Athugasemdir flokks
Sbr. 9. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
Athugasemdir kafla
21. KAFLI
Ýmis matvælaframleiðsla
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
a. Blandaðar matjurtir í nr. 0712.
b. Brennt kaffilíki sem inniheldur eitthvað af kaffi (nr. 0901).
c. Bragðbætt te (nr. 0902).
d. Krydd eða aðrar vörur í nr. 0904-0910.
e. Matvæli, önnur en vörur sem lýst er í nr. 2103 eða 2104, sem innihalda meira en 20%, miðað við þyngd, af pylsum, kjöti, hlutum af dýrum, [blóði, skordýrum, fiski][1] eða krabbadýrum, lindýrum eða öðrum vatnahryggleysingjum, eða hvers konar samsetningu þeirra (16. kafli).
[f. Vörur í nr. 2404.][2]
[g.][3] Ger, tilreitt sem lyf, eða aðrar vörur í nr. 3003 eða 3004.
[h.][4] Unnin ensím í nr. 3507.
2. Kjarni úr kaffilíki því sem um getur í b-lið 1. athugasemdar hér á undan flokkast í nr. 2101.
3. Sem jafnblönduð samsett matvæli í nr. 2104 telst framleiðsla úr fínlegri jafnblöndu tveggja eða fleiri undirstöðuefnisþátta, t.d. kjöts, fisks, matjurta, ávaxta eða hneta, í smásöluumbúðum til nota sem [fæða fyrir hvítvoðunga eða ung][5] börn eða sjúkrafæða, í umbúðum að nettóinnihaldi 250 g eða minna. Þegar skýrgreiningu þessari er beitt skal ekkert tillit tekið til efnisþátta sem settir eru í litlu magni í blönduna til bragðbætis, varnar skemmdum eða í öðrum tilgangi. Í slíkri framleiðslu mega vera sýnilegar agnir efnisþátta í litlu magni.
[1] Sbr. 14. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[2] Sbr. 14. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[3] Sbr. 14. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[4] Sbr. 14. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[5] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
2101
Kjarni, kraftur og seyði úr kaffi, tei eða maté og framleiðsla að stofni til úr þessum vörum eða að stofni til úr kaffi, tei eða maté; brenndar síkóríurætur og annað brennt kaffilíki, og kjarni, kraftur og seyði úr þeim:
Hleður tollskrárnúmerum...
2102
Ger (lifandi eða dautt); aðrar einfruma örverur, dauðar (þó ekki bóluefni í nr. 3002); unnið bökunarduft:
Hleður tollskrárnúmerum...
2103
Sósur og framleiðsla í þær; blönduð bragðefni og blönduð bragðbætiefni; mustarðsmjöl, fín- eða grófmalað, og unninn mustarður:
Hleður tollskrárnúmerum...
2104
Súpur og seyði og framleiðsla í það; jafnblönduð samsett matvæli:
Hleður tollskrárnúmerum...
2105
Rjómaís og annar ís til manneldis, einnig með kakaóinnihaldi:
Hleður tollskrárnúmerum...
2106
Matvæli, ót.a.:
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir