Flokkur 16 Vélbúnaður og vélræn tæki; rafbúnaður; hlutar til þessara vara; hljóðupptöku- og hljóðflutningstæki, mynda- og hljóðupptökutæki og mynda- og hljóðflutningstæki fyrir sjónvarp, og hlutar og fylgihlutir til þess konar vara

Kafli 85 Rafbúnaður og -tæki og hlutar til þeirra; hljóðupptöku- og hljóðflutningstæki, mynda- og hljóðupptökutæki og mynda- og hljóðflutningstæki fyrir sjónvarp, og hlutar og fylgihlutir til þess konar vara

Athugasemdir flokks

FLOKKUR XVI
Vélbúnaður og vélræn tæki; rafbúnaður; hlutar til þessara vara;
hljóðupptöku- og hljóðflutningstæki, mynda- og hljóðupptöku-
tæki og mynda- og hljóðflutningstæki fyrir sjónvarp, og hlutar
og fylgihlutir til þess konar vara

 

Athugasemdir:

1.      Til þessa flokks telst ekki:

a.      Belti eða reimar fyrir drifbúnað eða færibönd, úr plasti í 39. kafla eða vúlkaníseruðu gúmmíi (nr. 4010), eða aðrar vörur úr óhertu vúlkaníseruðu gúmmíi sem notaðar eru í vélbúnað, vélræn tæki, rafmagnstæki eða til annarra tækninota, úr vúlkaníseruðu gúmmíi öðru en harðgúmmíi (nr. 4016).

b.      Vörur úr leðri eða samsettu leðri (nr. 4205) eða úr loðskinni (nr. 4303) sem notaðar eru í vélbúnað, vélræn tæki eða til annarra tækninota.

c.      Kefli, spólur, snældur, keilur, leggir, rúllur eða áþekkar uppistöður úr hvers konar efni (t.d. 39., 40., 44. eða 48. kafli eða flokkur XV).

d.      Götuð spjöld í Jacquardvélar eða áþekkar vélar (t.d. 39. eða 48. kafli eða flokkur XV).

e.      Belti eða reimar fyrir drifbúnað eða færibönd úr spunaefni (nr. 5910) eða aðrar vörur úr spunaefni til tækninota (nr. 5911).

f.       Eðalsteinar eða hálfeðalsteinar (náttúrlegir, syntetískir eða endurgerðir) í nr. 7102 til 7104, eða vörur sem að öllu leyti eru gerðar úr slíkum steinum í nr. 7116, þó ekki óupp­settir unnir safírar og demantar í hljóðnálar (nr. 8522).

g.      Hlutar til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV) eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli).

h.      Borpípur (nr. 7304).

ij.      Endalaus belti úr málmvír eða málmræmum (flokkur XV).

k.      Vörur í 82. eða 83. kafla

l.       Vörur í flokki XVII.

m.     Vörur í 90. kafla.

n.      Klukkur, úr og aðrar vörur í 91. kafla.

o.      Skiptiverkfæri í nr. 8207 eða burstar til nota sem hlutar til véla (nr. 9603). Áþekk skiptiverkfæri flokkast eftir meginefni í hinum vinnandi hluta þeirra (t.d. í 40., 42., 43., 45. eða 59. kafla eða nr. 6804 eða 6909).

p.      Vörur í 95. kafla.

[q.      Ritvélaborðar eða áþekk bönd, einnig á spólum eða í hylkjum (flokkast eftir því efni sem þetta er aðallega gert úr, eða í nr. 9612 ef blekborið eða unnið á annan hátt til áprentunar), eða einfætur, tvífætur og þrífætur og áþekkar vörur í nr. 9602.][1]

2.      Leiði ekki annað af 1. athugasemd við þennan flokk, 1. athugasemd við 84. kafla og 1. athugasemd við 85. kafla flokkast hlutar til véla (sem ekki eru hlutar til vara í nr. 8484, 8544, 8545, 8546 eða 8547) svo sem hér segir:

a.      Hlutar sem eru vörur meðtaldar í einhverju af vöruliðum 84. eða 85. kafla (þó ekki nr. 8409, 8431, 8448, 8466, 8473, 8487, 8503, 8522, 8529, 8538 og 8548) flokkast alltaf í viðkomandi vöruliði.

b.      Aðrir hlutar sem eingöngu eða aðallega má nota við ákveðna vél eða fleiri vélar sem teljast til sama vöruliðar (þar með taldar vélar í nr. 8479 eða 8543) flokkast með þeim vélum eða í nr. 8409, 8431, 8448, 8466, 8473, 8503, 8522, 8529 eða 8538 eftir því sem við á. [Hlutar sem jöfnum höndum má nota í vörur í nr. 8517 og 8525 til 8528 skal flokka í nr. 8517, og hlutar sem eingöngu eða aðallega er hægt að nota í vörur í nr. 8524 skulu flokkaðar í nr. 8529.][2]

c.      Allir aðrir hlutar teljast til nr.  8409, 8431, 8448, 8466, 8473, 8503, 8522, 8529 eða 8538 eftir því sem við á eða, verði því ekki við komið, í nr. 8487 eða 8548.

3.      Leiði ekki annað af orðalagi flokkast vélasamstæður, settar saman í eina heild úr tveimur eða fleiri vélum og aðrar vélar hannaðar til að framkvæma tvö eða fleiri verkatriði, saman eða sér, eins og eingöngu væri um að ræða þann vélarhluta eða þá vél sem gegnir höfuðhlutverkinu.

4.      Sé vél (þar með taldar samsettar vélar) gerð úr sjálfstæðum hlutum (hvort sem þeir eru aðskildir eða tengdir með pípum, tengslum, rafmagnsköplum eða öðrum búnaði), sem ætlað er sameiginlega að framkvæma skýrt skilgreint verkatriði sem einn af vöruliðum 84. eða 85. kafla taka til, skal hún í heild flokkast undir þann vörulið sem höfðar til þess verk­atriðis.

5.      Sem vél í athugasemdum þessum teljast hverskonar vélar; vélbúnaður, vélakostur, áhöld, tækjabúnaður eða tæki sem getið er í vöruliðum 84. eða 85. kafla.

[6.       A.     Hvarvetna í tollskránni tekur orðasambandið rafmagns- og rafeindaúrgangur og -rusl  til rafmagns- og rafeindasamsetninga, prentrásaplatna og rafmagns- eða rafeindavara sem:

1.   gert hefur verið ónothæft til þess sem það upphaflega var ætlað, með niðurrifi, niðurskurði eða á annan hátt eða svarar ekki kostnaði að gera við, standsetja eða endurnýja til þess að gera það hæft til upphaflegra nota, og

 2.  pakkað er eða flutta með þeim hætti að ekki sé ætlunin að koma í veg fyrir skemmdir á einstökum vörum við lestun og losun.

          B.     Blandaðar sendingar með rafmagns- og rafeindaúrgangi og -rusli og öðrum úrgangi og rusli skal flokkað í nr. 8549.

          C.     Þessi flokkur tekur ekki til sorps bæjar- og sveitarfélaga eins og það er skilgreint í 4. athugasemd við 38. kafla.][3]



[1] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).

[2] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[3] Sbr. 60. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

Athugasemdir kafla

85. KAFLI
Rafbúnaður og -tæki og hlutar til þeirra; hljóðupptöku- og hljóðflutningstæki, mynda- og hljóðupptökutæki og mynda- og hljóðflutningstæki
fyrir sjónvarp, og hlutar og fylgihlutir
til þess konar vara

 

Athugasemdir:

1.      Til þessa kafla telst ekki:

a.      Rafmagnshitaðar ábreiður, hitapúðar, fótahitarar eða þess háttar; rafmagnshitaður fatn­aður, skófatnaður eða eyrnaskjól eða aðrar rafmagnshitaðar vörur sem menn hafa á sér eða um sig.

b.      Glervörur í nr. 7011.

c.      Vélar og tækjabúnaður í nr. 8486.

d.      Sogbúnaður notaður í lyflækninga-, skurðlækninga-, tannlækninga- eða dýralækn­ingavísindum (vöruliður 9018).

e.      Rafmagnshituð húsgögn í 94. kafla.

2.      Til nr. 8501-8504 teljast ekki vörur sem lýst er í nr. 8511, 8512, 8540, 8541 eða 8542.

Kvikasilfursafriðlar, innbyggðir í málmhylki, teljast þó til nr. 8504.

[3.      Sem rafgeymar í 8507 teljast einnig rafgeymar sem framvísað er með fylgihlutum, sem gegna hlutverki við virkni rafgeynisins við geymslu og orkugjöf eða vernd fyrir skemmdum, eins og rafmagnstenglum, hitastýribúnaði (t.d. hitanemar) og búnaði til verndar rafrásum. Þeim mega einnig fylgja hluti hlífa þeirra vara sem þær eru ætlaðar til.][1]

[4.][2]   Til nr. 8509 teljast aðeins eftirgreindar rafmagnsvélar sem almennt eru til heimilisnota:

a.      Bónvélar, hakkavélar og hrærivélar fyrir matvæli, og ávaxtapressur eða jurta­safapressur, hver sem þungi þeirra er.

b.      Aðrar vélar, enda séu þær ekki meira en 20 kg að þyngd.

Til nr. 8509 teljast þó ekki viftur eða loftræstiháfar eða gufugleypar, einnig með síu (nr. 8414), miðflóttaaflsþurrkarar fyrir tau (nr. 8421), uppþvottavélar (nr. 8422), heimilis­þvotta­vélar (nr. 8450), valsa- eða aðrar strauvélar (nr. 8420 eða 8451), saumavélar (nr. 8452), rafmagns­skæri (nr. 8467) eða rafmagnshitatæki (nr. 8516).

