Kafli 95 Leikföng, leikspil og íþróttabúnaður; hlutar og fylgihlutir til þessara vara
Athugasemdir flokks
Engar athugasemdir
Athugasemdir kafla
95. KAFLI
Leikföng, leikspil og íþróttabúnaður; hlutar og fylgihlutir til þessara vara
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
a. Kerti (nr. 3406).
b. Flugeldar eða aðrar flugeldavörur í nr. 3604.
c. Garn, einþáttungar, snúrur, þarmar eða þess háttar til fiskveiða, skorið í lengdir en ekki tilbúnar fiskilínur, í 39. kafla, nr. 4206 eða flokki XI.
d. Íþróttatöskur eða önnur ílát í nr. 4202, 4303 eða 4304.
[e. Grímubúningar úr spunavörum í 61. eða 62. kafla; íþróttafatnaður og sérstakur fatnaður úr spunavörum í 61. eða 62.kafla, einnig með viðeigandi hlífðarbúnaði eins og púðum eða tróði í eða á olnboga-, hnjá- eða nárasvæðum (t.d. skylmingafatnaður eða markmannstreyjur][1].
f. Flögg eða fánaskreytingar úr spunavörum eða segl á báta, seglbretti eða landför í 63. kafla.
g. Íþróttaskófatnaður (þó ekki skautaskór með áföstum skautum eða hjólaskautum) í 64. kafla eða íþróttahöfuðfatnaður í 65. kafla.
h. Göngustafir, svipur, keyri eða þess háttar (nr. 6602) eða hlutar til þeirra (nr. 6603).
ij. Óuppsett augu úr gleri í brúður eða önnur leikföng í nr. 7018.
k. Hlutar til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV) eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli).
l. Bjöllur, bomböld eða þess háttar í nr. 8306.
m. Vökvadælur (nr. 8413), vél- og tækjabúnaður til síunar eða hreinsunar á vökva og lofttegundum (nr. 8421), rafhreyflar (nr. 8501), rafstraumbreytar (nr. 8504) eða radíófjarstýribúnaður (nr. 8526), diskar, bönd, geymin hálfleiðaraminni (SSD), gjörvakort (smart-card) og aðrir miðlar til upptöku á hljóði eða öðrum merkjum, einnig áteknir (vöruliður 8523), fjarstýribúnaður sem notar útvarpsbylgjur (vöruliður 8526) eða þráðlaus innfrarauður fjarstýribúnaður (vöruliður 8543).
n. Sportökutæki (þó ekki langsleðar, snjóbretti og þess háttar) í flokki XVII.
o. Barnareiðhjól (nr. 8712).
[p. Ómönnuð loftför (nr. 8806).][2]
[q.][3] Sportför, svo sem kanóar og kænur (89. kafli), eða búnaður til að knýja þá áfram (44. kafli að því er varðar slíka hluti úr viði).
[r.][4] Gleraugu, hlífðargleraugu og þess konar til íþrótta og útileikja (nr. 9004).
[s.][5] Tálflautur eða blístrur (nr. 9208).
[t.][6] Vopn eða aðrir hlutir í 93. kafla.
[u.][7] [Ljósastrengir][8] hvers konar (nr. 9405).
[v.][9] Einfætur, tvífætur og þrífætur og áþekkar vörur (nr. 9602).
[W.][10] Strengir í boltaspaða, tjöld eða annar viðlegubúnaður eða hanskar, belgvettlingar og vettlingar (flokkast eftir því efni sem þetta er aðallega gert úr).
[x.][11] Borðbúnaður, eldhúsbúnaður, baðherbergisbúnaður, gólfteppi og aðrar gólfábreiður úr spunaefnum, fatnaður, sængurlín, borðlín, baðlín, eldhúslín, og þess konar nytjavörur (flokkast eftir því efni sem þetta er aðallega gert úr).
2. Til þessa kafla teljast einnig vörur sem í eru minni háttar efnisþættir úr náttúrlegum eða ræktuðum perlum, eðalsteinum eða hálfeðalsteinum (náttúrlegum, syntetískum eða endurgerðum), góðmálmum eða málmi klæddum góðmálmi.
3. Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér á undan skulu hlutar og fylgihlutir sem einungis eða aðallega eru nothæfir við vörur í þessum kafla flokkast með þeim vörum.
4. Leiði ekki annað af ákvæðum 1. athugasemdar tekur nr. 9503 m.a. til vara í þessu númeri, sem tengdar eru einum eða fleiri hlutum, sem ekki verður talin vörusamstæða samkvæmt almennu túlkunarreglu 3 b, og flokkaðar yrðu í aðra vöruliði ef þeim væri framvísað stökum, að því tilskyldu að vörunum sé pakkað saman til smásölu og samsetningin gefi henni megineinkenni leikfangs.
