Flokkur 10 Deig úr viði eða öðru trefjakenndu sellulósaefni; endurheimtur pappír eða pappi (úrgangur og rusl); pappír og pappi og vörur úr honum

Kafli 49 Prentaðar bækur, blöð, myndir og aðrar vörur prentiðnaðar; handrit, vélrit og uppdrættir

Athugasemdir flokks

Engar athugasemdir

Athugasemdir kafla

49. KAFLI
Prentaðar bækur, blöð, myndir og aðrar vörur prentiðnaðar; handrit, vélrit og uppdrættir
 

Athugasemdir:

1.   Til þessa kafla telst ekki:

a Ljósmyndanegatífur eða -pósitífur á glæru burðarefni (37. kafli).
b. Landakort, uppdrættir eða hnattlíkön, upphleypt, einnig prentað (nr. 9023).
c. Spil eða aðrar vörur í 95. kafla.
d. Frumverk af stungum, þrykki eða steinprenti (nr. 9702), frímerki eða stimpilmerki, póststimpilmerki, fyrstadagsumslög, póstbréfsefni eða þess háttar í nr. 9704, forngripir eldri en eitthundrað ára eða aðrar vörur í 97. kafla.

2.   Sem prentaðar í 49. kafla teljast einnig vörur endurgerðar í fjölritara, [gerðar í sjálfvirkri gagnavinnsluvél]1, með upphleypingu, ljósmyndun, ljósritun, varmaafritun eða vélritun.

3.   Fréttablöð, dagblöð og tímarit sem heft eru í annað en pappír og samstæður tveggja eða fleiri eintaka fréttablaða, dagblaða eða tímarita sem bundin eru saman í eitt hefti skulu flokkast í nr. 4901, einnig þótt í þeim sé auglýsingaefni.

4.   Til nr. 4901 telst einnig:

a. Safn eftirprentana, t.d. af listaverkum eða teikningum, með tilheyrandi texta, með tölusettum blaðsíðum sem binda má inn í eitt eða fleiri bindi.
b. Myndaviðaukar sem fylgja bundnum bókum.
c. Prentaðir hlutar bóka eða bæklinga í formi samsettra eða stakra blaða eða arka sem fela í sér heildarverk eða hluta þess og ætlað er til bókbands.

Prentaðar myndir eða skýringarmyndir (illustrations), án texta, í örkum eða stökum blöðum teljast hins vegar til nr. 4911.

5.   Leiði ekki annað af 3. athugasemd við þennan kafla tekur nr. 4901 ekki til prentaðs máls sem aðallega er gefið út í auglýsingaskyni (t.d. bæklingar, ritlingar, pésar, viðskiptaskrár, árbækur sem gefnar eru út af verslunarsamtökum, ferðaauglýsingar). Þess konar útgáfa skal flokkuð í nr. 4911.

6.   Sem myndabækur fyrir börn í nr. 4903 teljast barnabækur þar sem myndirnar eru aðalatriðið en ekki textinn. 

1 Sbr. a-lið 35. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001). 

4901
Prentaðar bækur, bæklingar, pésar og áþekkar prentvörur, einnig einblöðungar:

Hleður tollskrárnúmerum...

4902
Fréttablöð, dagblöð og tímarit, einnig með myndum eða með auglýsingaefni:

Hleður tollskrárnúmerum...

4903
Myndabækur, teiknibækur eða litabækur fyrir börn

Hleður tollskrárnúmerum...

4904
Hljóðfæranótur, prentaðar eða í handriti, einnig innbundnar eða með myndum

Hleður tollskrárnúmerum...

4905
Landakort, sjókort og hvers kyns þess konar kort, þar með talið kortabækur, veggkort, landslagsuppdrættir og hnattlíkön, prentað:

Hleður tollskrárnúmerum...

4906
Uppdrættir og teikningar til notkunar í húsagerð, verkfræði, iðnaði, viðskiptum, landslagsfræði eða þess háttar handgerð frumverk; handskrifaður texti; ljósmyndir á ljósnæmum pappír og kalkipappírsafrit af framannefndu

Hleður tollskrárnúmerum...

4907
Ónotuð frímerki, stimpilmerki eða áþekk merki, sem eru gild eða verða gild í því landi þar sem þau hafa, eða munu hafa, viðurkennt nafnverð; pappír með slíkum merkjum; peningaseðlar; ávísanaeyðublöð; skuldabréf, hlutabréf eða skuldarviðurkenningar og þess konar verðbréf:
Athugasemdir
Sbr. b-lið 35. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

4908
Færimyndir (decalcomanias):

Hleður tollskrárnúmerum...

4909
Prentuð eða myndskreytt póstkort; prentuð kort með persónulegum óskum, skilaboðum eða tilkynningu, einnig með myndum, umslögum eða skrauti:

Hleður tollskrárnúmerum...

4910
Almanök alls konar, prentuð, þar með talin dagatöl

Hleður tollskrárnúmerum...

4911
Aðrar prentvörur, þar með taldar prentaðar myndir og ljósmyndir:

Hleður tollskrárnúmerum...