Kafli 73 Vörur úr járni eða stáli
Athugasemdir flokks
FLOKKUR XV
Ódýrir málmar og vörur úr ódýrum málmi
Athugasemdir:
1. Til þessa flokks telst ekki:
a. Unnin málning, blek eða aðrar vörur að meginstofni úr málmflögum eða dufti (nr. 3207-3210, 3212, 3213 eða 3215).
b. Ferró-ceríum eða annað kveikiblendi (nr. 3606).
c. Höfuðfatnaður eða hlutar til hans í til nr. 6506 eða 6507.
d. Regnhlífagrindur eða aðrar vörur í nr. 6603.
e. Vörur í 71. kafla (t.d. góðmálmsblendi, ódýr málmur klæddur góðmálmi, glysvarningur).
f. Vörur í flokki XVI (vélbúnaður, vélræn tæki og rafmagnsvörur).
g. Samsettar brautir fyrir járnbrautir eða sporbrautir (nr. 8608) eða aðrar vörur í flokki XVII (ökutæki, skip og bátar, flugvélar).
h. Tæki eða tækjabúnaður í flokki XVIII, þar með taldar klukku- og úrfjaðrir.
ij. Blýhögl í skotfæri (nr. 9306) eða aðrar vörur í flokki XIX (vopn og skotfæri).
k. Vörur í 94. kafla (t.d. húsgögn, rúmbotnar, [ljós og ljósabúnaður][1], ljósaskilti, forsmíðaðar byggingar).
l. Vörur í 95. kafla (t.d. leikföng, leikspil, íþróttabúnaður).
[m. Handsíur, hnappar, pennar, blýantshöld, pennaoddar, einfætur, tvífætur og þrífætur og áþekkar vörur eða aðrar vörur í 96. kafla (ýmsar framleiðsluvörur).][2]
n. Vörur í 97. kafla (t.d. listaverk).
2. Hvarvetna í tollskránni er með hlutum til almennra nota átt við:
[a. Vörur í nr. 7307, 7312, 7315, 7317 eða 7318 og áþekkar vörur úr öðrum ódýrum málmi, þó ekki vörur sem sérstaklega eru hannaðar eingöngu til nota sem ígræði (implants) til lyflækninga, skurðlækninga, tannlækninga eða dýralækninga (nr. 9021).][3]
b. Fjaðrir og fjaðrablöð, úr ódýrum málmi, þó ekki klukku- eða úrfjaðrir (nr. 9114).
c. Vörur í nr. 8301, 8302, 8308, 8310 og ramma og spegla, úr ódýrum málmi, í nr. 8306.
Með hlutum til vara í 73.-76. og 78.-82. kafla (þó ekki í nr. 7315) er ekki átt við hluta til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir hér á undan.
Vörur í 82. eða 83. kafla teljast ekki til 72.-76. og 78.-81. kafla nema annað leiði af undanfarandi málsgrein og 1. athugasemd við 83. kafla.
3. Hvarvetna í tollskránni er með ódýrum málmum átt við: járn og stál, kopar, nikkil, ál, blý, sink, tin, tungsten (wolfram), mólybden, tantal, magnesíum, kóbalt, bismút, kadmíum, títan, sirkon, antímon, mangan, beryllíum, króm, germaníum, vanadíum, gallíum, hafníum, indíum, níob (kolumbíum), reníum og tallíum.
4. Hvarvetna í tollskránni er með keramíkmelmi átt við vörur sem innihalda örsmáar ósamleitar blöndur efnisþátta úr málmi og keramíkmelmi. Sem keramíkmelmi teljast glæddir málmkarbíðar (málmkarbíðar glæddir með málmi).
5. Flokkun blendis (þó ekki járnblendis og koparforblendis eins og þau eru skýrgreind í 72. og 74. kafla):
a. Blendi úr ódýrum málmum flokkast eftir þeim málmi sem mest er af í blendinu miðað við þyngd hvers málms.
b. Blendi samsett úr ódýrum málmum, sem teljast til þessa flokks og úr efnum sem teljast ekki til þessa flokks, flokkast eins og blendi úr ódýrum málmum sem teljast til þessa flokks, ef heildarþyngd hinna ódýru málma er jafnmikil eða meiri en heildarþyngd annarra efna.
c. Sem blendi í þessum flokki teljast einnig glæddar blöndur úr málmdufti, ósamleitar blöndur fengnar með bræðslu (þó ekki keramíkmelmi) og málmsambönd.
6. Leiði ekki annað af orðalagi er með ódýrum málmi í tollskránni einnig átt við blendi sem samkvæmt 5. athugasemd hér að ofan skulu flokkast sem blendi viðkomandi málms.
7. Flokkun vara úr samsettum efnum:
Leiði ekki annað af orðalagi vöruliða skulu vörur úr ódýrum málmi (þar með taldar vörur úr efnisblöndum sem teljast vörur úr ódýrum málmi [samkvæmt almennum túlkunarreglum][4]) sem eru úr tveimur eða fleiri ódýrum málmum flokkast eftir þeim málmi sem mest er af í vörunni miðað við þyngd.
Við framkvæmd þessarar reglu skal litið á:
a. járn og stál eða mismunandi tegundir járns eða stáls sem einn og sama málm,
b. blendi sem eingöngu er gert úr þeim málmi sem það telst vera blendi af samkvæmt 5. athugasemd, og
c. keramíkmelmi í nr. 8113 sem einstakan ódýran málm.
8. Í þessum flokki hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem þeim er hér með gefin:
[a. Úrgangur og rusl:
1. Hvers konar málmúrgangur og málmrusl.
2 Vörur úr málmi greinilega ónothæfar sem slíkar vegna niðurrifs, niðurskurðar, slits eða af öðrum ástæðum.][5]
b. Duft:
Vörur sem 90% eða meira miðað við þyngd síast í gegnum sigti með 1 mm möskva.
[9. Í 74. til 76. og 78. til 81. kafla hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem þeim er hér með gefin:
a. Teinar og stengur:
Valsaðar, þrykktar, dregnar eða þrýstimótaðar vörur, ekki í vafningum, sem eru óholar í þverskurð alla lengd sína, að lögun sem hringur, ávalar, rétthyrndar (þ.m.t. ferningur), jafnhliða þríhyrningur eða reglulegur ávalur marghyrningur (þ.m.t. ,,flattir hringir¿ og ,,umbreyttir rétthyrningar¿ þar sem tvær gagnstæðar hliðar eru ávalar, hinar tvær beinar, jafnar að lengd og samsíða). Vörur með rétthyrndum (þ.m.t. ferningslaga), þríhyrndum eða marghyrndum þverskurði mega vera með rúnnuð horn á lengdina. Þykkt slíkra vara, sem eru með rétthyrndum (þ.m.t. ,,umbreyttum rétthyrndum¿) þverskurði er yfir einn tíundi breiddarinnar. Hugtakið tekur einnig til steyptra eða glæddra vara, sömu lögunar og stærðar, sem að lokinni framleiðslu hafa verið frekar unnar (meira en svo að aðeins hafi verið fjarlægðar ójöfnur eða glóðarleifar), enda hafi þær ekki við það öðlast einkenni hluta eða vara í öðrum vöruliðum.
Vírteinar og bútar í 74. kafla með mjókkuðum endum eða unnir á annan hátt eingöngu til að auðvelda innstungu þeirra í vélar sem vinna úr þeim, t.d. dreglar (vírstengur) eða leiðslur, teljast þó vera óunninn kopar í nr. 7403. Ákvæði þetta gildir að breyttu breytanda til vara í 81. kafla.
b. Prófílar:
Valsaðar, þrykktar, dregnar, þrýstimótaðar eða formaðar vörur, einnig í vafningum, með sama þverskurði alla lengd sína, sem svara ekki til neinnar skýrgreiningar á teinum, stöngum, vír, plötum, blöðum, ræmum, þynnum, leiðslum eða pípum. Hugtakið tekur einnig til steyptra eða glæddra vara, sömu lögunar, sem að lokinni framleiðslu hafa verið frekar unnar (meira en svo að aðeins hafi verið fjarlægðar ójöfnur eða glóðarleifar), enda hafi þær ekki við það öðlast einkenni hluta eða vara í öðrum vöruliðum.
c. Vír:
Valsaðar, þrykktar eða dregnar vörur, í vafningum, sem eru óholar alla lengd sína, að lögun sem hringur, ávalar, rétthyrningur (þ.m.t. ferningur), jafnhliða þríhyrningur eða reglulegur, ávalur marghyrningur (þ.m.t. ,,flattir hringir¿ og ,,umbreyttir rétthyrningar¿ þar sem tvær gagnstæðar hliðar eru ávalar, hinar tvær beinar, jafnar að lengd og samsíða). Vörur með rétthyrndum (þ.m.t. ferningslaga), þríhyrndum eða fjölhliða þverskurði mega vera með rúnnuðum hornum alla lengd sína. Þykkt slíkra vara, sem eru með rétthyrndum (þ.m.t. ,,umbreyttum rétthyrndum¿) þverskurði, er yfir einn tíundi breiddarinnar.
d. Plötur, blöð, ræmur og þynnur:
Vörur með flötu yfirborði (aðrar en óunnar vörur), einnig í vafningum, óholar og rétthyrndar (þó ekki ferningslaga) í þverskurð, einnig með rúnnuðum hornum (þar með taldir ,,umbreyttir rétthyrningar¿ þar sem tvær gagnstæðar hliðar eru ávalar, hinar tvær beinar, jafnar að lengd og samsíða) jafnar að þykkt, sem eru:
- rétthyrndar að lögun (einnig ferningslaga) að þykkt ekki yfir einn tíundi breiddarinnar,
- annarrar lögunar en rétthyrndrar eða ferningslaga, af hvaða stærð sem er, enda hafi þær ekki öðlast einkenni hluta eða vara í öðrum vöruliðum.
Undir vöruliði fyrir plötur, blöð, ræmur og þynnur flokkast m.a. plötur, blöð, ræmur og þynnur með mynstri (t.d. grópum, gárum, ferhyrningum, dropum, tökkum, skífum) og þess háttar vörur sem hafa verið gataðar, báraðar, fægðar eða húðaðar, enda hafi þær ekki við það öðlast einkenni hluta eða vara í öðrum vöruliðum.
e. Leiðslur og pípur:
Holar vörur, einnig í vafningum, eins í þverskurð með aðeins einu lokuðu rými alla lengd sína, að lögun sem hringur, ávalar, rétthyrningur (þ.m.t. ferningur), jafnhliða þríhyrningur eða reglulegur ávalur marghyrningur og með sömu veggþykkt. Vörur með rétt rétthyrndum (þ.m.t. ferningslaga), jafnhliða þríhyrndum eða reglulegum ávölum marghliða þverskurði, sem geta verið með rúnnuð horn á lengdina, teljast einnig leiðslur og pípur, enda sé innri og ytri þverskurðurinn sammiðja og að sama formi og útliti. Leiðslur og pípur með nefndan þverskurð geta verið fægðar, húðaðar, beygðar, snittaðar, boraðar, þrengdar, víkkaðar, keilusniðnar eða búnar flönsum, krögum eða hringjum.][6]
[1] Sbr. 51. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[2] Sbr. 51. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[3] Sbr. 51. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[4] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. XXX/2021 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2022).
[5] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. XXX/2021 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2022).
[6] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. XXX/2021 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2022).
Athugasemdir kafla
Vörur úr járni eða stáli
2. Sem vír í þessum kafla teljast heit- eða kaldformaðar vörur með hvers konar þverskurði og hvergi eru yfir 16 mm í þvermál.
7301
Þilstál úr járni eða stáli, einnig borað, gatað eða úr samsettum einingum; soðnir prófílar, úr járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7302
Eftirtalið brautarbyggingarefni fyrir járnbrautir eða sporbrautir, úr járni eða stáli: Teinar, öryggisteinar og tannhjólateinar, skiptiblöð, tengispor, trjónusteng-ur og önnur skiptistykki, brautarbitar (krosstengi), tengispangir, teinafestingar, festingafleygar, undir-stöðuplötur (grunnplötur), teinagrip, teinastengur, festiplötur og annað efni sérstaklega ætlað til tengingar eða lagningar járnbrauta:
Hleður tollskrárnúmerum...
7303
Leiðslur, pípur og holir prófílar, úr steypujárni
Hleður tollskrárnúmerum...
7304
Leiðslur, pípur og holir prófílar, saumlaust, úr járni (þó ekki steypujárni) eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7305
Aðrar leiðslur og pípur (t.d. soðnar, hnoðaðar eða settar saman með áþekkum hætti), með hringlaga þverskurði, yfir 406,4 mm að ytra þvermáli, úr járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7306
Aðrar leiðslur, pípur og holsnið (hollow profiles) (t.d. brúnskeytt eða soðið, hnoðað eða sett saman með áþekkum hætti), úr járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7307
Leiðslu- eða píputengi (t.d. tengsl, hné, múffur), úr járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7308
Mannvirki (þó ekki forsmíðaðar byggingar í nr. 9406) og hlutar til mannvirkja (t.d. brýr og brúar-hlutar, lokur (lock-gates), turnar, súlnagrindur, þök, þakgrindur, hurðir og gluggar og karmar til þeirra og þröskuldar fyrir hurðir, hlerar, handrið, stöplar og súlur), úr járni eða stáli; plötur, stengur, prófílar, leiðslur og þess háttar, tilsniðið til notkunar í mannvirki, úr járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7309
Geymar, tankar, ker og áþekk ílát, undir alls konar efni (þó ekki samþjappað eða fljótandi gas), úr járni eða stáli, með meira en 300 l rúmtaki, einnig fóðrað eða hitaeinangrað en ekki með vélrænum búnaði eða hitunarbúnaði
Hleður tollskrárnúmerum...
7310
Tankar, ámur, föt, dósir og áþekk ílát undir alls konar efni (þó ekki samanþjappað eða fljótandi gas), úr járni eða stáli, með ekki yfir 300 l rúmtaki, einnig fóðrað eða hitaeinangrað en ekki með vélrænum búnaði eða hitabúnaði:
Hleður tollskrárnúmerum...
7311
Ílát undir samanþjappað eða fljótandi gas, úr járni eða stáli
Hleður tollskrárnúmerum...
7312
Margþættur vír, reipi, kaplar, vírfléttur, stroffur og þess háttar, úr járni eða stáli, ekki rafmagnseinangrað:
Hleður tollskrárnúmerum...
7313
Gaddavír úr járni eða stáli; snúin bönd eða einfaldur flatur vír, með eða án gadda, laussnúinn tvöfaldur vír til girðinga, úr járni eða stáli
Hleður tollskrárnúmerum...
7314
Dúkur (þar með talin endalaus bönd), grindur, net-efni og girðingaefni, úr járn- eða stálvír; möskva-teygður málmur úr járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7315
Keðjur og hlutar til þeirra, úr járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7316
Akkeri, drekar og hlutar til þeirra, úr járni eða stáli
Hleður tollskrárnúmerum...
7317
Naglar, stifti, teiknibólur, rifflaðir naglar, heftur (þó ekki ekki vörur í nr. 8305) og áþekkar vörur, úr járni eða stáli, einnig með haus úr öðrum efnum, þó ekki með koparhaus:
Hleður tollskrárnúmerum...
7318
Skrúfur, boltar, rær, skrúfboltar (franskar skrúfur), skrúfkrókar, hnoð, fleinar, splitti, skinnur (þar með taldar spenniskífur) og áþekkar vörur, úr járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7319
Saumnálar, bandprjónar, dragnálar, heklunálar, hannyrðateinar og áþekkar vörur, til handavinnu, úr járni eða stáli; öryggisnælur og aðrir prjónar úr járni eða stáli, ót.a.:
Hleður tollskrárnúmerum...
7320
Fjaðrir og fjaðrablöð, úr járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7321
Ofnar, eldavélar, eldstór, kabyssur (einnig með geymi aukalega til miðstöðvarhitunar), grill, glóðar-ker, gashringir, diskahitarar og áþekkur búnaður til heimilisnota, ekki fyrir rafmagn, og hlutar til þeirra, úr járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7322
Ofnar til miðstöðvarhitunar, ekki rafmagnshitaðir, og hlutar til þeirra, úr járni eða stáli; lofthitarar og lofthitadreifarar (einnig dreifarar sem geta dreift fersku eða blönduðu lofti), ekki rafmagnshitaðir, með innbyggðri hreyfilknúinni viftu eða blásara, og hlutar til þeirra, úr járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7323
Borðbúnaður, eldhúsbúnaður eða önnur búsáhöld og hlutar til þeirra, úr járni eða stáli; járn- eða stálull; pottahreinsarar og hreinsi- eða fægileppar, -hanskar og þess háttar, úr járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7324
Hreinlætisvörur og hlutar til þeirra:
Hleður tollskrárnúmerum...
7325
Aðrar steyptar vörur úr járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7326
Aðrar vörur úr járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir