Kafli 62 Fatnaður og fylgihlutir, ekki prjónað eða heklað
Athugasemdir flokks
FLOKKUR XI
Spunaefni og spunavörur
Athugasemdir:
1. Til þessa flokks telst ekki:
a. Burstir eða hár af dýrum til burstagerðar (nr. 0502); hrosshár eða hrosshársúrgangur (nr. 0511).
b. Mannshár eða vörur úr mannshári (nr. 0501, 6703 eða 6704), þó ekki [síudúkur, fínn eða grófur][1], venjulega notaður í olíupressur eða þess háttar (nr. 5911).
c. Baðmullardúnn eða önnur efni úr jurtaríkinu í 14. kafla.
d. Asbest í nr. 2524 eða vörur úr asbesti eða aðrar vörur í nr. 6812 eða 6813.
e. Vörur í nr. 3005 eða 3006; garn til nota við hreinsun milli tanna (tannþráður), í aðgreindum smásöluumbúðum, í nr. 3306.
f. Ljósnæm spunaefni í nr. 3701-3704.
g. Einþáttungar sem hvarvetna eru meira en 1 mm í þvermál eða ræmur eða þess háttar (t.d. gervistrá) sýnilega meira en 5 mm að breidd, úr plasti (39. kafli), eða fléttur eða dúkur eða aðrar körfugerðarvörur eða tágasmíði úr slíkum einþáttungum eða ræmum (46. kafli).
h. Ofinn, prjónaður eða heklaður dúkur, flóki eða vefleysa, gegndreypt, húðað, hjúpað eða lagskipað með plasti, eða vörur úr slíkum efnum, í 39. kafla.
ij. Ofinn, prjónaður eða heklaður dúkur, flóki eða vefleysur, gegndreypt, húðað, hjúpað eða lagskipað með gúmmíi, eða vörur úr slíkum efnum, í 40. kafla.
k. Húðir eða skinn með tilheyrandi hári eða ull (41. eða 43. kafli) eða vörur úr loðskinni, loðskinnsgervi eða vörur úr því í nr. 4303 eða 4304.
l. Vörur úr spunaefnum í nr. 4201 eða 4202.
m. Framleiðsla eða vörur í 48. kafla (t.d. sellulósavatt).
n. Skófatnaður eða hlutar til skófatnaðar, ökkla- eða legghlífar eða áþekkar vörur í 64. kafla.
o. Hárnet eða annar höfuðfatnaður eða hlutar til hans í 65. kafla.
p. Vörur í 67. kafla.
q. Spunaefni húðað slípiefni (nr. 6805) og einnig kolefnistrefjar eða vörur úr kolefnistrefjum í nr. 6815.
r. Glertrefjar eða vörur úr glertrefjum, þó ekki útsaumur gerður úr glerþráðum á sjáanlegum grunni úr dúk (70. kafli).
s. Vörur í 94. kafla (t.d. húsgögn, rekkjubúnaður, [ljós og ljósbúnaður][2]).
t. Vörur í 95. kafla (t.d. leikföng, leikspil, íþróttabúnaður og net).
[u. Vörur í 96. kafla (t.d. burstar, saumasett til nota á ferðalögum, rennilásar, ritvélaborðar, dömubindi og tíðatappar, bleiur og bleiufóður.][3]
v. Vörur í 97. kafla.
2. A. Vörur sem geta flokkast í 50.-55. kafla eða í nr. 5809 eða 5902 og eru úr tveimur eða fleiri spunaefnum skulu flokkast eins og þær væru eingöngu úr því spunaefni sem mest er af í vörunni miðað við þyngd.
Þegar ekki er meira af einu spunaefni en öðru í vöru miðað við þyngd skulu þær flokkaðar eins og þær væru eingöngu úr því spunaefni sem telst til þess vöruliðar sem síðastur er þeirra vöruliða sem að jöfnu koma til álita.
