Kafli 86 Eimreiðar, vagnar og hlutar til þeirra fyrir járnbrautir eða sporbrautir; sporbúnaður og tengihlutar fyrir járnbrautir eða sporbrautir og hlutar til þeirra; hvers konar vélrænn umferðamerkjabúnaður (þar með talinn rafknúinn)
Athugasemdir flokks
FLOKKUR XVII
Ökutæki, loftför, fljótandi för og hliðstæð flutningatæki
Athugasemdir:
1. Til þessa flokks teljast ekki vörur í nr. 9503 eða 9508 eða langsleðar (bobsleighs), snjóbretti (toboggans) eða þess háttar í nr. 9506.
2. Sem hlutar og hlutar og fylgihlutir teljast ekki neðangreindar vörur, þótt þær séu augsýnilega fyrir vörur í þessum flokki:
a. Tengi, skinnur eða þess háttar úr hvers konar efni (flokkast eftir efni eða í nr. 8484) eða aðrar vörur úr vúlkaníseruðu gúmmíi öðru en harðgúmmíi (nr. 4016).
b. Hlutar til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV), eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli).
c. Vörur í 82. kafla (verkfæri).
d. Vörur í nr. 8306.
e. Vélar eða tæki í nr. 8401-8479, [eða hlutar til þeirra, þó ekki vatnskassar til vara í þessum flokki][1]. Vörur í nr. 8481 eða 8482 eða vörur í nr. 8483, enda séu þær óaðskiljanlegur hluti vélar eða hreyfils.
f. Rafbúnaður eða -tæki (85. kafli).
g. Vörur í 90. kafla.
h. Vörur í 91. kafla.
ij. Vopn (93. kafli).
k. [Ljós og ljósabúnaður][2] í nr. 9405.
l. Burstar sem eru hlutar í ökutæki (nr. 9603).
3. Sem hlutar eða fylgihlutir í 86.-88. kafla teljast ekki hlutar eða fylgihlutir sem ekki eru eingöngu eða aðallega hæfir til nota með vörum í þeim köflum. Hluti eða fylgihlutur sem svarar til lýsingar tveggja eða fleiri vöruliða þessara kafla flokkast í þann vörulið sem höfðar til aðalnotkunar þess hluta eða fylgihlutir.
4. Í þessum flokki skulu:
a. Ökutæki sérstaklega byggð til ferða bæði á vegum og spori flokkast í viðeigandi vörulið í 87. kafla.
b. Vélknúin ökutæki fyrir láð og lög flokkast í viðeigandi vörulið í 87. kafla.
c. Loftför sérstaklega byggð þannig að hægt er að nota þau jafnframt sem ökutæki á vegum flokkast í 88. kafla.
5. Loftpúðafarartæki flokkast í þessum flokki á eftirfarandi hátt með þeim ökutækjum sem þau eru skyldust:
a. Í 86. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða eftir spori (loftpúðalestir).
b. Í 87. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða yfir láð eða bæði yfir láð og lög.
c. Í 89. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða yfir vatn, einnig þótt þau geti lent á fjörum eða lendingarstöðum, eða geta líka ferðast yfir ís.
Hlutar og fylgihlutir fyrir loftpúðafarartæki flokkast á sama hátt og hlutar og fylgihlutir fyrir farartæki í vöruliðum sem loftpúðafarartæki flokkast í samkvæmt ákvæðunum hér á undan.
Sporbúnaður og -tengihlutar fyrir loftpúðalestir flokkast eins og sporbúnaður og -tengihlutar fyrir járnbrautir, og merkja-, öryggis- eða umferðarstjórnbúnaður fyrir flutningakerfi loftpúðalesta flokkast eins og merkja-, öryggis- eða umferðastjórnbúnaður fyrir járnbrautir.Athugasemdir kafla
86. KAFLI
Eimreiðar, vagnar og hlutar til þeirra fyrir járnbrautir eða sporbrautir; sporbúnaður og tengihlutar fyrir járnbrautir eða sporbrautir og hlutar til þeirra; hvers konar vélrænn umferðamerkja- búnaður (þar með talinn rafknúinn)
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
| a. | Brautarbitar fyrir járnbrautir eða sporbrautir úr viði eða steinsteyptar brautareiningar fyrir loftpúðalestir (nr. 4406 eða 6810). |
| b. | Brautarbyggingarefni fyrir járnbrautir eða sporbrautir, úr járni eða stáli, í nr. 7302. |
| c. | Rafknúinn tækjabúnaður til merkjasendinga í nr. 8530. |
2. Til nr. 8607 telst meðal annars:
| a. | Öxlar, hjól, hjólasamstæður (hjól og öxlar), hjólhringir úr málmi, gjarðir og nafir og aðrir hlutar til hjóla, úr málmi. |
| b. | Vagngrindur, undirvagnsgrindur, fjölöxlagrindur og einöxlagrindur. |
| c. | Öxulleg; gírhemlar. |
| d. | Höggpúðar fyrir vagna; krókar og önnur vagntengi og tengigangar. |
| e. | Vagnyfirbyggingar. |
3. Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér að ofan telst til nr. 8608 meðal annars:
| a. | Samsettir brautarteinar, snúningskringlur, brautarpallshöggpúðar og hleðslumælar. |
| b. | Merkisarmstengur, vélrænar merkjakringlur, búnaður til að stjórna slám, merkja- og brautarskiptastillum, og annar vélrænn merkja-, öryggis- eða umferðarstjórnbúnaður (þar með talinn rafknúinn), einnig hæfur til raflýsingar, fyrir járnbrautir, sporbrautir, vegi, vatnaleiðir, bifreiðastæði, hafnarmannvirki eða flugvelli. |
8601
Eimreiðar knúnar utanaðkomandi raforku eða með rafhlöðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
8602
Aðrar eimreiðar; kolavagnar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8603
Sjálfknúnir fólks- eða vöruflutningavagnar fyrir járnbrautir eða sporbrautir, þó ekki vagnar í nr. 8604:
Hleður tollskrárnúmerum...
8604
Járnbrauta- eða sporbrauta-, viðgerðar- eða þjónustuvagnar, einnig sjálfknúnir (t.d. verkstæðisvagnar, kranavagnar, undirlagsþjöppuvagnar, viðhaldsvagnar, prófunarvagnar og brautareftirlitsvagnar)
Hleður tollskrárnúmerum...
8605
Farþegavagnar fyrir járnbrautir eða sporbrautir, ekki sjálfknúnir; farangursvagnar, póststofuvagnar og aðrir vagnar til sérstakra nota fyrir járnbrautir eða sporbrautir, ekki sjálfknúnir (þó ekki vagnar í nr. 8604)
Hleður tollskrárnúmerum...
8606
Vöruflutningavagnar fyrir járnbrautir eða sporbrautir, ekki sjálfknúnir:
Hleður tollskrárnúmerum...
8607
Hlutar til eimreiða eða vagna fyrir járnbrautir eða sporbrautir:
Hleður tollskrárnúmerum...
8608
Sporbúnaður og tengihlutar fyrir járnbrautir eða sporbrautir; vélrænn merkja-, öryggis- eða umferðarstjórnbúnaður (þar með talinn rafknúinn), fyrir járnbrautir, sporbrautir, vegi, vatnaleiðir, bifreiðastæði, hafnarmannvirki eða flugvelli; hlutar til þess sem að framan greinir
Hleður tollskrárnúmerum...
8609
Gámar (þar með taldir gámar til flutnings á vökvum) sérstaklega hannaðir og búnir til flutnings með einni eða fleiri gerðum farartækja
Hleður tollskrárnúmerum...