Flokkur 11 Spunaefni og spunavörur

Kafli 60 Prjónaður eða heklaður dúkur

Athugasemdir flokks

FLOKKUR XI
Spunaefni og spunavörur

 

Athugasemdir:

1.      Til þessa flokks telst ekki:

a.      Burstir eða hár af dýrum til burstagerðar (nr. 0502); hrosshár eða hrosshársúrgangur (nr. 0511).

b.      Mannshár eða vörur úr mannshári (nr. 0501, 6703 eða 6704), þó ekki [síudúkur, fínn eða grófur][1], venjulega notaður í olíupressur eða þess háttar (nr. 5911).

c.      Baðmullardúnn eða önnur efni úr jurtaríkinu í 14. kafla.

d.      Asbest í nr. 2524 eða vörur úr asbesti eða aðrar vörur í nr. 6812 eða 6813.

e.      Vörur í nr. 3005 eða 3006; garn til nota við hreinsun milli tanna (tannþráður), í aðgreindum smásöluumbúðum, í nr. 3306.

f.       Ljósnæm spunaefni í nr. 3701-3704.

g.      Einþáttungar sem hvarvetna eru meira en 1 mm í þvermál eða ræmur eða þess háttar (t.d. gervistrá) sýnilega meira en 5 mm að breidd, úr plasti (39. kafli), eða fléttur eða dúkur eða aðrar körfugerðarvörur eða tágasmíði úr slíkum einþáttungum eða ræmum (46. kafli).

h.      Ofinn, prjónaður eða heklaður dúkur, flóki eða vefleysa, gegndreypt, húðað, hjúpað eða lagskipað með plasti, eða vörur úr slíkum efnum, í 39. kafla.

ij.      Ofinn, prjónaður eða heklaður dúkur, flóki eða vefleysur, gegndreypt, húðað, hjúpað eða lagskipað með gúmmíi, eða vörur úr slíkum efnum, í 40. kafla.

k.      Húðir eða skinn með tilheyrandi hári eða ull (41. eða 43. kafli) eða vörur úr loðskinni, loðskinnsgervi eða vörur úr því í nr. 4303 eða 4304.

l.       Vörur úr spunaefnum í nr. 4201 eða 4202.

m.     Framleiðsla eða vörur í 48. kafla (t.d. sellulósavatt).

n.      Skófatnaður eða hlutar til skófatnaðar, ökkla- eða legghlífar eða áþekkar vörur í 64. kafla.

o.      Hárnet eða annar höfuðfatnaður eða hlutar til hans í 65. kafla.

p.      Vörur í 67. kafla.

q.      Spunaefni húðað slípiefni (nr. 6805) og einnig kolefnistrefjar eða vörur úr kolefnis­trefjum í nr. 6815.

r.       Glertrefjar eða vörur úr glertrefjum, þó ekki útsaumur gerður úr glerþráðum á sjáanleg­um grunni úr dúk (70. kafli).

s.       Vörur í 94. kafla (t.d. húsgögn, rekkjubúnaður, [ljós og ljósbúnaður][2]).

t.       Vörur í 95. kafla (t.d. leikföng, leikspil, íþróttabúnaður og net).

[u.      Vörur í 96. kafla (t.d. burstar, saumasett til nota á ferðalögum, rennilásar, ritvélaborðar, dömubindi og tíðatappar, bleiur og bleiufóður.][3]

v.      Vörur í 97. kafla.

2.      A.     Vörur sem geta flokkast í 50.-55. kafla eða í nr. 5809 eða 5902 og eru úr tveimur eða fleiri spunaefnum skulu flokkast eins og þær væru eingöngu úr því spunaefni sem mest er af í vörunni miðað við þyngd.

                   Þegar ekki er meira af einu spunaefni en öðru í vöru miðað við þyngd skulu þær flokkaðar eins og þær væru eingöngu úr því spunaefni sem telst til þess vöruliðar sem síðastur er þeirra vöruliða sem að jöfnu koma til álita.

          B.     Framangreindri reglu skal beita þannig:

a.   Garn úr yfirspunnu hrosshári (nr. 5110) og málmgarn (5605) skulu skoðast sem sérstakt spunaefni og þungi þess teljast sem samanlagður þungi efnisþáttanna. Við tollflokkun á ofnum dúk ber að telja málmþráð sem spunaefni.

b.   Réttur vöruliður skal fundinn með því að ákvarða fyrst kaflann og síðan viðeig­andi vörulið í þeim kafla, án tillits til efna sem ekki flokkast í þann kafla.

c.   Þegar 54. og 55. kafli tengjast báðir einhverjum öðrum kafla skulu 54. og 55. kafli skoðast sem einn kafli.

d.   Þegar tilgreind er í kafla eða vöruliði vara úr mismunandi spunaefnum skulu slík efni skoðast sem eitt spunaefni.

          C.     Ákvæði í A- og B-liðum hér að ofan taka einnig til garns sem um getur í 3., 4., 5. eða 6. athugasemd hér á eftir.

3.      A.     Sem seglgarn, snæri, reipi og kaðlar í þessum flokki, þó með þeim undantekningum sem greinir í B-lið hér á eftir, telst garn (einþráða, margþráða (snúið) eða kaðal­brugðið) sem svarar til neðangreindra vörulýsinga:

a.   Úr silki eða silkiúrgangi og mælist meira en 20.000 decitex.

b.   Úr tilbúnum trefjum (þar með talið garn úr tveim eða fleiri einþáttungum í 54. kafla) og mælist meira en 10.000 decitex.

c.   Úr hampi eða hör:

1.   Fægt eða gljáð og mælist meira en 1.429 decitex.

2.   Hvorki fægt né gljáð og mælist meira en 20.000 decitex.

d.   Úr kókostrefjum úr þrem eða fleiri þáttum.

e.   Úr öðrum trefjum úr jurtaríkinu og mælist meira en 20.000 decitex.

f.    Styrkt með málmþræði.

          B.     Undantekningar:

a.   Garn úr ull eða öðru dýrahári og pappírsgarn, þó ekki garn styrkt með málmþræði.

b.   Tilbúnir vöndlar í 55. kafla og margþátta garn, ósnúið eða með minna en 5 snún­ingum á metra, í 54. kafla.

c.   Silkiormaþarmar í nr. 5006 og einþáttungar í 54. kafla.

d.   Málmgarn í nr. 5605. Garn styrkt með málmþræði fellur undir f-lið A-liðar hér að ofan.

e.   Chenillegarn, yfirspunnið garn og lykkjurifflað (loop wale) garn í nr. 5606.

4.      A.     Sem garn umbúið til smásölu í 50., 51., 52., 54. og 55. kafla, með þeim undantekn­ingum sem greinir í B-lið hér að neðan, telst garn (einþráða, margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið) þannig umbúið:

a.   Á spjöldum, keflum, hólkum eða þess konar uppistöðum og vegur (að meðtalinni uppistöðu) ekki meira en:

1.   85 g sé það úr silki, silkiúrgangi eða tilbúnum þáttum.

2.   125 g sé það úr öðru efni.

b.   Í hnyklum, hönkum eða hespum og vegur ekki meira en:

1.   85 g sé það úr tilbúnum þáttum sem eru minna en 3.000 decitex, silki eða silkiúrgangi.

2.   125 g þegar um er að ræða annað garn sem er minna en 2.000 decitex.

3.   500 g sé það úr öðru efni.

c.   Í hönkum eða hespum sem saman standa af smærri hönkum eða hespum aðskildum með skiptiþráðum í sjálfstæðar einingar sem eru jafnþungar og vega ekki meira en:

1.   85 g sé það úr silki, silkiúrgangi eða tilbúnum þáttum.

2.   125 g sé það úr öðru efni.

          B.     Undantekningar:

a.   Einþráða garn úr hvers konar spunaefni, þó ekki:

1.   Einþráða garn úr ull eða fíngerðu dýrahári, óbleikt.

2.   Einþráða garn úr ull eða fíngerðu dýrahári, bleikt, litað eða þrykkt, meira en 5.000 decitex.

b.   Margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið garn, óbleikt:

1.   Úr silki eða silkiúrgangi, hvernig sem um það er búið.

2.   Úr öðru spunaefni en ull eða fíngerðu dýrahári, í hönkum eða hespum.

c.   Margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið garn úr silki eða silkiúrgangi, bleikt, litað eða þrykkt, 133 decitex eða minna.

d.   Einþráða, margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið garn úr hvers konar spunaefni:

1.   Í krossbrugðnum hönkum eða hespum.

2.   Umbúið á uppistöður eða á einhvern annan hátt sem gefur til kynna notkun þess í spunaiðnaði (t.d. á snældum, snúðhólkum, skyttuspólum, spuna­keilum eða teinum, eða undið á spólur í vefstóla til skrautvefnaðar).

5.      Sem saumþráður í nr. 5204, 5401 og 5508 telst margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið garn:

a.      Umbúið á uppistöður (t.d. kefli eða hólka) sem vegur (að meðtalinni uppistöðu) ekki meira en 1.000 g.

b.      Íborið til nota sem saumþráður.

c.      Sem endar á Z-snúningi.

6.      Sem háþolið garn í þessum flokki telst garn sem hefur þol tilgreint í cN/tex (centinewton per tex) meira en:

Einþráða garn úr nyloni eða öðru pólyamíði eða úr pólyesterum .............................. 60 cN/tex

Margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið garn úr nyloni eða öðru pólyamíði eða úr pólyesterum             53 cN/tex

Einþráða, margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið garn úr viskósarayon ..................... 27 cN/tex

7.      Sem fullgerðar í þessum flokki teljast eftirtaldar vörur:

a.      Klipptar á annan hátt en í ferninga eða rétthyrninga.

b.      Fullgerðar og tilbúnar til notkunar (eða aðeins þarf að skilja að með klippingu skipti­þráða) og ekki þarf að sauma eða vinna frekar (t.d. sumar tegundir af þurrkum, hand­klæðum, borðdúkum, hálsklútum, ábreiðum).

c.      Sniðnar til og með a.m.k. einum hitaluktum jaðri og sýnilega mjókkuðum eða pressuðum bryddingum og hinum jöðrunum meðhöndluðum eins og lýst er í  öðrum liðum þessarar athugasemdar, þó ekki dúkur með skornum jöðrum sem komið hefur verið í veg fyrir að rakni upp með heitskurði eða öðrum einföldum hætti.

d.      Faldaðar eða með innábroti, eða með hnýttu kögri við einn jaðar eða fleiri, þó ekki dúkur með klipptum jöðrum sem gengið er frá með grófum sporum eða öðrum ein­földum frágangi til að hindra að hann trosni.

e.      Sniðnar til og þráðdregnar.

f.       Saumaðar, límdar eða settar saman á annan hátt (þó ekki metravara úr tveimur eða fleiri lengdum sama efnis sem hefur verið skeytt saman á endum, og metravara samsett úr tveimur eða fleiri lögum af spunavöru, einnig með millilagi).

g.      Prjónaðar eða heklaðar í endanlega mynd, hvort sem framvísað er sem aðgreind stykki eða tiltekin stykkjatala í lengju.

8.      Varðandi 50.-60. kafla:

a.      Til 50.-55. kafla og 60. kafla og einnig, leiði ekki annað af orðalagi, til 56.-59. kafla teljast ekki tilbúnar vörur í skilningi 7. athugasemdar hér að ofan.

b.      Til 50.-55. kafla og 60. kafla teljast ekki vörur sem teljast til 56.-59. kafla.

9.      Sem ofinn dúkur í 50.-55. kafla telst einnig dúkur sem gerður er úr lögum samsíða spunagarns sem lögð eru í hvasst eða rétt horn hvert á annað. Lög þessi eru fest saman á mótum garnsins með límingu eða varmaaðferð.

10.    Teygjanlegar vörur úr spunaefnum sem í eru gúmmíþræðir teljast til þessa flokks.

11.    Með orðinu gegndreyptur í þessum flokki er einnig átt við ídýfður.

12.    Með orðinu pólyamíð í þessum flokki er einnig átt við aramíd.

13.    Í þessum flokki og hvarvetna í tollskránni þar sem það á við er með orðinu teygjugarn átt við þráðgarn, þ.m.t. einþáttungar, úr syntetísku spunaefni, þó ekki vefkennt garn, sem slitnar ekki þótt það sé teygt þrefalda upprunalega lengd sína og, eftir að hafa verið teygt tvöfalda upprunalega lengd sína, dregur sig saman innan fimm mínútna þannig að það verður ekki yfir 11/2 upprunaleg lengd.

14.      Leiði ekki annað af orðalagi skal spunafatnaður í mismunandi vöruliðum flokkast í sína vöruliði þótt hann sé umbúinn í samstæður til smásölu. Með orðinu spunafatnaður í þessari athugasemd er átt við fatnað sem telst til nr. 6101-6114 og 6201-6211.

[15.    Leiði ekki annað af 1. athugasemd við flokk XI skal flokka spunafatnað og aðrar spunavörur, sem í eru kemískir, vélrænir eða rafrænir hlutir til aukinnar virkni, einnig sem settir hafa verið í sem innbyggðir hlutir eða inn í trefjar eða dúk, í viðkomandi vöruliði í flokki XI, enda haldi þeir  að verulegu leyti einkennum vara í þessum flokki.][4]

 

Athugasemdir við undirliði:

1.      Í þessum flokki og hvarvetna í tollskránni þar sem það á við hafa eftirfarandi hugtök þá merkingu sem þeim er hér með gefin:

a.      Óbleikt garn.

Garn sem:

1.   hefur náttúrlegan lit frumtrefja sinna og hefur ekki verið bleikt, litað (einnig gegn­litað) eða þrykkt,

2.   hefur óvissan lit (grátt garn) og unnið er úr tættu hráefni.

                   Slíkt garn má hafa hlotið aðvinnslu með litlausu efni eða óekta lit (sem hverfur eftir einfaldan sápuþvott) og, þegar um er að ræða tilbúnar trefjar, gegnunnin með efni til að eyða gljáa (t.d. títandíoxíð).

b.      Bleikt garn.

Garn sem:

1.   hlotið hefur aðvinnslu til bleikingar, er gert úr bleiktum trefjum eða, leiði ekki annað af orðalagi, hefur verið litað hvítt (einnig gegnlitað) eða fengið aðvinnslu með hvítri steiningu,

2.   gert er úr blöndu af óbleiktum og bleiktum trefjum,

3.   er margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið og gert úr óbleiktu og bleiktu garni.

c.      Litað garn (með litunarefni eða þrykkt).

Garn sem:

1.   er litað (einnig gegnlitað) þó ekki hvítt eða í óekta lit, eða þrykkt, eða gert úr lit­uðum eða þrykktum trefjum,

2.   gert er úr blöndu óbleiktra eða bleiktra trefja með lituðum trefjum (litblendi eða garnblöndu), eða þrykkt í einum eða fleiri litum með millibili sem gefur útlit punkta,

3.   gert er úr þrykktum flísum eða ræmum,

4.   er margþráða (snúið) eða kaðalbrugðið og gert úr óbleiktu eða bleiktu garni og lituðu garni.

         Framangreindar skýrgreiningar gilda einnig, að breyttu breytanda, um einþátt­unga og ræmur eða þess háttar í 54. kafla.

d.      Óbleiktur ofinn dúkur.

Ofinn dúkur gerður úr óbleiktu garni sem hefur ekki verið bleikt­ur, litaður eða þrykktur. Slíkur dúkur má hafa hlotið aðvinnslu með litlausu efni eða óekta lit.

e.      Bleiktur ofinn dúkur.

Ofinn dúkur sem:

1.   hefur verið bleiktur eða, leiði ekki annað af orðalagi, hefur verið litaður hvítur eða fengið aðvinnslu með hvítu efni, sem metravara,

2.   er gerður úr bleiktu garni,

3.   er gerður úr óbleiktu og bleiktu garni.

f.       Litaður ofinn dúkur.

Ofinn dúkur sem:

1.   litaður er í einn jafnan lit annan en hvítt (leiði ekki annað af orðalagi) eða hefur með aðvinnslu fengið litaráferð aðra en hvíta (leiði ekki annað af orðalagi), í metratali,

2.   er gerður úr lituðu garni í einum jöfnum lit.

g.      Ofinn dúkur úr garni í mismunandi litum.

Ofinn dúkur (þó ekki þrykktur ofinn dúkur) sem:

1.   er gerður úr garni í mismunandi litum eða úr garni í mismunandi tilbrigðum sama litar (þó ekki náttúrlegum lit frumtrefjanna),

2.   er gerður úr óbleiktu eða bleiktu garni og lituðu garni,

3.   er gerður úr litblendi eða garnblöndu. (Ekki skal í neinu tilviki tekið tillit til garns í frágangi jaðra eða enda).

h.      Þrykktur ofinn dúkur.

Ofinn dúkur sem hefur verið þrykktur í metratali, einnig gerður úr garni í mismunandi litum.

(Eftirtalið telst einnig vera þrykktur ofinn dúkur: Ofinn dúkur með mynstri sem gert er t.d. með pensli eða úðabyssu, þrykkipappír, hnökri eða batikaðferð.)

Mersiaðvinnsla hefur ekki áhrif á flokkun garns eða dúks í framangreindum hugtökum.

Skýrgreiningar í d- til h-liðar hér að framan gilda, að breyttu breytanda, um prjónaðan eða heklaðan dúk.

ij.      Einfaldur vefnaður.

Dúkur þar sem hver ívafsþráður fer til skiptis yfir eða undir uppistöðuþræði sem eru í röð og hver uppistöðuþráður fer til skiptis yfir eða undir ívafsþræði sem eru í röð.

2.      A.     Vörur í 56.-63. kafla sem eru úr tveimur eða fleiri spunaefnum skulu teljast vera að öllu leyti úr því spunaefni sem fyrir valinu yrði samkvæmt 2. athugasemd við þennan flokk við flokkun á vöru í 50.-55. kafla eða í nr. 5809 úr sömu spunaefnum.

          B.     Þegar þessari reglu er beitt:

a.   skal aðeins taka tillit til þess hluta sem ákvarðar flokkunina samkvæmt túlkunarreglu 3, eftir því sem við á,

b.   skal ekki taka tillit til grunndúksins, þegar um er að ræða spunavörur úr grunndúk með flos- eða lykkjuyfirborði,

c.   skal taka tillit til grunndúksins eingöngu, þegar um er að ræða útsaum og vörur úr honum í nr. 5810. Útsaumur án sýnilegs grunns og vörur úr honum skal þó flokkaður með tilvísun til útsaumsþráðanna eingöngu.


[1] Sbr. 36. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

[2] Sbr. 36. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

[3] Sbr. 36. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

[4] Sbr. 36. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Athugasemdir kafla

60. KAFLI
Prjónaður eða heklaður dúkur
 

Athugasemdir:

1. Til þessa kafla telst ekki:

a. Heklaðir laufaborðar í nr. 5804
b. Merkimiðar, einkennismerki eða áþekkar vörur, prjónaðar eða heklaðar, í nr. 5807.
c. Prjónaður eða heklaður dúkur, gegndreyptur, húðaður, hjúpaður eða lagskipaður, í 59. kafla. Þó telst prjónaður eða heklaður flosdúkur, gegndreyptur, húðaður, hjúpaður eða lagskipaður til nr. 6001.

2. Til þessa kafla telst einnig dúkur gerður úr málmþræði til nota í fatnað, vistarverur manna eða þess háttar.

3. Hvarvetna í tollskránni er með prjónuðum vörum einnig átt við stungubundnar vörur þar sem stungulykkjurnar eru myndaðar úr spunagarni. 

[Athugasemd við undirlið:
Undirliður nr. 6005.35 tekur til dúks úr pólyetylen einþáttungum eða pólyester margþáttungum, sem vegur minna en 30 g/m2 og ekki meira en 55 g/m2, með möskvastærð ekki minna en 20 möskvar/cm2 og ekki meira en 100 möskvar/cm2, gegndreyptur eða húðaður með alfasípermetríni (ISO), klórfenapýr (ISO), deltametríni (INN, ISO), lambda-sýhalótríni (ISO), permetríni (ISO) eða pírimífosmetýli (ISO).]1

1 Sbr. a-lið 28. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármálaráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2017.

6001
Flosdúkur, þ.m.t. langflosdúkur og frottédúkur, prjónaður eða heklaður:

Hleður tollskrárnúmerum...

6002
Prjónaður eða heklaður dúkur, ekki meira en 30 cm á breidd, sem inniheldur 5% eða meira að þyngd af teygjugarni eða gúmmíþræði, þó ekki dúkur í nr. 6001:
Athugasemdir

Sbr. a-lið 42. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

6003
Prjónaður eða heklaður dúkur, ekki meira en 30 cm á breidd, þó ekki dúkur í nr. 6001 eða 6002:
Athugasemdir

Sbr. a-lið 42. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

6004
Prjónaður eða heklaður dúkur, meira en 30 cm á breidd, sem inniheldur 5% eða meira að þyngd af teygjugarni eða gúmmíþræði, þó ekki dúkur í nr. 6001:
Athugasemdir

Sbr. a-lið 42. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

6005
Uppistöðuprjónaður dúkur (þ.m.t. dúkur gerður á borðaprjónavélar), þó ekki dúkur í nr. 6001-6004:
Athugasemdir

Sbr. a-lið 42. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

6006
Annar prjónaður eða heklaður dúkur:
Athugasemdir

Sbr. a-lið 42. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...