[5.      Sem snjallsímar í nr. 8517 teljast símar fyrir farsímanet með farsímastýrikerfi sem hannað er til að framkvæma aðgerðir sjálfvirkrar gagnavinnsluvélar eins og að hala niður og keyra fjölda forrita samtímis, þ. á m. forrit þriðja aðila, einnig með öðrum búnaði eins og starfrænum myndavélum og leiðsögukerfum.][3]

[6.][4]   Í nr. 8523 er með:

a.      geymin hálfleiðaraminni (solid-state non-volatile storage devices) (t.d. flassminniskort (flash memory cards) eða rafræn flassminniskort (flash electronic storage cards) átt við minnisbúnað með tengli, með einu eða fleiri flassminniskortum í sama hylki (t.d. FLASH E PROM) í formi samrása á prentrásarplötum. Hann getur falið í sér stýribúnað í formi samrásar og aðgreindra óvirkra hluta, svo sem þétta og viðnáma;

b.      gjörvakorti (smart-card) átt við kort ívafið einni eða fleiri rafeindasamrásum (örgjörva, slembitengiminni (RAM) eða lesminni (ROM)) í formi flaga. Kort þessi geta verið með snertum, segulrönd eða ívafsfálmurum en ekki neinum öðrum virkum eða óvirkum rásareiningum.

[7.      Sem flatskjáreiningar (flat panel display modules) í 8524 teljast tæki eða búnaður til að birta upplýsingar, útbúnir að minnsta kosti með skjá sem hannaður eru til ísetningar í aðrar vörur í öðrum vöruliðum fyrir notkun. Skjáir fyrir  flatskjáreiningar ná til, en eru ekki takmarkaðir við, þeirra sem eru flatir, bognir, sveigjanlegir (flexible), sambrjótanlegir eða teygjanlegir að formi til. Í flatskjáreiningum geta verið viðbótareiningar, þ. á m. þær sem nauðsynlegar eru til móttöku á myndmerkjum og deilingu þeirra í díla (pixels) á skjánum. Vöruliður 8524 tekur þó ekki til skjáeininga sem búnar eru íhlutum til að breyta myndmerkjum (t.d. IC-kvarða (scaler IC), IC-aflóðara (decoder IC) eða forritagjörva (application processer) eða hafa öðlast einkenni vara í öðrum vöruliðum.

Við flokkun á flatskjáreiningum, sem skýrgreindir eru í þessari athugasemd, skal nr. 8524 ganga fyrir öllum öðrum vöruliðum tollskrárinnar.][5]

[8.][6]   Sem prentrásir í nr. 8534 teljast rásir sem gerðar eru með því að mynda á einangrandi undirlagi með hvers konar prentunaraðferð (t.d. upphleypingu, málmhúðun eða ætingu) eða með himnurásatækni, leiðara, snertur eða aðrar prentaðar einingar (t.d. spólur, viðnám eða þétta), einar sér eða samtengdar eftir fyrirfram ákveðnu mynstri, þó ekki ein­ingar sem geta framleitt, afriðað, mótað eða magnað rafmagnsmerki (t.d. hálfleiðarar).

Orðið prentrásir nær hvorki til rása í sambandi við aðrar einingar en þær sem fengnar eru við prentunina, né heldur til stakra, aðgreindra viðnáma, þétta eða spóla. Prentrásir mega þó hafa tengiliði sem ekki eru prentaðir.

Þunn- eða þykkhimnurásir, sem samanstanda af virkum og óvirkum einingum sem myndaðar eru á sama tæknilega framleiðslustigi, skulu teljast til nr. 8542.

[9.][7]   Sem tengi fyrir ljóstrefjar, ljóstrefjabúnt eða ljósleiðara í nr. 8536 teljast tengi sem einfaldlega beinlínutengja vélrænt ljóstrefjarenda við enda í stafrænt línukefi. Þau gegna ekki neinu öðru hlutverki, eins og mögnun, endurgerð eða breytingu merkis.

[10.][8]Nr. 8537 tekur ekki til þráðlauss búnaðar fyrir innrauða geisla til fjarstýringar sjónvarps­móttakara eða annarra rafmagnstækja (nr. 8543).