5. Til nr. 9503 teljast ekki vörur sem vegna hönnunar, lögunar eða efnisþátta eru sýnilega eingöngu ætlaðar fyrir dýr, t.d. leikföng fyrir dýr (sem flokkast í viðeigandi vörulið).
[6. Hvað vörulið 9508 varðar gildir eftirfarandi: [HBAS1]
a. Með leiktækjum fyrir skemmtigarða er átt við tæki, tækjasamstæðu eða -búnað sem flytur, lyftir eða beinir manni eða mönnum í gegnum ákveðna eða takmarkaða rás, þ.m.t. vatnsrás, eða innan skilgreinds svæðis aðallega til skemmtunar eða dægradvalar. Slík tæki geta verið hluti af skemmtigarð, þemagarð, vatnsgarð eða tívolí. Til leiktækja fyrir skemmtigarða telst ekki búnaður sem almennt er settur upp á heimilum eða leikvöllum;
b. Með skemmtitækjum fyrir vatnsgarða er átt við tæki eða tækjasamstæðu eða -búnað sem einkennist af skilgreindu svæði þar sem vatn kemur við sögu, án sérstaklega útbúins farvegs. Til skemmtitækja fyrir vatnsgarða teljast aðeins tæki sem sérstaklega eru hönnuð fyrir vatnsgarða; og
c. Með leiktækjum fyrir tívolí er átt við leiki sem byggja á heppni, styrk eða hæfni sem almennt hefur stjórnanda eða starfsmann og getur verið komið fyrir í varanlegum byggingum eða söluskálum (concession stalls). Til leiktækja fyrir tívolí teljast ekki tæki sem flokkast í nr. 9504.
Þessi vöruliður tekur ekki til tækja sem sérstaklega flokkast annars staðar í tollskránni.][12]
Athugasemd við undirlið:
Undirliður 9504.50 tekur til:
a. Rafmyndaleiktæki sem birta myndir á sjónvarpsviðtækjum, skjám, aðskildum tjöldum eða öðrum flötum.
b. Rafmyndaleiktæki með innbyggðum myndskjá, einnig ferðatæki.
Í þennan undirlið flokkast ekki rafmyndaleiktæki eða -vélar sem ganga fyrir mynt, peningaseðlum, greiðslukortum, spilapeningum eða annarskonar greiðslumiðlum (9504.3000).
[1] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
[2] Sbr. 69. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[3] Sbr. 69. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[4] Sbr. 69. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[5] Sbr. 69. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[6] Sbr. 69. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[7] Sbr. 69. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[8] Sbr. 69. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[9] Sbr. 69. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[10] Sbr. 69. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[11] Sbr. 69. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[12] Sbr. 69. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[HBAS1]Breyta í tollskrá
9503
Þríhjól, hlaupahjól, stignir bílar og áþekk leikföng á hjólum; brúðuvagnar; brúður; önnur leikföng; smækkuð líkön (í stærðarhlutföllum) og áþekk tómstundalíkön, einnig gangfær; hvers konar þrautir:
Hleður tollskrárnúmerum...
9504
Leikjatölvur (video game consoles) og -tæki, borð- eða spilastofuleiktæki, þar með talin pinnaborð, biljarðborð, sérstök borð fyrir fjárhættuspil og sjálfvirkur búnaður fyrir keilubrautir, leiktæki sem ganga fyrir mynt, peningaseðlum, greiðslukortum, spilapeningum eða öðrum greiðslumiðlum:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
9505
Hlutir til skemmtana eða annars hátíðahalds, þar með taldir gripir fyrir töfrabrögð og sjónhverfingar:
Hleður tollskrárnúmerum...
9506
Hlutir og búnaður til almennrar líkamsræktar, fimleika, frjálsra íþrótta, annarra íþrótta (þar með talið borðtennis) eða útileikja, ót.a. í þessum kafla; sundlaugar og vaðlaugar:
Hleður tollskrárnúmerum...
9507
Veiðistangir, önglar og annar búnaður til veiða á línu; fiskháfar, fiðrildaháfar og áþekk net; tálfuglar (þó ekki í nr. 9208 eða 9705) og áþekkur veiði- eða skotbúnaður:
Hleður tollskrárnúmerum...
9508
Farandhringleikahús og faranddýrasöfn; leiktæki fyrir skemmtigarða og skemmtitæki fyrir vatnsgarða; búnaður fyrir tívolí, þar með taldir skotbakkar; farandleikhús:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir