Athugasemdir flokks

Engar athugasemdir

Athugasemdir kafla

92. KAFLI
Hljóðfæri; hlutar og fylgihlutir til þess konar vara

Athugasemdir:

1.   Til þessa kafla telst ekki:  

a. Hlutar til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV), eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli).
b. Hljóðnemar, magnarar, hátalarar, heyrnartól, rofar, snúðsjár eða önnur fylgiháhöld, fylgitæki, eða fylgibúnaður í 85. kafla eða 90. kafla til notkunar með en ekki sambyggð eða innbyggð í sama hylki og tæki í þessum kafla.
c. Leikfangahljóðfæri eða -tæki (nr. 9503).
d. Burstar til að hreinsa hljóðfæri (nr. 9603)[, eða einfætur, tvífætur, þrífætur og áþekkar vörur (nr. 9620)]1.
e, Safnmunir eða forngripir (nr. 9705 eða 9706).

2. Bogar og kjuðar og áþekkur búnaður, sem notaður er til þess að leika á hljóðfæri í nr. 9202 eða 9206 og framvísað er með slíkum hljóðfærum í hæfilegum fjölda og augsýnilega til nota með þeim, flokkast í sama vörulið og viðkomandi hljóðfæri.

Spjöld, diskar og valsar í nr. 9209, sem framvísað er með hljóðfæri, flokkast sem aðskildar vörur en ekki eins og það myndi hluta af slíku hljóðfæri.


1 Sbr. 43. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármálaráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2017.

 

9201
Píanó, þar með talin sjálfvirk píanó; harpsíkord og önnur strengjahljóðfæri með nótnaborði:

Hleður tollskrárnúmerum...

9202
Önnur strengjahljóðfæri (t.d. gítarar, fiðlur, hörpur):

Hleður tollskrárnúmerum...

9205
Blásturshljóðfæri (t.d. pípuorgel með lyklaborði, harmonikkur, klarínettur, trompetar, sekkjapípur), annað en orgel fyrir skemmtigarða og lírukassar
Athugasemdir
Sbr. a-lið 51. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármálaráðuneytisins dags. 15.desember 2011, gildistökudagur 1. janúar 2012.

Hleður tollskrárnúmerum...

9206
Slaghljóðfæri (t.d. trommur, sylófónar, symbalar, kastanjettur, hringlur (maracas)):
Athugasemdir
Sbr. a-lið 60. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

9207
Hljóðfæri sem mynda hljóðið, eða verður að magna, með rafmagni (t.d. orgel, gítarar, dragspil):

Hleður tollskrárnúmerum...

9208
Spiladósir, orgel fyrir skemmtigarða, lírukassar, vélrænir söngfuglar, hljómsagir og önnur hljóðfæri sem ekki flokkast í einhvern annan vörulið í þessum kafla; hvers konar tálflautur; blístrur, gjallarhorn og önnur hljóðmerkjaáhöld fyrir munnblástur:
Athugasemdir
Sbr. b-lið 51. tl. 1. gr. auglýsingar sem gefin var út 15. desember 2011.

Hleður tollskrárnúmerum...

9209
Hlutar (t.d. gangverk í spiladósir) og fylgihlutir (t.d. spjöld, diskar og valsar í vélræn hljóðfæri) til hljóðfæra; taktmælar, tónkvíslar og tónflautur hvers konar:

Hleður tollskrárnúmerum...