Kafli 68 Vörur úr steini, gipsefni, sementi, asbesti, gljásteini eða áþekkum efnum
Athugasemdir flokks
Engar athugasemdir
Athugasemdir kafla
68. KAFLI
Vörur úr steini, gipsefni, sementi, asbesti, gljásteini eða áþekkum efnum
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
a. Vörur í 25. kafla.
b. Húðaður, gegndreyptur eða hjúpaður pappír og pappi í nr. 4810 eða 4811 (t.d. pappír og pappi húðaður gljásteinsdufti eða grafíti, bítúmen- eða asfaltborinn pappír eða pappi).
c. Húðaður, gegndreyptur eða hjúpaður spunadúkur í 56. eða 59. kafla (t.d. dúkur húðaður eða hjúpaður gljásteinsdufti, bítúmen- eða asfaltborinn dúkur).
d. Vörur í 71. kafla.
e. Verkfæri eða verkfærahlutar, 82. kafli.
f. Steinprentssteinar í nr. 8442.
g. Rafmagnseinangrarar (nr. 8546) eða tengi úr einangrandi efni (nr. 8547).
h. Tannslípisteinn til lækninga (nr. 9018).
ij. Vörur í 91. kafla (t.d. klukkur og klukkukassar).
k. Vörur í 94. kafla (t.d. húsgögn, [ljós og ljósabúnaður][1], forsmíðaðar byggingar).
l. Vörur í 95. kafla (t.d. leikföng, leikspil og íþróttabúnaður).
[m. Vörur í nr. 9602, ef þær eru gerðar úr efnum sem tilgreind eru í b-lið 2. athugasemdar við 96. kafla, eða í nr. 9606 (t.d. hnappar), nr. 9609 (t.d. renniblýantar), nr. 9610 (t.d. teiknitöflur) eða í nr. 9620 (einfætur, tvífætur, þrífætur og áþekkar vörur).][2]
n. Vörur í 97. kafla (t.d. listaverk).
2. Sem unninn steinn til höggmyndagerðar eða bygginga í nr. 6802 teljast ekki aðeins þær steintegundir sem taldar eru í nr. 2515 eða 2516 heldur einnig allar aðrar náttúrlegar steintegundir (t.d. kvartsít, tinna, dólómít og steatít) sem unnar eru á svipaðan hátt. Þetta tekur þó ekki til flögusteins.
[1] Sbr. 47. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[2] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
6801
Götuhellur, kantsteinn og hellusteinn, úr náttúrlegum steintegundum (þó ekki úr flögusteini)
Hleður tollskrárnúmerum...
6802
Unninn steinn til höggmyndagerðar eða bygginga (þó ekki flögusteinn) og vörur úr þeim, þó ekki vörur í nr. 6801; mósaikteningar og þess háttar, úr náttúrlegum steintegundum (þ.m.t. flögusteinn), einnig á undirlagi; gervilitaðar agnir, flísar og duft, úr náttúrlegum steinefnum (þ.m.t. flögusteinn):
Hleður tollskrárnúmerum...
6803
Unninn flögusteinn og vörur úr flögusteini eða mótuðum flögusteini:
Hleður tollskrárnúmerum...
6804
Kvarnarsteinar, hverfisteinar, slípihjól og þess háttar, án grindar, til mölunar, skerpingar, fágunar, réttingar eða skurðar, handskerpisteinar eða handfægisteinar, og hlutar til þeirra, úr náttúrlegum eða tilbúnum slípiefnum, eða úr leir, einnig með hlutum úr öðru efni:
Hleður tollskrárnúmerum...
6805
Náttúrlegt eða tilbúið slípiduft eða slípikorn á undirlagi úr spunaefni, pappír, pappa eða öðru efni, einnig skorið til eða saumað eða fest saman á annan hátt:
Hleður tollskrárnúmerum...
6806
Gjallull, steinull og áþekk ull úr jarðefnum; flagað vermikúlít, þaninn leir, frauðað gjall og áþekk þanin jarðefni; blöndur og vörur úr hitaeinangrandi, hljóðeinangrandi eða hljóðdeyfandi jarðefnum, þó ekki vörur í nr. 6811 eða 6812 eða í 69. kafla:
Hleður tollskrárnúmerum...
6807
Vörur úr asfalti eða áþekku efni (t.d. jarðolíubítú-meni eða koltjörubiki):
Hleður tollskrárnúmerum...
6808
Þiljur, plötur, flísar, blokkir og áþekkar vörur úr jurtatrefjum, strái eða úr spæni, flísum, ögnum, sagi eða öðrum úrgangi úr viði, mótað með sementi, gipsefni eða öðru bindiefni úr steinaríkinu
Hleður tollskrárnúmerum...
6809
Vörur úr gipsefni eða blöndu að meginstofni úr gipsefni:
Hleður tollskrárnúmerum...
6810
Vörur úr sementi, steinsteypu eða gervisteini, einnig styrktar:
Hleður tollskrárnúmerum...
6811
Vörur úr asbestsementi, sellulósatrefjasementi eða þess háttar:
Hleður tollskrárnúmerum...
6812
Unnar asbesttrefjar; blöndur að meginstofni úr asbesti eða að meginstofni úr asbesti og magnesíumkarbónati; vörur úr slíkum blöndum eða asbesti (t.d. þræðir, dúkur, fatnaður, höfuðfatnaður, skófatnaður, þéttingar), einnig styrktar, þó ekki vörur í nr. 6811 eða 6813:
Hleður tollskrárnúmerum...
6813
Núningsþolið efni og vörur úr því (t.d. blöð, rúllur, ræmur, sneiðar, diskar, skífur, klossar), óuppsett, í hemla, tengsl eða þess háttar, að meginstofni úr asbesti, úr öðrum steinefnum eða sellulósa, einnig í sambandi við spunaefni eða önnur efni:
Hleður tollskrárnúmerum...
6814
Unninn gljásteinn og vörur úr gljásteini, þar með talinn mótaður eða endurunninn gljásteinn, einnig á uppistöðu úr pappír, pappa eða öðrum efnum:
Hleður tollskrárnúmerum...
6815
Vörur úr steini eða öðrum jarðefnum (þar með taldar kolefnistrefjar, vörur úr kolefnistrefjum og vörur úr mó), ót.a:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir