Athugasemdir flokks

Engar athugasemdir

Athugasemdir kafla

70. KAFLI
Gler og glervörur

 

Athugasemdir:

1.      Til þessa kafla telst ekki:

a.      Vörur í nr. 3207 (t.d. brennsluhæft smelti og glerungur, glerfrit, annað gler sem duft, korn eða flögur).

b.      Vörur í 71. kafla (t.d. glysvarningur).

c.      Ljósleiðarar í nr. 8544, rafmagnseinangrarar (nr. 8546) eða tengi úr einangrandi efni í nr. 8547.

[d.      Framrúður, afturrúður og aðrar rúður, í ramma, til ökutækja í 86. til 88. kafla.

e.      Framrúður, afturrúður og aðrar rúður, einnig í ramma, sem í er hitabúnaður eða annar rafmagns- eða rafeindabúnaður, til ökutækja í 86. til 88. kafla.][1]

[f.][2]    Ljóstrefjar, optískt unnar optískar vörur, læknissprautur, gerviaugu, hitamælar, loftvogir, flotvogir eða aðrar vörur í 90. kafla.

[g.][3]    [Ljós og ljósabúnaður][4], ljósaskilti, ljósanafnspjöld eða þess háttar, sem búið er föstum ljósgjafa eða hlutar til þeirra í nr. 9405.

[h.][5]   Leikföng, leikspil, íþróttabúnaður, jólatrésskraut eða aðrar vörur í 95. kafla (þó ekki augu úr gleri, án búnaðar, fyrir brúður og aðrar vörur í 95. kafla).

[ij.][6]   Hnappar, fullgerðir hitabrúsar, ilm- og áþekkir úðarar eða aðrar vörur í 96. kafla.

2.      Í nr. 7003, 7004 og 7005:

a.      telst gler ekki unnið við neina þá vinnslu sem á sér stað fyrir herslu,

b.      breytist flokkun glers sem skífur ekki við formskurð,

c.      merkir orðasambandið íseygu, speglandi eða óspeglandi lagi örþunn málmhúð eða kemískt efni (t.d. málmoxíð) sem sogar í sig, t.d. innrautt ljós eða bætir endurskins­eiginleika glersins þannig að það haldi að vissu marki gagnsæi eða hálfgagnsæi sínu, eða kemur í veg fyrir að ljós speglist á yfirborði glersins.

3.      Framleiðsla sem um ræðir í nr. 7006 flokkast í þann vörulið þótt hún hafi einkenni vöru.

4.      Sem glerull í nr. 7019 telst:

a.      Steinull sem inniheldur 60% eða meira af kísil (SiO2) miðað við þyngd.

b.      Steinull sem inniheldur minna en 60% af kísil (SiO2) miðað við þyngd en meira en 5% af alkalíoxyði (K2O eða Na2O), eða meira en 2% af bóroxíði (B2O3).

Steinull sem ekki svarar til framangreindrar skýrgreiningar telst til nr. 6806.

5.      Hvarvetna í tollskránni tekur hugtakið gler til glædds kvarts og annars glædds kísils.

 

Athugasemd við undirlið:

Sem blýkristall í nr. 7013.22, 7013.33, 7013.41 og 7013.91 telst eingöngu gler sem a.m.k. inni­heldur 24% af blýmonoxíði (PbO) miðað við þyngd.


[1] Sbr. 49. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[2] Sbr. 49. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[3] Sbr. 49. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[4] Sbr. 49. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[5] Sbr. 49. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[6] Sbr. 49. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

7001
Frákast (cullet) og annar úrgangur og rusl, þó ekki gler úr rafeindalömpum eða annað virkt gler (activated glass) í nr. 8549; glermassi
Athugasemdir
Sbr. c-lið 49. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

7002
Gler í kúlum (þó ekki örkúlur í nr. 7018), stöngum eða pípum, óunnið:

Hleður tollskrárnúmerum...

7003
Steypt gler og valsað gler, í skífum eða prófíl, einnig með íseygu, speglandi eða óspeglandi lagi, en ekki frekar unnið:

Hleður tollskrárnúmerum...

7004
Dregið eða blásið gler, í skífum, einnig með íseygu, speglandi eða óspeglandi lagi, en ekki frekar unnið:

Hleður tollskrárnúmerum...

7005
Flotgler og slípað eða fágað gler, í skífum, einnig með íseygu, speglandi eða óspeglandi lagi, en ekki frekar unnið:

Hleður tollskrárnúmerum...

7006
Gler úr nr. 7003, 7004 eða 7005, beygt, unnið á köntum, greypt, borað, gljábrennt eða unnið með öðrum hætti, en ekki innrammað eða lagt öðrum efnum

Hleður tollskrárnúmerum...

7007
Öryggisgler, úr hertu (tempered) eða lagskipuðu gleri:

Hleður tollskrárnúmerum...

7008
Marglaga einangrunargler

Hleður tollskrárnúmerum...

7009
Glerspeglar, einnig í römmum, þ.m.t. baksýnisspeglar:

Hleður tollskrárnúmerum...

7010
Körfukútar, flöskur, pelar, krukkur, pottar, lyfjaflöskur, lyfjahylki og önnur ílát, úr gleri, sem notað er til flutnings eða pökkunar á vörum; niðursuðukrukkur úr gleri; tappar, lok og annar lokunarbúnaður, úr gleri:

Hleður tollskrárnúmerum...

7011
Glerhylki (þar með taldar kúlur og pípur), opin, og glerhlutar til þeirra, án tengihluta, fyrir [rafmagnsljós og -ljósgjafa, rafeindaljós eða þess háttar ] :
Athugasemdir
Sbr. d-lið 49. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

7013
Glervörur notaðar sem borð-, eldhús-, bað- eða skrifstofubúnaður eða til innanhússskreytingar eða áþekkra nota (þó ekki vörur í nr. 7010 eða 7018):
Athugasemdir
Sbr. c-lið 63. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007

Hleður tollskrárnúmerum...

7014
Endurkastsbúnaður og optískar vörur úr gleri (þó ekki vörur í nr. 7015), ekki optískt unnið:

Hleður tollskrárnúmerum...

7015
Klukkugler eða úrgler og áþekkar vörur, gler í gleraugu, einnig til sjónréttingar, kúpt, beygð, íhvolf eða þess háttar, ekki optískt unnið; íhvolfar glerkúlur og kúluhlutar til framleiðslu á áþekkum vörum:

Hleður tollskrárnúmerum...

7016
Gangstéttarblokkir, hellur, múrsteinar, ferningar, flísar og aðrar vörur úr pressuðu eða mótuðu gleri, einnig með vír, sem notað er til bygginga eða mannvirkjagerðar; glerteningar og annar smávarningur úr gleri, einnig á undirlagi, í mósaík eða þess konar skreytingar; blýgreyptar rúður og þess háttar; holgler eða frauðgler í blokkum, þiljum, plötum, skeljum eða áþekku formi:

Hleður tollskrárnúmerum...

7017
Glervörur fyrir rannsóknarstofur og til hjúkrunar og lækninga, einnig með rúmmálsmerkingum eða rúm-taksréttingum:

Hleður tollskrárnúmerum...

7018
Glerperlur, eftirlíkingar af perlum, eðalsteinum eða hálfeðalsteinum og áþekkur smávarningur úr gleri, og vörur úr þeim, þó ekki glysvarningur; gleraugu, þó ekki gerviaugu; styttur og aðrir skrautmunir úr lampaunnu gleri, þó ekki glysvarningur; örkúlur úr gleri ekki yfir 1 mm í þvermál:

Hleður tollskrárnúmerum...

7019
Glertrefjar (þar með talin glerull) og vörur úr þeim (t.d. garn, dúkur):

Hleður tollskrárnúmerum...

7020
Aðrar vörur úr gleri:

Hleður tollskrárnúmerum...