Kafli 90 Áhöld og tækjabúnaður til optískra nota, ljósmyndunar, kvikmyndunar, mælinga, prófunar, nákvæmnivinnu, lyflækninga eða skurðlækninga; hlutar og fylgihlutir til þeirra.
Athugasemdir flokks
Engar athugasemdir
Athugasemdir kafla
90. KAFLI
Áhöld og tækjabúnaður til optískra nota, ljósmyndunar,
kvikmyndunar, mælinga, prófunar, nákvæmnivinnu,
lyflækninga eða skurðlækninga;
hlutar og fylgihlutir til þeirra.
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
a. Vörur til nota í vélum, tækjum, áhöldum eða til annarra tæknilegra nota, úr vúlkaníseruðu gúmmíi öðru en hertu gúmmíi (nr. 4016), úr leðri eða samsettu leðri (nr. 4205) eða úr spunaefni (nr. 5911).
b. Aðhaldsbelti eða aðrar vörur til aðhalds úr spunaefni, enda byggist áhrif þeirra á líffæri þau sem þær halda að eða styðja við, eingöngu á teygjanleika þeirra (t.d. meðgöngubelti, brjóstholsbindi, magabindi og liðamóta- eða vöðvabindi) (flokkur XI).
c. Eldfastar vörur í nr. 6903; leirvörur fyrir rannsóknarstofur eða til kemískra eða annarra tæknilegra nota í nr. 6909.
d. Glerspeglar, ekki optískt unnir í nr. 7009, eða speglar úr ódýrum málmi eða góðmálmi, þó ekki optískar vörur (nr. 8306 eða 71. kafli).
e. Vörur í nr. 7007, 7008, 7011, 7014, 7015 eða 7017.
[f. Hlutar til almennra nota eins og þeir eru skýrgreindir í 2. athugasemd við flokk XV, úr ódýrum málmi (flokkur XV), eða áþekkar vörur úr plasti (39. kafli). Þó skulu vörur, sem sérstaklega eru hannaðar eingöngu til nota sem ígræði (implants) til lyflækninga, skurðlækninga, tannlækninga eða dýralækninga, flokkaðar í nr. 9021.][1]
g. Dælur með mælitækjum í nr. 8413; talningar- eða eftirlitsvogir og vogarlóð sem framvísað er aðskildu (nr. 8423); vélbúnaður til lyftingar eða meðhöndlunar (nr. 8425-8428); hvers konar pappírs- eða pappaskurðarvélar (nr. 8441); búnaður til að stilla efni eða [verkfæri í smíðavélar eða vatnsþrýstiskurðarvélar][2] í nr. 8466, þar með talinn búnaður með optískum tækjum til að lesa á mælikvarða (t.d. optískir deilihausar) þó ekki sá búnaður sem í sjálfu sér er fyrst og fremst optískt áhald (t.d. stillisjónaukar); reiknivélar (nr. 8470); lokar eða önnur tæki í nr. 8481; vélar og tækjabúnaður (einnig tækjabúnaður til að varpa eða teikna rásamynstur á næmt hálfleiðaraefni) í nr. 8486.
h. Leitarljós eða kastljós til nota á reiðhjól eða vélknúin ökutæki (nr. 8512); ferðaraflampar í nr. 8513; kvikmyndahljóðupptökutæki, -hljóðflutningstæki eða -endurupptökutæki (nr. 8519); hljóðhausar (nr. 8522); sjónvarpsmyndavélar, stafrænar myndavélar og myndbandstökuvélar í nr. 8525; ratsjártæki, radíóleiðsögutæki eða radíófjarstýritæki (nr. 8526); tengi fyrir ljóstrefjar, ljóstrefjabúnt eða ljósleiðara (nr. 8536); talnastjórntöflur í nr. 8537; einangraðar geislalampaeiningar í nr. 8539; ljósleiðarar í nr. 8544.
ij. Leitarljós eða kastljós í nr. 9405.
k. Vörur í 95. kafla.
