Kafli 32 Sútunar- eða litakjarnar; tannín og afleiður þeirra; leysilitir (dyes), dreifulitir (pigment) og önnur litarefni; málning og lökk; kítti og önnur þéttiefni; blek
Athugasemdir flokks
FLOKKUR VI
Vörur efnaiðnaðar eða tengds iðnaðar
Athugasemdir:
1. A. Vörur (aðrar en geislavirkt málmgrýti) sem svara til vörulýsingar í nr. 2844 eða 2845 skulu flokkast undantekningalaust í þessa vöruliði.
B. Leiði ekki annað af A-lið hér að ofan skulu vörur sem svara til vörulýsingar í nr. 2843, 2846 eða 2852 flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.
2. Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér að ofan skulu vörur sem flokkast geta í nr. 3004-3006, 3212, 3303-3307, 3506, 3707 eða 3808, vegna þess að þær eru í afmældum skömmtum eða til smásölu, flokkast undantekningarlaust í þessa vöruliði.
3. Vörusamstæður (sett) úr tveimur eða fleiri aðskildum efnisþáttum sem sumir eða allir teljast til þessa flokks og ætlast er til að blandað sé saman svo að úr verði framleiðsluvara sem telst til flokks VI eða VII skulu flokkast í þann vörulið sem sú vara fellur undir, enda uppfylli efnisþættirnir eftirtalin skilyrði:
a. Augljóst sé af frágangi þeirra að nota eigi þá saman án undanfarandi endurpökkunar.
b. Þeim sé framvísað saman.
c. Ljóst sé að þeir eigi fyllilega saman, annað hvort vegna eðlis þeirra eða magnhlutfalls þeirra innbyrðis.
[4. Svari vara til lýsingar eins eða fleiri vöruliða í flokki VI, vegna þess að henni sé lýst með nafni eða virkni, og einnig í nr. 3827, flokkast varan undir þann vörulið sem höfðar til heitis vörunnar eða virkni en ekki undir nr. 3827.][1]
[1] Sbr. 21. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
Athugasemdir kafla
32. KAFLI
Sútunar- eða litakjarnar; tannín og afleiður þeirra; leysilitir (dyes), dreifulitir (pigment) og önnur litunarefni; málning og lökk; kítti og önnur þéttiefni; blek
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
| a. | Aðgreind kemískt skýrgreind frumefni eða önnur sambönd (þó ekki þau efni sem teljast til nr. 3203 eða 3204, ólífræn efni notuð sem ljóm (luminophores) (nr. 3206); gler fengið úr glæddu kvartsi eða öðrum glæddum kísil í þeirri mynd sem um ræðir í nr. 3207, og einnig leysilitir og önnur litunarefni í þeirri mynd eða umbúðum sem ætlað er til smásölu í nr. 3212). |
| b. | Tannöt eða aðrar tannínafleiður þeirra efna sem teljast til nr. 2936-2939, 2941 eða 3501-3504. |
| c. | Þéttiefni úr asfalti eða önnur bikkend þéttiefni (nr. 2715). |
2. Til nr. 3204 teljast blöndur díasóníumsalta sem haldið er í óbreyttu ástandi og tengilefni þeirra til framleiðslu á asóleysilitum.
3. Til nr. 3203, 3204, 3205 og 3206 telst einnig framleiðsla að meginstofni gerð úr litunarefni (þar með talið, að því er varðar nr. 3206, dreifulitir í nr. 2530 eða 28. kafla, málmflögur og málmduft), til nota við litun hvers konar efnis eða sem efnisþættir við framleiðslu litunarefna. Þessir vöruliðir taka þó ekki til dreifulita sem eru í föstu efni, upplausn eða deigi og notaðir eru til framleiðslu á málningu, þar með talið smeltlakk (nr. 3212), eða önnur framleiðsla í nr. 3207, 3208, 3209, 3210, 3212, 3213 eða 3215.
4. Til nr. 3208 teljast lausnir (þó ekki kollodíum) þeirra efna sem tilgreind eru í nr. 3901-3913 í rokgjörnum upplausnarefnum, enda sé upplausnarefnið meira en 50% lausnarinnar miðað við þyngd.
5. Litunarefni í þessum kafla tekur ekki til efna sem notuð eru sem íblöndunarefni (extenders) í olíumálningu, enda þótt einnig sé hægt að nota þau til litunar á límmálningu (distemper).
6. Sem prentþynnur í nr. 3212 teljast einungis þynnur sem notaðar eru til prentunar, t.d. á bókarspjöld eða hattbönd, og eru úr
| a. | málmdufti (þ.m.t. góðmálmsduft) eða dreifulit og haldið er saman með lími, gelatíni eða öðru bindiefni; eða |
| b. | málmi (þ.m.t. góðmálmur) eða dreifulit á burðarefni úr hvaða efni sem er. |
3201
Sútunarkjarnar úr jurtaríkinu; tannín og sölt þess, eterar, esterar og aðrar afleiður:
Hleður tollskrárnúmerum...
3202
Syntetísk lífræn sútunarefni; ólífræn sútunarefni; framleiðsla til sútunar, einnig þótt hún innihaldi náttúrleg sútunarefni; ensímframleiðsla til forsútunar:
Hleður tollskrárnúmerum...
3203
Litunarefni úr jurta- eða dýraríkinu (þar með taldir litunarkjarnar, þó ekki dýrasverta), einnig kemískt skýrgreind; framleiðsla sem tilgreind er í 3. athugasemd við þennan kafla að meginstofni úr litunarefni úr jurta- eða dýraríkinu:
Hleður tollskrárnúmerum...
3204
Syntetísk lífræn litunarefni, einnig kemískt skýrgreind; framleiðsla sem tilgreind er í 3. athugasemd við þennan kafla að meginstofni úr syntetísku lífrænu litunarefni; syntetísk lífræn efni til nota sem flúrbirtugjafi eða ljóm, einnig kemískt skýrgreind:
Hleður tollskrárnúmerum...
3205
Litlögur (colour lakes); framleiðsla, sem tilgreind er í 3. athugasemd við þennan kafla, að meginstofni úr litlegi
Hleður tollskrárnúmerum...
3206
Önnur litunarefni; framleiðsla sem tilgreind er í 3. athugasemd við þennan kafla, þó ekki framleiðsla í nr. 3203, 3204 eða 3205; ólífræn efni notuð sem ljóm, einnig kemískt skýrgreind:
Hleður tollskrárnúmerum...
3207
Unnir dreifulitir, unnin gruggunarefni og unnir litir, bræðsluhæft smelt og glerungur, engób (slips), fljótandi gljáefni og áþekk framleiðsla til nota við leirmunagerð, smeltun eða gleriðn; glerfrit og annað gler sem duft, korn eða flögur:
Hleður tollskrárnúmerum...
3208
Málning og lökk (þar með talin smeltlökk og lakkmálning) að meginstofni úr syntetískum fjölliðum (polymers) eða kemískt umbreyttum náttúrlegum fjölliðum, dreifðum eða uppleystum í vatnssnauðum miðli; lausnir skýrgreindar í 4. athugasemd við þennan kafla:
Hleður tollskrárnúmerum...
3209
Málning og lökk (þar með talin smeltlökk og lakkmálning) að meginstofni úr syntetískum fjölliðum eða kemískt umbreyttum náttúrlegum fjölliðum, dreifðum eða uppleystum í vatnskenndum miðli:
Hleður tollskrárnúmerum...
3210
Önnur málning og lökk (þar með talin smeltlökk, lakkmálning og límmálning, (distemper)); unnir vatnsdreifulitir notaðir við lokavinnslu á leðri:
Hleður tollskrárnúmerum...
3211
Unnin þurrkefni
Hleður tollskrárnúmerum...
3212
Dreifulitir (þar með talið málmduft og málmflögur) dreifir í vatnssnauðum miðli, fljótandi eða sem deig, notað til framleiðslu á málningu (þar með talið smeltlakk); prentþynnur; leysilitir og önnur litunarefni í þeirri mynd eða umbúðum sem ætlað er til smásölu:
Hleður tollskrárnúmerum...
3213
Litir til listmálunar, kennslu, skiltagerðar, blæbrigða, dægradvalar og þess háttar, í töflum, skálpum, krukkum, flöskum, skálum eða í áþekkri mynd eða umbúðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3214
Gluggakítti, ágræðslukvoða, resínsement, þéttiefni og annað kítti; spartl; óeldföst efni til yfirborðslagningar á byggingar eða innanhúss á veggi, gólf, loft eða þess háttar:
Hleður tollskrárnúmerum...
3215
Prentlitir, rit- eða teikniblek og annað blek, einnig kjarnað eða í föstu formi:
Hleður tollskrárnúmerum...