Kafli 84 Kjarnakljúfar, katlar, vélbúnaður og vélræn tæki; hlutar til þeirra
Athugasemdir flokks
FLOKKUR XVI
Vélbúnaður og vélræn tæki; rafbúnaður; hlutar til þessara vara;
hljóðupptöku- og hljóðflutningstæki, mynda- og hljóðupptöku-
tæki og mynda- og hljóðflutningstæki fyrir sjónvarp, og hlutar
og fylgihlutir til þess konar vara
Athugasemdir:
1. Til þessa flokks telst ekki:
a. Belti eða reimar fyrir drifbúnað eða færibönd, úr plasti í 39. kafla eða vúlkaníseruðu gúmmíi (nr. 4010), eða aðrar vörur úr óhertu vúlkaníseruðu gúmmíi sem notaðar eru í vélbúnað, vélræn tæki, rafmagnstæki eða til annarra tækninota, úr vúlkaníseruðu gúmmíi öðru en harðgúmmíi (nr. 4016).
b. Vörur úr leðri eða samsettu leðri (nr. 4205) eða úr loðskinni (nr. 4303) sem notaðar eru í vélbúnað, vélræn tæki eða til annarra tækninota.
c. Kefli, spólur, snældur, keilur, leggir, rúllur eða áþekkar uppistöður úr hvers konar efni (t.d. 39., 40., 44. eða 48. kafli eða flokkur XV).
d. Götuð spjöld í Jacquardvélar eða áþekkar vélar (t.d. 39. eða 48. kafli eða flokkur XV).
e. Belti eða reimar fyrir drifbúnað eða færibönd úr spunaefni (nr. 5910) eða aðrar vörur úr spunaefni til tækninota (nr. 5911).
f. Eðalsteinar eða hálfeðalsteinar (náttúrlegir, syntetískir eða endurgerðir) í nr. 7102 til 7104, eða vörur sem að öllu leyti eru gerðar úr slíkum steinum í nr. 7116, þó ekki óuppsettir unnir safírar og demantar í hljóðnálar (nr. 8522).
g. Hlutar til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV) eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli).
h. Borpípur (nr. 7304).
ij. Endalaus belti úr málmvír eða málmræmum (flokkur XV).
k. Vörur í 82. eða 83. kafla
l. Vörur í flokki XVII.
m. Vörur í 90. kafla.
n. Klukkur, úr og aðrar vörur í 91. kafla.
o. Skiptiverkfæri í nr. 8207 eða burstar til nota sem hlutar til véla (nr. 9603). Áþekk skiptiverkfæri flokkast eftir meginefni í hinum vinnandi hluta þeirra (t.d. í 40., 42., 43., 45. eða 59. kafla eða nr. 6804 eða 6909).
p. Vörur í 95. kafla.
[q. Ritvélaborðar eða áþekk bönd, einnig á spólum eða í hylkjum (flokkast eftir því efni sem þetta er aðallega gert úr, eða í nr. 9612 ef blekborið eða unnið á annan hátt til áprentunar), eða einfætur, tvífætur og þrífætur og áþekkar vörur í nr. 9602.][1]
2. Leiði ekki annað af 1. athugasemd við þennan flokk, 1. athugasemd við 84. kafla og 1. athugasemd við 85. kafla flokkast hlutar til véla (sem ekki eru hlutar til vara í nr. 8484, 8544, 8545, 8546 eða 8547) svo sem hér segir:
a. Hlutar sem eru vörur meðtaldar í einhverju af vöruliðum 84. eða 85. kafla (þó ekki nr. 8409, 8431, 8448, 8466, 8473, 8487, 8503, 8522, 8529, 8538 og 8548) flokkast alltaf í viðkomandi vöruliði.
b. Aðrir hlutar sem eingöngu eða aðallega má nota við ákveðna vél eða fleiri vélar sem teljast til sama vöruliðar (þar með taldar vélar í nr. 8479 eða 8543) flokkast með þeim vélum eða í nr. 8409, 8431, 8448, 8466, 8473, 8503, 8522, 8529 eða 8538 eftir því sem við á. [Hlutar sem jöfnum höndum má nota í vörur í nr. 8517 og 8525 til 8528 skal flokka í nr. 8517, og hlutar sem eingöngu eða aðallega er hægt að nota í vörur í nr. 8524 skulu flokkaðar í nr. 8529.][2]
c. Allir aðrir hlutar teljast til nr. 8409, 8431, 8448, 8466, 8473, 8503, 8522, 8529 eða 8538 eftir því sem við á eða, verði því ekki við komið, í nr. 8487 eða 8548.
3. Leiði ekki annað af orðalagi flokkast vélasamstæður, settar saman í eina heild úr tveimur eða fleiri vélum og aðrar vélar hannaðar til að framkvæma tvö eða fleiri verkatriði, saman eða sér, eins og eingöngu væri um að ræða þann vélarhluta eða þá vél sem gegnir höfuðhlutverkinu.
4. Sé vél (þar með taldar samsettar vélar) gerð úr sjálfstæðum hlutum (hvort sem þeir eru aðskildir eða tengdir með pípum, tengslum, rafmagnsköplum eða öðrum búnaði), sem ætlað er sameiginlega að framkvæma skýrt skilgreint verkatriði sem einn af vöruliðum 84. eða 85. kafla taka til, skal hún í heild flokkast undir þann vörulið sem höfðar til þess verkatriðis.
5. Sem vél í athugasemdum þessum teljast hverskonar vélar; vélbúnaður, vélakostur, áhöld, tækjabúnaður eða tæki sem getið er í vöruliðum 84. eða 85. kafla.
[6. A. Hvarvetna í tollskránni tekur orðasambandið rafmagns- og rafeindaúrgangur og -rusl til rafmagns- og rafeindasamsetninga, prentrásaplatna og rafmagns- eða rafeindavara sem:
1. gert hefur verið ónothæft til þess sem það upphaflega var ætlað, með niðurrifi, niðurskurði eða á annan hátt eða svarar ekki kostnaði að gera við, standsetja eða endurnýja til þess að gera það hæft til upphaflegra nota, og
2. pakkað er eða flutta með þeim hætti að ekki sé ætlunin að koma í veg fyrir skemmdir á einstökum vörum við lestun og losun.
B. Blandaðar sendingar með rafmagns- og rafeindaúrgangi og -rusli og öðrum úrgangi og rusli skal flokkað í nr. 8549.
C. Þessi flokkur tekur ekki til sorps bæjar- og sveitarfélaga eins og það er skilgreint í 4. athugasemd við 38. kafla.][3]
[1] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
[2] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[3] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
Athugasemdir kafla
84. KAFLI
Kjarnakljúfar, katlar, vélbúnaður og vélræn tæki; hlutar til þeirra
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
a. Kvarnasteinar, hverfisteinar eða aðrar vörur í 68. kafla.
b. Vélbúnaður eða tæki (t.d. dælur) úr leir og leirhlutar til vélbúnaðar eða tækja úr hvers konar efni (69. kafli).
c. Búnaður úr gleri fyrir rannsóknarstofur (nr. 7017); vélbúnaður, tæki eða aðrar vörur til tækninota eða hlutar til þeirra, úr gleri (nr. 7019 eða 7020).
d. Vörur í nr. 7321 eða 7322 eða áþekkar vörur úr öðrum ódýrum málmi (74.-76. eða 78.-81. kafli).
e. Ryksugur í nr. 8508.
f. Vélræn rafmagnsheimilistæki í nr. 8509; stafrænar myndavélar í nr. 8525.
[g. Vatnskassar til vara í flokki XVII.
h.][1] Handknúnir vélrænir gólfsópar, án hreyfils (nr. 9603).
[2. Leiði ekki annað af 3. athugasemd við flokk XVI og 11. athugasemd við þennan kafla, skal vél eða tæki sem svarar til lýsingar í einu eða fleiri af nr. 8401 til 8424 eða nr. 8486 og jafnframt lýsingar í einu eða fleiri af nr. 8425 til 8480 teljast eftir því sem við á til númers í fyrr nefndu númeralotunni eða nr. 8486 en ekki til síðarnefndu númeralotunnar.
A. Til nr. 8419 telst þó ekki:
a. Spírunartæki, útungunartæki eða ungamæður (nr. 8436);
b. kornrakavélar (nr. 8437):
c. flæðitæki (diffusing apparatus) til sykursafaframleiðslu (nr. 8438);
d. vélbúnaður til hitameðferðar á spunagarni, dúk eða tilbúnum spunavörum (nr. 8451); eða
e. vélbúnaður, vélakostur eða búnaður fyrir rannsóknarstofur, hannað til vélrænnar vinnslu, þar sem hitabreytingar gegna aukahlutverki, jafnvel þótt nauðsynlegar séu.
B. Til nr. 8422 telst ekki:
a. Saumavélar til lokunar á pokum eða áþekkum ílátum (nr. 8452).
b. Skrifstofuvélar í nr. 8472.
C. Til nr. 8424 teljast ekki:
a. Bleksprautuprentvélar (nr. 8443).
b. Vatnsþrýstiskurðarvélar (8456).][2]
3. Vélar til smíða úr hvers konar efni sem svara til lýsingar í nr. 8456 og jafnframt til lýsingar í nr. 8457, 8458, 8459, 8460, 8461, 8464 eða 8465 skulu flokkast í nr. 8456.
