Kafli 96 Ýmsar framleiddar vörur
Athugasemdir flokks
Engar athugasemdir
Athugasemdir kafla
96. KAFLI
Ýmsar framleiddar vörur
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
a. Snyrtiblýantar (33. kafli).
b. Vörur sem teljast til 66. kafla (t.d. hlutar til regnhlífa eða göngustafa).
c. Glysvarningur (nr. 7117).
d. Hlutir til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV), eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli).
e. Eggjárn eða aðrar vörur í 82. kafla, með skafti eða öðrum hlutum úr útskurðar- eða mótunarefnum. Til nr. 9601 eða 9602 teljast þó sköft eða aðrir hlutir til slíkra vara sem framvísað er sér.
f. Vörur í 90. kafla (t.d. gleraugnaumgerðir (nr. 9003), stærðfræðilegir teiknipennar (nr. 9017), burstar sérstaklega gerðir til tannlækninga, eða lyflækninga, skurðlækninga eða dýralækninga (nr. 9018)).
g. Vörur í 91. kafla (t.d. klukku- eða úrkassar).
h. Hljóðfæri eða hlutar eða fylgihlutir til þeirra (92. kafli).
ij. Vörur í 93. kafla (vopn og hlutar til þeirra).
k. Vörur í 94. kafla (t.d. húsgögn, [ljós og ljósabúnaður][1]).
l. Vörur í 95. kafla (leikföng, leikspil, íþróttabúnaður).
m. Listaverk, safnmunir eða forngripir (97. kafli).
2. Sem útskurðarefni úr jurta- eða steinaríkinu í nr. 9602 telst:
a. Hörð fræ, kjarnar, skurn, hnetur og áþekk jurtaefni sem notuð eru til útskurðar (t.d. fílabeinshnetur og dompálmahnetur).
b. Raf, merskúm, mótað raf, mótað merskúm, svartaraf (jet) og svartarafseftirlíkingar úr jarðefnum.
3. Sem tilbúin knippi og vöndlar til framleiðslu á sópum eða burstum í nr. 9603 teljast einungis óáfest knippi og vöndlar úr dýrahári, jurtatrefjum eða öðru efni, sem er tilbúið án sundurgreiningar til ísetningar í sópa eða bursta, eða aðeins þarf að vinna lítils háttar til að gera það ísetningarhæft, svo sem að skera til á endum.
4. Vörur í þessum kafla, aðrar en í nr. 9601-9606 eða 9615, flokkast einnig í þennan kafla þótt þær séu gerðar að öllu leyti eða að hluta úr góðmálmi eða málmi klæddum góðmálmi, úr náttúrlegum eða ræktuðum perlum eða eðalsteinum eða hálfeðalsteinum (náttúrlegum, syntetískum eða endurgerðum). Nr. 9601-9606 og 9615 taka þó til vara sem í eru minni háttar efnisþættir úr náttúrlegum eða ræktuðum perlum, eðalsteinum eða hálfeðalsteinum (náttúrlegum, syntetískum eða endurgerðum), góðmálmi eða málmi klæddum góðmálmi.
9601
Unnið fílabein, bein, skjaldbökuskel, horn, hjartarhorn, kórall, perlumóðir og önnur unnin útskurðarefni úr dýraríkinu, og vörur úr þessum efnum (einnig mótaðar vörur):
Hleður tollskrárnúmerum...
9602
Unnin útskurðarefni úr jurta- eða steinaríkinu og vörur úr þessum efnum; mótaðar eða útskornar vörur úr vaxi, steríni, náttúrlegum gúmkvoðum, náttúrlegum harpixum eða mótunardeigi, og aðrar mótaðar eða útskornar vörur, ót.a.; unnið, óhert gelatín (þó ekki gelatín sem telst til nr. 3503) og vörur úr óhertu gelatíni:
Hleður tollskrárnúmerum...
9603
Sópar, burstar (þar með taldir burstar sem eru hlutar af vélum, tækjum eða ökutækjum), handstýrðir vélrænir gólfsópar, án hreyfils, þveglar og fjaðra-kústar; tilbúin knippi og vöndlar til framleiðslu á sópum eða burstum; málningarpúðar og -rúllur; skaftþvögur (þó ekki rúlluþvögur):
Hleður tollskrárnúmerum...
9604
Handsíur og handsáldir
Hleður tollskrárnúmerum...
9605
Hreinlætis-, sauma- eða snyrtisett fyrir skó og fatnað til nota á ferðalögum
Hleður tollskrárnúmerum...
9606
Hnappar, þrýstitölur, smellur og smelluhnappar, hnappamót og aðrir hlutar til þeirra vara; hnappaefni (button blanks):
Hleður tollskrárnúmerum...
9607
Rennilásar og hlutar til þeirra:
Hleður tollskrárnúmerum...
9608
Kúlupennar; pennar og merkipennar með flókaoddi og öðrum gropoddi; sjálfblekungar, stylógrafpennar og aðrir pennar; eftirritunargrifflar; skrúfblýantar eða renniblýantar; penna-, blýants- og áþekk sköft; hlutar (einnig hettur og klemmur) til framangreindra vara, þó ekki vara í nr. 9609:
Hleður tollskrárnúmerum...
9609
Blýantar (þó ekki blýantar í nr. 9608), vaxlitir, ritblý, pastellitir, teiknikol, rit- eða teiknikrít og klæðskerakrít:
Hleður tollskrárnúmerum...
9610
Spjöld og töflur með yfirborði til að skrifa eða teikna á, einnig í ramma
Hleður tollskrárnúmerum...
9611
Dagsetningar-, innsiglis- eða tölusetningarstimplar og þess háttar (þar með talin áhöld til prentunar eða áletrunar á merkimiða), til handstimplunar; leturhaldarar og stimpilsamstæður með slíkum leturhöldurum til handstimplunar
Hleður tollskrárnúmerum...
9612
Ritvélaborðar eða áþekk bönd með bleki eða unnin á annan hátt til áprentunar, einnig á spólum eða í hylkjum; blekpúðar, einnig með bleki eða í öskjum:
Hleður tollskrárnúmerum...
9613
Vindlingakveikjarar og aðrir kveikjarar, einnig vélrænir eða rafknúnir, og hlutar til þeirra, þó ekki steinar og kveikir:
Hleður tollskrárnúmerum...
9614
Reykjarpípur (þar með taldir pípuhausar) og vindla- eða vindlingamunnstykki, og hlutar til þeirra:
Hleður tollskrárnúmerum...
9615
Greiður, hárspennur og þess háttar; hárnálar, hár-liðunarnálar, hárliðunarklemmur, krullupinnar og þess háttar, þó ekki vörur í nr. 8516, og hlutar til þeirra:
Hleður tollskrárnúmerum...
9616
Ilmúðarar og áþekkir snyrtivöruúðarar, og festingar og hausar til þeirra; duftpúðar og duftleppar til að bera á snyrti- eða hreinlætisvörur:
Hleður tollskrárnúmerum...
9617
Hitaflöskur og aðrir hitageymar, fullbúið; hlutar til þeirra, þó ekki glergeymar
Hleður tollskrárnúmerum...
9618
Klæðskeragínur og önnur líkamslíkön; sjálfhreyfivélar og annar hreyfisýningarbúnaður fyrir útstillingar í búðargluggum
Hleður tollskrárnúmerum...
9619
Dömubindi og tíðatappar, bleiur, bleiufóður og svipaðar vörur úr hvers konar efni:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
9620
Einfætur, tvífætur og þrífætur og áþekkar vörur
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir