Flokkur 17 Ökutæki, loftför, fljótandi för og hliðstæð flutningatæki

Athugasemdir flokks

FLOKKUR XVII
Ökutæki, loftför, fljótandi för og hliðstæð flutningatæki

 

Athugasemdir:

1.      Til þessa flokks teljast ekki vörur í nr. 9503 eða 9508 eða langsleðar (bobsleighs), snjó­bretti (toboggans) eða þess háttar í nr. 9506.

2.      Sem hlutar og hlutar og fylgihlutir teljast ekki neðangreindar vörur, þótt þær séu augsýnilega fyrir vörur í þessum flokki:

a.      Tengi, skinnur eða þess háttar úr hvers konar efni (flokkast eftir efni eða í nr. 8484) eða aðrar vörur úr vúlkaníseruðu gúmmíi öðru en harðgúmmíi (nr. 4016).

b.      Hlutar til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV), eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli).

c.      Vörur í 82. kafla (verkfæri).

d.      Vörur í nr. 8306.

e.      Vélar eða tæki í nr. 8401-8479, [eða hlutar til þeirra, þó ekki vatnskassar til vara í þessum flokki][1]. Vörur í nr. 8481 eða 8482 eða vörur í nr. 8483, enda séu þær óaðskiljanlegur hluti vélar eða hreyfils.

f.       Rafbúnaður eða -tæki (85. kafli).

g.      Vörur í 90. kafla.

h.      Vörur í 91. kafla.

ij.      Vopn (93. kafli).

k.      [Ljós og ljósabúnaður][2] í nr. 9405.

l.       Burstar sem eru hlutar í ökutæki (nr. 9603).

3.      Sem hlutar eða fylgihlutir í 86.-88. kafla teljast ekki hlutar eða fylgihlutir sem ekki eru eingöngu eða aðallega hæfir til nota með vörum í þeim köflum. Hluti eða fylgihlutur sem svarar til lýsingar tveggja eða fleiri vöruliða þessara kafla flokkast í þann vörulið sem höfðar til aðalnotkunar þess hluta eða fylgihlutir.

4.      Í þessum flokki skulu:

a.      Ökutæki sérstaklega byggð til ferða bæði á vegum og spori flokkast í viðeigandi vörulið í 87. kafla.

b.      Vélknúin ökutæki fyrir láð og lög flokkast í viðeigandi vörulið í 87. kafla.

c.      Loftför sérstaklega byggð þannig að hægt er að nota þau jafnframt sem ökutæki á vegum flokkast í 88. kafla.

5.      Loftpúðafarartæki flokkast í þessum flokki á eftirfarandi hátt með þeim ökutækjum sem þau eru skyldust:

a.      Í 86. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða eftir spori (loftpúðalestir).

b.      Í 87. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða yfir láð eða bæði yfir láð og lög.

c.      Í 89. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða yfir vatn, einnig þótt þau geti lent á fjörum eða lendingarstöðum, eða geta líka ferðast yfir ís.

Hlutar og fylgihlutir fyrir loftpúðafarartæki flokkast á sama hátt og hlutar og fylgihlutir fyrir farartæki í vöruliðum sem loftpúðafarartæki flokkast í samkvæmt ákvæðunum hér á undan.

Sporbúnaður og -tengihlutar fyrir loftpúðalestir flokkast eins og sporbúnaður og -tengi­hlutar fyrir járnbrautir, og merkja-, öryggis- eða umferðarstjórnbúnaður fyrir flutningakerfi loftpúðalesta flokkast eins og merkja-, öryggis- eða umferðastjórnbúnaður fyrir járnbrautir.


[1] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).

[2] Sbr. 62. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.