[l. Einfætur, tvífætur og þrífætur og áþekkar vörur í nr. 9620.
m. Mæliker sem flokkast eftir því efni sem þau eru gerð úr.
n.][3] Spólur, kefli eða áþekkar uppistöður (sem flokkast eftir því efni sem það er gert úr, t.d. nr. 3923 eða flokk XV).
2. Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér á undan skulu hlutar og fylgihlutir, sem eru einungis eða aðallega nothæf við vélar, tæki, áhöld eða vörur í þessum kafla, flokkast samkvæmt eftirfarandi reglum:
a. Hlutar og fylgihlutir sem eru vörur meðtaldar í einhverjum vöruliðum þessa kafla eða 84., 85. eða 91. kafla (þó ekki nr. 8487, 8548 eða 9033) skulu í öllum tilvikum flokkast í viðeigandi vöruliði.
b. Aðrir hlutar og fylgihlutir sem eingöngu eða aðallega eru nothæfir til tiltekinnar vélar, áhalds eða tækis eða til nokkurra véla, áhalda eða tækja í sama vörulið (þar með talið vél, áhald eða tæki í nr. 9010, 9013 eða 9031) skulu flokkast með þeim tegundum véla, áhalda eða tækja.
c. Allir aðrir hlutar og fylgihlutir skulu flokkast í nr. 9033.
3. Ákvæði 3. og 4. athugasemdar við flokk XVI gilda einnig um þennan kafla.
4. Til nr. 9005 telst ekki sjónaukasigti á vopn, sjónpípur eða sjónaukasigti á kafbáta eða skriðdreka eða sjónaukar á vélar, tæki, áhöld eða tækjabúnað í þessum kafla eða flokki XVI. Þessi sjónaukasigti og sjónauka skal flokka í nr. 9013.
5. Optísk áhöld, tæki eða vélar til mælingar eða prófunar sem flokka mætti í bæði nr. 9013 og 9031 skulu flokkast í nr. 9031.
6. Sem búnaður til réttilækninga í nr. 9021 telst búnaður:
¿ til að koma í veg fyrir eða bæta úr líkamlegri bæklun, eða
¿ til að styðja við eða halda upp líkamshlutum eftir veikindi, uppskurði eða slys.
Búnaður til réttilækninga tekur til skófatnaðar og sérstaks skóinnleggs sem hannað er til að bæta úr bæklun, enda sé búnaður þessi annað gerður eftir máli eða fjöldaframleiddur, honum sé framvísað sem aðskildu stykki en ekki sem pari og hönnun sé þannig að hann hæfi jafnt hvorum fæti.
7. Til nr. 9032 telst einungis:
a. Áhöld og tæki til sjálfvirkrar stjórnunar á flæði, hæð, þrýstingi eða öðrum breytum í vökvum eða gasi eða til sjálfvirkrar stjórnunar á hitastigi, einnig þótt rafmagnsfyrirbæri hafi áhrif á notkun þeirra, misjafnlega mikið eftir þeim þætti sem á að stjórna sjálfvirkt, sem hönnuð eru til að koma þessum þætti í og viðhalda honum í því gildi sem óskað er og halda honum stöðugum frá frávikum, með því að mæla raungildið sífellt eða með reglulegu millibili.
b. Sjálfvirkir stillar fyrir rafmagnsstærðir og áhöld eða tækjabúnaður til sjálfvirkrar stjórnunar á stærðum sem ekki eru rafmagnsstærðir, enda hafi rafmagnsfyrirbæri áhrif á notkun þeirra, misjafnlega mikið eftir þeim þætti sem stjórna á, sem hannað er til að koma þessum þætti í og viðhalda honum í því gildi sem óskað er og halda honum stöðugum frá frávikum, með því að mæla raungildið sífellt eða með reglulegu millibili.
[1] Sbr. a-lið 66. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[2] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017)
[3] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
9001
Ljóstrefjar og ljóstrefjabúnt; ljósleiðarar, þó ekki í nr. 8544; þynnur og plötur úr ljósskautandi efni; linsur (einnig snertilinsur), strendingar (prisms), speglar og aðrar optískar vörur, úr hvers konar efni, án umgerðar, þó ekki þessar vörur úr gleri sem ekki hafa verið optískt unnar:
Hleður tollskrárnúmerum...
9002
Linsur, strendingar, speglar og aðrar optískar vörur, úr hvers konar efni, í umgerð, sem eru hlutar eða tengihlutar til áhalda eða tækjabúnaðar, þó ekki þessar vörur úr gleri sem ekki hafa verið optískt unnar:
Hleður tollskrárnúmerum...
9003
Rammar og umgerðir fyrir gleraugu, hlífðargleraugu og þess háttar, og hlutar til þeirra:
Hleður tollskrárnúmerum...
9004
Gleraugu, hlífðargleraugu og þess háttar, til sjónréttingar, verndar eða annars:
Hleður tollskrárnúmerum...
9005
Sjónaukar fyrir bæði augu eða annað, aðrir optískir sjónaukar, og umgerðir til þeirra; annar stjörnufræðilegur tækjabúnaður og undirstöður til þeirra, þó ekki tækjabúnaður fyrir radíóstjörnufræði:
Hleður tollskrárnúmerum...
9006
Ljósmyndavélar (þó ekki fyrir kvikmyndir); leifturtæki til ljósmyndunar og leifturlampar, þó ekki úr-hleðslulampar í nr. 8539:
Hleður tollskrárnúmerum...
9007
Kvikmyndavélar og kvikmyndasýningavélar, einnig með hljóðupptökutækjum eða hljóðflutningstækjum:
Hleður tollskrárnúmerum...
9008
Myndvörpur, þó ekki kvikmyndasýningarvélar; ljósmyndastækkarar og ljósmyndasmækkarar (þó ekki fyrir kvikmyndir):
Hleður tollskrárnúmerum...
9010
Tæki og búnaður til nota í ljósmyndavinnustofur (einnig kvikmyndavinnustofur), ót.a. í þessum kafla; negatívusjár; sýningartjöld:
Hleður tollskrárnúmerum...
9011
Sambyggðar optískar smásjár, einnig til örmyndatöku, örkvikmyndatöku eða örmyndvörpunar:
Hleður tollskrárnúmerum...
9012
Smásjár, þó ekki optískar smásjár; ljósbylgjutæki:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
9013
Leysar, þó ekki leysidíóður; önnur optísk tæki og áhöld, ót.a. í þessum kafla:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
9014
Áttavitar; önnur áhöld og tæki til siglinga:
Hleður tollskrárnúmerum...
9015
Áhöld og tæki til landmælinga (þar með taldar mælingar eftir myndum), vatnamælinga, haffræðirannsókna, vatnafræðirannsókna, veðurfræðirannsókna eða jarðeðlisfræðirannsókna, þó ekki áttavitar; fjarlægðarmælar:
Hleður tollskrárnúmerum...
9016
Vogir með 5 cg nákvæmni eða meiri, einnig með lóðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
9017
Áhöld til teiknunar, afmörkunar eða útreiknings (t.d. teiknivélar, uppdráttaafritarar (pantographs), gráðubogar, teikniáhaldasamstæður, reiknistokkar, reikni-skífur); handáhöld til lengdarmælinga (t.d. málstokkar og málbönd, örkvarðar, rennimál), ót.a. í þessum kafla:
Hleður tollskrárnúmerum...
9018
Áhöld og tæki til lyflækninga, skurðlækninga, tannlækninga eða dýralækninga, þar með taldir leifturritar (scintigraphic apparatus), önnur rafmagnslækningatæki og sjónprófunaráhöld:
Hleður tollskrárnúmerum...
9019
Tæki til mekanóterapí; nuddtæki; tæki til sálfræðilegrar hæfileikaprófunar; ósonterapí-, oxygenterapí-, aerosólterapí-, gerviöndunar- eða önnur öndunartæki til lækninga:
Hleður tollskrárnúmerum...
9020
Annar öndunarbúnaður og gasgrímur, þó ekki verndargrímur sem hvorki eru búnar vélrænum hlutum né skiptanlegum síum
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
9021
Búnaður til réttilækninga, þar með taldar hækjur, skurðlækningabelti og kviðslitsbindi; spengur og annar búnaður fyrir beinbrot; gervilíkamshlutar; heyrnartæki og annar búnaður sem viðkomandi hefur á sér eða ber eða græddur er í líkamann til þess að bæta úr líkamslýti eða bæklun:
Hleður tollskrárnúmerum...
9022
Tækjabúnaður sem byggir á notkun röntgengeisla eða alfa-, beta-, gamma- eða annarri jónandi geilsun , einnig til lyflækninga, skurðlækninga, tannlækninga eða dýralækninga, þar með talinn tækjabúnaður til geislamyndatöku eða geislaterapí, röntgenlampar og aðrir röntgenrafalar, röntgenháspennurafalar, röntgenstjórntöflur og -stjórnborð, skermaborð, stólar og þess háttar til röntgenrannsókna og röntgenlækninga:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
9023
Áhöld, tækjabúnaður og líkön, gert sem lýsitæki (t.d. til kennslu eða sýningar), ekki hæft til annarra nota:
Hleður tollskrárnúmerum...
9024
Vélar og tæki til að prófa hörku, styrkleika, þrýstiþol, þan eða aðra eðlisfræðilega eiginleika efna (t.d. málma, viðar, spunavara, pappírs, plasts):
Hleður tollskrárnúmerum...
9025
Flotvogir og þess konar flotáhöld, hitamælar, háhitamælar, loftvogir, rakamælar og rakaþrýstimælar, einnig sjálfritandi, og hvers konar samsetning þessara áhalda:
Hleður tollskrárnúmerum...
9026
Áhöld og tækjabúnaður til að mæla eða prófa flæði, hæð, þrýsting eða aðrar breytur í vökvum eða gasi (t.d. rennslismælar, vökvahæðarmælar, þrýstimælar, varmanotkunarmælar), þó ekki áhöld og tækjabúnaður í nr. 9014, 9015, 9028 eða 9032:
Hleður tollskrárnúmerum...
9027
Áhöld og tækjabúnaður til eðlisfræðilegrar eða efnafræðilegrar greiningar (t.d. ljósskautunarmælar, ljósbrotsmælar, ljósrofsmælar, gas- eða reykgreiningartæki); áhöld og tækjabúnaður til að mæla eða prófa fljótanleika, gropinleika, þenslu, yfirborðsspennu eða þess háttar; áhöld og tækjabúnaður til að mæla eða prófa magn hita, hljóðs eða ljóss (þar með taldir birtumælar); örsniðlar (microtomes):
Hleður tollskrárnúmerum...
9028
Notkunar- og framleiðslumælar fyrir gas, vökva og rafmagn, þar með taldir mælar til prófunar á þeim:
Hleður tollskrárnúmerum...
9029
Snúningsteljarar, framleiðsluteljarar, ökugjaldsmælar, vegmælar, skrefateljarar og þess háttar; hraðamælar og snúningshraðamælar, þó ekki mælar í nr. 9014 eða 9015; snúðsjár:
Hleður tollskrárnúmerum...
9030
Sveiflusjár, litrófsgreiningartæki og önnur áhöld og tækjabúnaður til að mæla eða prófa rafmagnsstærðir, þó ekki mælar í nr. 9028; áhöld og tækjabúnaður til að mæla eða greina alfa-, beta-, gamma-, röntgen-, geim- eða aðra jónandi geislun:
Hleður tollskrárnúmerum...
9031
Áhöld, tækjabúnaður og vélar til mælinga eða prófana, ót.a. í þessum kafla; sniðmyndavörpur:
Hleður tollskrárnúmerum...
9032
Áhöld og tækjabúnaður til sjálfvirkrar stillingar og stjórnunar:
Hleður tollskrárnúmerum...
9033
Hlutar og fylgihlutir (ót.a. í þessum kafla) fyrir vélar, tæki, áhöld eða tækjabúnað í 90. kafla
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir