Athugasemdir flokks
FLOKKUR IV
 
Unnin matvæli; drykkjarvörur, áfengir vökvar og edik; tóbak og framleitt tóbakslíki; vörur, með eða án nikótíninnihalds, til innöndunar án íkveikju; aðrar vöru með nikótíninnihaldi til inntöku í líkamann
 
 
Athugasemd:
Sem  kögglar  í þessum flokki teljast vörur sem mótaðar hafa verið annað hvort beint með þjöppun eða blöndun bindiefnis sem að magni er ekki meira en 3% miðað við þyngd.


Sbr. 9. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
Athugasemdir kafla

16. KAFLI

[Framleiðsla úr kjöti, fiski, krabbadýrum, lindýrum eða öðrum vatnahryggleysingjum, eða úr skordýrum][1]

Athugasemdir:

[1.      Til þessa kafla telst ekki kjöt, hlutar af dýrum, fiskur, krabbadýr, lindýr eða aðrir vatnahryggleysingjar eða skordýr sem hefur verið unnið eða varið skemmdum á þann hátt er um getur í 2. eða 3. kafla. 6. athugsemd við 4. kafla eða í nr. 0504.][2]

[2.      Matvæli teljast til þessa kafla ef þau innihalda meira en 20%, miðað við þyngd, af pylsum, kjöti, hlutum af dýrum, blóði, skordýrum, fiski eða krabbadýrum, lindýrum eða öðrum vatnahryggleys­ingjum, eða hverskonar samsetningu þeirra. Þegar í lögun eru tvær eða fleiri framangreindra vara skal flokka hana í þann vörulið 16. kafla sem svarar til þess efnisþáttar eða efnisþátta sem mest er af miðað við þyngd. Þessar reglur gilda ekki um fylltar vörur í nr. 1902 eða framleiðslu í nr. 2103 eða 2104.][3]

 

Athugasemdir við undirliði:

[1.      Sem jafnblönduð matvæli í nr. 1602.10 telst framleiðsla úr kjöti, hlutum af dýrum eða blóði eða skordýrum, fínlega jafnblandað, umbúið til smásölu til nota sem fæða fyrir hvítvoðunga eða ung börn eða sem sjúkrafæða, í umbúðum með innihaldi að nettóþyngd ekki meira en 250 g. Þegar skýrgreiningu þessari er beitt skal ekkert tillit taka til efnisþátta sem kunna að hafa verið settir í litlu magni í blönd­una til bragðbætis, varnar skemmdum eða í öðrum tilgangi. Í matvælum þessum mega vera sýnilegar agnir í litlu mæli af kjöti, hlutum af dýrum eða skordýrum. Undirliður þessi gengur fyrir öllum öðrum undirliðum í nr. 1602.][4]


[1] Sbr. 10. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[2] Sbr. 10. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[3] Sbr. 10. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[4] Sbr. 10. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

1601
Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti, hlutum af dýrum, blóði eða skordýrum; matvæli gerð aðallega úr þessum vörum:
Athugasemdir
Sbr. e-lið 10. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

1602
Annað kjöt, hlutar af dýrum, blóð eða skordýr, unnið eða varið skemmdum:
Athugasemdir
Sbr. f-lið 10. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

1603
Kjarnar og safar úr kjöti, fiski eða krabbadýrum, lindýrum eða öðrum vatnahryggleysingjum:

Hleður tollskrárnúmerum...

1604
Fiskur, unninn eða varinn skemmdum; styrjuhrogn og eftirlíkingar þeirra:

Hleður tollskrárnúmerum...

1605
Krabbadýr, lindýr og aðrir vatnahryggleysingjar, unninn eða varið skemmdum:

Hleður tollskrárnúmerum...