B. Framangreindri reglu skal beita þannig:
a. Garn úr yfirspunnu hrosshári (nr. 5110) og málmgarn (5605) skulu skoðast sem sérstakt spunaefni og þungi þess teljast sem samanlagður þungi efnisþáttanna. Við tollflokkun á ofnum dúk ber að telja málmþráð sem spunaefni.
b. Réttur vöruliður skal fundinn með því að ákvarða fyrst kaflann og síðan viðeigandi vörulið í þeim kafla, án tillits til efna sem ekki flokkast í þann kafla.
c. Þegar 54. og 55. kafli tengjast báðir einhverjum öðrum kafla skulu 54. og 55. kafli skoðast sem einn kafli.
d. Þegar tilgreind er í kafla eða vöruliði vara úr mismunandi spunaefnum skulu slík efni skoðast sem eitt spunaefni.
C. Ákvæði í A- og B-liðum hér að ofan taka einnig til garns sem um getur í 3., 4., 5. eða 6. athugasemd hér á eftir.
3. A. Sem seglgarn, snæri, reipi og kaðlar í þessum flokki, þó með þeim undantekningum sem greinir í B-lið hér á eftir, telst garn (einþráða, margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið) sem svarar til neðangreindra vörulýsinga:
a. Úr silki eða silkiúrgangi og mælist meira en 20.000 decitex.
b. Úr tilbúnum trefjum (þar með talið garn úr tveim eða fleiri einþáttungum í 54. kafla) og mælist meira en 10.000 decitex.
c. Úr hampi eða hör:
1. Fægt eða gljáð og mælist meira en 1.429 decitex.
2. Hvorki fægt né gljáð og mælist meira en 20.000 decitex.
d. Úr kókostrefjum úr þrem eða fleiri þáttum.
e. Úr öðrum trefjum úr jurtaríkinu og mælist meira en 20.000 decitex.
f. Styrkt með málmþræði.
B. Undantekningar:
a. Garn úr ull eða öðru dýrahári og pappírsgarn, þó ekki garn styrkt með málmþræði.
b. Tilbúnir vöndlar í 55. kafla og margþátta garn, ósnúið eða með minna en 5 snúningum á metra, í 54. kafla.
c. Silkiormaþarmar í nr. 5006 og einþáttungar í 54. kafla.
d. Málmgarn í nr. 5605. Garn styrkt með málmþræði fellur undir f-lið A-liðar hér að ofan.
e. Chenillegarn, yfirspunnið garn og lykkjurifflað (loop wale) garn í nr. 5606.
4. A. Sem garn umbúið til smásölu í 50., 51., 52., 54. og 55. kafla, með þeim undantekningum sem greinir í B-lið hér að neðan, telst garn (einþráða, margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið) þannig umbúið:
a. Á spjöldum, keflum, hólkum eða þess konar uppistöðum og vegur (að meðtalinni uppistöðu) ekki meira en:
1. 85 g sé það úr silki, silkiúrgangi eða tilbúnum þáttum.
2. 125 g sé það úr öðru efni.
b. Í hnyklum, hönkum eða hespum og vegur ekki meira en:
1. 85 g sé það úr tilbúnum þáttum sem eru minna en 3.000 decitex, silki eða silkiúrgangi.
2. 125 g þegar um er að ræða annað garn sem er minna en 2.000 decitex.
3. 500 g sé það úr öðru efni.
c. Í hönkum eða hespum sem saman standa af smærri hönkum eða hespum aðskildum með skiptiþráðum í sjálfstæðar einingar sem eru jafnþungar og vega ekki meira en:
1. 85 g sé það úr silki, silkiúrgangi eða tilbúnum þáttum.
2. 125 g sé það úr öðru efni.
B. Undantekningar:
a. Einþráða garn úr hvers konar spunaefni, þó ekki:
1. Einþráða garn úr ull eða fíngerðu dýrahári, óbleikt.
2. Einþráða garn úr ull eða fíngerðu dýrahári, bleikt, litað eða þrykkt, meira en 5.000 decitex.
b. Margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið garn, óbleikt:
1. Úr silki eða silkiúrgangi, hvernig sem um það er búið.
2. Úr öðru spunaefni en ull eða fíngerðu dýrahári, í hönkum eða hespum.
c. Margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið garn úr silki eða silkiúrgangi, bleikt, litað eða þrykkt, 133 decitex eða minna.
d. Einþráða, margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið garn úr hvers konar spunaefni:
1. Í krossbrugðnum hönkum eða hespum.
2. Umbúið á uppistöður eða á einhvern annan hátt sem gefur til kynna notkun þess í spunaiðnaði (t.d. á snældum, snúðhólkum, skyttuspólum, spunakeilum eða teinum, eða undið á spólur í vefstóla til skrautvefnaðar).
5. Sem saumþráður í nr. 5204, 5401 og 5508 telst margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið garn:
a. Umbúið á uppistöður (t.d. kefli eða hólka) sem vegur (að meðtalinni uppistöðu) ekki meira en 1.000 g.
b. Íborið til nota sem saumþráður.
c. Sem endar á Z-snúningi.
6. Sem háþolið garn í þessum flokki telst garn sem hefur þol tilgreint í cN/tex (centinewton per tex) meira en:
Einþráða garn úr nyloni eða öðru pólyamíði eða úr pólyesterum .............................. 60 cN/tex
Margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið garn úr nyloni eða öðru pólyamíði eða úr pólyesterum 53 cN/tex
Einþráða, margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið garn úr viskósarayon ..................... 27 cN/tex
7. Sem fullgerðar í þessum flokki teljast eftirtaldar vörur:
a. Klipptar á annan hátt en í ferninga eða rétthyrninga.
b. Fullgerðar og tilbúnar til notkunar (eða aðeins þarf að skilja að með klippingu skiptiþráða) og ekki þarf að sauma eða vinna frekar (t.d. sumar tegundir af þurrkum, handklæðum, borðdúkum, hálsklútum, ábreiðum).
c. Sniðnar til og með a.m.k. einum hitaluktum jaðri og sýnilega mjókkuðum eða pressuðum bryddingum og hinum jöðrunum meðhöndluðum eins og lýst er í öðrum liðum þessarar athugasemdar, þó ekki dúkur með skornum jöðrum sem komið hefur verið í veg fyrir að rakni upp með heitskurði eða öðrum einföldum hætti.
d. Faldaðar eða með innábroti, eða með hnýttu kögri við einn jaðar eða fleiri, þó ekki dúkur með klipptum jöðrum sem gengið er frá með grófum sporum eða öðrum einföldum frágangi til að hindra að hann trosni.
e. Sniðnar til og þráðdregnar.
f. Saumaðar, límdar eða settar saman á annan hátt (þó ekki metravara úr tveimur eða fleiri lengdum sama efnis sem hefur verið skeytt saman á endum, og metravara samsett úr tveimur eða fleiri lögum af spunavöru, einnig með millilagi).
g. Prjónaðar eða heklaðar í endanlega mynd, hvort sem framvísað er sem aðgreind stykki eða tiltekin stykkjatala í lengju.
8. Varðandi 50.-60. kafla:
a. Til 50.-55. kafla og 60. kafla og einnig, leiði ekki annað af orðalagi, til 56.-59. kafla teljast ekki tilbúnar vörur í skilningi 7. athugasemdar hér að ofan.
b. Til 50.-55. kafla og 60. kafla teljast ekki vörur sem teljast til 56.-59. kafla.
9. Sem ofinn dúkur í 50.-55. kafla telst einnig dúkur sem gerður er úr lögum samsíða spunagarns sem lögð eru í hvasst eða rétt horn hvert á annað. Lög þessi eru fest saman á mótum garnsins með límingu eða varmaaðferð.
10. Teygjanlegar vörur úr spunaefnum sem í eru gúmmíþræðir teljast til þessa flokks.
11. Með orðinu gegndreyptur í þessum flokki er einnig átt við ídýfður.
12. Með orðinu pólyamíð í þessum flokki er einnig átt við aramíd.
13. Í þessum flokki og hvarvetna í tollskránni þar sem það á við er með orðinu teygjugarn átt við þráðgarn, þ.m.t. einþáttungar, úr syntetísku spunaefni, þó ekki vefkennt garn, sem slitnar ekki þótt það sé teygt þrefalda upprunalega lengd sína og, eftir að hafa verið teygt tvöfalda upprunalega lengd sína, dregur sig saman innan fimm mínútna þannig að það verður ekki yfir 11/2 upprunaleg lengd.
14. Leiði ekki annað af orðalagi skal spunafatnaður í mismunandi vöruliðum flokkast í sína vöruliði þótt hann sé umbúinn í samstæður til smásölu. Með orðinu spunafatnaður í þessari athugasemd er átt við fatnað sem telst til nr. 6101-6114 og 6201-6211.
[15. Leiði ekki annað af 1. athugasemd við flokk XI skal flokka spunafatnað og aðrar spunavörur, sem í eru kemískir, vélrænir eða rafrænir hlutir til aukinnar virkni, einnig sem settir hafa verið í sem innbyggðir hlutir eða inn í trefjar eða dúk, í viðkomandi vöruliði í flokki XI, enda haldi þeir að verulegu leyti einkennum vara í þessum flokki.][4]
Athugasemdir við undirliði:
1. Í þessum flokki og hvarvetna í tollskránni þar sem það á við hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem þeim er hér með gefin:
a. Óbleikt garn.
Garn sem:
1. hefur náttúrlegan lit frumtrefja sinna og hefur ekki verið bleikt, litað (einnig gegnlitað) eða þrykkt,
2. hefur óvissan lit (grátt garn) og unnið er úr tættu hráefni.
Slíkt garn má hafa hlotið aðvinnslu með litlausu efni eða óekta lit (sem hverfur eftir einfaldan sápuþvott) og, þegar um er að ræða tilbúnar trefjar, gegnunnin með efni til að eyða gljáa (t.d. títandíoxíð).
b. Bleikt garn.
Garn sem:
1. hlotið hefur aðvinnslu til bleikingar, er gert úr bleiktum trefjum eða, leiði ekki annað af orðalagi, hefur verið litað hvítt (einnig gegnlitað) eða fengið aðvinnslu með hvítri steiningu,
2. gert er úr blöndu af óbleiktum og bleiktum trefjum,
3. er margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið og gert úr óbleiktu og bleiktu garni.
c. Litað garn (með litunarefni eða þrykkt).
Garn sem:
1. er litað (einnig gegnlitað) þó ekki hvítt eða í óekta lit, eða þrykkt, eða gert úr lituðum eða þrykktum trefjum,
2. gert er úr blöndu óbleiktra eða bleiktra trefja með lituðum trefjum (litblendi eða garnblöndu), eða þrykkt í einum eða fleiri litum með millibili sem gefur útlit punkta,
3. gert er úr þrykktum flísum eða ræmum,
4. er margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið og gert úr óbleiktu eða bleiktu garni og lituðu garni.
Framangreindar skýrgreiningar gilda einnig, að breyttu breytanda, um einþáttunga og ræmur eða þess háttar í 54. kafla.
d. Óbleiktur ofinn dúkur.
Ofinn dúkur gerður úr óbleiktu garni sem hefur ekki verið bleiktur, litaður eða þrykktur. Slíkur dúkur má hafa hlotið aðvinnslu með litlausu efni eða óekta lit.
e. Bleiktur ofinn dúkur.
Ofinn dúkur sem:
1. hefur verið bleiktur eða, leiði ekki annað af orðalagi, hefur verið litaður hvítur eða fengið aðvinnslu með hvítu efni, sem metravara,
2. er gerður úr bleiktu garni,
3. er gerður úr óbleiktu og bleiktu garni.
f. Litaður ofinn dúkur.
Ofinn dúkur sem:
1. litaður er í einn jafnan lit annan en hvítt (leiði ekki annað af orðalagi) eða hefur með aðvinnslu fengið litaráferð aðra en hvíta (leiði ekki annað af orðalagi), í metratali,
2. er gerður úr lituðu garni í einum jöfnum lit.
g. Ofinn dúkur úr garni í mismunandi litum.
Ofinn dúkur (þó ekki þrykktur ofinn dúkur) sem:
1. er gerður úr garni í mismunandi litum eða úr garni í mismunandi tilbrigðum sama litar (þó ekki náttúrlegum lit frumtrefjanna),
2. er gerður úr óbleiktu eða bleiktu garni og lituðu garni,
3. er gerður úr litblendi eða garnblöndu. (Ekki skal í neinu tilviki tekið tillit til garns í frágangi jaðra eða enda).
h. Þrykktur ofinn dúkur.
Ofinn dúkur sem hefur verið þrykktur í metratali, einnig gerður úr garni í mismunandi litum.
(Eftirtalið telst einnig vera þrykktur ofinn dúkur: Ofinn dúkur með mynstri sem gert er t.d. með pensli eða úðabyssu, þrykkipappír, hnökri eða batikaðferð.)
Mersiaðvinnsla hefur ekki áhrif á flokkun garns eða dúks í framangreindum hugtökum.
Skýrgreiningar í d- til h-liðar hér að framan gilda, að breyttu breytanda, um prjónaðan eða heklaðan dúk.
ij. Einfaldur vefnaður.
Dúkur þar sem hver ívafsþráður fer til skiptis yfir eða undir uppistöðuþræði sem eru í röð og hver uppistöðuþráður fer til skiptis yfir eða undir ívafsþræði sem eru í röð.
2. A. Vörur í 56.-63. kafla sem eru úr tveimur eða fleiri spunaefnum skulu teljast vera að öllu leyti úr því spunaefni sem fyrir valinu yrði samkvæmt 2. athugasemd við þennan flokk við flokkun á vöru í 50.-55. kafla eða í nr. 5809 úr sömu spunaefnum.
B. Þegar þessari reglu er beitt:
a. skal aðeins taka tillit til þess hluta sem ákvarðar flokkunina samkvæmt túlkunarreglu 3, eftir því sem við á,
b. skal ekki taka tillit til grunndúksins, þegar um er að ræða spunavörur úr grunndúk með flos- eða lykkjuyfirborði,
c. skal taka tillit til grunndúksins eingöngu, þegar um er að ræða útsaum og vörur úr honum í nr. 5810. Útsaumur án sýnilegs grunns og vörur úr honum skal þó flokkaður með tilvísun til útsaumsþráðanna eingöngu.
[1] Sbr. 36. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[2] Sbr. 36. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[3] Sbr. 36. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[4] Sbr. 36. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
Athugasemdir kafla
62. KAFLI
Fatnaður og fylgihlutir, ekki prjónað eða heklað
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla teljast einungis fullgerðar vörur úr hvers konar spunadúk öðrum en vatti, þó ekki prjónaðar eða heklaðar vörur (aðrar en vörur í nr. 6212).
2. Til þess kafla telst ekki:
a. Notuð föt eða aðrar notaðar vörur í nr. 6309.
b. Ortópedísk tæki, skurðlækningabelti, kviðslitsbindi eða þess háttar (nr. 9021).
3. Í nr. 6203 og 6204 er með:
a. Jakkafötum átt við sett flíka sem í eru tvö eða þrjú stykki gerð, að því er ytra byrði varðar, úr sams konar dúk og felur í sér:
¿ eina treyju eða jakka, sem, án þess að ermar séu meðtaldar, gert er að ytra byrði úr fjórum eða fleiri efnisflötum, hannað til að hylja efri hluta líkamans, og eftir atvikum samstætt vesti að auki með framhlið gerða úr sama efni og ytra byrði hinna stykkjanna í settinu og bakhlið gerða úr sama efni og fóður treyjunnar eða jakkans, og
¿ eina flík sem hönnuð er til að hylja neðri hluta líkamans og samanstendur af buxum, hnébuxum eða stuttbuxum (þó ekki sundföt), pilsi eða buxnapilsi, og hefur hvorki axlabönd né smekk.
Allir hlutar jakkafata skulu vera úr sömu gerð af dúk, sama lit og samsetningu. Þeir skulu einnig vera í sama stíl og af sambærilegri eða tilsvarandi stærð. Þó má í stykkjum þessum vera miðseymi (ræma af dúk sem saumuð er í sauminn) úr öðru efni.
Ef fleiri aðskildum hlutum til að hylja neðri hluta líkamans er framvísað saman (t.d. tvennar buxur eða buxur og stuttbuxur, eða pils eða buxnapils og buxur) skal tilheyrandi neðri hluti vera einar buxur eða, þegar um er að ræða jakkaföt kvenna eða telpna, pilsið eða buxnapilsið, en hinar flíkurnar teljast sér.
Með jakkafötum er einnig átt við eftirtalin sett flíka, einnig þótt þau uppfylli ekki ofangreind skilyrði:
¿ árdegiskjólföt, sem fela í sér einfaldan jakka (lafatreyju) með ávölu, síðu baklafi og röndóttar buxur,
¿ síðdegiskjólföt, yfirleitt gerð úr svörtum dúk, þar sem jakkinn er tiltölulega stuttur að framan, kemur ekki saman og er með grönn löf sem eru aðskorin á mjöðmum og hanga niður á bakhlið,
¿ samkvæmisföt (smókingur), þar sem jakkanum svipar í stíl til venjulegs jakka (þótt e.t.v. sjáist meira af skyrtunni), en er með börð úr gljásilki eða silkilíki.
b. Fatasamstæðu átt við sett flíka (þó ekki jakkaföt og vörur í nr. 6207 eða 6208) sem í eru nokkur stykki gerð úr samskonar dúk, umbúin til smásölu, og felur í sér:
¿ eina flík sem hönnuð er til að hylja efri hluta líkamans, að undanteknum vestum sem einnig geta myndað aðra efri flík, og
¿ eina eða tvær mismunandi flíkur sem hannaðar eru til að hylja neðri hluta líkamans og samanstanda af buxum, smekkbuxum með axlaböndum, hnébuxum, stuttbuxum (þó ekki sundföt), pilsi eða buxnapilsi.
Allir hlutar fatasamstæðu skulu vera úr sömu gerð af dúk, sama stíl, lit og samsetningu. Þeir skulu einnig vera af sambærilegri eða tilsvarandi stærð. Sem fatasamstæður teljast ekki æfinga- eða skíðagallar í nr. 6211.4.
[4. Til nr. 6205 og 6206 teljast ekki flíkur með vösum fyrir neðan mitti, með stroffi eða öðrum búnaði til að þrengja flíkina að neðan. Til nr. 6205 teljast ekki ermalausar flíkur.
Skyrtur og skyrtublússur teljast flíkur sem hannaðar eru til að hylja efri hluta líkamans, með löngum eða stuttum ermum og opnar að fullu eða að hluta frá hálsmáli. Blússur eru víðar flíkur sem einnig eru hannaðar til þess að hylja efri hluta líkamans en geta verið ermalausar og með eða án opins hálsmáls. Skyrtur, skyrtublússur og blússur geta einnig verið með kraga.][1]
[5.][2] Að því er tekur til nr. 6209:
a. Er með ungbarnafatnaði og fylgihlutum átt við vörur fyrir ung börn sem ekki eru yfir 86 cm á hæð.
b. Skulu vörur, sem fljótt á litið geta bæði talist til nr. 6209 og annarra vöruliða í þessum kafla, flokkast í nr. 6209.
[6.][3] Flíkur sem fljótt á litið geta bæði talist til nr. 6210 og annarra vöruliða í þessum kafla, þó ekki nr. 6209, skulu flokkast í nr. 6210.
[7.][4] Sem skíðagallar í nr. 6211 teljast flíkur eða sett flíka sem vegna almenns útlits og áferðar bera einkenni þess að vera ætluð fyrst og fremst til nota við skíðaiðkun (göngu eða alpagreinar). Þeir eru eitt af tvennu:
a. Skíðasamfestingur, þ.e.a.s. ein flík sem hönnuð er til að hylja efri og neðri hluta líkamans. Auk erma og kraga kann skíðasamfestingur einnig að vera búinn vösum eða iljaböndum.
b. Skíðafatasamstæða, þ.e.a.s. sett af flíkum sem í eru tvö eða þrjú stykki, umbúin til smásölu, og fela í sér:
¿ eina flík svo sem hettuúlpu, stormblússu, vindjakka eða þess háttar sem lokað er með rennilás og kann auk þess að vera með vesti, og
¿ einar buxur, einnig þær sem geta náð hærra en í mitti, einar hnébuxur eða einar smekkbuxur með axlaböndum.
Skíðafatasamstæða getur einnig verið samsett úr samfestingi áþekkum þeim sem lýst er í a-lið að ofan og eins konar vatteraður, ermalaus jakki sem farið er í utanyfir samfestinginn.
Allir hlutar skíðafatasamstæðu skulu vera úr dúk með sömu áferð, stíl og samsetningu, en þurfa ekki að vera í sama lit. Þeir skulu einnig vera af sambærilegri eða tilsvarandi stærð.
[8.][5] Klútar og áþekkar vörur, ferningslaga eða því sem næst, ekki meira en 60 cm á hverja hlið, skulu flokkast sem vasaklútar (nr. 6213). Vasaklútar sem eru meira en 60 cm á einhverja hlið skulu flokkast í nr. 6214.
[9.][6] Fatnaður í þessum kafla, sem þannig er hannaður að vinstri boðangur er festur eða hnepptur yfir hægri boðang, skal teljast fatnaður karla eða drengja, en sé hann þannig að hægri boðangur er festur eða hnepptur yfir þann vinstri skal hann teljast fatnaður kvenna eða telpna. Þessi ákvæði eiga ekki við þegar snið fatnaðar gefur greinilega til kynna að hann henti aðeins öðru kyninu en ekki hinu.
Fatnaður sem ekki ber það með sér að vera annað hvort karla- eða drengjafatnaður eða telpnafatnaður skal flokkast í vörulið fyrir kven- eða telpnafatnað.
[10.][7] Vörur í þessum kafla geta verið úr málmþræði.[1] Sbr. 44. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[2] Sbr. 44. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[3] Sbr. 44. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[4] Sbr. 44. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[5] Sbr. 44. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[6] Sbr. 44. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[7] Sbr. 44. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
6201
Yfirfrakkar, bílfrakkar, herðaslár, skikkjur, hettuúlpur (þ.m.t. skíðajakkar), stormblússur, vindjakkar og áþekkar vörur karla eða drengja, þó ekki þessar vörur í nr. 6203:
Hleður tollskrárnúmerum...
6202
Yfirfrakkar, bílfrakkar, herðaslár, skikkjur, hettuúlpur (þ.m.t. skíðajakkar), stormblússur, vindjakkar og áþekkar vörur kvenna eða telpna, þó ekki þessar vörur í nr. 6204:
Hleður tollskrárnúmerum...
6203
Jakkaföt, fatasamstæður, jakkar, sportjakkar, buxur, smekkbuxur með axlaböndum, hnébuxur og stuttbuxur (þó ekki sundföt) karla eða drengja:
Hleður tollskrárnúmerum...
6204
Jakkaföt, fatasamstæður, jakkar, sportjakkar, kjólar, pils, buxnapils, buxur, smekkbuxur með axlaböndum, hnébuxur og stuttbuxur (þó ekki sundföt) kvenna eða telpna:
Hleður tollskrárnúmerum...
6205
Karla- eða drengjaskyrtur:
Hleður tollskrárnúmerum...
6206
Blússur, skyrtur og skyrtublússur kvenna eða telpna:
Hleður tollskrárnúmerum...
6207
Nærbolir og aðrir bolir, nærbuxur, nærhöld, náttserkir, náttföt, baðsloppar, morgunsloppar og áþekkar vörur karla eða drengja:
Hleður tollskrárnúmerum...
6208
Nærbolir og aðrir bolir, nærpils, millipils, nærhöld, nærbuxur, náttkjólar, náttföt, léttsloppar, baðsloppar, morgunsloppar og áþekkar vörur kvenna eða telpna:
Hleður tollskrárnúmerum...
6209
Ungbarnafatnaður og fylgihlutir:
Hleður tollskrárnúmerum...
6210
Fatnaður úr dúk í nr. 5602, 5603, 5903, 5906 eða 5907:
Hleður tollskrárnúmerum...
6211
Æfingagallar, skíðagallar og sundföt; annar fatnaður:
Hleður tollskrárnúmerum...
6212
Brjóstahöld, magabelti, lífstykki, axlabönd, sokkabandabelti, sokkabönd og áþekkar vörur og hlutar til þeirra, einnig prjónað eða heklað:
Hleður tollskrárnúmerum...
6213
Vasaklútar:
Hleður tollskrárnúmerum...
6214
Sjöl, klútar, treflar, slár, slæður og þess háttar:
Hleður tollskrárnúmerum...
6215
Bindi, slaufur og slifsi:
Hleður tollskrárnúmerum...
6216
Hanskar, belgvettlingar og vettlingar
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
6217
Aðrir fullgerðir fylgihlutir fatnaðar; hlutar fatnaðar eða fylgihluta, þó ekki vörur í nr. 6212:
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir