Athugasemdir flokks

Engar athugasemdir

Athugasemdir kafla

48. KAFLI
Pappír og pappi; vörur úr pappírsdeigi, pappír eða pappa

 

Athugasemdir:

1.      Leiði ekki annað af orðalagi er með orðinu pappír í þessum kafla einnig átt við pappa (án tillits til þykktar eða þyngdar á m2).

2.      Til þessa kafla telst ekki:

a.      Vörur í 30. kafla.

b.      Prentþynnur í nr. 3212.

c.      Ilmpappír eða pappír gegndreyptur eða húðaður með snyrtivörum (33. kafli).

d.      Pappír eða sellulósavatt gegndreypt, húðað eða hjúpað sápu eða hreinsiefni (nr. 3401), eða fægiefnum, áburði eða áþekkri framleiðslu (nr. 3405).

e.      Ljósnæmur pappír eða pappi í nr. 3701-3704.

f.       Pappír gegndreyptur með prófefnum til greininga eða fyrir rannsóknastofur (nr. 3822).

g.      Pappírsstyrktar, lagfelldar þynnur úr plasti, eða eitt lag af pappír eða pappa húðað eða hjúpað með lagi úr plasti, enda sé síðarnefnda lagið meira en helmingur heildarþykkta­rinnar, eða vörur úr slíkum efnum, þó ekki veggfóður í nr. 4814 (39. kafli).

h.      Vörur í nr. 4202 (t.d. ferðabúnaður).

ij.      Vörur í 46. kafla (framleiðsla úr fléttiefnum).

k.      Pappírsgarn eða spunavörur úr pappírsgarni (flokkur XI).

l.       Vörur í 64. eða 65. kafla.

m.     Slípipappír eða slípipappi (nr. 6805) eða gljásteinsflögur á pappírs- eða papa­undirlagi (nr. 6814) (pappír og pappi húðaður gljásteinsdufti flokkast þó í þennan kafla).

n.      Málmþynnur á pappírs- eða pappaundirlagi (venjulega flokkur XIV eða XV).

o.      Vörur í nr. 9209.

p.      Vörur í 95. kafla (t.d. leikföng, leikspil, íþróttabúnaður).

[q.      Vörur í 96. kafla (t.d. hnappar, dömubindi og tíðatappar, bleiur og bleiufóður.][1]

3.      Leiði ekki annað af 7. athugasemd taka nr. 4801-4805 til pappírs og pappa sem við vinnslu hefur verið sléttaður, gljásléttaður, gljápressaður eða þess háttar, búinn óekta vatnsmerki eða þakinn límvatni á yfirborði, og einnig til pappírs, pappa, sellulósavatts og vefs úr sellu­lósatrefjum sem er litað eða marmararákað í gegn með hvers konar aðferð. Þessir vöruliðir taka ekki til pappírs, pappa, sellulósavatts eða vefs úr sellulósatrefjum sem hefur verið unnið á annan hátt, nema annað leiði af nr. 4803.

[4.      Sem dagblaðapappír í þessum kafla telst óhúðaður pappír sem notaður er til dagblaða­prentunar og í er ekki minna en 50% af viðartrefjum, miðað við þyngd trefjainnihaldsins í heild, unninn með vélrænum eða kemísk-vélrænum hætti, ólitaður eða mjög lítið litaður, með yfirborðsáferð af grófleika Parker Print Surf (1 MPa) á hvorri hlið meira en 2,5 míkrómetrar (míkron), vegur ekki minna en 40 g/m2 og ekki meira en 65 g/m2, og gildir aðeins um pappír: (a) í ræmum eða rúllum yfir 28 cm að breidd, eða (b) í rétthyrndum örkum (einnig ferningslaga) með einni hlið yfir 28 cm og annarri yfir 15 cm ósamanbrotnum][2].

[5.      Sem pappír og pappi, notaður til að skrifa á, prenta á eða til annarra grafískra nota og gataspjaldaefni og gataræmupappír í nr. 4802 telst pappír og pappi sem aðallega er gerður úr bleiktu degi eða deigi sem búið er til á vélrænan eða kemískt-vélrænan hátt og uppfyllir einhver neðangreindra skilyrða:

A.     Að því er varðar pappír eða pappa sem ekki er meira en 150 g/m2 að þyngd:

a.   Inniheldur 10% eða meira af trefjum sem gerðar eru með vélrænum eða kemískt vélrænum hætti, og

1.    vegur ekki meira en 80 g/m2, eða

2.    er gegnlitaður.

b.   Inniheldur meira en 8% af ösku, og

1.    vegur ekki meira en 80 g/m2, eða

2.    er gegnlitaður.

c.   Inniheldur meira en 3% af ösku og hefur 60% skærleika eða meira.

d.   Inniheldur meira en 3% en ekki yfir 8% af ösku og er með minna en 60% skærleika, og rifstuðul sem er jafn eða minni en 2,5 kPa m2/g.

e.   Inniheldur 3% eða minna af ösku og hefur 60% skærleika eða meira og rifstuðul sem er jafn eða minni en 2,5 kPa m2/g.

