Flokkur 12
Skófatnaður, höfuðfatnaður, regnhlífar, sólhlífar, göngustafir, setustafir, svipur, keyri og hlutar til þeirra; unnar fjaðrir og vörur úr þeim; gerviblóm; vörur úr mannshári
Kafli 64 Skófatnaður, legghlífar og þess háttar; hlutar af þess konar vörum
Athugasemdir flokks
Engar athugasemdir
Athugasemdir kafla
64. KAFLI
Skófatnaður, legghlífar og þess háttar; hlutar af þess konar vörum
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
| a. | Einnota fót- eða skóhlífar úr léttu efni (t. d. pappír, plastþynnum) án viðfests sóla. Þessar vörur flokkast eftir því efni sem þær eru gerðar úr. |
| b. | Skófatnaður úr spunaefni, án ytri sóla sem límdur er, saumaður eða skeyttur eða festur á annan hátt við yfirborðið (flokkur XI.). |
| c. | Notaður skófatnaður í nr. 6309. |
| d. | Vörur úr asbesti (nr. 6812). |
| e. | Réttiskófatnaður (orthopaedic) eða annar réttibúnaður, eða hlutar til hans (nr. 9021). |
| f. | Leikfangaskór eða skautaskór með viðfestum skautum eða hjólaskautum; legghlífar eða áþekkar íþróttaverjur (95. kafli). |
2. Sem hlutar í nr. 6406 teljast ekki skónaglar, iljárn, reimahringir, krókar, spennur, skóskraut, fléttur, reimar, dúskar eða aðrar leggingar (sem flokkast í viðeigandi vöruliði) eða hnappar eða aðrar vörur í nr. 9606.
3. Í þessum kafla:
| a. | Tekur gúmmí eða plast til ofins dúks eða annarrar spunavöru með ytra lagi úr gúmmíi eða plasti sem sést berum augum. Í þessu sambandi skal ekki tekið tillit til litabreytinga sem kunna að hafa átt sér stað. |
| b. | Er með leðri átt við vörur í [nr. 4107 og 4112-4114.]1 |
4. Leiði ekki annað af 3. athugasemd þessa kafla:
| a. | skal það efni í yfirhlutanum talið meginefni sem hefur mestan yfirborðsflöt, og skal þá ekki telja þar með fylgihluta eða styrkingar eins og öklaleppa, bryddingar, skóskraut, spennur, miða, reimahringi eða áþekkan aukabúnað; |
| b. | skal aðalefni ytri sólans talið vera það efni sem hefur mestan yfirborðsflöt er snertir jörðu og skal þá ekkert tillit tekið til fylgihluta eða styrkinga eins og gadda, stanga, nagla, hlífa eða áþekks aukabúnaðar. |
Athugasemd við undirliði:
Sem íþróttaskór í nr. 6402.12, 6402.19, 6403.12, 6403.19 og 6404.11 telst einungis eftirfarandi:
| a. | Skófatnaður sem hannaður er til íþróttaiðkana og er með, eða hefur festingar fyrir, gadda, pinna, tappa, hefti, stengur eða þess háttar. |
| b. | Skautaskór, skíðaskór og gönguskíðaskór, snjóbrettaskór, glímuskór, hnefaleikaskór og hjólaskór. |
1 Sbr. a-lið 44. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).
6401
Vatnsþéttur skófatnaður með ytri sóla og yfirhluta úr gúmmíi eða plasti, enda sé yfirhlutinn hvorki festur á sólann með spori, hnoðaður á, negldur, skrúfaður, tappaður á né með áþekkri aðferð:
Hleður tollskrárnúmerum...
6402
Annar skófatnaður með ytri sóla og yfirhluta úr gúmmíi eða plasti:
Hleður tollskrárnúmerum...
6403
Skófatnaður með ytri sóla úr gúmmíi, plasti, leðri eða samsettu leðri og yfirhluta úr leðri:
Hleður tollskrárnúmerum...
6404
Skófatnaður með ytri sóla úr gúmmíi, plasti, leðri eða samsettu leðri og yfirhluta úr spunaefni:
Hleður tollskrárnúmerum...
6405
Annar skófatnaður:
Hleður tollskrárnúmerum...
6406
Hlutar til skófatnaðar (þar með taldir yfirhlutar, einnig festir við sóla, þó ekki ytri sóla); innlegg, hælpúðar og áþekkar vörur; ökklahlífar, legghlífar og áþekkar vörur, og hlutar til þeirra:
Hleður tollskrárnúmerum...