4. Til nr. 8457 teljast eingöngu vélar til smíða úr málmi, þó ekki rennibekkir (þar með taldar rennimiðstöðvar) sem geta framkvæmt mismunandi vélavinnu annaðhvort:
a. með sjálfvirkri verkfæraskiptingu úr magasíni eða þess háttar í samræmi við vélvinnsluforrit (vélvinnslumiðstöð);
b. með sjálfvirkri notkun, samtímis eða raðbundið, mismunandi staðalhausa sem vinna úr verkefni í ákveðinni stöðu (einingasmíðavélar, einstöðuvélar); eða
c. með sjálfvirkum tilflutningi verkefnisins að mismunandi staðalhausum (fjölstöðufærsluvélar).
[5. Sem skurðarsamstæða í nr. 8462 fyrir flatar vörur telst vinnslusamstæða sem saman stendur af afvindu, vafningsfletjara, skurðarvél og ávindu. Lengdarskurðarvél fyrir flatar vörur er vinnslusamstæða sem saman stendur af afvindu, vafningsfletjara og skurðavél.][3]
[6.][4] A. Sem sjálfvirkar gagnavinnsluvélar í nr. 8471 teljast vélar sem geta:
1. geymt vinnsluforrit eða forrit og að minnsta kosti þau gögn sem beint eru nauðsynleg til að láta forritið vinna;
2. verið auðveldlega forritaðar í samræmi við óskir notandans;
3. framkvæmt talnaútreikning samkvæmt ákvörðun notandans;
4. framkvæmt, án mannlegra afskipta, vinnsluforrit sem gerir ráð fyrir að þær geti breytt úrvinnslu sinni með rökrænni ákvörðun á meðan á vinnslu stendur.
B. Sjálfvirkar gagnavinnsluvélar geta verið í formi kerfa sem samsett eru úr breytilegum fjölda sérstæðra eininga.
C. Leiði ekki annað af D- og E-lið hér á eftir skal eining talin hluti sjálfvirkrar gagnavinnsluvélar ef hún uppfyllir öll eftirtalin skilyrði:
1. Hún sé þeirrar gerðar sem aðallega eða eingöngu er notuð í gagnavinnslukerfi.
2. Hún sé tengjanleg við miðstöð, annaðhvort beint eða í gegnum aðra einingu eða einingar.
3. Hún geti tekið á móti gögnum eða sent þau frá sér í því formi (tákn- eða merkjamáli) sem kerfið getur notað.
Einingar gagnavinnsluvélar sem framvísað er stökum skulu flokkast í nr. 8471.
Lyklaborð, inntakstæki fyrir X-Y hnit og diskageymslueiningar sem uppfylla skilyrði 2. og 3. töluliðar C-liðar hér á undan skulu í öllum tilfellum flokkast sem einingar í nr. 8471.
D. Til nr. 8471 telst þó ekki eftirtalið sem framvísað er stöku, þrátt fyrir að uppfylla öll þau skilyrði sem kveðið er á um í [C-lið 6.][5] athugasemdar hér að framan:
1. Prentarar, afritunarvélar, myndsendar, einnig sambyggt.
2. Tæki til sendingar eða móttöku á máli og myndum, þar með talið tæki til samskipta á línu eða þráðlausu neti (svo sem staðtengdu neti eða víðneti).
3. Hátalarar og hljóðnemar.
4. Sjónvarpsmyndavélar; stafrænar myndavélar og myndbandstökuvélar.
5. Skjáir og myndvarpar, ekki búin sjónvarpsmóttökubúnaði.
E. Vélar sem framkvæma tiltekið verkatriði annað en gagnavinnslu og fela í sér eða vinna í tengslum við sjálfvirka gagnavinnsluvél skulu flokkaðar í viðeigandi vörulið með tilliti til verkatriðis þeirra eða, verði því ekki komið við, í lokavöruliði.
[7.][6] Til nr. 8482 teljast m.a. fágaðar stálkúlur, enda sé frávik frá uppgefnu þvermáli hvergi meira en 1% eða meira en 0,05 mm eftir því hvort er minna. Aðrar stálkúlur skulu flokkaðar í nr. 7326.
[8.][7] Vél sem notuð er í fleiri en einum tilgangi flokkast þannig að litið er á höfuðnotkun hennar sem einu notkunina.
Leiði ekki annað af 2. athugasemd við þennan kafla og 3. athugasemd við flokk XVI, eða af orðalagi, flokkast vél í nr. 8479 ef höfuðnotkun hennar er ekki lýst í vörulið eða engin ein notkun hennar er höfuðnotkun.
Til nr. 8479 teljast einnig vélar til framleiðslu á reipum eða köðlum (t.d. þættingar-, tvinnunar- og kaðalfléttivélar) úr málmvír, spunagarni eða hvers konar öðru efni eða úr blöndu slíkra efna.
[9. ][8] Hugtakið í vasastærð í nr. 8470 tekur aðeins til véla sem eru ekki meira en 170 mm x 100 mm x 45 mm að stærð.
[10. Sem viðbætandi framleiðsla (einnig nefnd þrívíddarprendun) í nr. 8485 telst gerð hlutar, sem byggður er á stafrænu líkani, með því að bæta við hverju laginu á eftir öðru og binda og bræða saman úr efni (t.d. málmi, plasti eða keramik).
Leiði ekki annað af 1. athugasemd við flokk XVI og 1. athugasemd 84. kafla skulu vélar sem svara til lýsingarinnar í nr. 8485 flokkaðar í þann vörulið en ekki neinn annan vörulið tollskrárinnar.][9]
[[11.][10]A. Athugasemd [12, a- og b-liður][11] við 85. kafla, gildir einnig að því er varðar orðin hálfleiðarabúnaður og rafeindasamrás, eftir því sem við á, eins og þau eru notuð í þessari athugasemd og í nr. 8486. Orðið hálfleiðarabúnaður í þessari athugasemd og í nr. 8486 tekur einnig til ljósnæms hálfleiðarabúnaðar og ljósdíóða (LED)][12].
B. Í athugasemd þessari og nr. 8486 tekur orðasambandið framleiðsla á flatskjám til framleiðslu á undirlagi í flatskjá. Það tekur ekki til framleiðslu á gleri eða samsetningu á prentrásaplötum eða öðrum rafeindahlutum í flatskjáinn. Orðið flatskjár tekur ekki til sveifluskjátækni (cathode-ray tube technology).
C. Nr. 8486 tekur einnig til véla og tækjabúnaðar eingöngu eða aðallega til nota við:
1. framleiðslu eða viðgerða á möskum og netlíki,
2. samsetningu á hálfleiðarabúnaði eða rafeindasamrásum
3. að lifta, meðhöndla, hlaða eða afhlaða hálfleiðarasúlur (boules), hálfleiðaraskífur (wafers), hálfleiðarabúnað, rafeindasamrásir og flatskjái.
D. Leiði ekki annað af 1. athugasemd við flokk XVI og 1. athugasemd við 84. kafla skal undantekningarlaust flokka vélar og tækjabúnað, sem svarar til lýsingar í nr. 8486, í það númer.
Athugasemdir við undirliði:
[1. Sem vélsmíðamiðstöðvar í undirlið 8465.20 teljast aðeins vélar til smíða úr viði, korki, beini, harðgúmmíi, harðplasti eða áþekkum hörðum efnum sem framkvæmt geta mismunandi vélavinnu með sjálfvirkri verkfæraskiptingu úr magasíni eða þess háttar í samræmi við vélvinnsluforrit.
2.][13] Sem kerfi í nr. 8471.49 teljast sjálfvirkar gagnavinnsluvélar með einingum sem uppfylla skilyrði [C-liðar 6.][14] athugasemdar við 84. kafla og fela í sér a.m.k. miðstöð, eina inntakseiningu (t.d. lyklaborð eða skanna) og eina úttakseiningu (t.d. myndskjá eða prentara).
[3. Sem lokar fyrir olíuvökva- eða loftskiptingar í undirlið 8481.20 teljast lokar sem einkum eru notaðir í vökvaflskiptingar fyrir vökva- eða loftkerfi þar sem orkugjafinn er í formi þjappaðs vökva (í fljótandi formi eða gas). Lokar þessir geta verið af hvaða gerð sem er (t.d. þrýstiléttar, einstefnulokar). Undirliður 8481.20 gengur fyrir öllum öðrum undirliðum í vörulið 8481.
4.][15] Undirliður 8482.40 tekur aðeins til lega með sívölum keflum, jöfnum að þvermáli, sem er ekki yfir 5 mm og að lengd að minnsta kosti þrefalt þvermálið. Endar keflanna mega vera rúnnaðir.
[1] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
[2] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[3] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[4] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[5] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[6] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[7] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[8] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[9] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[10] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[11] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[12] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
[13] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
[14] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[15] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
8401
Kjarnakljúfar; eldsneyti (hylki), ógeislað, fyrir kjarnakljúfa; vélbúnaður og tæki til sundurgreiningar á samsætum:
Hleður tollskrárnúmerum...
8402
Katlar til framleiðslu á vatnsgufu eða annarri gufu (þó ekki heitavatnsmiðstöðvarkatlar sem einnig geta framleitt lágþrýstigufu); háhitavatnskatlar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8403
Katlar til miðstöðvarhitunar, þó ekki katlar í nr. 8402:
Hleður tollskrárnúmerum...
8404
Aukavélakostur til nota með kötlum í nr. 8402 eða 8403 (t.d. forhitarar, háhitarar, sóthreinsitæki, tæki til endurheimtu gass); þéttar fyrir gufu- eða aðrar aflvélar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8405
Tæki til framleiðslu á gasi eða vatnsgasi, einnig með hreinsitækjum; tæki til framleiðslu á acetylengasi og áþekk tæki til gasframleiðslu með vatnsaðferð, einnig með hreinsitækjum:
Hleður tollskrárnúmerum...
