Flokkur 17 Ökutæki, loftför, fljótandi för og hliðstæð flutningatæki

Kafli 87 Ökutæki, þó ekki járnbrautar- eða sporbrautarvagnar, og hlutar og fylgihlutir til þeirra

Athugasemdir flokks

FLOKKUR XVII
Ökutæki, loftför, fljótandi för og hliðstæð flutningatæki

 

Athugasemdir:

1.      Til þessa flokks teljast ekki vörur í nr. 9503 eða 9508 eða langsleðar (bobsleighs), snjó­bretti (toboggans) eða þess háttar í nr. 9506.

2.      Sem hlutar og hlutar og fylgihlutir teljast ekki neðangreindar vörur, þótt þær séu augsýnilega fyrir vörur í þessum flokki:

a.      Tengi, skinnur eða þess háttar úr hvers konar efni (flokkast eftir efni eða í nr. 8484) eða aðrar vörur úr vúlkaníseruðu gúmmíi öðru en harðgúmmíi (nr. 4016).

b.      Hlutar til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV), eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli).

c.      Vörur í 82. kafla (verkfæri).

d.      Vörur í nr. 8306.

e.      Vélar eða tæki í nr. 8401-8479, [eða hlutar til þeirra, þó ekki vatnskassar til vara í þessum flokki][1]. Vörur í nr. 8481 eða 8482 eða vörur í nr. 8483, enda séu þær óaðskiljanlegur hluti vélar eða hreyfils.

f.       Rafbúnaður eða -tæki (85. kafli).

g.      Vörur í 90. kafla.

h.      Vörur í 91. kafla.

ij.      Vopn (93. kafli).

k.      [Ljós og ljósabúnaður][2] í nr. 9405.

l.       Burstar sem eru hlutar í ökutæki (nr. 9603).

3.      Sem hlutar eða fylgihlutir í 86.-88. kafla teljast ekki hlutar eða fylgihlutir sem ekki eru eingöngu eða aðallega hæfir til nota með vörum í þeim köflum. Hluti eða fylgihlutur sem svarar til lýsingar tveggja eða fleiri vöruliða þessara kafla flokkast í þann vörulið sem höfðar til aðalnotkunar þess hluta eða fylgihlutir.

4.      Í þessum flokki skulu:

a.      Ökutæki sérstaklega byggð til ferða bæði á vegum og spori flokkast í viðeigandi vörulið í 87. kafla.

b.      Vélknúin ökutæki fyrir láð og lög flokkast í viðeigandi vörulið í 87. kafla.

c.      Loftför sérstaklega byggð þannig að hægt er að nota þau jafnframt sem ökutæki á vegum flokkast í 88. kafla.

5.      Loftpúðafarartæki flokkast í þessum flokki á eftirfarandi hátt með þeim ökutækjum sem þau eru skyldust:

a.      Í 86. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða eftir spori (loftpúðalestir).

b.      Í 87. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða yfir láð eða bæði yfir láð og lög.

c.      Í 89. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða yfir vatn, einnig þótt þau geti lent á fjörum eða lendingarstöðum, eða geta líka ferðast yfir ís.

Hlutar og fylgihlutir fyrir loftpúðafarartæki flokkast á sama hátt og hlutar og fylgihlutir fyrir farartæki í vöruliðum sem loftpúðafarartæki flokkast í samkvæmt ákvæðunum hér á undan.

Sporbúnaður og -tengihlutar fyrir loftpúðalestir flokkast eins og sporbúnaður og -tengi­hlutar fyrir járnbrautir, og merkja-, öryggis- eða umferðarstjórnbúnaður fyrir flutningakerfi loftpúðalesta flokkast eins og merkja-, öryggis- eða umferðastjórnbúnaður fyrir járnbrautir.


[1] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).

[2] Sbr. 62. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

Athugasemdir kafla

87. KAFLI
Ökutæki, þó ekki járnbrautar- eða sporbrautarvagnar, og hlutar
og fylgihlutir til þeirra

 

Athugasemdir:

1.      Til þessa kafla teljast ekki járnbrautar- eða sporbrautarvagnar sem hannaðir eru eingöngu til aksturs eftir spori.

