Kafli 89 Skip, bátar og fljótandi mannvirki
Athugasemdir flokks
FLOKKUR XVII
Ökutæki, loftför, fljótandi för og hliðstæð flutningatæki
Athugasemdir:
1. Til þessa flokks teljast ekki vörur í nr. 9503 eða 9508 eða langsleðar (bobsleighs), snjóbretti (toboggans) eða þess háttar í nr. 9506.
2. Sem hlutar og hlutar og fylgihlutir teljast ekki neðangreindar vörur, þótt þær séu augsýnilega fyrir vörur í þessum flokki:
a. Tengi, skinnur eða þess háttar úr hvers konar efni (flokkast eftir efni eða í nr. 8484) eða aðrar vörur úr vúlkaníseruðu gúmmíi öðru en harðgúmmíi (nr. 4016).
b. Hlutar til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV), eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli).
c. Vörur í 82. kafla (verkfæri).
d. Vörur í nr. 8306.
e. Vélar eða tæki í nr. 8401-8479, [eða hlutar til þeirra, þó ekki vatnskassar til vara í þessum flokki][1]. Vörur í nr. 8481 eða 8482 eða vörur í nr. 8483, enda séu þær óaðskiljanlegur hluti vélar eða hreyfils.
f. Rafbúnaður eða -tæki (85. kafli).
g. Vörur í 90. kafla.
h. Vörur í 91. kafla.
ij. Vopn (93. kafli).
k. [Ljós og ljósabúnaður][2] í nr. 9405.
l. Burstar sem eru hlutar í ökutæki (nr. 9603).
3. Sem hlutar eða fylgihlutir í 86.-88. kafla teljast ekki hlutar eða fylgihlutir sem ekki eru eingöngu eða aðallega hæfir til nota með vörum í þeim köflum. Hluti eða fylgihlutur sem svarar til lýsingar tveggja eða fleiri vöruliða þessara kafla flokkast í þann vörulið sem höfðar til aðalnotkunar þess hluta eða fylgihlutir.
4. Í þessum flokki skulu:
a. Ökutæki sérstaklega byggð til ferða bæði á vegum og spori flokkast í viðeigandi vörulið í 87. kafla.
b. Vélknúin ökutæki fyrir láð og lög flokkast í viðeigandi vörulið í 87. kafla.
c. Loftför sérstaklega byggð þannig að hægt er að nota þau jafnframt sem ökutæki á vegum flokkast í 88. kafla.
5. Loftpúðafarartæki flokkast í þessum flokki á eftirfarandi hátt með þeim ökutækjum sem þau eru skyldust:
a. Í 86. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða eftir spori (loftpúðalestir).
b. Í 87. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða yfir láð eða bæði yfir láð og lög.
c. Í 89. kafla, ef þau eru hönnuð til ferða yfir vatn, einnig þótt þau geti lent á fjörum eða lendingarstöðum, eða geta líka ferðast yfir ís.
Hlutar og fylgihlutir fyrir loftpúðafarartæki flokkast á sama hátt og hlutar og fylgihlutir fyrir farartæki í vöruliðum sem loftpúðafarartæki flokkast í samkvæmt ákvæðunum hér á undan.
Sporbúnaður og -tengihlutar fyrir loftpúðalestir flokkast eins og sporbúnaður og -tengihlutar fyrir járnbrautir, og merkja-, öryggis- eða umferðarstjórnbúnaður fyrir flutningakerfi loftpúðalesta flokkast eins og merkja-, öryggis- eða umferðastjórnbúnaður fyrir járnbrautir.Athugasemdir kafla
Skip, bátar og fljótandi mannvirki
8901
Skemmtiferðaskip, bátar til skoðunarferða, ferjur, flutningaskip, vöruflutningaprammar og svipuð för til flutnings á mönnum eða vörum:
Hleður tollskrárnúmerum...
8902
Fiskiskip; verksmiðjuskip og önnur för til vinnslu eða geymslu á sjávarafurðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
8903
Snekkjur og önnur skemmtiför eða sportför; árabátar og kanóar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8904
Dráttarbátar og för til að ýta öðrum förum
Hleður tollskrárnúmerum...
8905
Vitaskip, slökkviskip, dýpkunarskip, flotkranar, og önnur fljótandi för sem ætluð eru aðallega til annars konar notkunar en siglinga; flotkvíar; fljótandi eða sökkvanlegir bor- eða framleiðslupallar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8906
Önnur för, þar með talin herskip og björgunarbátar, þó ekki árabátar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8907
Önnur fljótandi mannvirki (t.d. flekar, tankar, sökkviker, löndunarbrýr, baujur og sjómerki):
Hleður tollskrárnúmerum...
8908
För og önnur fljótandi mannvirki til niðurrifs
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir