Flokkur 20 Ýmsar framleiddar vörur

Kafli 94 Húsgögn; rekkjubúnaður, dýnur, rúmbotnar, púðar og áþekkur stoppaður húsbúnaður; ljós og ljósabúnaður, ót.a.; ljósaskilti, ljósanafnskilti og þess háttar; forsmíðaðar byggingar

Athugasemdir flokks

Engar athugasemdir

Athugasemdir kafla

94. KAFLI
Húsgögn; rekkjubúnaður, dýnur, rúmbotnar, púðar og áþekkur
stoppaður húsbúnaður; [ljós og ljósabúnaður]
[1], ót.a.;
ljósaskilti, ljósanafnskilti og þess háttar;
forsmíðaðar byggingar

 

Athugasemdir:

1.      Til þessa kafla telst ekki:

a.      Loft- eða vatnsdýnur, -koddar eða -púðar í 39., 40. eða 63. kafla.

b.      Speglar hannaðir til að standa á gólfi eða jörðu (t.d. hverfispeglar (sveifluspeglar)) í nr. 7009.

c.      Vörur í 71. kafla.

d.      Hlutar til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV), eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli), eða peningaskápar í nr. 8303.

e.      Húsgögn sérhönnuð sem hlutar til kæli- og frystitækja í nr. 8418; húsgögn sérhönnuð fyrir saumavélar (nr. 8452).

f.       [Ljós eða ljósgjafar og hlutar til þeirra][2] í 85. kafla.

g.      Húsgögn sérstaklega  hönnuð  sem  hlutar  til tækja í nr. 8518 (nr. 8518), í nr. 8519 eða 8521 (nr. 8522) eða í nr. 8525 -8528 (nr. 8529).

h.      Vörur í nr. 8714.

ij.      Tannlæknastólar sem í eru tannlæknatæki í nr. 9018 eða tannlæknaspýtubakkar (nr. 9018).

k.      Vörur í 91. kafla (t.d. klukku- og úrkassar).

l.       Leikfangahúsgögn eða leikfangaljós eða leikfangaljósgjafar (nr. 9503), knattborð eða önnur húsgögn sérstaklega gerð fyrir leikspil (nr. 9504), húsgögn fyrir töfrabrögð eða til skreytingar (þó ekki [ljósastrengir][3]) eins og kínversk ljósker (nr. 9505).

[m.     Einfætur, tvífætur og þrífætur og áþekkar vörur (nr. 9620).][4]

2.      Vörur (aðrar en hlutar) sem tilgreindar eru í nr. 9401-9403 flokkast einungis í þessa vöruliði ef þær eru hannaðar til að standa á gólfi eða á jörðu.

Eftirtalin húsgögn flokkast þó í framangreind númer jafnvel þótt þau séu hönnuð til að hengja eða festa á vegg eða standa hvert ofan á öðru:

a.      Bollaskápar, bókaskápar, önnur húsgögn með hillum (einnig einstakar hillur með veggfestingum) og einingahúsgögn.

b.      Sæti og rúm.

3.      A.     Sem hlutar til vara í nr. 9401-9403 teljast ekki plötur eða skífur (einnig tilskornar en ekki festar við aðra hluta) úr gleri (þar með taldir speglar), marmara eða öðrum steini eða úr einhverju öðru efni sem um ræðir í 68. eða 69. kafla.


          B.     Vörur sem lýst er í nr. 9404 og framvísað er aðskildum flokkast ekki í nr. 9401, 9402 eða 9403 sem hlutar til vara.

4.      Sem forsmíðaðar byggingar í nr. 9406 teljast byggingar sem framleiddar eru í verksmiðju eða seldar í einingum, framvísað saman og settar saman á staðnum, svo sem íbúðir eða vinnubúðir, skrifstofur, skólar, verslanir, skúrar, bílskýli eða áþekkar byggingar.

[Forsmíðaðar byggingar taka til byggingareininga úr stáli, sem venjulega eru afhentar að stærð og lögun staðlaðra skipagáma, en að mestu eða að öllu leyti frágengnar að innan. Slíkar byggingareiningar eru venjulega hannaðar til samsetningar sem varanlegar byggingar.][5]



[1] Sbr. 68 tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[2] Sbr. 68 tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[3] Sbr. 68 tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[4] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).

[5] Sbr. 68 tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

9401
Sæti (þó ekki sæti í nr. 9402), sem einnig má breyta í rúm, og hlutar til þeirra:

Hleður tollskrárnúmerum...

9402
Húsgögn til lyflækninga, skurðlækninga, tannlækninga eða dýralækninga (t.d. skurðarborð, rannsóknarborð, sjúkrarúm með vélrænum búnaði, tannlæknastólar); rakarastólar og áþekkir stólar sem búnir eru snúnings- jafnt sem halla- og lyftubúnaði; hlutar til framangreindra vara:

Hleður tollskrárnúmerum...

9403
Önnur húsgögn og hlutar til þeirra:

Hleður tollskrárnúmerum...

9404
Rúmbotnar; rekkjubúnaður eða áþekkur húsbúnaður (t.d. dýnur, stungnar ábreiður, æðardúnssængur, púðar, sessur og koddar) með fjöðrum eða bólstraðar hið innra úr hvers konar efni eða úr holgúmmíi eða -plasti, einnig með áklæði:

Hleður tollskrárnúmerum...

9405
Ljós og ljósabúnaður , þar með talin leitarljós og kastljós og hlutar til þeirra, ót.a.; ljósaskilti, ljósa-nafnskilti og þess háttar sem tengt er föstum ljósgjafa, og hlutar til þeirra, ót.a.:
Athugasemdir
Sbr. í-lið 68. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

Hleður tollskrárnúmerum...

9406
Forsmíðaðar byggingar:

Hleður tollskrárnúmerum...