Athugasemdir flokks

FLOKKUR XVII
Ökutæki, loftför, fljótandi för og hliðstæð flutningatæki

 

Athugasemdir:

1.      Til þessa flokks teljast ekki vörur í nr. 9503 eða 9508 eða langsleðar (bobsleighs), snjó­bretti (toboggans) eða þess háttar í nr. 9506.

2.      Sem hlutar og hlutar og fylgihlutir teljast ekki neðangreindar vörur, þótt þær séu augsýnilega fyrir vörur í þessum flokki:

a.      Tengi, skinnur eða þess háttar úr hvers konar efni (flokkast eftir efni eða í nr. 8484) eða aðrar vörur úr vúlkaníseruðu gúmmíi öðru en harðgúmmíi (nr. 4016).

b.      Hlutar til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV), eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli).

c.      Vörur í 82. kafla (verkfæri).

d.      Vörur í nr. 8306.

e.      Vélar eða tæki í nr. 8401-8479, [eða hlutar til þeirra, þó ekki vatnskassar til vara í þessum flokki][1]. Vörur í nr. 8481 eða 8482 eða vörur í nr. 8483, enda séu þær óaðskiljanlegur hluti vélar eða hreyfils.

f.       Rafbúnaður eða -tæki (85. kafli).

g.      Vörur í 90. kafla.

h.      Vörur í 91. kafla.

ij.      Vopn (93. kafli).

k.      [Ljós og ljósabúnaður][2] í nr. 9405.

l.       Burstar sem eru hlutar í ökutæki (nr. 9603).

3.      Sem hlutar eða fylgihlutir í 86.-88. kafla teljast ekki hlutar eða fylgihlutir sem ekki eru eingöngu eða aðallega hæfir til nota með vörum í þeim köflum. Hluti eða fylgihlutur sem svarar til lýsingar tveggja eða fleiri vöruliða þessara kafla flokkast í þann vörulið sem höfðar til aðalnotkunar þess hluta eða fylgihlutir.

4.      Í þessum flokki skulu:

a.      Ökutæki sérstaklega byggð til ferða bæði á vegum og spori flokkast í viðeigandi vörulið í 87. kafla.

b.      Vélknúin ökutæki fyrir láð og lög flokkast í viðeigandi vörulið í 87. kafla.

c.      Loftför sérstaklega byggð þannig að hægt er að nota þau jafnframt sem ökutæki á vegum flokkast í 88. kafla.

5.      Loftpúðafarartæki flokkast í þessum flokki á eftirfarandi hátt með þeim ökutækjum sem þau eru skyldust:

a.      Í 86. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða eftir spori (loftpúðalestir).

b.      Í 87. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða yfir láð eða bæði yfir láð og lög.

c.      Í 89. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða yfir vatn, einnig þótt þau geti lent á fjörum eða lendingarstöðum, eða geta líka ferðast yfir ís.

Hlutar og fylgihlutir fyrir loftpúðafarartæki flokkast á sama hátt og hlutar og fylgihlutir fyrir farartæki í vöruliðum sem loftpúðafarartæki flokkast í samkvæmt ákvæðunum hér á undan.

Sporbúnaður og -tengihlutar fyrir loftpúðalestir flokkast eins og sporbúnaður og -tengi­hlutar fyrir járnbrautir, og merkja-, öryggis- eða umferðarstjórnbúnaður fyrir flutningakerfi loftpúðalesta flokkast eins og merkja-, öryggis- eða umferðastjórnbúnaður fyrir járnbrautir.


[1] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).

[2] Sbr. 62. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

Athugasemdir kafla

88. KAFLI
Loftför, geimför, og hlutar til þeirra

 

[Athugasemd:

Sem ómönnuð loftför í þessum kafla teljast öll loftför, þó ekki þau sem flokkast í nr. 8801, sem hönnuð eru til flugs án flugmanns um borð. Þau geta verið hönnuð til að flytja farm eða búin föstum innbyggðum stafrænum myndvélum eða öðrum búnaði sem mundi gera þeim kleift að framkvæma mikilvægar aðgerðir á flugi.

Orðasambandið ómönnuð loftför tekur þó ekki til fljúgandi leikfanga sem eingöngu eru hönnuð til skemmtunar (nr. 9503).][1]

 

[Athugasemdir við undirliði:][2]

[1.][3] Hugtakið eigin þyngd í nr. 8802.11-8802.40 tekur til þyngdar vélarinnar í eðlilegu flugástandi, að undanskilinni þyngd áhafnar og eldsneytis og búnaðar annars en þess sem eru varanlega festur búnaður.

[2.      Með hámarksflugtaksþyngd í undirliðum 8806.21 til 8806.24 og 8806.91 til 8806.94 er átt við hámarksþyngd við venjulega tilhögun flugs, flugtak, þ.m.t. þyngd farms, búnaðar og eldsneytis.][4]



[1] Sbr. 64. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[2] Sbr. 64. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[3] Sbr. 64. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[4] Sbr. 64. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

8801
Loftbelgir og loftskip; svifflugur, svifdrekar og önnur vélarlaus loftför:

Hleður tollskrárnúmerum...

8802
Önnur flugför (t.d. þyrlur, flugvélar), þó ekki ómönnuð flugför í nr. 8806; geimför (þar með taldir gervihnettir) og skotvagnar fyrir för sem fara neðar en á braut um jörðu (suborbital) og geimför:
Athugasemdir
Sbr. d-lið 64. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

8804
Fallhlífar (þar með taldar stýrifallhlífar og sviffallhlífar (paragliders)) og hverfifallhlífar; hlutar og fylgihlutir til þeirra

Hleður tollskrárnúmerum...

8805
Flugtaksbúnaður fyrir loftför; þilfarsfangarar eða svipaður búnaður; flughermar; hlutar til framangreindra vara:

Hleður tollskrárnúmerum...

8806
Ómönnuð flugför:
Athugasemdir
Sbr. g-lið 64. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

8807
Hlutar til vara í nr. 8801, 8802 eða 8806:
Athugasemdir
Sbr. h-lið 64. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...