[11.    Sem díóðuljósgjafar (LED) í nr. 8539 teljast:

a.      Ljósdíóðueiningar (LED) sem eru rafljósgjafar búnar til úr ljósdíóðum (LED) og komið er fyrir í rafrásum og í eru fleiri íhlutir eins og raf-, vél-, hita- eða ljóseiningar. Þær eru með frekari stakrænt virkar einingar, stakrænt óvirkar einingar, eða vörur í nr. 8536 eða 8542 til þess að sjá fyrir aflgjafa eða aflstýringu. Ljósdíóðueiningar (LED) eru ekki með hettu (cap) til þess að auðvelda uppsetningu eða endurnýjun í ljósabúnaði og tryggja vélrænt samband eða rafsamband.

b.      Ljósdíóðuperur (LED) sem eru ljósgjafar með einni eða fleiri LED-einingum auk íhluta eins og raf-, vél-, hita- eða ljóseininga. Munurinn á  ljósdíóðueiningum (LED) og ljósdíóðuperum (LED) er sá að á perum eru hettur (caps) til þess að auðvelda uppsetningu eða endurnýjun í ljósabúnaði og tryggja vélrænt samband eða rafsamband.        

[12.][9]Í nr. 8541 og 8542 er með:

[a.     1.    hálfleiðurum er átt við hálfleiðarabúnað sem vinnur samkvæmt breytingum á eðlisviðnámi, vegna áhrifa rafsviðs eða breyta (transducers) að stofni til úr hálfleiðurum.

Hálfleiðarar geta einnig tekið til samstæðna fjöleininga, með eða án virks eða óvirks búnaðarstoðaðgerða.

Breytar að stofni til úr hálfleiðurum eru, til skýringar, nemar (sensors), vakar (actuators), hermar (resonators) og sveiflugjafar (oscillators) að stofni til úr hálfleiðurum, sem eru tegundir af stakrænum hálfleiðarabúnaði sem framkvæma eigin hlutverk, sem geta breytt hvers konar eðlisfræðilegum eða efnafræðilegum fyrirbærum eða virkni í rafmerki eða í hvers konar vélfræðilegt fyrirbæri eða virkni.     

Allar einingar í breytum (transducers) sem að stofni til eru úr hálfleiðurum eru samtengdar á órúfanlegan hátt og geta einnig verið með nauðsynlegum efnum órjúfanlega áfestum.

Með eftirfarandi orðasamböndum er átt við:

1.   að stofni til úr hálfleiðara þýðir byggður eða framleiddur á hálfleiðara­undirlag eða gerður úr hálfleiðaraefni, framleiddur með hálfleiðaratækni, þar sem hálfleiðara­undir­lag eða -efni gegnir þýðingarmiklu og ómissandi hlutverki í virkni og hæfni breytis, og notkun þeirra er byggð á eiginleikum hálfleiðara, m.a. vélrænum, rafrænum, kemískum og optískum eiginleikum; 

2.   eðlisfræðileg eða efnafræðileg fyrirbæri vísar til fyrirbæra eins og þrýstings, hljóðbylgna, hröðunar, titrings, hreyfingar, röðunar, álags, styrks segulsviðs, styrks rafsviðs, ljóss, geislavirkni, raka, flæðis, efnastyrk, o.s.frv;

3.   nemar að stofni til úr hálfleiðurum er tegund hálfleiðarabúnaðar sem gerður er úr öreindafræðilegri eða vélfræðilegri smíði sem mynduð er í massa eða er á yfirborði hálfleiðara og gegnir því hlutverki að nema eðlisfræðilegar eða efnafræðilegar stærðir og breyta þeim í rafmerki sem stafa af breytum í rafeiginleikum eða færslu vélfræðilegar smíðar;

4.   vakar að stofni til úr hálfleiðurum er tegund hálfleiðarabúnaðar sem gerður er úr öreindafræðilegri eða vélfræðilegri smíði sem mynduð er í massa eða er á yfirborði hálfleiðara og gegnir því hlutverki að breyta rafmerkjum í eðlisfræðilega hreyfingu;

5.   hermar að stofni til úr hálfleiðurum er tegund hálfleiðarabúnaðar sem gerður er úr öreindafræðilegri eða vélfræðilegri smíði sem mynduð er í massa eða er á yfirborði hálfleiðara og gegnir því hlutverki að framleiða vélfræðilegar sveiflur eða rafsveiflur að fyrirfram ákveðinni tíðni sem háð er eðlisrúmfræði þessarar smíð sem svar við ytri orku;

6.   sveiflugjafar að stofni til úr hálfleiðurum er tegund hálfleiðarabúnaðar sem gerður er úr öreindafræðilegri eða vélfræðilegri smíði sem mynduð er í massa eða er á yfirborði hálfleiðara og gegnir því hlutverki að framleiða vélfræðilegar sveiflur eða rafsveiflur að fyrirfram ákveðinni tíðni sem háð er eðlisrúmfræði þessarar smíð.

2.     Ljósdíóður (LED) eru hálfleiðarabúnaður á hálfleiðaraefni sem breyta raforku í sýnilega, innrauða eða útfjólubláa geisla, einnig rafrænt tengdar hver annarri og einnig vardíóðu. Í ljósdíóðum (LED) í nr. 8541 eru ekki aflgjafar eða aflstýringar.][10]

b.      rafeindasamrásum átt við:

1.     einsteina samrásir (monolithic integrated circuits) þar sem rásaeiningarnar (díóður, smárar, viðnám, þéttar, spanrásir o.s.frv.) eru myndaðar í massa (fyrst og fremst) og á yfirborði hálfleiðara eða sambyggðra hálfleiðara (t.d. íblönduðu sílíkoni, gallíum arsenídi, silíkon germaníum, indíum fosfati) og eru óaðskiljan­lega tengdar;

2.   blandaðar samrásir (hybrid integrated circuits) þar sem hinar óvirku rásaeiningar (viðnám, þéttar, spanrásir o.s.frv.), myndaðar með þunn- eða þykkhimnutækni, og hinar virku rásaeiningar (díóður, smárar, einsteina samrásir o.s.frv.), myndaðar með half­leið­ara­tækni, eru sameinaðar á bókstaflega órjúfanlegan hátt á einu einangr­ andi undirlagi (gleri, leir o.s.frv.). Þessar rásir mega einnig innihalda aðgreinda hluta;

3.   fjölflögurásir sem samanstanda af einum eða fleiri samtengdum einsteina samrásum sameinaðar á bókstaflega órjúfanlegan hátt, einnig á einangrandi undirlagi, með eða án blýramma, en án virkra eða óvirkra rásaeininga;

[4.  fjölhluta samrásir (MCO): samstæða úr einni eða fleiri einsteina, blandaðra eða fjölflögu samrásum með að minnsta kosti einn eftirtalinna hluta: nemum (sensors), vökum (actuators), sveiflugjöfum (oscillators), hermum (resonators) eða samstæðu úr þeim, að stofni til úr silíkoni, eða samstæðum sem framkvæma hlutverk vara sem flokka má undir vöruliði 8523, 8533 eða 8541, eða spankefla í vörulið 8504. Formaðar í þeim eina tilgangi og ætlan og óumdeilanlega í einn hlut sem samrás, sem hlut til samsetningar á prentrásaplötu (PCB) eða annan rafbera með tengingu pinna, lista, bolta, landa, bóla eða púða.

Í sambandi við þessa skilgreiningu:

1.   mega hlutar vera stakrænir, framleiddir hver fyrir sig og síðan settir saman á fjölhluta samrás eða sameinaðir öðrum hlutum,

2.   merkir að stofni til úr silíkoni, byggður á silíkonundirlag eða gerður úr silíkonefni eða framleiddur á samrása blokk,

[3.   a.   merkir nemar að stofni til úr silíkon öreindafræðilega eða vélfræðilega smíð sem mynduð er í massa eða á yfirborð hálfleiðara og gegna því hlutverki að nema eðlisfræðilegar eða efna­fræðilegar stærðir og breyta þeim í rafmerki sem stafa af breytum í rafeiginleikum eða færslu vélfræðilegrar smíðar. Eðlisfræðilegar eða efnafræðilegar stærðir á við eiginleg fyrirbæri, eins og þrýsting, hljóðbylgjur, hröðun, titring, hreyfingu, röðun, álag, styrk segulsviðs, styrk rafsviðs, ljós, geislavirkni, raka, flæði, efnastyrk, o.s.frv.,][11]

b.   merkir vakar að stofni til úr silíkon öreindafræðileg eða vélfræðilega smíð sem mynduð er í massa eða á yfirborð hálfleiðara og gegna því hlutverki að nema eðlisfræðilegar eða efna­fræðilegar stærðir og breyta þeim í rafmerki,

c.   merkir hermar að stofni til úr silíkon öreindafræðilega eða vélfræðilega smíð sem myndaður er í massa eða á yfirborð hálfleiðara og gegna því hlutverki að framleiða vélfræðilegar eða efnafræðilagar sveiflur að fyrirfram ákveðinni tíðni sem háð er eðlisrúmfræði þessarar smíð sem svar við ytri orku,

d.   merkir sveiflugjafar að stofni til úr silíkon virka hluta sem myndaðir eru í massa eða á yfirborð hálfleiðara og gegna því hlutverki að framleiða vélrænar eða rafrænar sveiflur að fyrirfram ákveðinni tíðni sem háð er eðlisrúmfræði þessarar smíðar.][12]

Við flokkun á vörum, sem skýrgreindar eru í þessari athugasemd, skulu nr. 8541 og 8542 ganga fyrir öllum öðrum vöruliðum í tollskránni, þó ekki nr. 8523, sem kann að eiga við um þær eink­um með tilvísun til tilgangs þeirra.

[...][13]

 

[Athugasemdir við undirliði:][14]

[1.      Undirliður 8525.81 tekur aðeins til háhraða sjónvarpsmyndavéla, stafrænna myndavéla og myndbandstökuvéla enda sé eitt eða fleira eftirfarandi einkennandi fyrir þær:

¿       skráningarhraði sé meiri en 0,5 mm á míkrósekúndu;

¿       tímaupplausn 50 nanósekúndur eða minna;

¿       rammatíðni meiri en 225.000 rammar á sekúndu.

2.      Að því er varðar undirlið 8525.82 eru geislavarðar eða geislaþolnar sjónvarpsmyndavélar, stafrænar myndavélar og myndbandstökuvélar hannaðar eða skermaðar til notkunar í hágeislaumhverfi. Myndavélarnar eru hannaðar til þess að þola heildargeislaskammt sem sé að minnsta kosti 50 × 103 Gy(silicon) (5 × 106 RAD (silicon)) án rekstarstöðvunar.  

3.      Undirliður 8525.83 tekur til kvikmyndavéla, stafrænna myndavéla og myndbands­tökuvéla fyrir nætursjón (night vision), sem nota ljósskaut til þess að breyta tiltæku ljós í rafeindir sem hægt er að magna og breyta til að búa til sýnilega mynd. Þessi undirliður tekur ekki til hitamyndavéla (almennt undirliður 8525.89).][15]

[4.][16]  Til nr. 8527.12 teljast aðeins snælduspilarar með innbyggðum magnara, án innbyggðs hátalara, sem geta gengið án ytri raforkugjafa, og eru ekki meira en 170 mm x 100 mm x 45 mm að stærð.

[5.      Sem notuð frumrafhlöð, notaðar frumrafhlöður og notaðir rafgeymar í nr. 8549.11 til 8549.19 telst þessi búnaður ef hann er ónothæfur sökum bilunar, niðurrifs, slits eða af öðrum ástæðum og ekki endurhleðsluhæfur.][17]



[1] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).

[2] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).

[3] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[4] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[5] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[6] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[7] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[8] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[9] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[10] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[11] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[12] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[13] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[14] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[15] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[16] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[17] Sbr. 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

8501
Rafhreyflar og rafalar (þó ekki rafalasamstæður):

Hleður tollskrárnúmerum...

8502
Rafalasamstæður og hverfistraumbreytar:

Hleður tollskrárnúmerum...

8503
Hlutar eingöngu eða aðallega nothæfir til véla í nr. 8501 eða 8502

Hleður tollskrárnúmerum...

8504
Rafmagnsspennar, stöðustraumbreytar (t.d. afriðlar) og spankefli:

Hleður tollskrárnúmerum...

8505
Rafseglar; síseglar og vörur sem ætlað er að verða síseglar eftir segulmögnun; rafsegul- eða sísegulhöldur, -þvingur og áþekkar festingar; rafsegulkúplingar, -tengsli og -hemlar; rafsegullyftihausar:

Hleður tollskrárnúmerum...

8506
Frumrafhlöð og frumrafhlöður:

Hleður tollskrárnúmerum...

8507
Rafgeymar, þar með taldar skiljur til þeirra, einnig rétthyrndir (þar með taldar ferningslaga):
Athugasemdir
Tollskrárnúmerið 8507.9000 skiptist upp og orðast, sbr. g-lið 54. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

8508
Ryksugur:
Athugasemdir
Sbr. h-lið 75. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007

Hleður tollskrárnúmerum...

8509
Rafmagnsheimilistæki, með innbyggðum rafhreyfli, þó ekki ryksugur í nr. 8508:
Athugasemdir
Sbr. i-lið 75. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007

Hleður tollskrárnúmerum...

8510
Rakvélar, hárklippur og háreyðingartæki, með innbyggðum rafhreyfli:

Hleður tollskrárnúmerum...

8511
Rafræsi- eða rafkveikibúnaður fyrir brunahreyfla með neista- eða þrýstikveikju (t.d. kveikiseglar, kveikirafalar, kveikispólur, kveikikerti og glóðarkerti, ræsihreyflar); rafalar (t.d. dínamóar og alternatorar) og straumlokur til notkunar við slíka hreyfla:

Hleður tollskrárnúmerum...

8512
Rafmagnsljósa- eða merkjabúnaður (þó ekki vörur í nr. 8539), rafmagnsrúðuþurrkur, íseyðar og móðueyðar fyrir hjól eða vélknúin ökutæki:

Hleður tollskrárnúmerum...

8513
Ferðaraflampar hannaðir fyrir eigin orkugjafa (t.d. þurrrafhlöður, geyma, segulrafala), þó ekki ljósabúnaður í nr. 8512:

Hleður tollskrárnúmerum...

8514
Rafbræðslu- eða rafhitunarofnar (þar með taldir fyrir span- eða torleiði) fyrir iðnað eða rannsóknastofur; önnur tæki fyrir span- og torleiði fyrir iðnað eða rannsóknastofur til hitameðferðar á efnum:
Athugasemdir
Sbr. i-lið 54. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

8515
Vélar og tækjabúnaður til lóðunar, brösunar, eða rafsuðu, einnig nothæfar til skurðar, fyrir rafmagn (þar með talið rafmagnshitað), leysi- eða annan ljós- eða ljóseindageisla, úthljóð, rafeindageisla, rafsegulpúlsa eða plasmaboga; rafmagnsvélar og -tækjabúnaður til heitúðunar málma eða keramíkmelmis:

Hleður tollskrárnúmerum...

8516
Hrað- eða geymavatnshitarar og hitastautar (hitöld) fyrir rafmagn; raftækjabúnaður til hitunar á rými (space) og jarðvegi; rafmagnshituð hársnyrtitæki (t.d. hárþurrkur, hárliðunartæki, hitunartæki fyrir hárliðunarjárn) og rafmagnsstraujárn; önnur rafmagnshitunartæki til heimilisnota; rafmagnshitamótstöður, þó ekki í nr. 8545:

Hleður tollskrárnúmerum...

8517
Símtæki, einnig snjallsímar og aðrir símar fyrir farsímanet eða önnur þráðlaus net; önnur tæki til sendingar eða móttöku á máli, myndum eða öðrum gögnum, þar með talið tæki til samskipta á línu eða þráðlausu neti (svo sem staðtengdu neti eða víðneti), þó ekki sendi- eða móttökubúnaður í nr. 8443, 8525, 8527 eða 8528:
Athugasemdir
Sbr. ó-lið 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

8518
Hljóðnemar og standar fyrir þá; hátalarar, einnig í hátalaraboxi; heyrnartól og eyrnatól, einnig með sambyggðum hljóðnema, og sett sem í eru hljóðnemi og einn eða fleiri hátalarar; rafmagnsheyrnartíðnimagnarar; rafmagnshljóðmagnarasett:
Athugasemdir
Sbr. l-lið 54. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

8519
Hljóðupptöku- eða hljóðflutningstæki:
Athugasemdir
Sbr. k-lið 75. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007

Hleður tollskrárnúmerum...

8521
Myndupptökutæki eða myndflutningstæki (video), einnig með innbyggðum myndmóttakara (video tuner):

Hleður tollskrárnúmerum...

8522
Hlutar og fylgihlutir sem eingöngu eða aðallega eru nothæfir til tækjabúnaðar í nr. 8519 eða 8521:
Athugasemdir
Sbr. c-lið 47. tl. 1. gr. auglýsingar sem gefin var út 15. desember 2011.

Hleður tollskrárnúmerum...

8523
Diskar, bönd, geymin hálfleiðaraminni (solid-state non-volatile storage devices), gjörvakort (smart cards) og aðrir miðlar til upptöku á hljóði eða öðrum merkjum, einnig átekið, þar með talin mót og frumgerðir (masters) til framleiðslu á diskum, þó ekki vörur í 37. kafla:
Athugasemdir
Sbr. l-lið 75. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007

Hleður tollskrárnúmerum...

8524
Flatskjáreiningar (flat panel display modules), einnig með snertiskjá:
Athugasemdir
Sbr. t-lið 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

8525
Senditæki fyrir útvarpssendingar eða sjónvarp, einnig með móttökubúnaði eða hljóðupptöku- eða hljóðflutningsbúnaði; sjónvarpsmyndavélar, stafrænar myndavélar og myndbandstökuvélar:
Athugasemdir
Sbr. m-lið 75. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007

Hleður tollskrárnúmerum...

8526
Ratsjár, radíóleiðsögutæki og radíófjarstýribúnaður:
Athugasemdir
Sbr. n-lið 75. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007

Hleður tollskrárnúmerum...

8527
Móttökutæki fyrir útvarpssendingar, einnig sambyggð, í sama hylki, með hljóðupptöku- eða hljóðflutningsbúnaði eða klukku:
Athugasemdir
Sbr. o-lið 75. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007

Hleður tollskrárnúmerum...

8528
Skjáir og myndvörpur, án sjónvarpsmóttökubúnaðar; móttökutæki fyrir sjónvarp, einnig með útvarpsviðtæki eða hljóð- eða myndbandsupptökubúnaði eða flutningsbúnaði:
Athugasemdir
Sbr. o-lið 75. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007)

Hleður tollskrárnúmerum...

8529
Hlutar eingöngu eða aðallega nothæfir til tækja í nr. 8524 -8528:
Athugasemdir
Sbr. ú-lið 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

8530
Rafmagnsmerkja-, öryggis- eða umferðarstjórnbúnaður fyrir járnbrautir, sporbrautir, vegi, vatnaleiðir, bílastæði, hafnarmannvirki eða flugvelli (þó ekki búnaður í nr. 8608):

Hleður tollskrárnúmerum...

8531
Rafmagnshljóðtæki eða rafmagnsljósmerkjatæki (t.d. bjöllur, sírenur, merkjatöflur, innbrota- eða brunaviðvörunarkerfi), þó ekki vörur í nr. 8512 eða 8530:

Hleður tollskrárnúmerum...

8532
Rafmagnsþéttar, óbreytilegir, breytilegir eða stillanlegir (forstilltir):

Hleður tollskrárnúmerum...

8533
Rafmagnsviðnám (þar með talin renniviðnám (rheostats) og spennudeilar (breytiviðnám)), þó ekki hitamótstöður:

Hleður tollskrárnúmerum...

8534
Prentrásir

Hleður tollskrárnúmerum...

8535
Raftækjabúnaður til að tengja, rjúfa eða vernda rafrásir, eða til tengingar við eða í rafrásum (t.d. rofar, vör, eldingarvarar, spennutakmarkarar, yfirspennuafrásir, klær og önnur tengi , greinikassar), fyrir yfir 1000 volta spennu:
Athugasemdir
Sbr. ó-lið 75. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007

Hleður tollskrárnúmerum...

8536
Raftækjabúnaður til að tengja, rjúfa eða vernda rafrásir, eða til tengingar við eða í rafrásum (t.d. rofar, rafliðar, vör, yfirspennuafrásir, klær, tenglar, lampafalir og önnur tengi, greinikassar), fyrir 1000 volta spennu eða minni; tengi fyrir ljóstrefjar, ljóstrefjabúnt eða ljósleiðara:
Athugasemdir
Sbr. p-lið 75. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007

Hleður tollskrárnúmerum...

8537
Bretti, töflur, stjórnborð, borð, skápar og aðrar undirstöður, búið tveim eða fleiri tækjum í nr. 8535 eða 8536, til rafstýringar eða dreifingar á rafmagni, þar með talinn búnaður sem búinn er áhöldum eða tækjum í 90. kafla, og talnastjórntöflur, þó ekki skiptibúnaður í nr. 8517:

Hleður tollskrárnúmerum...

8538
Hlutar eingöngu eða aðallega nothæfir til tækja í nr. 8535, 8536 eða 8537:

Hleður tollskrárnúmerum...

8539
Rafmagnsgló- eða úrhleðslulampar, þar með taldar einangraðar geislalampaeiningar og útfjólubláir eða innrauðir lampar; [bogalampar; [díóðuljósgjafar (LED)] ] :Rafmagnsgló- eða úrhleðslulampar, þar með taldar einangraðar geislalampaeiningar og útfjólubláir eða innrauðir lampar; bogalampar; díóðuljósgjafar (LED):
Athugasemdir
Sbr. v-lið 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

8540
Varmaskauts-, kaldskauts- eða ljósskautsrafeindalokar og -lampar (t.d. lofttæmdir eða gufu- eða gasfylltir lokar og lampar, kvikasilfursafriðilslokar og -lampar, sjárör, sjónvarpsmyndavélalampar):

Hleður tollskrárnúmerum...

8541
Hálfleiðarabúnaður (t.d. díóður, smárar, breytar að stofni til úr hálfleiðurum); ljósnæmir hálfleiðarar, þar með taldar ljósrafhlöður, einnig í samsettum einingum eða í töflum; ljósdíóður (LED), einnig samsettum með öðrum ljósdíóðum; uppsettir þrýstirafmagnskristallar:
Athugasemdir
Sbr. x-lið 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

8542
Rafeindasamrásir:
Athugasemdir
Sbr. r-lið 75. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007

Hleður tollskrárnúmerum...

8543
Rafmagnsvélar og -tækjabúnaður, til sérstakra nota, ót.a. í þessum kafla:

Hleður tollskrárnúmerum...

8544
Einangraður (þar með talinn gljábrenndur eða skauthúðaður) vír, kaplar (þar með taldir samása kaplar) og aðrir einangraðir rafleiðarar, einnig með tengihlutum; ljósleiðarar úr sérslíðruðum trefjum, einnig búnir rafleiðurun eða með tengihlutum:

Hleður tollskrárnúmerum...

8545
Rafskautskol, burstakol, lampakol, rafhlöðukol og aðrar vörur úr grafít eða öðru kolefni, einnig með málmi, til rafmagnsnotkunar:

Hleður tollskrárnúmerum...

8546
Einangrarar úr hvers konar efni:

Hleður tollskrárnúmerum...

8547
Einangrandi tengihlutir í rafmagnsvélar, -tæki eða -búnað sem eru að öllu leyti úr einangrandi efni, einnig þótt við mótun þeirra hafi eingöngu vegna samsetningar verið notaðir minni háttar efnisþættir úr málmi (t.d. tengihlutir með skrúfgangi), þó ekki einangrarar í nr. 8546; rafmagnsrör og tengi til þeirra, úr ódýrum málmi fóðrað með einangrandi efni:

Hleður tollskrárnúmerum...

8548
Rafmagnshlutar til vélbúnaðar eða tækjabúnaðar, ót.a. í þessum kafla
Athugasemdir
Sbr. þ-lið 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

8549
Rafmagns- og rafeindaúrgangur og -rusl:
Athugasemdir
Sbr. æ-lið 61. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...