Kafli 67 Unnar fjaðrir og dúnn og vörur úr fjöðrum eða dún; gerviblóm; vörur úr mannshári
Athugasemdir flokks
Engar athugasemdir
Athugasemdir kafla
67. KAFLI
Unnar fjaðrir og dúnn og vörur úr fjöðrum eða dún; gerviblóm;
vörur úr mannshári
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
a. [Síudúkur, fínn eða grófur][1] úr mannshári (nr. 5911).
b. Blómamyndir úr laufaborðum, útsaumi eða öðrum spunadúk (flokkur XI).
c. Skófatnaður (64. kafli).
d. Höfuðfatnaður eða hárnet (65. kafli).
e. Leikföng, íþróttabúnaður eða grímuballsvörur (95. kafli).
f. Fjaðrakústar, duftpúðar eða hársíur (96. kafli).
2. Til nr. 6701 telst ekki:
a. Vörur þar sem fjaðrir eða dúnn eru aðeins fylling eða stopp (t.d. rekkjubúnaður í nr. 9404).
b. Fatnaður eða hlutir sem honum heyra til þar sem fjaðrir eða dúnn eru aðeins sem legging eða stopp.
c. Gerviblóm eða gervilauf eða hlutar til þeirra eða tilbúnar vörur í nr. 6702.
3. Til nr. 6702 telst ekki:
a. Vörur úr gleri (70. kafli).
b. Gerviblóm, gervilauf eða gerviávextir úr leir, steini, málmi, viði eða öðrum efnum, enda sé hvert stykki út af fyrir sig steypt, smíðað, skorið út, pressað eða unnið á annan hátt, eða gert úr fleiri hlutum sem settir eru saman á annan hátt en með bindingu, límingu, samtengingu eða svipuðum aðferðum.
[1] Sbr. 46. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
6701
Hamir og aðrir hlutar af fuglum með tilheyrandi fjöðrum eða dún, fjaðrir, fjaðrahlutar, dúnn og vörur úr þeim (þó ekki vörur í nr. 0505 og unnir fjöðurstafir og fjöðurhryggir)
Hleður tollskrárnúmerum...
6702
Gerviblóm, gervilauf, eða gerviávextir og hlutar af þeim; vörur úr gerviblómum, gerviblöðum og gerviávöxtum:
Hleður tollskrárnúmerum...
6703
Mannshár, greitt, þynnt, bleikt eða unnið á annan hátt; ull eða annað dýrahár eða önnur spunaefni, unnin til hárkollugerðar eða þess háttar
Hleður tollskrárnúmerum...
6704
Hárkollur, gerviskegg, gerviaugnabrúnir og gerviaugnahár, hárlokkar eða þess háttar úr mannshári eða dýrahári eða spunaefnum; vörur úr mannshári, ót.a.:
Hleður tollskrárnúmerum...