Athugasemdir flokks

Engar athugasemdir

Athugasemdir kafla

69. KAFLI
Leirvörur

 

Athugasemdir:

[1.      Þessi kafli tekur aðeins til leirvara sem hafa verið brenndar eftir mótun:

a.      Nr. 6904 til 6914 taka aðeins til slíkra vara, þó ekki þeirra sem hægt er að flokka í nr. 6901 til 6903.

b.      Vörur sem hitaðar eru í minna en 800 °C til að hraða vötnunarhvörfum, eða fjarlægja vatn eða önnur rokgjörn efni, eru ekki taldar vera brenndar. Slíkir vörur falla utan 69. kafla.

c.      Leirvöru eru búnar til með því að brenna ólífræn, málmlaus efni, sem unnar hafa verið og mótaðar áður, almennt við stofuhita. Hráefni eru m.a. leir, kísilefni, þ. á m. glæddur kísill, efni með hátt bræðslumark eins og oxíð, karbíð, nítríð, grafít eða önnur kolefni, og í sumum tilvikum bindiefni eins og eldfastur leir eða fosföt.][1]

2.      Til þessa kafla telst ekki:

a.      Vörur í nr. 2844.

b.      Vörur í nr. 6804.

c.      Vörur í 71. kafla (t.d. glysvarningur).

d.      Keramíkmelmi í nr. 8113.

e.      Vörur í 82. kafla.

f.       Rafmagnseinangrarar (nr. 8546) eða tengi úr einangrandi efni í nr. 8547.

g.      Gervitennur (nr. 9021).

h.      Vörur í 91. kafla (t.d. klukkur og klukkukassar).

ij.      Vörur í 94. kafla (t.d. húsgögn, [ljós og ljósbúnaður][2], forsmíðaðar byggingar).

k.      Vörur í 95. kafla (t.d. leikföng, leikspil og íþróttabúnaður).

l.       Vörur í nr. 9606 (t.d. hnappar) eða nr. 9614 (t.d. reykjapípur).

m.     Vörur í 97. kafla (t.d. listaverk).


[1] Sbr. 48. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[2] Sbr. 48. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

6901
I Vörur úr kísilsalla eða þess konar kísilsýruríkum jarðefnum, og eldfastar vörur

Hleður tollskrárnúmerum...

6902
Eldfastur múrsteinn, blokkir, flísar og áþekkar eldfastar leirbyggingarvörur, þó ekki úr kísilsalla eða þess konar kísilsýruríkum jarðefnum:

Hleður tollskrárnúmerum...

6903
Aðrar eldfastar leirvörur (t.d. tilraunaker, deiglur, múffur, stútar, tappar, uppistöður, kúplar, leiðslur, pípur, slíður, stengur og rennilokur (slide gate), þó ekki vörur úr kísilsalla eða þess konar kísilsýruríkum:
Athugasemdir
Sbr. c-lið 48. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

II Aðrar leirvörur
6904
Leirsteinn til bygginga, steinn á gólf, uppistöðu- eða undirlagsflísar og þess háttar:

Hleður tollskrárnúmerum...

6905
Þakflísar, reykháfsrör, reykháfshlífar, reykháfsfóðringar, skrautsteinar og aðrar leirvörur til mannvirkjagerðar:

Hleður tollskrárnúmerum...

6906
Leirpípur, leirleiðslur, leirrennur og hlutar til þeirra

Hleður tollskrárnúmerum...

6907
Leirflögur, leirhellur og leirflísar fyrir gangstíga, eldstór eða veggi; leirmósaíkteningar og þess háttar, einnig á undirlagi; áferðarkeramík (e. finishing ceramics):
Athugasemdir
Sbr. 31. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármálaráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2017.

Hleður tollskrárnúmerum...

6909
Leirvörur fyrir rannsóknarstofur, eða til kemískra eða tæknilegra nota; leirtrog, leirker, leirbalar og áþekk ílát til notkunar í landbúnaði; leirpottar, leirkrukkur og áþekkar vörur sem notaðar eru til flutninga eða pökkunar á vörum:

Hleður tollskrárnúmerum...

6910
Vaskar, handlaugar, handlaugafætur, baðker, skolskálar, salernisskálar, vatnsgeymar, þvagskálar og áþekk hreinlætistæki, úr leir:

Hleður tollskrárnúmerum...

6911
Borðbúnaður, eldhúsbúnaður, önnur búsáhöld og baðbúnaður, úr postulíni:

Hleður tollskrárnúmerum...

6912
Borðbúnaður, eldhúsbúnaður, önnur búsáhöld og baðbúnaður, þó ekki úr postulíni

Hleður tollskrárnúmerum...

6913
Styttur og aðrar skrautvörur úr leir:

Hleður tollskrárnúmerum...

6914
Aðrar leirvörur:

Hleður tollskrárnúmerum...