Flokkur 04 Unnin matvæli; drykkjarvörur, áfengir vökvar og edik; tóbak og framleitt tóbakslíki; vörur, með eða án nikótíninnihalds, til innöndunar án íkveikju; aðrar vöru með nikótíninnihaldi til inntöku í líkamann
Athugasemdir flokks
FLOKKUR IV
Unnin matvæli; drykkjarvörur, áfengir vökvar og edik; tóbak og framleitt tóbakslíki; vörur, með eða án nikótíninnihalds, til innöndunar án íkveikju; aðrar vöru með nikótíninnihaldi til inntöku í líkamann
Athugasemd:
Sem kögglar í þessum flokki teljast vörur sem mótaðar hafa verið annað hvort beint með þjöppun eða blöndun bindiefnis sem að magni er ekki meira en 3% miðað við þyngd.
Sbr. 9. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022