Athugasemdir flokks
FLOKKUR IV
 
Unnin matvæli; drykkjarvörur, áfengir vökvar og edik; tóbak og framleitt tóbakslíki; vörur, með eða án nikótíninnihalds, til innöndunar án íkveikju; aðrar vöru með nikótíninnihaldi til inntöku í líkamann
 
 
Athugasemd:
Sem  kögglar  í þessum flokki teljast vörur sem mótaðar hafa verið annað hvort beint með þjöppun eða blöndun bindiefnis sem að magni er ekki meira en 3% miðað við þyngd.


Sbr. 9. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
Athugasemdir kafla

17. KAFLI
Sykur og sætindi
 

Athugasemd:

Til þessa kafla telst ekki:  
a. Sætindi sem í er kakaó (nr. 1806).
b. Kemískt hreinn sykur (þó ekki súkrósi, laktósi, maltósi, glúkósi og frúktósi) eða aðrar vörur í nr. 2940.
c. Lyf eða aðrar vörur í 30. kafla.

[Athugasemdir við undirliði:


1.      Sem hrár sykur í nr. 1701.12, 1701.13 og 1701.14 telst sykur með súkrósainnihaldi sem við ljósskaut­unar­mælingu reynist minna en 99,5° af þyngd þurrefnisins.


2.      Undirliður 1701.13 nær eingöngu yfir sykurreyr, unninn án þeytiskiljunar. Innihald vörunnar  af súkrósa miðað við þyngd, þegar hún er þurr, samsvarar a.m.k. 69°, eða meira, þegar lesið er af skautunarmæli, en minna en 93°. Varan inniheldur einungis náttúrulega óreglulega örkristalla sem eru ógreinanlegir með berum augum og eru umluktir leifum af melassa og öðrum efnisþáttum sykurreyrs.]1

1Sbr. a-lið 17. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 154/2011 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 15. desember 2011).    

1701
Reyr- eða rófusykur og kemískt hreinn súkrósi, í föstu formi:

Hleður tollskrárnúmerum...

1702
Annar sykur, þar með talinn kemískt hreinn laktósi, maltósi, glúkósi og frúktósi, í föstu formi; sykursíróp sem inniheldur hvorki bragðefni né litarefni; gervihunang, einnig blandað náttúrlegu hunangi; karamel:

Hleður tollskrárnúmerum...

1703
Melassi unninn með kjörnun eða hreinsun sykurs:

Hleður tollskrárnúmerum...

1704
Sætindi (þar með talið hvítt súkkulaði) án kakaóinnihalds:

Hleður tollskrárnúmerum...