Kafli 81 Aðrir ódýrir málmar; keramíkmelmi; vörur úr þeim
Athugasemdir flokks
FLOKKUR XV
Ódýrir málmar og vörur úr ódýrum málmi
Athugasemdir:
1. Til þessa flokks telst ekki:
a. Unnin málning, blek eða aðrar vörur að meginstofni úr málmflögum eða dufti (nr. 3207-3210, 3212, 3213 eða 3215).
b. Ferró-ceríum eða annað kveikiblendi (nr. 3606).
c. Höfuðfatnaður eða hlutar til hans í til nr. 6506 eða 6507.
d. Regnhlífagrindur eða aðrar vörur í nr. 6603.
e. Vörur í 71. kafla (t.d. góðmálmsblendi, ódýr málmur klæddur góðmálmi, glysvarningur).
f. Vörur í flokki XVI (vélbúnaður, vélræn tæki og rafmagnsvörur).
g. Samsettar brautir fyrir járnbrautir eða sporbrautir (nr. 8608) eða aðrar vörur í flokki XVII (ökutæki, skip og bátar, flugvélar).
h. Tæki eða tækjabúnaður í flokki XVIII, þar með taldar klukku- og úrfjaðrir.
ij. Blýhögl í skotfæri (nr. 9306) eða aðrar vörur í flokki XIX (vopn og skotfæri).
k. Vörur í 94. kafla (t.d. húsgögn, rúmbotnar, [ljós og ljósabúnaður][1], ljósaskilti, forsmíðaðar byggingar).
l. Vörur í 95. kafla (t.d. leikföng, leikspil, íþróttabúnaður).
[m. Handsíur, hnappar, pennar, blýantshöld, pennaoddar, einfætur, tvífætur og þrífætur og áþekkar vörur eða aðrar vörur í 96. kafla (ýmsar framleiðsluvörur).][2]
n. Vörur í 97. kafla (t.d. listaverk).
2. Hvarvetna í tollskránni er með hlutum til almennra nota átt við:
[a. Vörur í nr. 7307, 7312, 7315, 7317 eða 7318 og áþekkar vörur úr öðrum ódýrum málmi, þó ekki vörur sem sérstaklega eru hannaðar eingöngu til nota sem ígræði (implants) til lyflækninga, skurðlækninga, tannlækninga eða dýralækninga (nr. 9021).][3]
b. Fjaðrir og fjaðrablöð, úr ódýrum málmi, þó ekki klukku- eða úrfjaðrir (nr. 9114).
c. Vörur í nr. 8301, 8302, 8308, 8310 og ramma og spegla, úr ódýrum málmi, í nr. 8306.
Með hlutum til vara í 73.-76. og 78.-82. kafla (þó ekki í nr. 7315) er ekki átt við hluta til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir hér á undan.
Vörur í 82. eða 83. kafla teljast ekki til 72.-76. og 78.-81. kafla nema annað leiði af undanfarandi málsgrein og 1. athugasemd við 83. kafla.
3. Hvarvetna í tollskránni er með ódýrum málmum átt við: járn og stál, kopar, nikkil, ál, blý, sink, tin, tungsten (wolfram), mólybden, tantal, magnesíum, kóbalt, bismút, kadmíum, títan, sirkon, antímon, mangan, beryllíum, króm, germaníum, vanadíum, gallíum, hafníum, indíum, níob (kolumbíum), reníum og tallíum.
4. Hvarvetna í tollskránni er með keramíkmelmi átt við vörur sem innihalda örsmáar ósamleitar blöndur efnisþátta úr málmi og keramíkmelmi. Sem keramíkmelmi teljast glæddir málmkarbíðar (málmkarbíðar glæddir með málmi).
5. Flokkun blendis (þó ekki járnblendis og koparforblendis eins og þau eru skýrgreind í 72. og 74. kafla):
a. Blendi úr ódýrum málmum flokkast eftir þeim málmi sem mest er af í blendinu miðað við þyngd hvers málms.
b. Blendi samsett úr ódýrum málmum, sem teljast til þessa flokks og úr efnum sem teljast ekki til þessa flokks, flokkast eins og blendi úr ódýrum málmum sem teljast til þessa flokks, ef heildarþyngd hinna ódýru málma er jafnmikil eða meiri en heildarþyngd annarra efna.
c. Sem blendi í þessum flokki teljast einnig glæddar blöndur úr málmdufti, ósamleitar blöndur fengnar með bræðslu (þó ekki keramíkmelmi) og málmsambönd.
6. Leiði ekki annað af orðalagi er með ódýrum málmi í tollskránni einnig átt við blendi sem samkvæmt 5. athugasemd hér að ofan skulu flokkast sem blendi viðkomandi málms.
7. Flokkun vara úr samsettum efnum:
Leiði ekki annað af orðalagi vöruliða skulu vörur úr ódýrum málmi (þar með taldar vörur úr efnisblöndum sem teljast vörur úr ódýrum málmi [samkvæmt almennum túlkunarreglum][4]) sem eru úr tveimur eða fleiri ódýrum málmum flokkast eftir þeim málmi sem mest er af í vörunni miðað við þyngd.
Við framkvæmd þessarar reglu skal litið á:
a. járn og stál eða mismunandi tegundir járns eða stáls sem einn og sama málm,
b. blendi sem eingöngu er gert úr þeim málmi sem það telst vera blendi af samkvæmt 5. athugasemd, og
c. keramíkmelmi í nr. 8113 sem einstakan ódýran málm.
8. Í þessum flokki hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem þeim er hér með gefin:
[a. Úrgangur og rusl:
1. Hvers konar málmúrgangur og málmrusl.
2 Vörur úr málmi greinilega ónothæfar sem slíkar vegna niðurrifs, niðurskurðar, slits eða af öðrum ástæðum.][5]
b. Duft:
Vörur sem 90% eða meira miðað við þyngd síast í gegnum sigti með 1 mm möskva.
[9. Í 74. til 76. og 78. til 81. kafla hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem þeim er hér með gefin:
a. Teinar og stengur:
Valsaðar, þrykktar, dregnar eða þrýstimótaðar vörur, ekki í vafningum, sem eru óholar í þverskurð alla lengd sína, að lögun sem hringur, ávalar, rétthyrndar (þ.m.t. ferningur), jafnhliða þríhyrningur eða reglulegur ávalur marghyrningur (þ.m.t. ,,flattir hringir¿ og ,,umbreyttir rétthyrningar¿ þar sem tvær gagnstæðar hliðar eru ávalar, hinar tvær beinar, jafnar að lengd og samsíða). Vörur með rétthyrndum (þ.m.t. ferningslaga), þríhyrndum eða marghyrndum þverskurði mega vera með rúnnuð horn á lengdina. Þykkt slíkra vara, sem eru með rétthyrndum (þ.m.t. ,,umbreyttum rétthyrndum¿) þverskurði er yfir einn tíundi breiddarinnar. Hugtakið tekur einnig til steyptra eða glæddra vara, sömu lögunar og stærðar, sem að lokinni framleiðslu hafa verið frekar unnar (meira en svo að aðeins hafi verið fjarlægðar ójöfnur eða glóðarleifar), enda hafi þær ekki við það öðlast einkenni hluta eða vara í öðrum vöruliðum.
Vírteinar og bútar í 74. kafla með mjókkuðum endum eða unnir á annan hátt eingöngu til að auðvelda innstungu þeirra í vélar sem vinna úr þeim, t.d. dreglar (vírstengur) eða leiðslur, teljast þó vera óunninn kopar í nr. 7403. Ákvæði þetta gildir að breyttu breytanda til vara í 81. kafla.
b. Prófílar:
Valsaðar, þrykktar, dregnar, þrýstimótaðar eða formaðar vörur, einnig í vafningum, með sama þverskurði alla lengd sína, sem svara ekki til neinnar skýrgreiningar á teinum, stöngum, vír, plötum, blöðum, ræmum, þynnum, leiðslum eða pípum. Hugtakið tekur einnig til steyptra eða glæddra vara, sömu lögunar, sem að lokinni framleiðslu hafa verið frekar unnar (meira en svo að aðeins hafi verið fjarlægðar ójöfnur eða glóðarleifar), enda hafi þær ekki við það öðlast einkenni hluta eða vara í öðrum vöruliðum.
c. Vír:
Valsaðar, þrykktar eða dregnar vörur, í vafningum, sem eru óholar alla lengd sína, að lögun sem hringur, ávalar, rétthyrningur (þ.m.t. ferningur), jafnhliða þríhyrningur eða reglulegur, ávalur marghyrningur (þ.m.t. ,,flattir hringir¿ og ,,umbreyttir rétthyrningar¿ þar sem tvær gagnstæðar hliðar eru ávalar, hinar tvær beinar, jafnar að lengd og samsíða). Vörur með rétthyrndum (þ.m.t. ferningslaga), þríhyrndum eða fjölhliða þverskurði mega vera með rúnnuðum hornum alla lengd sína. Þykkt slíkra vara, sem eru með rétthyrndum (þ.m.t. ,,umbreyttum rétthyrndum¿) þverskurði, er yfir einn tíundi breiddarinnar.
d. Plötur, blöð, ræmur og þynnur:
Vörur með flötu yfirborði (aðrar en óunnar vörur), einnig í vafningum, óholar og rétthyrndar (þó ekki ferningslaga) í þverskurð, einnig með rúnnuðum hornum (þar með taldir ,,umbreyttir rétthyrningar¿ þar sem tvær gagnstæðar hliðar eru ávalar, hinar tvær beinar, jafnar að lengd og samsíða) jafnar að þykkt, sem eru:
- rétthyrndar að lögun (einnig ferningslaga) að þykkt ekki yfir einn tíundi breiddarinnar,
- annarrar lögunar en rétthyrndrar eða ferningslaga, af hvaða stærð sem er, enda hafi þær ekki öðlast einkenni hluta eða vara í öðrum vöruliðum.
Undir vöruliði fyrir plötur, blöð, ræmur og þynnur flokkast m.a. plötur, blöð, ræmur og þynnur með mynstri (t.d. grópum, gárum, ferhyrningum, dropum, tökkum, skífum) og þess háttar vörur sem hafa verið gataðar, báraðar, fægðar eða húðaðar, enda hafi þær ekki við það öðlast einkenni hluta eða vara í öðrum vöruliðum.
e. Leiðslur og pípur:
Holar vörur, einnig í vafningum, eins í þverskurð með aðeins einu lokuðu rými alla lengd sína, að lögun sem hringur, ávalar, rétthyrningur (þ.m.t. ferningur), jafnhliða þríhyrningur eða reglulegur ávalur marghyrningur og með sömu veggþykkt. Vörur með rétt rétthyrndum (þ.m.t. ferningslaga), jafnhliða þríhyrndum eða reglulegum ávölum marghliða þverskurði, sem geta verið með rúnnuð horn á lengdina, teljast einnig leiðslur og pípur, enda sé innri og ytri þverskurðurinn sammiðja og að sama formi og útliti. Leiðslur og pípur með nefndan þverskurð geta verið fægðar, húðaðar, beygðar, snittaðar, boraðar, þrengdar, víkkaðar, keilusniðnar eða búnar flönsum, krögum eða hringjum.][6]
[1] Sbr. 51. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[2] Sbr. 51. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[3] Sbr. 51. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[4] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. XXX/2021 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2022).
[5] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. XXX/2021 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2022).
[6] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. XXX/2021 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2022).
Athugasemdir kafla
8101
Wolfram (tungsten) og vörur úr því, þar með talið úrgangur og rusl:
Hleður tollskrárnúmerum...
8102
Molybden og vörur úr því, þar með talið úrgangur og rusl:
Hleður tollskrárnúmerum...
8103
Tantal og vörur úr því, þar með talið úrgangur og rusl:
Hleður tollskrárnúmerum...
8104
Magnesíum og vörur úr því, þar með talið úrgangur og rusl:
Hleður tollskrárnúmerum...
8105
Kóbaltsteinn og önnur millistigsframleiðsla frá kóbaltvinnslu; kóbalt og vörur úr því, þar með talið úrgangur og rusl:
Hleður tollskrárnúmerum...
8106
Bismút og vörur úr því, þar með talið úrgangur og rusl:
Hleður tollskrárnúmerum...
8108
Títan og vörur úr því, þar með talið úrgangur og rusl:
Hleður tollskrárnúmerum...
8109
Sirkon og vörur úr því, þar með talið úrgangur og rusl:
Hleður tollskrárnúmerum...
8110
Antímon og vörur úr því, þar með talið úrgangur og rusl:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8111
Mangan og vörur úr því, þar með talið úrgangur og rusl
Hleður tollskrárnúmerum...
8112
Beryllíum, króm, hafníum, reníum, tallíum, kadmíum, germaníum, vanadíum, gallíum, indíum og níóbíum (kolumbíum), og vörur úr þessum málmum, þar með talið úrgangur og rusl:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
8113
Keramíkmelmi og vörur úr því, þar með talið úrgangur og rusl
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir