Flokkur 14 Náttúrlegar eða ræktaðar perlur, eðalsteinar eða hálfeðalsteinar, góðmálmar, málmar klæddir góðmálmi, og vörur úr þessum efnum; glysvarningur; mynt

Kafli 71 Náttúrlegar eða ræktaðar perlur, eðalsteinar eða hálfeðalsteinar, góðmálmar, málmar klæddir góðmálmi, og vörur úr þessum efnum; glysvarningur; mynt

Athugasemdir flokks

Engar athugasemdir

Athugasemdir kafla

71. KAFLI
Náttúrlegar eða ræktaðar perlur, eðalsteinar eða hálfeðalsteinar, góðmálmar, málmar klæddir góðmálmi, og vörur úr þessum efnum; glysvarningur; mynt
 

Athugasemd:

1.   Leiði ekki annað af a-lið 1. athugasemdar við flokk VI eða af öðrum ákvæðum hér á eftir skulu allar vörur teljast til þessa kafla sem að öllu eða nokkru leyti eru úr:

  a. náttúrlegum eða ræktuðum perlum eða eðalsteinum eða hálfeðalsteinum (náttúrlegum, syntetískum eða endurgerðum), eða
  b. góðmálmi eða málmi klæddum góðmálmi.

2. [A.]1 Nr. 7113, 7114 og 7115 taka ekki til vara ef óverulegur hluti þeirra er úr góðmálmi eða málmi klæddum góðmálmi, svo sem minni háttar búnaður eða skreytingar (t.d. stafa­merki, hlífar og umgerðir), og á b-liður 1. athugasemdar hér á undan því ekki við um slíkar vörur.
  [B.]2 Nr. 7116 tekur ekki til vara sem innihalda góðmálma eða málma klædda góðmálmi (nema sem óverulegan hluta).

3.   Til þessa kafla telst ekki:

  a. Amalgöm góðmálma, eða hlaupkenndur góðmálmur (nr. 2843).
  b. Dauðhreinsað seymi til skurðlækninga, tannfyllingarefni eða aðrar vörur í 30. kafla.
  c. Vörur í 32. kafla (t.d. gljáefni).
  d. Stoðhvatar (nr. 3815).
  e. Vörur í nr. 4202 eða 4203 sem vísað er til í B-lið [3.]6 athugasemdar við 42. kafla.
  f. Vörur í nr. 4303 eða 4304.
  g. Vörur í flokki XI (spunaefni og spunavörur).
  h. Skófatnaður, höfuðfatnaður eða aðrar vörur í 64. eða 65. kafla.
  ij. Regnhlífar, göngustafir eða aðrar vörur í 66. kafla.
  k Slípivörur í nr. 6804 eða 6805 eða 82. kafla sem í er dust eða duft úr eðal- eða hálfeðalsteinum (náttúrlegum eða syntetískum); vörur í 82. kafla með vinnandi hluta úr eðalsteinum eða hálfeðalsteinum (náttúrlegum, syntetískum eða endurgerðum); vélbún­aður, vélræn tæki eða rafmagnsvörur, eða hlutar til þeirra, úr flokki XVI. Vörur og hlut­ar til þeirra, eingöngu úr eðalsteinum eða hálfeðalsteinum (náttúrlegum, syntetískum eða endurgerðum) skal þó flokka í þennan kafla, nema lausir, unnir safírar og demantar í hljóðnálar (nr. 8522).
  l. Vörur í 90., 91. eða 92. kafla (vísindatæki, úr og klukkur, hljóðfæri).
  m. Vopn eða hlutar til þeirra (93. kafli).
  n. Vörur sem 2. athugasemd við 95. kafla tekur til.
  o. Vörur sem flokkast í 96. kafla samkvæmt 4. athugasemd við þann kafla.
  p. Frumverk af höggmyndum eða myndastyttum (nr. 9703), safnmunir (nr. 9705) eða forn­gripir eldri en eitt hundrað ára (nr. 9706), þó ekki náttúrlegar eða ræktaðar perlur eða eðalsteinar eða hálfeðalsteinar.

4.
[A.]3 Sem góðmálmur telst silfur, gull og platína.
[b.]3 Sem platína telst platína, irídíum, osmíum, palladíum, ródíum og rúteníum.
[c.]3 Sem eðalsteinar eða hálfeðalsteinar teljast ekki nein efni sem tilgreind eru í b-lið 2. athugasemdar við 96. kafla.

5. Sérhvert blendi (þar með talið glæddar blöndur og málmsambönd) í þessum kafla sem inni­heldur góðmálm telst góðmálmsblendi ef einhver einn góðmálmur er 2% eða meira af blendinu miðað við þyngd. Blendi góðmálms skal flokka sem hér segir:
 
a. Blendi sem inniheldur 2% eða meira af platínu miðað við þyngd telst vera platínublendi.
b. Blendi sem inniheldur 2% eða meira af gulli miðað við þyngd, en enga platínu eða minna en 2% af platínu miðað við þyngd, telst vera gullblendi.
c. Annað blendi sem inniheldur 2% eða meira af silfri miðað við þyngd telst vera silfur­blendi.


6.   Leiði ekki annað af orðalagi er með góðmálmi eða einhverjum tilteknum góðmálmi í toll­skránni einnig átt við blendi sem farið er með sem blendi góðmálms eða tiltekins málms samkvæmt reglum 5. athugasemdar hér að framan, en hvorki málma klædda góðmálmi né ódýra málma eða málmleysingja sem húðaðir eru eða plettaðir með góðmálmi.

7.   Hvarvetna í tollskránni er með orðasambandinu málmur klæddur góðmálmi átt við efni að meginstofni úr málmi sem lagður er góðmálmi á einni eða fleiri yfirborðshliðum með lóðun, brösun, logsuðu, heitvölsun eða svipuðum vélrænum aðferðum. Leiði ekki annað af orðalagi tekur orðasambandið einnig til ódýrra málma sem eru innlagðir góðmálmi.

8.   Leiði ekki annað af a-lið 1. athugasemdar við flokk VI skulu vörur sem svara til skýrgreiningar við nr. 7112 flokkast undantekningarlaust í þann vörulið.

9.   Sem skartgripir í nr. 7113 teljast:

  a. Smáhlutir til persónulegs skrauts [...]# (t.d. hringar, armbönd, hálsmen, brjóstnælur, eyrnalokkar, úrkeðjur, úrfestar, hengidó, bindisnælur, ermahnappar, brjósthnappar, trúartákn eða önnur tákn og tignarmerki).
  b. Hlutir til persónulegra nota sem menn bera almennt í vösum, handtöskum eða á sér (t.d. vindla- eða vindlingaveski, duftdósir, cachou eða pilludósir, púðurdósir, lyklahylki eða talnabönd).
  Hlutir þessir geta t.d. verið í sambandi við eða settir náttúrlegum eða ræktuðum perlum, eðalsteinum eða hálfeðalsteinum, syntetískum eða endurgerðum eðalsteinum eða hálfeðalsteinum, skjaldbökuskel, perlumóður, fílabeini, náttúrlegu eða endurgerðu rafi, svartarafi (jet) eða kóral.]4

10. Sem gull- eða silfursmíðavörur í nr. 7114 teljast hlutir eins og skreytingar, borðbúnaður, snyrtiáhöld, áhöld til reykinga og aðrir hlutir til heimilis-, skrifstofu- eða trúarlegra nota.

11. Sem glysvarningur (imitation jewellery) í nr. 7117 teljast tilsvarandi hlutir og tilgreindir eru hér á undan í a-lið 9. athugasemdar (þó ekki hnappar eða aðrir hlutir í nr. 9606, hárgreiður, hár­spennur eða þess háttar eða hárnælur, í nr. 9615), enda séu þeir hvorki búnir náttúrlegum eða ræktuðum perlum, eðalsteinum eða hálfeðalsteinum (náttúrlegum, syntetískum eða endur­gerðum), né góðmálmum eða málmi klæddum góðmálmi (nema þá sem plett eða sem óverulegan hluta). 

Athugasemdir við undirliði:

1.   Sem duft og í duftformi  í undirliðum 7106.10, 7108.11, 7110.11, 7110.21, 7110.31 og 7110.41 telst vara sem að 90% eða meira af miðað við þyngd síast í gegnum sigti með 0,5 mm möskva.

2.   Þrátt fyrir ákvæði [B-liðar]5 4. athugasemdar kaflans tekur hugtakið platína í undirliðum 7110.11 og 7110.19 ekki til irídíum, osmíum, palladíum, rodíum eða rúteníum.

3.   Við flokkun blendis í undirliðum í nr. 7110 skal hvert einstakt blendi flokkað með þeim málmi, platínu, palladíum, rodíum, irídíum, osmíum eða rúteníum, sem mest er af miðað við þyngd hvers einstaks þessara málma. 

 

1 Sbr. a-lið 64. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).
2 Sbr. a-lið 64. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).
3 Sbr. b-lið 64. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).
4 Sbr. c-lið 64. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).
5 Sbr. d-lið 64. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).
6 Sbr. 40. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 154/2011 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 15. desember 2011).   



I Náttúrlegar eða ræktaðar perlur og eðalsteinar eða hálfeðalsteinar
7101
Perlur, náttúrlegar eða ræktaðar, einnig unnar eða flokkaðar en ekki dregnar á þráð, uppsettar eða inngreyptar; perlur, náttúrlegar eða ræktaðar, dregnar á þráð til bráðabirgða til að auðvelda flutning:

Hleður tollskrárnúmerum...

7102
Demantar, einnig unnir, en ekki uppsettir eða inngreyptir:

Hleður tollskrárnúmerum...

7103
Eðalsteinar (þó ekki demantar) og hálfeðalsteinar, einnig unnir eða flokkaðir en ekki dregnir á þráð, uppsettir eða inngreyptir; óflokkaðir eðalsteinar (þó ekki demantar) og hálfeðalsteinar, dregnir á þráð til bráðabirgða til að auðvelda flutning:

Hleður tollskrárnúmerum...

7104
Syntetískir eða endurgerðir eðalsteinar eða hálfeðalsteinar, einnig unnir eða flokkaðir en ekki dregnir á þráð, uppsettir eða inngreyptir; óflokkaðir syntetískir eða endurgerðir eðalsteinar eða hálfeðalsteinar, dregnir á þráð til bráðabirgða til að auðvelda flutning:

Hleður tollskrárnúmerum...

7105
Dust og duft náttúrlegra eða tilbúinna eðalsteina eða hálfeðalsteina:

Hleður tollskrárnúmerum...

II Góðmálmar og málmar klæddir góðmálmi
7106
Silfur (þar með talið silfur húðað eða plettað með gulli eða platínu), óunnið eða hálfunnið, eða í duftformi:

Hleður tollskrárnúmerum...

7107
Ódýr málmur klæddur silfri, ekki frekar unninn en hálfunninn

Hleður tollskrárnúmerum...

7108
Gull (þar með talið gull húðað eða plettað með platínu) óunnið eða hálfunnið, eða í duftformi:

Hleður tollskrárnúmerum...

7109
Ódýr málmur eða silfur, klætt gulli, ekki frekar unnið en hálfunnið

Hleður tollskrárnúmerum...

7110
Platína, óunnin eða hálfunnin, eða í duftformi:

Hleður tollskrárnúmerum...

7111
Ódýrir málmar, silfur eða gull, klætt platínu, ekki frekar unnið en hálfunnið

Hleður tollskrárnúmerum...

7112
Úrgangur og rusl góðmálma eða málms klæddum góðmálmi; annar úrgangur og rusl sem inniheldur góðmálm eða góðmálmssambönd, aðallega notað til endurheimtu góðmálms, þó ekki vörur í nr. 8549:
Athugasemdir
Sbr. c-lið 50. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

III Skartgripir, gull- og silfursmíðavörur og aðrar vörur
7113
Skartgripir og hlutar til þeirra, úr góðmálmi eða málmi klæddum góðmálmi:

Hleður tollskrárnúmerum...

7114
Gull- eða silfursmíðavörur og hlutar til þeirra, úr góðmálmi eða málmi klæddum góðmálmi:

Hleður tollskrárnúmerum...

7115
Aðrar vörur úr góðmálmi eða málmi klæddum góðmálmi:

Hleður tollskrárnúmerum...

7116
Vörur úr náttúrlegum eða ræktuðum perlum, eðalsteinum eða hálfeðalsteinum (náttúrlegum, syntetískum eða endurgerðum):

Hleður tollskrárnúmerum...

7117
Glysvarningur:

Hleður tollskrárnúmerum...

7118
Mynt:

Hleður tollskrárnúmerum...