Kafli 20 Framleiðsla úr matjurtum, ávöxtum, hnetum eða öðrum plöntuhlutum
Athugasemdir flokks
Sbr. 9. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
Athugasemdir kafla
20. KAFLI
Framleiðsla úr matjurtum, ávöxtum, hnetum eða öðrum plöntuhlutum
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
a. Matjurtir, ávextir eða hnetur sem hefur verið unnið eða varið skemmdum á þann hátt sem um getur í 7., 8. eða 11. kafla.
[b. Jurtafeiti og olíur (15. kafli).][1]
[c. Matvæli sem innihalda meira en 20%, miðað við þyngd, af pylsum, kjöti, hlutum af dýrum, blóði, skordýrum, fiski eða krabbadýrum, lindýrum eða öðrum vatnahryggleysingjum eða hvers konar samsetningu þeirra (16. kafli).][2]
[d.][3] Brauðvörur og aðrar vörur í nr. 1905.
[e.][4] Jafnblönduð samsett matvæli í nr. 2104.
2. Til nr. 2007 og 2008 telst ekki ávaxtahlaup, ávaxtadeig, sykurhúðaðar möndlur eða þess háttar sem sætindi (nr. 1704) eða súkkulaðisælgæti (nr. 1806).
3. Til nr. 2001, 2004 og 2005 teljast, eftir því sem við á, þær vörur 7. kafla eða nr. 1105 eða 1106 (annað en mjöl, fín- eða grófmalað, og duft úr vörum 8. kafla) sem hafa verið unnar eða meðhöndlaðar með öðrum hætti en þeim sem um ræðir í a-lið 1. athugasemdar.
4. Tómatsafi sem í er 7% eða meira þurrefni miðað við þyngd telst til nr. 2002.
5. Með orðasambandinu fengið með suðu í vörulið nr. 2007 er átt við fengið með hitameðferð við loftþrýsting eða undir lækkuðum þrýstingi til þess að auka seigju vöru með því að lækka vatnsinnihald eða á annan hátt.
6. Sem safi, ógerjaður og án viðbætts áfengis í nr. 2009 telst safi með 0,5% alkóhólstyrkleika eða minna miðað við rúmmál.
Athugasemdir við undirliði:
1. Sem jafnblandaðar matjurtir í nr. 2005.10 telst framleiðsla úr matjurtum, úr fínlegri jafnblöndu, umbúið til smásölu sem [fæða fyrir hvítvoðunga eða ung börn][5] eða sjúkrafæða, í umbúðum með nettóinnihaldi 250 g eða minna. Þegar skýrgreiningu þessari er beitt skal ekkert tillit tekið til efnisþátta sem kunna að hafa verið settir í blönduna til bragðbætis, varnar skemmdum eða í öðrum tilgangi. Í framleiðslu þessari mega vera sýnilegar agnir af matjurtum í litlu magni. Nr. 2005.10 gengur fyrir öllum öðrum undirliðum í nr. 2005.
2. Sem jafnblönduð framleiðsla í nr. 2007.10 telst framleiðsla úr ávöxtum, úr fínlegri jafnblöndu, umbúið til smásölu sem [fæða fyrir hvítvoðunga- eða ung börn][6] eða sjúkrafæða, í umbúðum með nettóinnihaldi 250 g eða minna. Þegar skýrgreiningu þessari er beitt skal ekkert tillit tekið til efnisþátta sem kunna að hafa verið settir í blönduna til bragðbætis, varnar skemmdum eða í öðrum tilgangi. Í framleiðslu þessari mega vera sýnilegar agnir af ávöxtum í litlu magni. Nr. 2007.10 gengur fyrir öllum öðrum undirliðum í nr. 2007.
3. Með orðunum Brix gildi í nr. 2009.12, 2009.21, 2009.31, 2009.41, 2009.61 og 2009.71 er átt við beinan aflestur Brix stiga fengnum með Brix flotmæli eða brotstuðuls sem gefur til kynna hundraðshluta súkrósainnihalds fengnum með ljósrænum vökvaþyngdarmæli (refractometer), við 20 °C eða leiðrétt miðað við 20 °C ef aflesturinn er gerður við annað hitastig.
[1] Sbr. 13. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[2] Sbr. 13. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[3] Sbr. 13. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[4] Sbr. 13. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[5] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
[6] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
2001
Matjurtir, ávextir, hnetur og aðrir plöntuhlutar til manneldis, unnið eða varið skemmdum með ediki eða ediksýru:
Hleður tollskrárnúmerum...
2002
Tómatar, unnir eða varðir skemmdum á annan hátt en með ediki eða ediksýru:
Hleður tollskrárnúmerum...
2003
Sveppir og jarðsveppir, unnið eða varið skemmdum á annan hátt en með ediki eða ediksýru:
Hleður tollskrárnúmerum...
2004
Aðrar matjurtir, unnar eða varðar skemmdum á annan hátt en með ediki eða ediksýru, frystar, þó ekki vörur í nr. 2006:
Hleður tollskrárnúmerum...
2005
Aðrar matjurtir, unnar eða varðar skemmdum á annan hátt en með ediki eða ediksýru, ófrystar, þó ekki vörur í nr. 2006:
Hleður tollskrárnúmerum...
2006
Matjurtir, ávextir, hnetur, ávaxtahýði og aðrir plöntuhlutar, varið skemmdum með sykri (gegndreypt, gljásykrað eða kristallað):
Hleður tollskrárnúmerum...
2007
Sulta, ávaxtahlaup, mauk, ávaxta- eða hnetudeig, fengið með suðu, einnig með viðbættum sykri eða öðru sætiefni:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
2008
Ávextir, hnetur og aðrir ætir plöntuhlutar, unnið eða varið skemmdum á annan hátt, einnig með viðbættum sykri eða öðru sætiefni eða áfengi, ót.a.:
Hleður tollskrárnúmerum...
2009
Ávaxta- eða hnetusafi (þar með talið þrúguþykkni og kókoshnetusafi) og matjurtasafi, ógerjaður og án viðbætts áfengis, einnig með viðbættum sykri eða öðru sætiefni:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir