Flokkur 17 Ökutæki, loftför, fljótandi för og hliðstæð flutningatæki
Athugasemdir flokks
FLOKKUR XVII
Ökutæki, loftför, fljótandi för og hliðstæð flutningatæki
Athugasemdir:
1. Til þessa flokks teljast ekki vörur í nr. 9503 eða 9508 eða langsleðar (bobsleighs), snjóbretti (toboggans) eða þess háttar í nr. 9506.
2. Sem hlutar og hlutar og fylgihlutir teljast ekki neðangreindar vörur, þótt þær séu augsýnilega fyrir vörur í þessum flokki:
a. Tengi, skinnur eða þess háttar úr hvers konar efni (flokkast eftir efni eða í nr. 8484) eða aðrar vörur úr vúlkaníseruðu gúmmíi öðru en harðgúmmíi (nr. 4016).
b. Hlutar til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV), eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli).
c. Vörur í 82. kafla (verkfæri).
d. Vörur í nr. 8306.
e. Vélar eða tæki í nr. 8401-8479, [eða hlutar til þeirra, þó ekki vatnskassar til vara í þessum flokki][1]. Vörur í nr. 8481 eða 8482 eða vörur í nr. 8483, enda séu þær óaðskiljanlegur hluti vélar eða hreyfils.
f. Rafbúnaður eða -tæki (85. kafli).
g. Vörur í 90. kafla.
h. Vörur í 91. kafla.
ij. Vopn (93. kafli).
k. [Ljós og ljósabúnaður][2] í nr. 9405.
l. Burstar sem eru hlutar í ökutæki (nr. 9603).
3. Sem hlutar eða fylgihlutir í 86.-88. kafla teljast ekki hlutar eða fylgihlutir sem ekki eru eingöngu eða aðallega hæfir til nota með vörum í þeim köflum. Hluti eða fylgihlutur sem svarar til lýsingar tveggja eða fleiri vöruliða þessara kafla flokkast í þann vörulið sem höfðar til aðalnotkunar þess hluta eða fylgihlutir.
4. Í þessum flokki skulu:
a. Ökutæki sérstaklega byggð til ferða bæði á vegum og spori flokkast í viðeigandi vörulið í 87. kafla.
b. Vélknúin ökutæki fyrir láð og lög flokkast í viðeigandi vörulið í 87. kafla.
c. Loftför sérstaklega byggð þannig að hægt er að nota þau jafnframt sem ökutæki á vegum flokkast í 88. kafla.
5. Loftpúðafarartæki flokkast í þessum flokki á eftirfarandi hátt með þeim ökutækjum sem þau eru skyldust:
a. Í 86. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða eftir spori (loftpúðalestir).
b. Í 87. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða yfir láð eða bæði yfir láð og lög.
c. Í 89. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða yfir vatn, einnig þótt þau geti lent á fjörum eða lendingarstöðum, eða geta líka ferðast yfir ís.
Hlutar og fylgihlutir fyrir loftpúðafarartæki flokkast á sama hátt og hlutar og fylgihlutir fyrir farartæki í vöruliðum sem loftpúðafarartæki flokkast í samkvæmt ákvæðunum hér á undan.
Sporbúnaður og -tengihlutar fyrir loftpúðalestir flokkast eins og sporbúnaður og -tengihlutar fyrir járnbrautir, og merkja-, öryggis- eða umferðarstjórnbúnaður fyrir flutningakerfi loftpúðalesta flokkast eins og merkja-, öryggis- eða umferðastjórnbúnaður fyrir járnbrautir.