Flokkur 19 Vopn og skotfæri; hlutar og fylgihlutir til þeirra

Kafli 93 Vopn og skotfæri; hlutar og fylgihlutir til þeirra

Athugasemdir flokks

Engar athugasemdir

Athugasemdir kafla

93. KAFLI
Vopn og skotfæri; hlutar og fylgihlutir til þeirra
 

Athugasemdir:

1.   Til þessa kafla telst ekki: 

a. Vörur í 36. kafla (t.d. hvellhettur, rafmagnshvellhettur, merkjaflugeldar).
b. Hlutar til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV), eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli).
c. Brynvarðir stríðsvagnar (nr. 8710).
d. Sjónaukasigti eða annar optískur búnaður til nota við vopn, nema þau séu fest á skot­vopn eða framvísað með skotvopni sem þau eru hönnuð til festingar á (90. kafli).
e. Bogar, örvar, skylmingasverð eða leikföng (95. kafli).
f. Safnmunir eða forngripir (nr. 9705 eða 9706).

2.   Sem hlutar til þeirra í nr. 9306 teljast ekki radíótæki eða ratsjár í nr. 8526.

9301
Hernaðarvopn, þó ekki marghleypur, skammbyssur og vopn í nr. 9307:

Hleður tollskrárnúmerum...

9302
Marghleypur og skammbyssur, þó ekki vopn í nr. 9303 eða 9304

Hleður tollskrárnúmerum...

9303
Önnur skotvopn og áþekk tæki sem skotið er úr með sprengihleðslu (t.d. sporthaglabyssur og rifflar, framhlaðningar, merkjabyssur og annar búnaður hannaður eingöngu til að skjóta blysum, byssur og marghleypur sem skjóta púðurskotum, sláturbyssur (captivebolt humane killers), línubyssur):

Hleður tollskrárnúmerum...

9304
Önnur vopn (t.d. fjaður-, loft- eða gasbyssur og -skammbyssur, barefli), þó ekki vopn í nr. 9307

Hleður tollskrárnúmerum...

9305
Hlutar og fylgihlutir til vara í nr. 9301-9304:
Athugasemdir
Vöruliður 9301 ásamt tollskrárnúmerum orðist, sbr. a-lið 61. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

9306
Sprengjur, handsprengjur, tundurskeyti, tundurdufl, flugskeyti, og áþekk hergögn og hlutar til þeirra; skot og önnur skotfæri og skeyti og hlutar til þeirra, þar með talin högl og forhlöð:

Hleður tollskrárnúmerum...

9307
Sverð, höggsverð; byssustingir, lensur og áþekk vopn og hlutar til þeirra og skeiðar og slíður til þeirra

Hleður tollskrárnúmerum...