XI Próvítamín, vítamín og hormón
2936
Próvítamín og vítamín, náttúrleg eða efnasmíðuð (þar með taldir náttúrlegir kjarnar), afleiður af þeim sem aðallega eru notaðar sem vítamín, og innbyrðis blöndur þessara efna, einnig í hvers konar lausn:

Hleður tollskrárnúmerum...

2937
Hormón, prostaglandín, þromboxan og lúkótrín, náttúrleg eða efnasmíðuð; afleiður og hliðstæður þeirra, þar með talið pólypeptíð með umbreyttri keðju, notað aðallega sem hormón:

Hleður tollskrárnúmerum...

2938
Glýkósíð, náttúrleg eða efnasmíðuð, og sölt, eterar, esterar og aðrar afleiður þeirra:

Hleður tollskrárnúmerum...

2939
Alkalóíð, náttúrleg eða efnasmíðuð, og sölt, eterar, esterar og aðrar afleiður þeirra:
Athugasemdir
Tollskrárnúmer 29397000 fellur brott, sbr. þ-lið 20. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

XIII Önnur lífræn sambönd
2940
Sykrur, kemískt hreinar, þó ekki súkrósi, laktósi, maltósi, glúkósi og frúktósi; sykrueterar, sykruasetöl og sykruesterar, og sölt þeirra, þó ekki vörur í nr. 2937, 2938 eða 2939:
Athugasemdir

Hleður tollskrárnúmerum...

2941
Antibíótíka:

Hleður tollskrárnúmerum...

2942
Önnur lífræn sambönd

Hleður tollskrárnúmerum...