2.      Sem dráttarvélar í þessum kafla teljast ökutæki sem aðallega eru gerð til þess að draga eða ýta öðru ökutæki, tækjum eða hlassi, einnig með aukabúnaði til að flytja verkfæri, sáðfræ, áburð eða aðrar vörur auk aðaltilgangs þeirra. Vélar og verkfæri hönnuð til tengingar við dráttarvélar í nr. 8701 sem útskiptanleg tæki flokkast í viðeigandi vöruliði jafnvel þótt þeim sé framvísað með dráttarvélinni, og einnig fest á hana.

3.      Grindur með hreyfli og ökumannshúsi teljast til nr. 8702-8704 en ekki nr. 8706.

4.      Til nr. 8712 teljast öll barnareiðhjól. Önnur barnahjól teljast til nr. 9503.

 

[Athugasemd við undirlið:

Í undirlið 8708.22 flokkast:

a.      framrúður, afturrúður og aðrar rúður, í ramma; og

b.      framrúður, afturrúður og aðrar rúður, í eða án ramma, sem í er hitabúnaður eða annar rafmagns- eða rafeindabúnaður,

ef þær eru eingöngu eða aðalleg nothæfar í ökutæki í nr. 8701 til 8705.][1]


[1] Sbr. 63. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

8701
Dráttarvélar (þó ekki dráttarvélar í nr. 8709):

Hleður tollskrárnúmerum...

8702
Vélknúin ökutæki til flutnings á tíu manns eða fleiri að meðtöldum ökumanni:
8703
Bifreiðar og önnur vélknúin ökutæki aðallega gerð til mannflutninga (þó ekki ökutæki í nr. 8702), þar með taldir skutbílar og kappakstursbílar:
8704
Ökutæki til vöruflutninga:
8705
Vélknúin ökutæki til sérstakra nota, þó ekki ökutæki aðallega hönnuð til flutnings á mönnum eða vörum (t.d. gálgabifreiðar, kranabifreiðar, slökkvibifreiðar, steypuhræribifreiðar, götuhreinsibifreiðar, úðunarbifreiðar, verkstæðisvagnar, röntgentækjavagnar):

Hleður tollskrárnúmerum...

8706
Grindur með hreyfli fyrir vélknúin ökutæki í nr. 8701-8705:

Hleður tollskrárnúmerum...

8707
Yfirbyggingar (einnig ökumannshús) fyrir vélknúin ökutæki í nr. 8701-8705:

Hleður tollskrárnúmerum...

8708
Hlutar og fylgihlutar fyrir vélknúin ökutæki í nr. 8701-8705:

Hleður tollskrárnúmerum...

8709
Vinnuvagnar, sjálfknúnir, án tækja til lyftingar eða meðhöndlunar, til nota í verksmiðjum, vörugeymslum, á hafnarsvæðum eða flugvöllum til flutnings á vörum stuttar vegalengdir; dráttarvélar til nota á stöðvarpöllum járnbrauta; hlutar til framangreindra ökutækja:

Hleður tollskrárnúmerum...

8710
Skriðdrekar og aðrir brynvarðir stríðsvagnar, vélknúnir, einnig búnir vopnum, og hlutar til slíkra ökutækja

Hleður tollskrárnúmerum...

8711
Bifhjól (þar með talin stigin bifhjól) og reiðhjól með hjálparvél, með eða án hliðarvagns; hliðarvagnar:

Hleður tollskrárnúmerum...

8712
Reiðhjól og önnur hjól (þar með talin þríhjól til vöruflutninga), án vélar

Hleður tollskrárnúmerum...

8713
Ökutæki fyrir fatlaða, einnig vélknúin eða knúin á annan vélrænan hátt:

Hleður tollskrárnúmerum...

8714
Hlutar og fylgihlutir til ökutækja í nr. 8711-8713:

Hleður tollskrárnúmerum...

8715
Barnavagnar og hlutar til þeirra

Hleður tollskrárnúmerum...

8716
Tengivagnar og festivagnar; önnur ökutæki ekki vélrænt knúin; hlutar til þeirra:

Hleður tollskrárnúmerum...