Kafli 72 Járn og stál
Athugasemdir flokks
FLOKKUR XV
Ódýrir málmar og vörur úr ódýrum málmi
Athugasemdir:
1. Til þessa flokks telst ekki:
a. Unnin málning, blek eða aðrar vörur að meginstofni úr málmflögum eða dufti (nr. 3207-3210, 3212, 3213 eða 3215).
b. Ferró-ceríum eða annað kveikiblendi (nr. 3606).
c. Höfuðfatnaður eða hlutar til hans í til nr. 6506 eða 6507.
d. Regnhlífagrindur eða aðrar vörur í nr. 6603.
e. Vörur í 71. kafla (t.d. góðmálmsblendi, ódýr málmur klæddur góðmálmi, glysvarningur).
f. Vörur í flokki XVI (vélbúnaður, vélræn tæki og rafmagnsvörur).
g. Samsettar brautir fyrir járnbrautir eða sporbrautir (nr. 8608) eða aðrar vörur í flokki XVII (ökutæki, skip og bátar, flugvélar).
h. Tæki eða tækjabúnaður í flokki XVIII, þar með taldar klukku- og úrfjaðrir.
ij. Blýhögl í skotfæri (nr. 9306) eða aðrar vörur í flokki XIX (vopn og skotfæri).
k. Vörur í 94. kafla (t.d. húsgögn, rúmbotnar, [ljós og ljósabúnaður][1], ljósaskilti, forsmíðaðar byggingar).
l. Vörur í 95. kafla (t.d. leikföng, leikspil, íþróttabúnaður).
[m. Handsíur, hnappar, pennar, blýantshöld, pennaoddar, einfætur, tvífætur og þrífætur og áþekkar vörur eða aðrar vörur í 96. kafla (ýmsar framleiðsluvörur).][2]
n. Vörur í 97. kafla (t.d. listaverk).
2. Hvarvetna í tollskránni er með hlutum til almennra nota átt við:
[a. Vörur í nr. 7307, 7312, 7315, 7317 eða 7318 og áþekkar vörur úr öðrum ódýrum málmi, þó ekki vörur sem sérstaklega eru hannaðar eingöngu til nota sem ígræði (implants) til lyflækninga, skurðlækninga, tannlækninga eða dýralækninga (nr. 9021).][3]
b. Fjaðrir og fjaðrablöð, úr ódýrum málmi, þó ekki klukku- eða úrfjaðrir (nr. 9114).
c. Vörur í nr. 8301, 8302, 8308, 8310 og ramma og spegla, úr ódýrum málmi, í nr. 8306.
Með hlutum til vara í 73.-76. og 78.-82. kafla (þó ekki í nr. 7315) er ekki átt við hluta til almennra nota, eins og þeir eru skýrgreindir hér á undan.
Vörur í 82. eða 83. kafla teljast ekki til 72.-76. og 78.-81. kafla nema annað leiði af undanfarandi málsgrein og 1. athugasemd við 83. kafla.
3. Hvarvetna í tollskránni er með ódýrum málmum átt við: járn og stál, kopar, nikkil, ál, blý, sink, tin, tungsten (wolfram), mólybden, tantal, magnesíum, kóbalt, bismút, kadmíum, títan, sirkon, antímon, mangan, beryllíum, króm, germaníum, vanadíum, gallíum, hafníum, indíum, níob (kolumbíum), reníum og tallíum.
4. Hvarvetna í tollskránni er með keramíkmelmi átt við vörur sem innihalda örsmáar ósamleitar blöndur efnisþátta úr málmi og keramíkmelmi. Sem keramíkmelmi teljast glæddir málmkarbíðar (málmkarbíðar glæddir með málmi).
5. Flokkun blendis (þó ekki járnblendis og koparforblendis eins og þau eru skýrgreind í 72. og 74. kafla):
a. Blendi úr ódýrum málmum flokkast eftir þeim málmi sem mest er af í blendinu miðað við þyngd hvers málms.
b. Blendi samsett úr ódýrum málmum, sem teljast til þessa flokks og úr efnum sem teljast ekki til þessa flokks, flokkast eins og blendi úr ódýrum málmum sem teljast til þessa flokks, ef heildarþyngd hinna ódýru málma er jafnmikil eða meiri en heildarþyngd annarra efna.
c. Sem blendi í þessum flokki teljast einnig glæddar blöndur úr málmdufti, ósamleitar blöndur fengnar með bræðslu (þó ekki keramíkmelmi) og málmsambönd.
6. Leiði ekki annað af orðalagi er með ódýrum málmi í tollskránni einnig átt við blendi sem samkvæmt 5. athugasemd hér að ofan skulu flokkast sem blendi viðkomandi málms.
7. Flokkun vara úr samsettum efnum:
Leiði ekki annað af orðalagi vöruliða skulu vörur úr ódýrum málmi (þar með taldar vörur úr efnisblöndum sem teljast vörur úr ódýrum málmi [samkvæmt almennum túlkunarreglum][4]) sem eru úr tveimur eða fleiri ódýrum málmum flokkast eftir þeim málmi sem mest er af í vörunni miðað við þyngd.
Við framkvæmd þessarar reglu skal litið á:
a. járn og stál eða mismunandi tegundir járns eða stáls sem einn og sama málm,
b. blendi sem eingöngu er gert úr þeim málmi sem það telst vera blendi af samkvæmt 5. athugasemd, og
c. keramíkmelmi í nr. 8113 sem einstakan ódýran málm.
8. Í þessum flokki hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem þeim er hér með gefin:
[a. Úrgangur og rusl:
1. Hvers konar málmúrgangur og málmrusl.
2 Vörur úr málmi greinilega ónothæfar sem slíkar vegna niðurrifs, niðurskurðar, slits eða af öðrum ástæðum.][5]
b. Duft:
Vörur sem 90% eða meira miðað við þyngd síast í gegnum sigti með 1 mm möskva.
[9. Í 74. til 76. og 78. til 81. kafla hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem þeim er hér með gefin:
a. Teinar og stengur:
Valsaðar, þrykktar, dregnar eða þrýstimótaðar vörur, ekki í vafningum, sem eru óholar í þverskurð alla lengd sína, að lögun sem hringur, ávalar, rétthyrndar (þ.m.t. ferningur), jafnhliða þríhyrningur eða reglulegur ávalur marghyrningur (þ.m.t. ,,flattir hringir¿ og ,,umbreyttir rétthyrningar¿ þar sem tvær gagnstæðar hliðar eru ávalar, hinar tvær beinar, jafnar að lengd og samsíða). Vörur með rétthyrndum (þ.m.t. ferningslaga), þríhyrndum eða marghyrndum þverskurði mega vera með rúnnuð horn á lengdina. Þykkt slíkra vara, sem eru með rétthyrndum (þ.m.t. ,,umbreyttum rétthyrndum¿) þverskurði er yfir einn tíundi breiddarinnar. Hugtakið tekur einnig til steyptra eða glæddra vara, sömu lögunar og stærðar, sem að lokinni framleiðslu hafa verið frekar unnar (meira en svo að aðeins hafi verið fjarlægðar ójöfnur eða glóðarleifar), enda hafi þær ekki við það öðlast einkenni hluta eða vara í öðrum vöruliðum.
Vírteinar og bútar í 74. kafla með mjókkuðum endum eða unnir á annan hátt eingöngu til að auðvelda innstungu þeirra í vélar sem vinna úr þeim, t.d. dreglar (vírstengur) eða leiðslur, teljast þó vera óunninn kopar í nr. 7403. Ákvæði þetta gildir að breyttu breytanda til vara í 81. kafla.
b. Prófílar:
Valsaðar, þrykktar, dregnar, þrýstimótaðar eða formaðar vörur, einnig í vafningum, með sama þverskurði alla lengd sína, sem svara ekki til neinnar skýrgreiningar á teinum, stöngum, vír, plötum, blöðum, ræmum, þynnum, leiðslum eða pípum. Hugtakið tekur einnig til steyptra eða glæddra vara, sömu lögunar, sem að lokinni framleiðslu hafa verið frekar unnar (meira en svo að aðeins hafi verið fjarlægðar ójöfnur eða glóðarleifar), enda hafi þær ekki við það öðlast einkenni hluta eða vara í öðrum vöruliðum.
c. Vír:
Valsaðar, þrykktar eða dregnar vörur, í vafningum, sem eru óholar alla lengd sína, að lögun sem hringur, ávalar, rétthyrningur (þ.m.t. ferningur), jafnhliða þríhyrningur eða reglulegur, ávalur marghyrningur (þ.m.t. ,,flattir hringir¿ og ,,umbreyttir rétthyrningar¿ þar sem tvær gagnstæðar hliðar eru ávalar, hinar tvær beinar, jafnar að lengd og samsíða). Vörur með rétthyrndum (þ.m.t. ferningslaga), þríhyrndum eða fjölhliða þverskurði mega vera með rúnnuðum hornum alla lengd sína. Þykkt slíkra vara, sem eru með rétthyrndum (þ.m.t. ,,umbreyttum rétthyrndum¿) þverskurði, er yfir einn tíundi breiddarinnar.
d. Plötur, blöð, ræmur og þynnur:
Vörur með flötu yfirborði (aðrar en óunnar vörur), einnig í vafningum, óholar og rétthyrndar (þó ekki ferningslaga) í þverskurð, einnig með rúnnuðum hornum (þar með taldir ,,umbreyttir rétthyrningar¿ þar sem tvær gagnstæðar hliðar eru ávalar, hinar tvær beinar, jafnar að lengd og samsíða) jafnar að þykkt, sem eru:
- rétthyrndar að lögun (einnig ferningslaga) að þykkt ekki yfir einn tíundi breiddarinnar,
- annarrar lögunar en rétthyrndrar eða ferningslaga, af hvaða stærð sem er, enda hafi þær ekki öðlast einkenni hluta eða vara í öðrum vöruliðum.
Undir vöruliði fyrir plötur, blöð, ræmur og þynnur flokkast m.a. plötur, blöð, ræmur og þynnur með mynstri (t.d. grópum, gárum, ferhyrningum, dropum, tökkum, skífum) og þess háttar vörur sem hafa verið gataðar, báraðar, fægðar eða húðaðar, enda hafi þær ekki við það öðlast einkenni hluta eða vara í öðrum vöruliðum.
e. Leiðslur og pípur:
Holar vörur, einnig í vafningum, eins í þverskurð með aðeins einu lokuðu rými alla lengd sína, að lögun sem hringur, ávalar, rétthyrningur (þ.m.t. ferningur), jafnhliða þríhyrningur eða reglulegur ávalur marghyrningur og með sömu veggþykkt. Vörur með rétt rétthyrndum (þ.m.t. ferningslaga), jafnhliða þríhyrndum eða reglulegum ávölum marghliða þverskurði, sem geta verið með rúnnuð horn á lengdina, teljast einnig leiðslur og pípur, enda sé innri og ytri þverskurðurinn sammiðja og að sama formi og útliti. Leiðslur og pípur með nefndan þverskurð geta verið fægðar, húðaðar, beygðar, snittaðar, boraðar, þrengdar, víkkaðar, keilusniðnar eða búnar flönsum, krögum eða hringjum.][6]
[1] Sbr. 51. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[2] Sbr. 51. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[3] Sbr. 51. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[4] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. XXX/2021 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2022).
[5] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. XXX/2021 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2022).
[6] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. XXX/2021 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2022).
Athugasemdir kafla
72. KAFLI
Járn og stál
Athugasemdir:
1. Í þessum kafla ,og að því er varðar athugasemdir d, e og f, hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu hvarvetna í tollskránni sem þeim er hér með gefin: 2. Járnmálmar klæddir öðrum járnmálmum skulu flokkaðir eftir þeim járnmálmi sem mest er af miðað við þyngd.
| a. |
Hrájárn: Járnkolefnisblendi sem ekki er mótanlegt að gagni, í er meira en 2% af kolefni miðað við þyngd og má innihalda eitt eða fleiri eftirtalinna frumefna innan neðangreindra marka: |
||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
| b. |
Spegiljárn: Járnkolefnisblendi sem í er meira en 6% en ekki meira en 30% af mangan miðað við þyngd og svara að öðru leyti til lýsingar í a-lið hér að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||
| c. |
Járnblendi: Blendi í grófsteypustykkjum, blokkum, klumpum eða áþekkum frumgerðum, formað við endurtekna steypu og einnig sem grjón eða duft, einnig kekkjað, sem venjulega er notað til íblöndunar við framleiðslu annars blendis eða sem afoxari, brennisteinseyðir eða til áþekkra nota við vinnslu á járni og er almennt ekki mótanlegt að gagni, í er 4% eða meira af frumefninu járn miðað við þyngd og eitt eða fleiri eftirtalinna frumefna: |
||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
| d. | Stál: Járnefni, þó ekki efni í nr. 7203, sem (að undanskildum vissum tegundum framleiddum í steypuformi) er mótanlegt að gagni og í er minna en 2% af kolefni miðað við þyngd. Hærra hlutfall kolefnis má þó vera í krómstáli. |
||||||||||||||||||||||||||||||||
| e. | Ryðfrítt stál: Stálblendi sem í er 1,2% eða minna af kolefni miðað við þyngd og 10,5% eða meira af krómi, með eða án annarra frumefna. | ||||||||||||||||||||||||||||||||
| f. |
Annað stálblendi: |
||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
| g. | Úrgangssteypuhleifar úr járni eða stáli, til endurbræðslu: Vörur sem eru grófsteyptar í hleifa án mötunarhausa eða hitatoppa, eða sem hrájárn, hafa augljósa yfirborðsgalla og svara ekki til efnafræðilegrar samsetningar hrájárns, spegiljárns eða járnblendis. | ||||||||||||||||||||||||||||||||
| h. | Völur (granules): Vörur sem minna en 90% af miðað við þyngd síast í gegnum sigti með 1 mm möskva og sem 90% eða meira af miðað við þyngd síast í gegnum sigti með 5 mm möskva. | ||||||||||||||||||||||||||||||||
| ij. | Hálfunnar vörur: Síferilssteyptar óholar vörur, einnig forheitvalsaðar. Aðrar óholar vörur sem ekki hafa verið frekar unnar en forheitvalsaðar eða gróflega formaðar, með smíði, þar með talið efni í prófíla. Vörur þessar eru ekki í vafningum. | ||||||||||||||||||||||||||||||||
| k. | Flatvalsaðar vörur: Valsaðar óholar vörur með rétthyrndum þverskurði (þó ekki ferningar) sem svara ekki til skýrgreiningarinnar í ij-lið að framan og eru að lögun sem: | ||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Flatvalsaðar vörur annarrar lögunar en rétthyrndrar eða ferningslaga, af hvaða stærð sem er, skulu flokkaðar sem vörur 600 mm að breidd eða meira, að því tilskildu að þær hafi ekki tekið á sig mynd vöru eða framleiðslu í öðrum vöruliðum. Til flatvalsaðra vara teljast vörur með upphleyptu mynstri sem myndast hefur beint við völsun (t.d. grópum, gárum, ferhyrningum, dropum, tökkum, skífum) og vörur sem hafa verið gataðar, báraðar eða fágaðar, að því tilskildu að þær hafi ekki við það tekið á sig mynd vöru eða framleiðslu í öðrum vöruliðum. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
| l. | Teinar og stengur, heitvalsað, í óreglulega undnum vafningum: Heitvalsaðar óholar vörur í óreglulega undnum vafningum í þverskurð að lögun sem hringir, snið úr hring, ávalar, rétthyrningur (þ.m.t. ferningur), þríhyrningur eða aðrir ávalir marghyrningar (þ.m.t. “flattir hringir” og “umbreyttir rétthyrningar” þar sem tvær gagnstæðar hliðar eru ávalar, hinar tvær beinar, jafnar að lengd og samsíða). Þessar vörur geta verið með dældum, gárum, grópum eða öðrum misfellum sem orðið hafa til við völsunina (steypustyrktarteinar og -stengur). | ||||||||||||||||||||||||||||||||
| m. | Aðrir teinar og stengur: Vörur sem svara ekki til neinnar af skýrgreiningunum í ij-, k- eða l-liðum að framan eða til skýrgreiningarinnar á vír, eru óholar, og í þverskurð á alla lengd sína að lögun sem hringur, snið úr hring, ávalar, rétthyrningur (þ.m.t. ferningur) þríhyrningur eða aðrir ávalir marghyrningar (þ.m.t. “flattir hringir” og “umbreyttir rétthyrningar” þar sem tvær gagnstæðar hliðar eru ávalar, hinar tvær beinar, jafnar að lengd og samsíða). Þessar vörur geta verið með: | ||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
| n. |
Prófílar: Óholar vörur sem ekki eru í þverskurð á alla lengd sína eins og kveðið er á um í skýrgreiningum við ij-, k-, l-, eða m-liðum hér að framan eða skýrgreiningu á vír. |
||||||||||||||||||||||||||||||||
| o. | Vír: Kaldmótaðar vörur í vafningum, óholar og eins að lögun alla lengd sína og svara ekki til skýrgreiningarinnar á flatvölsuðum vörum. | ||||||||||||||||||||||||||||||||
| p. | Holir borteinar og -stengur: Holir teinar og stengur með hvers konar þverskurði, hæfir fyrir bora, að mesta ytra þvermáli meira en 15 mm en ekki meira en 52 mm, og mesta innra þvermáli ekki meira en helmingur af mesta ytra þvermáli. Holir teinar og stengur úr járni eða stáli sem svara ekki til þessarar lýsingar skulu flokkaðar í nr. 7304. |
3. Járn eða stál sem fengið er með rafgreiningu, þrýstisteypu eða glæðingu skal flokkað, með tilliti til forms, samsetningar og útlits, í vöruliði þessa kafla sem taka til áþekkra heitvalsaðra vara.
Athugasemdir við undirliði:
1. Í þessum kafla hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem þeim er hér með gefin:
| b. |
Óblendið frískurðarstál: |
||||||||||
|
| c. | Kísilrafstál: Stálblendi sem inniheldur miðað við þyngd a.m.k. 0,6% en ekki meira en 6% af kísil og ekki meira en 0,08% af kolefni. Það má einnig innihalda miðað við þyngd 1% eða minna af áli, en engin önnur frumefni í því hlutfalli að það gæfi stálinu einkenni annars stálblendis. | ||||||
| d. | Háhraðastál: Stálblendi, einnig með öðrum frumefnum, sem inniheldur að minnsta kosti frumefnin þrjú: mólybden, tungsten og vanadíum að sameiginlegum þunga 7% eða meira, 0,6% eða meira af kolefni og 3-6% af krómi. | ||||||
| e. | Kísilmanganstál: Stálblendi sem inniheldur miðað við þyngd: |
||||||
|
2. Við flokkun járnblendis í undirliði nr. 7202 skal eftirfarandi regla gilda: Járnblendi telst tvíþætt og flokkast í viðkomandi undirlið (ef til er), ef aðeins eitt af frumefnum blendisins fer yfir lágmarks hundraðshlutann sem tilgreindur er í c-lið 1. athugasemdar við kaflann; með líkum hætti telst það eftir atvikum þríþætt eða fjórþætt ef tvö eða þrjú frumefni blendisins fara yfir lágmarkshundraðshlutann. Þegar þessari reglu er beitt verða hin ótilgreindu önnur frumefni sem vísað er til í c-lið 1. athugasemdar við kaflann hvert um sig að fara fram úr 10% miðað við þyngd.
| a. | Hrájárnsblendi: | ||||||||
| Hrájárn sem inniheldur miðað við þyngd, eitt eða fleiri eftirtalinna frumefna í tilgreindu hlutfalli: | |||||||||
|
7201
Hrájárn og spegiljárn í grófsteypustykkjum, blokkum eða öðrum frumgerðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
7202
Járnblendi:
Hleður tollskrárnúmerum...
7203
Járnvörur fengnar með beinni vinnslu járngrýtis og annarra frauðkenndra járnvara, í klumpum, kögglum eða áþekku formi; járn sem er minnst 99,94% að hreinleika miðað við þyngd, í klumpum, kögglum eða áþekku formi:
Hleður tollskrárnúmerum...
7204
Járnúrgangur og járnrusl; úrgangs steypuhleifar úr járni eða stáli til endurbræðslu:
Hleður tollskrárnúmerum...
7205
Völur og duft, úr hrájárni, spegiljárni, járni eða stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7206
Járn og óblendið stál í hleifum eða öðrum frumgerðum (þó ekki járn í nr. 7203):
Hleður tollskrárnúmerum...
7207
Hálfunnar vörur úr járni eða óblendnu stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7208
Flatvalsaðar vörur úr járni eða óblendnu stáli, 600 mm að breidd eða meira, heitvalsaðar, ekki klæddar, plettaðar eða húðaðar:
Hleður tollskrárnúmerum...
7209
Flatvalsaðar vörur úr járni eða óblendnu stáli, 600 mm eða meira að breidd, kaldvalsaðar (kaldunnar), ekki klæddar, plettaðar eða húðaðar:
Hleður tollskrárnúmerum...
7210
Flatvalsaðar vörur úr járni eða óblendnu stáli, 600 mm eða meira að breidd, klæddar, plettaðar eða húðaðar:
Hleður tollskrárnúmerum...
7211
Flatvalsaðar vörur úr járni eða óblendnu stáli, minna en 600 mm að breidd, ekki klæddar, plettaðar eða húðaðar:
Hleður tollskrárnúmerum...
7212
Flatvalsaðar vörur úr járni eða óblendnu stáli, minna en 600 mm að breidd, klæddar, plettaðar eða húðaðar:
Hleður tollskrárnúmerum...
7213
Teinar og stengur, heitvalsað, í óreglulega undnum vafningum, úr járni eða óblönduðu stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7214
Aðrir teinar og stengur, úr járni eða óblendnu stáli, ekki frekar unnið en þrýstimótað, heitvalsað, heitdregið eða heitþrykkt, en einnig undið eftir völsun:
Hleður tollskrárnúmerum...
7215
Aðrir teinar og stengur úr járni eða óblönduðu stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7216
Prófílar úr járni eða óblönduðu stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7217
Vír úr járni eða óblendnu stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7218
Ryðfrítt stál í hleifum eða öðrum frumgerðum; hálfunnar vörur úr ryðfríu stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7219
Flatvalsaðar vörur úr ryðfríu stáli, 600 mm eða meira að breidd:
Hleður tollskrárnúmerum...
7220
Flatvalsaðar vörur úr ryðfríu stáli, minna en 600 mm að breidd:
Hleður tollskrárnúmerum...
7221
Teinar og stengur, heitvalsað, í óreglulega undnum vafningum, úr ryðfríu stáli
Hleður tollskrárnúmerum...
7222
Aðrir teinar og stengur úr ryðfríu stáli; prófílar úr ryðfríu stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7223
Vír úr ryðfríu stáli
Hleður tollskrárnúmerum...
7224
Annað stálblendi í hleifum eða öðrum frumgerðum; hálfunnar vörur úr öðru stálblendi:
Hleður tollskrárnúmerum...
7225
Flatvalsaðar vörur úr öðru stálblendi, 600 mm eða meira að breidd:
Hleður tollskrárnúmerum...
7226
Flatvalsaðar vörur úr öðru stálblendi, minna en 600 mm að breidd:
Hleður tollskrárnúmerum...
7227
Teinar og stengur, heitvalsað, í óreglulega undnum vafningum, úr öðru stálblendi:
Hleður tollskrárnúmerum...
7228
Aðrir teinar og stengur úr öðru stálblendi; prófílar, úr öðru stálblendi; holir borteinar og borstengur, úr stálblendi eða óblendnu stáli:
Hleður tollskrárnúmerum...
7229
Vír úr öðru stálblendi:
Hleður tollskrárnúmerum...