8406
Vatnsgufuaflshverflar og aðrir gufuaflshverflar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8407
Stimpil- eða hverfibrunahreyflar með neistakveikju:
Hleður tollskrárnúmerum...
8408
Stimpilbrunahreyflar með þrýstikveikju (dísil- eða hálfdísilhreyflar):
Hleður tollskrárnúmerum...
8409
Hlutar eingöngu eða aðallega nothæfir til hreyfla í nr. 8407 eða 8408:
Hleður tollskrárnúmerum...
8410
Vökvahverflar, vatnshjól, og gangráðar til þeirra:
Hleður tollskrárnúmerum...
8411
Þrýstihverflar, skrúfuhverflar og aðrir gashverflar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8412
Aðrar vélar og hreyflar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8413
Vökvadælur, einnig með mælitækjum; vökvalyftur:
Hleður tollskrárnúmerum...
8414
Loft- eða lofttæmidælur, loft- eða aðrar gasþjöppur og viftur; loftræstiháfar eða gufugleypar með innbyggðri viftu, einnig með síum; loftþéttir líftækniöryggis-skápar, einnig með síum:
Hleður tollskrárnúmerum...
8415
Loftjöfnunartæki með hreyfilknúinni viftu og búnaði til að breyta rakastigi og hitastigi, þar með taldar vélar þar sem ekki er sjálfstætt hægt að stjórna rakastigi:
Hleður tollskrárnúmerum...
8416
Brennarar fyrir fljótandi eldsneyti, malað fast eldsneyti eða gas; vélkyndarar, þar með taldar vélristar til þeirra, vélræn öskuhreinsitæki og áþekk tæki:
Hleður tollskrárnúmerum...
8417
Ofnar fyrir iðnað og rannsóknarstofur, þar með taldir líkbrennsluofnar, ekki fyrir rafmagn:
Hleður tollskrárnúmerum...
8418
Kæliskápar, frystar og annar kæli- eða frystibúnaður, einnig fyrir rafmagn; varmadælur, þó ekki loftjöfnunartæki í nr. 8415:
Hleður tollskrárnúmerum...
8419
Vélbúnaður, vélakostur eða búnaður fyrir rannsóknarstofur, einnig rafmagnshitaður (þó ekki bræðslu- og hitunarofnar og annar búnaður í nr. 8514) til vinnslu á efnum með aðferðum sem fela í sér hitabreytingu, svo sem með hitun, suðu, stiknun, eimingu, hreinsun, dauðhreinsun, gerilsneyðingu, eimvætingu, þurrkun, uppgufun, gufugerð, þéttingu eða kælingu, þó ekki vélbúnaður eða vélakostur til heimilisnota; hrað- eða geymavatnshitarar, ekki fyrir rafmagn:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8420
Sléttipressur eða aðrar völsunarvélar, þó ekki fyrir málma eða gler, og valsar til þeirra:
Hleður tollskrárnúmerum...
8421
Miðflóttaaflsvindur, þar með taldir miðflóttaaflsþurrkarar; vél- og tækjabúnaður til síunar eða hreinsunar á vökva og lofttegundum:
Hleður tollskrárnúmerum...
8422
Uppþvottavélar; vélbúnaður til að hreinsa eða þurrka flöskur eða önnur ílát; vélbúnaður til að fylla, loka, innsigla eða festa merkimiða á flöskur, dósir, öskjur, poka eða önnur ílát; vélbúnaður til að festa tappa á flöskur, krukkur, túpur og áþekk ílát; annar vélbúnaður til pökkunar eða umbúða (þ.m.t vélbúnaður til hitaherpiumbúða); vélbúnaður til blöndunar kolsýru í drykkjarvörur:
Hleður tollskrárnúmerum...
8423
Vogir (þó ekki vogir með 5 cg nákvæmni eða meiri), þar með taldar talningar- og eftirlitsvogir; vogarlóð alls konar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8424
Vélræn tæki (einnig fyrir handafl) til sprautunar, dreifingar eða úðunar á vökvum eða dufti; slökkvitæki, einnig hlaðin; úðabyssur og áþekk tæki; gufu- eða sandblástursvélar og áþekkar blástursvélar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8425
Blakkalyftibúnaður og talíur, þó ekki skúffubönd; vindur og koppvindur; tjakkar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8426
Skipabómur, kranar, þar með taldir kapalkranar; hreyfanlegar lyftigrindur, klofberar og kranabúnir vinnuvagnar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8427
Gaffallyftarar; aðrir vinnuvagnar með búnaði til lyftingar eða meðhöndlunar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8428
Annar vélbúnaður til lyftingar, meðhöndlunar, hleðslu eða losunar (t.d. lyftur, rennistigar, færibönd, togbrautir):
Hleður tollskrárnúmerum...
8429
Jarðýtur, vegheflar, jöfnunarvélar, skafarar, vélskóflur, gröfur, ámokstursvélar, vélþjöppur og valtarar, sjálfknúið:
Hleður tollskrárnúmerum...
8430
Annar vélbúnaður til að færa, hefla, jafna, skafa, grafa, þjappa, binda, vinna eða bora í mold, steinefni eða málmgrýti; fallhamrar og stauratogarar; snjóplógar og snjóblásarar:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8431
Hlutar eingöngu eða aðallega nothæfir til vélbúnaðar í nr. 8425-8430:
Hleður tollskrárnúmerum...
8432
Landbúnaðar-, garðyrkju- eða skógræktarvélbúnaður til vinnslu jarðvegs og ræktunar; valtarar fyrir húsgarða eða íþróttavelli:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8433
Uppskeru- eða þreskivélar, þar með taldar strá- eða fóðurbaggavélar; gras- eða heysláttuvélar; vélar til að hreinsa, aðgreina eða flokka egg, ávexti eða aðrar landbúnaðarafurðir, þó ekki vélbúnaður í nr. 8437:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8434
Mjaltavélar og mjólkurbúsvélar:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8435
Pressur, marningsvélar og áþekkur vélbúnaður til framleiðslu á víni, ávaxtamiði, ávaxtasafa eða áþekkum drykkjarvörum:
Hleður tollskrárnúmerum...
8436
Annar vélbúnaður til landbúnaðar, garðyrkju, skógræktar, alifugla- eða býflugnaræktar, þar með talin spírunartæki með vélrænum útbúnaði eða hitabúnaði; útungunarvélar og ungamæður:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8437
Vélbúnaður til að hreinsa, aðgreina eða flokka fræ, korn eða þurrkaða belgávexti; vélbúnaður til nota í mölunariðnaði eða til vinnslu á korni eða þurrkuðum belgávöxtum, þó ekki vélbúnaður fyrir býli:
Hleður tollskrárnúmerum...
8438
Vélbúnaður, ót.a. í þessum kafla, til iðnaðarvinnslu eða iðnaðarframleiðslu á matvöru eða drykkjarvöru, þó ekki vélbúnaður til vinnslu eða aðvinnslu á dýrolíu eða -feiti eða órokgjörnum jurta- eða örverufeiti eða -olíum:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8439
Vélbúnaður til framleiðslu á deigi úr trefjakenndum sellulósa eða til framleiðslu eða vinnslu á pappír eða pappa:
Hleður tollskrárnúmerum...
8440
Vélbúnaður til bókbands, þar með taldar bókasaumavélar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8441
Annar vélbúnaður til vinnslu á pappírsdeigi, pappír eða pappa, þar með taldar hvers konar pappírs- eða pappaskurðarvélar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8442
Vélbúnaður, tækjabúnaður og tæki (þó ekki vélar í nr. 8456-8465), til aðvinnslu eða framleiðslu á plötum, völsum eða öðrum prenthlutum; plötur, valsar og aðrir prenthlutir; plötur, valsar og steinprentssteinar, búið til prentunar (t.d. sléttað, kornað eða fágað):
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8443
Vélbúnaður sem notaður er til prentunar með plötum, völsum og öðrum prenthlutum í nr. 8442; aðrir prentarar, afritunarvélar og myndsendar, einnig samtengdar; hlutar og fylgihlutir til þeirra:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8444
Vélar til að þrýsta út, draga út, hrýfa, eða skera tilbúin spunaefni
Hleður tollskrárnúmerum...
8445
Vélar til að vinna spunatrefjar; spuna-, tvöföldunar- eða tvinningarvélar og annar vélbúnaður til framleiðslu á spunagarni; spunaspólunar- eða spunavindivélar (þar með taldar ívafsvindivélar) og vélar til að vinna spunagarn til nota í vélum í nr. 8446 eða 8447:
Hleður tollskrárnúmerum...
8446
Vefstólar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8447
Prjónavélar, stungubindivélar og vélar til framleiðslu á yfirspunnu garni, tylli, laufaborðum, útsaumi, leggingum, fléttum eða netefnum og vélar til að límbinda (tuft):
Hleður tollskrárnúmerum...
8448
Hjálparbúnaður fyrir vélar í nr. 8444, 8445, 8446 eða 8447 (t.d. skeftivélar, Jaquardvélar, sjálfvirkur stopp- og stýribúnaður, skyttuskiptibúnaður); hlutar og fylgihlutir sem eingöngu eða aðallega má nota við vélar í þessum vörulið eða í nr. 8444, 8445, 8446 eða 8447 (t.d. snældur og snælduleggir, kambar, greiður, spunamunnstykki, skyttur, höföld, hafaldagrindur, prjónavélanálar):
Hleður tollskrárnúmerum...
8449
Vélbúnaður til framleiðslu eða frágangs á flóka eða vefleysum í metramáli eða stykkjum, þar með taldar vélar til framleiðslu flókahatta; hattamót
Hleður tollskrárnúmerum...
8450
Þvottavélar fyrir heimili eða þvottahús, þar með taldar vélar sem bæði þvo og þurrka:
Hleður tollskrárnúmerum...
8451
Vélbúnaður (þó ekki vélar í nr. 8450) til að þvo, hreinsa, vinda, þurrka, strauja, pressa (þar með taldar suðupressur), bleikja, lita, steina, ganga frá, húða eða gegndreypa spunagarn, spunadúk eða tilbúnar spunavörur og vélar til að bera efni á undirstöðudúk eða annað undirlag við framleiðslu á gólfefni eins og línóleum; vélar til að vinda, afvinda, brjóta, skera eða takka spunadúk:
Hleður tollskrárnúmerum...
8452
Saumavélar, þó ekki bókasaumavélar í nr. 8440; húsgögn, undirstöður og lok sérstaklega hannað fyrir saumavélar; saumavélanálar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8453
Vélbúnaður til forvinnslu, sútunar eða vinnslu á húðum, skinnum eða leðri eða til framleiðslu eða viðgerðar á skófatnaði eða öðrum vörum úr húðum, skinnum eða leðri, þó ekki saumavélar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8454
Málmbreytiofnar (converters), bræðslusleifar (ladles), hrámálmssteypumót og steypuvélar til nota í málmvinnslu og málmsteypu:
Hleður tollskrárnúmerum...
8455
Málmvölsunarvélar og valsar til þeirra:
Hleður tollskrárnúmerum...
8456
Vélar til smíða úr hvers konar efni með efnistöku, með leysi- eða öðrum ljós- eða ljóseindageisla, hátíðni-, rafhleðslu-, rafkemískri-, rafeindageisla-, jóngeisla- eða plasmabogaaðferð; vatnsþrýstiskurðarvélar :
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8457
Vélsmíðamiðstöðvar, einingasmíðavélar (einstöðu) og fjölstöðufærsluvélar, til framleiðslu úr málmi:
Hleður tollskrárnúmerum...
8458
Rennibekkir (þ.m.t. rennimiðstöðvar) til vinnslu á málmi:
Hleður tollskrárnúmerum...
8459
Smíðavélar (þar með taldir lausir vinnsluhausar með leiðara), til að bora, gata, fræsa, snitta eða skrúfuskera með vinnslu á málmi, þó ekki rennibekkir (þ.m.t. rennimiðstöðvar) í nr. 8458:
Hleður tollskrárnúmerum...
8460
Smíðavélar til að slétta, skerpa, slípa, brýna, fága eða fínpússa á annan hátt málm eða keramíkmelmi með slípisteini, slípi- eða fægiefnum, þó ekki vélar í nr. 8461 til að skera, slípa eða fínslípa tannhjól:
Hleður tollskrárnúmerum...
8461
Smíðavélar til að hefla, móta, grópa, snara úr, skera, slípa eða fínslípa tannhjól, saga, skera af og aðrar smíðavélar til vinnslu á málmi eða keramíkmelmi, ót.a.:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8462
Vélar (þar með taldar pressur) til smíða úr málmi með fallsmíði, hömrun eða stönsun (þó ekki völsunarvélar); vélar (þar með taldar pressur, einnig skurðarsamstæður og lengdarskurðarvélar) til að beygja, brjóta saman, rétta, fletja, skera, gata, skora eða naga málm (þó ekki dragbekkir); pressur til smíða úr málmi eða málmkarbíðum, ekki tilgreindar að framan:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8463
Aðrar vélar til smíða úr málmi eða keramíkmelmi, án þess að efni sé fjarlægt:
Hleður tollskrárnúmerum...
8464
Vélar til smíða úr steini, leir, steinsteypu, asbestsementi eða svipuðum jarðefnum eða til kaldvinnslu á gleri:
Hleður tollskrárnúmerum...
8465
Vélar til smíða úr viði, korki, beini, harðgúmmíi, harðplasti og áþekkum hörðum efnum (þar með taldar vélar til að negla, hefta, líma eða til annarrar samsetningar):
Hleður tollskrárnúmerum...
8466
Hlutar og fylgihlutir sem eingöngu eða aðallega má nota við vélar í nr. 8456-8465, þar með taldar efnis- eða verkfærafestingar, sjálfopnandi skurðarhausar, deilihausar og annar sérhæfður aukabúnaður fyrir vélar; verkfærafestingar fyrir hvers konar handverkfæri:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8467
Handverkfæri, loftknúin, vökvaknúin eða með innbyggðum hreyfli sem er eða ekki er fyrir rafmagn:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8468
Vélbúnaður og áhöld til lóðunar, brösunar eða logsuðu, einnig til skurðar, þó ekki búnaður í nr. 8515; gashitaðar vélar og tæki til yfirborðsherslu:
Hleður tollskrárnúmerum...
8470
Reiknivélar og vélar í vasastærð til skráningar, endurskila og sýningar gagna, með reikniverki; bókhaldsvélar, frímerkjavélar, aðgöngumiðavélar og áþekkar vélar, með reikniútbúnaði; stimpilpeningakassar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8471
Sjálfvirkar gagnavinnsluvélar og einingar til þeirra; lesarar fyrir segulletur eða ritletur, vélar til að umskrá gögn á gagnamiðla á táknmáli og vélar til að vinna úr slíkum gögnum, ót.a.:
Hleður tollskrárnúmerum...
8472
Aðrar skrifstofuvélar (t.d. fjölritarar eða stensilvélar, áritunarvélar, sjálfvirkir peningaseðlaskammtarar, myntflokkunar-, mynttalningar- eða myntpökkunarvélar, blýantsyddarar, götunar- eða heftivélar):
Hleður tollskrárnúmerum...
8473
Hlutar og fylgihlutir (þó ekki hlífar, handtöskur og þess háttar), sem eingöngu eða aðallega má nota til véla í nr. 8470-8472:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8474
Vélbúnaður til að flokka, sálda, aðskilja, þvo, mylja, mola, blanda eða hnoða mold, stein, málmgrýti eða önnur jarðefni í föstu formi (þar með talið duft eða deig); vélbúnaður til að pressa, forma eða móta eldsneyti úr steinaríkinu, leirdeig, óharðnað sement, gipsefni eða aðrar vörur úr steinaríkinu í duft- eða deigformi; vélar til framleiðslu á málmsteypumótum úr sandi:
Hleður tollskrárnúmerum...
8475
Vélar til að setja saman rafmagns- eða rafeindalampa, -túbur eða -loka eða leifturlampa í glerhylki; vélar til framleiðslu eða heitvinnslu á gleri eða glervörum:
Hleður tollskrárnúmerum...
8476
Sjálfsalar (t.d. fyrir frímerki, vindlinga, matvörur eða drykkjarvörur), þar með taldar peningaskiptivélar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8477
Vélbúnaður til vinnslu á gúmmíi eða plasti eða til framleiðslu á vörum úr þessum efnum, ót.a. í þessum kafla:
Hleður tollskrárnúmerum...
8478
Vélbúnaður til að vinna eða framleiða tóbak, ót.a. í þessum kafla:
Hleður tollskrárnúmerum...
8479
Vélar og vélræn tæki til sérstakra nota, ót.a. í þessum kafla:
Hleður tollskrárnúmerum...
8480
Mótakassar til málmsteypu; mótaundirstöður; mótamynstur; steypumót fyrir málm (þó ekki hrásteypumót), málmkarbíð, gler, jarðefni, gúmmí eða plast:
Hleður tollskrárnúmerum...
8481
Kranar, hanar, lokar og áþekk tæki fyrir pípur, katla, tanka, ker eða þess háttar, þar með taldir þrýstiléttar og hitastilltir lokar:
Hleður tollskrárnúmerum...
8482
Kúlu- eða keflaleg:
Hleður tollskrárnúmerum...
8483
Drifásar (kambásar og sveifarásar) og -sveifar; leghús og ásleg; tannhjól og tannhjólasamstæður; kúlu- eða keflaspindlar (ball or roller screws); gírkassar og aðrir hraðabreytar, þar með taldir átaksbreytar; kasthjól og reimhjól, þar með taldar blakkir; tengsl og ástengsli (þar með taldir hjöruliðir):
Hleður tollskrárnúmerum...
8484
Þéttingar og áþekk tengi úr málmplötum í sambandi við annað efni eða úr tveimur eða fleiri málmlögum; samstæður eða úrval af þéttingum og þess konar tengjum af mismunandi gerðum, í pokum, hylkjum eða áþekkum umbúðum; vélrænt þétti:
Hleður tollskrárnúmerum...
8485
Vélar til viðbætandi framleiðslu:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8486
Vélar og tækjabúnaður eingöngu eða aðallega notaður til framleiðslu á hálfleiðarsúlum (boules) eða hálfleiðaraskífum (wafers), hálfleiðarabúnaði, rafeindasamrásum eða flatskjám; vélar og vélbúnaður sem skýrgreindur er í C-lið 11. athugasemdar við þennan kafla; hlutar og fylgihlutir:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8487
Hlutar til vélbúnaðar, ekki búnir rafmagnstenglum, einangrurum, spólum, snertum eða öðrum rafmagnsbúnaði, ót.a. í þessum kafla:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir