Athugasemdir flokks
Sbr. 9. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
Athugasemdir kafla
22. KAFLI
Drykkjarvörur, áfengir vökvar og edik
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
| a. | Vörur í þessum kafla (þó ekki vörur í nr. 2209) framleiddar sem matvæli og þannig gerðar óhæfar til neyslu sem drykkjarvörur (venjulega nr. 2103). |
| b. | Sjór (nr. 2501). |
| c. | Eimað vatn eða vatn til mælingar á rafmagnsmótstöðu eða vatn af áþekkum hreinleika (nr. [2853]1). |
| d. | Ediksýra með meira en 10% sýrustyrkleika miðað við þyngd (nr. 2915). |
| e. | Lyf í nr. 3003 eða 3004. |
| f. | Ilmvörur eða hreinlætisvörur (33. kafli). |
2. Í þessum kafla og 20. og 21. kafla skal alkóhólstyrkleiki miðað við rúmmál ákvarðaður við 20 °C.
3. Sem óáfengar drykkjarvörur í nr. 2202 teljast drykkjarvörur með 0,5% alkóhólstyrkleika eða minna miðað við rúmmál. Áfengar drykkjarvörur flokkast í nr. 2203-2206 eða nr. 2208 eftir því sem við á.
Athugasemd við undirlið:
Sem freyðivín í nr. 2204.10 telst vín sem hefur að minnsta kosti þriggja bara yfirþrýsting í lokuðu íláti við 20 °C.
1Sbr. a-lið 19. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).
2201
Vatn, þar með talið náttúrlegt eða gerviölkelduvatn og loftblandað vatn, ekki með viðbættum sykri eða öðru sætuefni eða bragðbætt; ís og snjór:
Hleður tollskrárnúmerum...
2202
Vatn, þar með talið ölkelduvatn og loftblandað vatn, með viðbættum sykri eða öðru sætuefni eða bragðbætt, og aðrar óáfengar drykkjarvörur, þó ekki ávaxta-, hnetu- eða matjurtasafar í nr. 2009:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
2203
Öl gert úr malti:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
2204
Vín úr nýjum þrúgum, einnig vín blönduð vínanda; þrúguþykkni annað en í nr. 2009:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
2205
Vermút og annað vín úr nýjum þrúgum bragðbætt með plöntum eða ilmefnum:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
2206
Aðrar gerjaðar drykkjarvörur (t.d. eplavín, peruvín, mjöður, hrísgrjónavín); blöndur gerjaðra drykkjarvara svo og blöndur gerjaðra drykkjarvara og óáfengra drykkjarvara, ót.a.:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
2207
Ómengað etylalkóhól að alkóhólstyrkleika 80% eða meira miðað við rúmmál; etylalkóhól og aðrir áfengir vökvar, mengað, að hvaða styrkleika sem er:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
2208
Ómengað etylalkóhól að alkóhólstyrkleika minna en 80% miðað við rúmmál; áfengir vökvar, líkjörar og aðrar áfengar drykkjarvörur:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
2209
Edik og edikslíki fengið úr ediksýru
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir