Athugasemdir flokks
FLOKKUR IV
 
Unnin matvæli; drykkjarvörur, áfengir vökvar og edik; tóbak og framleitt tóbakslíki; vörur, með eða án nikótíninnihalds, til innöndunar án íkveikju; aðrar vöru með nikótíninnihaldi til inntöku í líkamann
 
 
Athugasemd:
Sem  kögglar  í þessum flokki teljast vörur sem mótaðar hafa verið annað hvort beint með þjöppun eða blöndun bindiefnis sem að magni er ekki meira en 3% miðað við þyngd.


Sbr. 9. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
Athugasemdir kafla

19. KAFLI
Framleiðsla úr korni, fínmöluðu mjöli, sterkju eða mjólk; sætabrauð

 

Athugasemdir:

1.      Til þessa kafla telst ekki:

[a.      Framleisla, nema um sé að ræða vöru í 1902, sem fyllt er með meiru en 20% miðað við þyngd af pylsum, kjöti, hlutum af dýrum,  blóði, skordýrum, fiski eða krabbadýrum, lindýrum eða öðrum vatnahrygg­leysingjum, eða hvers konar samsetningu þeirra (16.kafli).][1]

b.      Kex eða aðrar vörur úr fínmöluðu mjöli eða sterkju, sérstaklega tilreitt sem skepnu­fóður (nr. 2309).

c.      Lyf eða aðrar vörur í 30. kafla.

2.      Varðandi nr. 1901:

a.      Sem klíðislaust korn telst klíðislaust korn í 11. kafla.

b.      Sem mjöl, fín- eða grófmalað, telst:

1.   mjöl úr korni, fín- eða grófmalað, í 11. kafla, og

2.   Mjöl, fín- eða grófmalað, og duft úr matjurtum í hvaða kafla sem er, þó ekki mjöl, fín- eða grófmalað, eða duft úr þurrkuðum matjurtum (nr. 0712), úr kartöflum (nr. 1105) eða úr þurrkuðum belgávöxtum (nr. 1106).                  

3.      Til nr. 1904 telst ekki framleiðsla sem inniheldur meira en 6%, miðað við þyngd, af kakaói reiknað út frá algerlega fitusneyddum grunni eða er að öllu leyti hjúpuð með súkkulaði eða öðrum matvælum sem innihalda kakaó í nr. 1806 (nr. 1806).

4.      Með orðunum unnið á annan hátt í nr. 1904 er átt við unnið eða meðhöndlað frekar en gert er ráð fyrir í vöruliðum eða athugasemdum 10. eða 11. kafla.



[1] Sbr. 12. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

1901
Maltkjarni; framleiðsla úr mjöli, fín- eða grófmöluðu, klíðislausu korni, sterkju eða maltkjarna, sem ekki inniheldur kakaó eða inniheldur minna en 40% miðað við þyngd af kakaói reiknað út frá algerlega fitusneyddum grunni, ót.a.; matvæli úr vörum í nr. 0401-0404 sem ekki innihalda kakaó eða innihalda minna en 5%, miðað við þyngd, af kakaói reiknað út frá algerlega fitusneyddum grunni, ót.a.:
Athugasemdir
Sbr. b-lið 13. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

1902
Pasta, einnig soðin eða fyllt (með kjöti eða öðrum efnum) eða unnin á annan hátt, svo sem spaghettí, makkarónur, núðlur, lasagne, gnocchi, ravíólí, kannellóní; couscous, einnig unnið:

Hleður tollskrárnúmerum...

1903
Tapíókamjöl og tapíókalíki úr sterkju, sem flögur, grjón, perlur, sáldur eða í áþekkri mynd:

Hleður tollskrárnúmerum...

1904
Matvæli úr belgdu eða steiktu korni eða kornvörum (t.d. kornflögur); korn (annað en maís), sem grjón eða sem flögur eða önnur unnin grjón (þó ekki mjöl, fín- eða grófmalað og klíðislaust korn), forsoðið eða unnið á annan hátt, ót.a.:
Athugasemdir
A-tollur tollskrárnúmersins 1904.1002 verði 0%, sbr. 11. gr. laga nr. 104/2000 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 6. júní 2000). Sbr. c-lið 13. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

1905
Brauð, sætabrauð, kökur, kex og aðrar brauðvörur, einnig með kakaói; altarisbrauð, lyfjahylki, innsiglunaroblátur, rísþynnur og áþekkar vörur:

Hleður tollskrárnúmerum...