Flokkur 16 Vélbúnaður og vélræn tæki; rafbúnaður; hlutar til þessara vara; hljóðupptöku- og hljóðflutningstæki, mynda- og hljóðupptökutæki og mynda- og hljóðflutningstæki fyrir sjónvarp, og hlutar og fylgihlutir til þess konar vara
Athugasemdir flokks
FLOKKUR XVI
Vélbúnaður og vélræn tæki; rafbúnaður; hlutar til þessara vara;
hljóðupptöku- og hljóðflutningstæki, mynda- og hljóðupptöku-
tæki og mynda- og hljóðflutningstæki fyrir sjónvarp, og hlutar
og fylgihlutir til þess konar vara
Athugasemdir:
1. Til þessa flokks telst ekki:
a. Belti eða reimar fyrir drifbúnað eða færibönd, úr plasti í 39. kafla eða vúlkaníseruðu gúmmíi (nr. 4010), eða aðrar vörur úr óhertu vúlkaníseruðu gúmmíi sem notaðar eru í vélbúnað, vélræn tæki, rafmagnstæki eða til annarra tækninota, úr vúlkaníseruðu gúmmíi öðru en harðgúmmíi (nr. 4016).
b. Vörur úr leðri eða samsettu leðri (nr. 4205) eða úr loðskinni (nr. 4303) sem notaðar eru í vélbúnað, vélræn tæki eða til annarra tækninota.
c. Kefli, spólur, snældur, keilur, leggir, rúllur eða áþekkar uppistöður úr hvers konar efni (t.d. 39., 40., 44. eða 48. kafli eða flokkur XV).
d. Götuð spjöld í Jacquardvélar eða áþekkar vélar (t.d. 39. eða 48. kafli eða flokkur XV).
e. Belti eða reimar fyrir drifbúnað eða færibönd úr spunaefni (nr. 5910) eða aðrar vörur úr spunaefni til tækninota (nr. 5911).
f. Eðalsteinar eða hálfeðalsteinar (náttúrlegir, syntetískir eða endurgerðir) í nr. 7102 til 7104, eða vörur sem að öllu leyti eru gerðar úr slíkum steinum í nr. 7116, þó ekki óuppsettir unnir safírar og demantar í hljóðnálar (nr. 8522).
g. Hlutar til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV) eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli).
h. Borpípur (nr. 7304).
ij. Endalaus belti úr málmvír eða málmræmum (flokkur XV).
k. Vörur í 82. eða 83. kafla
l. Vörur í flokki XVII.
m. Vörur í 90. kafla.
n. Klukkur, úr og aðrar vörur í 91. kafla.
o. Skiptiverkfæri í nr. 8207 eða burstar til nota sem hlutar til véla (nr. 9603). Áþekk skiptiverkfæri flokkast eftir meginefni í hinum vinnandi hluta þeirra (t.d. í 40., 42., 43., 45. eða 59. kafla eða nr. 6804 eða 6909).
p. Vörur í 95. kafla.
[q. Ritvélaborðar eða áþekk bönd, einnig á spólum eða í hylkjum (flokkast eftir því efni sem þetta er aðallega gert úr, eða í nr. 9612 ef blekborið eða unnið á annan hátt til áprentunar), eða einfætur, tvífætur og þrífætur og áþekkar vörur í nr. 9602.][1]
2. Leiði ekki annað af 1. athugasemd við þennan flokk, 1. athugasemd við 84. kafla og 1. athugasemd við 85. kafla flokkast hlutar til véla (sem ekki eru hlutar til vara í nr. 8484, 8544, 8545, 8546 eða 8547) svo sem hér segir:
a. Hlutar sem eru vörur meðtaldar í einhverju af vöruliðum 84. eða 85. kafla (þó ekki nr. 8409, 8431, 8448, 8466, 8473, 8487, 8503, 8522, 8529, 8538 og 8548) flokkast alltaf í viðkomandi vöruliði.
b. Aðrir hlutar sem eingöngu eða aðallega má nota við ákveðna vél eða fleiri vélar sem teljast til sama vöruliðar (þar með taldar vélar í nr. 8479 eða 8543) flokkast með þeim vélum eða í nr. 8409, 8431, 8448, 8466, 8473, 8503, 8522, 8529 eða 8538 eftir því sem við á. [Hlutar sem jöfnum höndum má nota í vörur í nr. 8517 og 8525 til 8528 skal flokka í nr. 8517, og hlutar sem eingöngu eða aðallega er hægt að nota í vörur í nr. 8524 skulu flokkaðar í nr. 8529.][2]
c. Allir aðrir hlutar teljast til nr. 8409, 8431, 8448, 8466, 8473, 8503, 8522, 8529 eða 8538 eftir því sem við á eða, verði því ekki við komið, í nr. 8487 eða 8548.
3. Leiði ekki annað af orðalagi flokkast vélasamstæður, settar saman í eina heild úr tveimur eða fleiri vélum og aðrar vélar hannaðar til að framkvæma tvö eða fleiri verkatriði, saman eða sér, eins og eingöngu væri um að ræða þann vélarhluta eða þá vél sem gegnir höfuðhlutverkinu.
4. Sé vél (þar með taldar samsettar vélar) gerð úr sjálfstæðum hlutum (hvort sem þeir eru aðskildir eða tengdir með pípum, tengslum, rafmagnsköplum eða öðrum búnaði), sem ætlað er sameiginlega að framkvæma skýrt skilgreint verkatriði sem einn af vöruliðum 84. eða 85. kafla taka til, skal hún í heild flokkast undir þann vörulið sem höfðar til þess verkatriðis.
5. Sem vél í athugasemdum þessum teljast hverskonar vélar; vélbúnaður, vélakostur, áhöld, tækjabúnaður eða tæki sem getið er í vöruliðum 84. eða 85. kafla.
[6. A. Hvarvetna í tollskránni tekur orðasambandið rafmagns- og rafeindaúrgangur og -rusl til rafmagns- og rafeindasamsetninga, prentrásaplatna og rafmagns- eða rafeindavara sem:
1. gert hefur verið ónothæft til þess sem það upphaflega var ætlað, með niðurrifi, niðurskurði eða á annan hátt eða svarar ekki kostnaði að gera við, standsetja eða endurnýja til þess að gera það hæft til upphaflegra nota, og
2. pakkað er eða flutta með þeim hætti að ekki sé ætlunin að koma í veg fyrir skemmdir á einstökum vörum við lestun og losun.
B. Blandaðar sendingar með rafmagns- og rafeindaúrgangi og -rusli og öðrum úrgangi og rusli skal flokkað í nr. 8549.
C. Þessi flokkur tekur ekki til sorps bæjar- og sveitarfélaga eins og það er skilgreint í 4. athugasemd við 38. kafla.][3]
[1] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
[2] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[3] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.