Almennar reglur um túlkun tollskrárinnar
Við flokkun vara samkvæmt tollskránni skal fylgja eftirfarandi reglum:
1. Fyrirsagnir á flokkum, köflum og undirköflum eru einungis til leiðbeiningar. Í lagalegu tilliti skal tollflokkun byggð á orðalagi vöruliða, athugasemda við tilheyrandi flokka eða kafla og brjóti það eigi í bága við orðalag vöruliða eða athugasemda skal fylgt eftirfarandi reglum.
2.
a. Þegar talað er um tilteknar vörur í vörulið tekur það einnig til ófullgerðra vara eða vara sem eitthvað vantar á, ef þær við framvísun að öllu verulegu leyti líta út eins og hinar fullgerðu vörur. Enn fremur tekur það til þessara vara fullgerðra eða heilla (eða vara sem flokkast þannig samkvæmt þessum lið) þegar þeim er framvísað ósamsettum eða sundurteknum.
b. Þegar talað er um tiltekið efni í vörulið tekur það eigi einungis til efnisins óblandaðs, heldur einnig til þess í blöndum eða samböndum við önnur efni. Sérhver tilvísun til vara úr tilteknu efni tekur til vara sem að öllu eða nokkru leyti eru úr því efni. Um tollflokkun blandaðra og samsettra vara fer eftir reglum 3. töluliðar hér á eftir.
3. Nú kemur til álita samkvæmt reglu b-liðar 2. töluliðar, eða af öðrum ástæðum, að telja vörur til tveggja eða fleiri vöruliða og skal þá tollflokkunin fara eftir því sem hér segir:
a. Vöruliður sem felur í sér nákvæmasta vörulýsingu skal tekinn fram yfir vörulið með almennari vörulýsingu. Þegar tveir eða fleiri vöruliðir hver um sig taka aðeins til hluta þeirra efnivara eða efna, sem eru í blöndum eða samsettum vörum, eða aðeins til hluta vara í vörusamstæðu í smásöluumbúðum, skulu þeir vöruliðir taldir koma að jöfnu til álita með tilliti til þessara vara, þótt ein þeirra gefi fyllri eða nákvæmari lýsingu á vörunum.
b. Blöndur, samsettar vörur úr ýmsum efnum eða hlutum svo og vörusamstæður, sem eigi verður flokkað eftir reglu a-liðar 3. töluliðar, skal flokka eftir því efni eða þeim hluta sem helst einkennir vörurnar, enda verði slíku mati komið við.
c. Ef eigi er unnt að flokka vörur eftir reglum a- eða b-liðar 3. töluliðar hér á undan skal telja þær til þess varnaliðar sem síðastur er þeirra varnaliða sem að jöfnu koma á álita.
4. Vörur sem ekki verða flokkaðar samkvæmt undanfarandi reglum skulu taldar til sama varnaliðs og þær varnaliði sem þeim eru líkastar.
5. Auk undanfarandi ákvæða skulu eftirfarandi reglur gilda um þær vörur sem hér greinir:
a. Myndavélahylki, hljóðfæratöskur, byssuhulstur, pennastokkar, skartgripaskrín og áþekk ílát sem sérstaklega eru löguð eða smíðuð undir ákveðnar vörur eða vörusamstæður, eru ætluð til langvarandi nota og framvísað með þeim vörum sem þær eru ætlaðar undir skal flokka með þessum hlutum, enda séu þær venjulega seldar með þeim. Ákvæði þetta tekur þó ekki til íláta sem eru einkennandi fyrir vöruna í heild.
b. Leiði ekki annað af reglu a-liðar 5. töluliðar skal umbúðaefni og ílát til pökkunar, sem framvísað er með vörunum í, flokkað með vörunum, enda sé það venjulega notað til pökkunar á slíkum vörum. Ákvæði þetta gildir þó ekki ef slíkt umbúðaefni eða ílát til pökkunar eru augljóslega margnota.
6. Í lagalegu tilliti skal flokkun vara í undirliði einstakra vöruliða byggð á orðalagi undirliðanna og sérhverri tilheyrandi athugasemda við undirliði og, að breyttu breytanda, framangreindum reglum, með því fororði að aðeins jafnsettir undirliðir verða bornir saman. Viðkomandi athugasemdir við flokka og kafla gilda einnig með tilliti til þessarar reglu, nema annað leiði af orðalagi.