B.     Að því er varðar pappír eða pappa sem er meira en 150 g/m2 að þyngd:

a.   Er gegnlitaður, eða

b.   er með 60 % skærleika eða meira, og

1.    er 225 míkrómetrar (míkron) eða minna að þykkt, eða

2.    er meira en 225 míkrómetrar (míkron) að þykkt en ekki meira en 508 míkrómetrar (míkron) og með meira en 3% öskuinnihald.

c.   er með minna en 60% skærleika, er 254 míkrómetrar (míkron) eða minna að þykkt og með meira en 8% öskuinnihald.

          Til nr. 4802 telst þó ekki síupappír eða -pappi (þ.m.t. tepokapappír) eða filtpappír eða ¿pappi.][3]

6.      Sem kraftpappír og kraftpappi í þessum kafla telst pappír og pappi sem í eru ekki minna miðað við þyngd en 80% af trefjum sem fengnar eru með kemískri vinnslu súlfats eða sóta miðað við trefjainnihald í heild.

7.      Leiði ekki annað af orðalagi vöruliða flokkast pappír, pappi, sellulósavatt og vefir úr sellulósatrefjum sem svara til vörulýsingar í tveimur eða fleiri af nr. 4801-4811 í þann vörulið sem síðastur er í töluröð í tollskránni.

[8.      Til nr. 4803-4809 telst aðeins pappír, pappi, sellulósavatt og vefir úr sellu­lósa­trefjum:

a.      Í ræmum eða rúllum yfir 36 cm að breidd.

b.      Í rétthyrndum örkum (einnig ferningslaga) með einni hlið yfir 36 cm og annarri yfir 15 cm ósamanbrotnum.][4]

9.      Sem veggfóður og áþekk veggklæðning í nr. 4814 telst einungis:

a.      Pappír í rúllum, að minnsta kosti 45 cm að breidd en ekki yfir 160 cm, hæfur til vegg- eða lofskreytinga, og er:

1.   æðóttur, upphleyptur, yfirborðslitaður, mynsturprentaður eða yfirborðsskreyttur á annan hátt (t.d. með spunaflóka), einnig húðaður eða hjúpaður glæru plasti til hlífðar;

2.   með ójöfnu yfirborði sem stafar af ísettum ögnum úr viði, stráum o.s.frv.;

3.   húðaður eða hjúpaður á framhlið með plasti, plastlagið æðótt, upphleypt, litað, mynsturprentað eða skreytt á annan hátt; eða

4.   hjúpaður á framhlið með fléttiefnum, einnig sett saman úr samsíða þáttum eða ofinn.

b.      Bryddingar og skrautræmur, úr pappír, unnar eins og lýst er hér að framan, einnig í rúll­um, til vegg- eða loftskreytinga.

c.      Veggklæðning úr pappír gerð úr nokkrum reitum, í rúllum eða örkum, prentuð þannig að útbúa má sviðsmynd, mynstur eða mótíf þegar hún er sett á vegg.

Vörur á undirlagi úr pappír eða pappa, nothæfar bæði sem gólf- og veggklæðning, skulu flokkaðar í nr. 4823.

10.    Til nr. 4820 telst ekki arkir eða spjöld í lausu, tilskorið, einnig áprentað, upphleypt eða gatað.

11.    Til nr. 4823 telst m.a. götuð pappírs- eða pappaspjöld í Jaquardvélar eða áþekkar vélar og pappírsblúndur.

12.    Pappír, pappi, sellulósavatt og vörur úr þeim, með áprentuðum mótífum, táknum eða mynd­rænni framsetningu, sem ekki er hreint aukaatriði með tilliti til meginnotkunar varanna, falla undir 49. kafla, nema vörur í nr. 4814 eða 4821.

 

Athugasemdir við undirliði:

1.      Sem kraftpappír í nr. 4804.11 og 4804.19 telst pappír eða pappi sem fengið hefur glans- eða gljááferð í vélum, sem í er ekki minna miðað við þyngd en 80% af trefjum, sem fengn­ar eru með kemískri vinnslu súlfats eða sóta, miðað við trefjainnihald í heild, í rúllum, meira en 115 g/m2að þyngd og lágmarks Mullen-rifstuðul eins og um ræðir í eftirfarandi töflu eða línulega innreiknað eða framreiknað jafngildi annarrar þyngdar:

___________________________________________________________

                       Þyngd                                       Lágmarks Mullen-rifstuðull

                          g/m2                                                           kPa
___________________________________________________________

                         115                                                              393

                         125                                                              417

                         200                                                              637

                         300                                                              824

                         400                                                              961

___________________________________________________________

 

2.      Sem sekkjakraftpappír í nr. 4804.21 og 4804.29 telst pappír sem fengið hefur glansáferð í vélum og í er ekki minna miðað við þyngd en 80% af trefjum, sem fengnar eru með kemískri vinnslu súlfats eða sóta, miðað við trefjainnihald í heild, í rúllum, ekki minna en 60 g/m2að þyngd en ekki yfir 115 g/m2og svarar til annarrar hvorrar neðangreindrar lýsing­ar:

a.      Með Mullen-rifstuðul ekki innan við 3,5 kPa. m2/g og teygni sem er meiri en 4,5% þversum og meira en 2% langsum.

b.      Með lágmarks slit- og þanþol eins og greinir í eftirfarandi töflu eða línulega innreiknað jafngildi annarra þyngda

___________________________________________________________

                                      Lágmaks slitþol                            Lágmarks þanþol

                                                  mN                                              kN/m
___________________________________________________________

                                                              Langsum                                    Langsum

       Þyngd                                                   +                                                   +

      g/m2                  Langsum             Þversum         Þversum             Þversum

___________________________________________________________

           60                       700               1.510                       1,9                          6

           70                        830               1.790                       2,3                       7,2

           80                        965               2.070                       2,8                       8,3

         100                     1.230               2.635                       3,7                    10,6

         115                     1.425               3.060                       4,4                    12,3

___________________________________________________________

 

3.      Sem hálfkemískur bylgjupappír í nr. 4805.11 telst pappír í rúllum sem í er ekki minna en 65%, miðað við þyngd trefjainnihaldsins í heild, af óbleiktum harðviðartrefjum sem fengnar eru með vélrænni og kemískri deigvinnslu, með CMT 30 brotviðnám (báruð miðilsprófun með 30 mínútna aðlögun) yfir 1,8 njúton/g/m2 við 50% rakastig og 23 °C.

4.      Til nr. 4805.12 telst pappír í rúllum, aðallega gerður úr hálmdeigi sem fengið er með vélrænni og kemískri deigvinnslu, sem er að þyngd 130g/m2 eða meira og með CMT 30 brotviðnám (báruð miðilsprófun með 30 mínútna aðlögun) yfir 1,4 njúton/g/m2 við 50% rakastig og 23 °C.

5       Til nr. 4805.24 og 4805.25 telst pappír og pappi gerður að öllu leyti eða aðallega úr deigi úr endurheimtum pappír eða pappa (úrgangi og rusli). Prófunarpappír (testliner) getur einnig haft yfirborðslag úr lituðum pappír eða úr pappír gerðum úr bleiktu eða óbleiktu óendurunnu deigi. Þessar vörur eru með lágmarks Mullen-rifstuðul 2,5 kPa m2/g.            

6.      Sem súlfítumbúðapappír í nr. 4805.30 telst pappír sem fengið hefur gljááferð í vélum og í er meira en 40%, miðað við þyngd trefjainnihaldsins í heild, af viðartrefjum sem fengnar eru með kemískri súlfítaðferð, ekki meira en 8% öskuinnihald og Mullen-slitþol ekki minna en 1,47 kPa. m2/g.

7.            Sem létthúðaður pappír í nr. 4810.22 telst pappír, húðaður á báðum hliðum, að heildar­þyngd ekki yfir 72 g/m2, með húð sem að þyngd er ekki yfir 15 g/m2, á undirlagi sem í er ekki minna en 50%, miðað við þyngd trefjainnihaldsins í heild, af viðartrefjum sem fengnar eru með vélrænum hætti.



[1] Sbr. 35. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[2] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).

[3] Sbr. 35. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[4] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).

4801
Dagblaðapappír, í rúllum eða örkum

Hleður tollskrárnúmerum...

4802
Óhúðaður pappír og pappi, notaður til að skrifa á, prenta á eða til annarra grafískra nota, og gataspjaldaefni og gataræmupappír, í rúllum eða rétthyrndum (einnig ferningslaga) örkum, af hvaða stærð sem er, þó ekki pappír í nr. 4801 eða 4803; handgerður pappír og pappi:
Athugasemdir
Sbr. h-lið 34. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

4803
Hreinlætis- eða andlitsþurrkuefni, handþurrku- eða bleiuefni og áþekkur pappír til heimilis- eða hreinlætisnota, sellulósavatt og vefir úr sellulosatrefjum, einnig krepað, fellt, upphleypt, gatað, yfirborðslitað, yfirborðsskreytt eða áprentað, í rúllum eða örkum

Hleður tollskrárnúmerum...

4804
Óhúðaður kraftpappír og kraftpappi, í rúllum eða örkum, þó ekki vörur í nr. 4802 eða 4803:

Hleður tollskrárnúmerum...

4805
Annar óhúðaður pappír og pappi, í rúllum eða örkum, ekki frekar unnið en tilgreint er í 3. athugasemd4 við þennan kafla:
Athugasemdir
Sbr. k-lið 34. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

4806
Jurtapergament, feitiheldur pappír, afritunarpappír (tracing papers) og vatnsheldur pappír og annar gljáður, gagnsær eða hálfgagnsær pappír í rúllum eða örkum:

Hleður tollskrárnúmerum...

4807
Samsettur pappír og pappi (gerður með því að festa slétt lög úr pappír eða pappa saman með lími), ekki yfirborðshúðaður eða gegndreyptur, einnig með innri styrkingu, í rúllum eða örkum
Athugasemdir
Sbr. m-lið 34. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

4808
Pappír og pappi, bylgjaður (einnig með álímdri sléttri yfirborðsörk), krepaður, felldur, upphleyptur eða gataður, í rúllum eða örkum, þó ekki vörur þeirrar gerðar sem lýst er í nr. 4803:

Hleður tollskrárnúmerum...

4809
Kalkipappír, sjálfafritunarpappír og annar afritunar- eða færipappír (þar með talinn húðaður eða gegndreyptur pappír í fjölritunarstensla eða offsetprentplötur), einnig prentaður, í rúllum eða örkum:

Hleður tollskrárnúmerum...

4810
Pappír og pappi, húðaður á annarri eða báðum hliðum með kaólíni (Kínaleir) eða öðru ólífrænu efni, með eða án bindiefnis, og með engri annarri húð, einnig yfirborðslitaður, yfirborðsskreyttur eða áprentaður, í rúllum eða rétthyrndum (einnig ferningslaga) örkum, af hvaða stærð sem er:
Athugasemdir
Texti vöruliðar nr 4810 og skiptiliðir nr 4810.1 og 4810.2 ásamt tollskrárnúmerum orðist, sbr. n-lið 34. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

4811
Pappír, pappi, sellulósavatt og vefir úr sellulósatrefjum, húðað, gegndreypt, hjúpað, yfirborðslitað, yfirborðsskreytt eða áprentað, í rúllum eða rétthyrndum (einnig ferningslaga) örkum, af hvaða stærð sem er, þó ekki vörur þeirrar gerðar sem lýst er í nr. 4803, 4809 eða 4810:
Athugasemdir
Vöruliður 4811 ásamt tollskrárnúmerum orðist, sbr. p-lið 34. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

4812
Síublokkir, síustykki og síuplötur úr pappírsdeigi

Hleður tollskrárnúmerum...

4813
Vindlingapappír, einnig skorinn í stærðir eða sem hefti eða hólkar:

Hleður tollskrárnúmerum...

4814
Veggfóður og áþekk veggklæðning; gluggaglærur úr pappír:

Hleður tollskrárnúmerum...

4816
Kalkipappír, sjálfafritunarpappír og annar afritunarpappír eða færipappír (þó ekki vörur í nr. 4809), fjölritunarstenslar og offsetprentplötur, úr pappír, einnig í öskjum:

Hleður tollskrárnúmerum...

4817
Umslög, bréfkort, póstkort án mynda og skrifkort, úr pappír eða pappa; öskjur, pokar, veski og skrifmöppur, úr pappír eða pappa, sem innihalda ýmiss konar bréfsefni:

Hleður tollskrárnúmerum...

4818
Salernispappír og áþekkur pappír, sellulósavatt og vefir úr sellulósatrefjum til heimilis- eða hreinlætisnota, í rúllum ekki yfir 36 cm að breidd, eða skorið í stærðir eða lögun; vasaklútar, hreinsiklútar, handþurrkur, borðdúkar, servíettur, lök og áþekkur húsbúnaður, hreinlætis- og sjúkravörur, fatnaður og hlutar til hans, úr pappírsdeigi, pappír, sellulósavatti eða vef úr sellulósatrefjum:
Athugasemdir
Sbr. f-lið 30. tl. 1. gr. auglýsingar sem gefin var út 15. desember 2011.

Hleður tollskrárnúmerum...

4819
Öskjur, box, kassar, pokar og önnur ílát til umbúða, úr pappír, pappa, sellulósavatti eða vef úr sellulósatrefjum; spjaldskrárkassar, bréfabakkar og áþekkar vörur, úr pappír eða pappa, sem eru notaðar á skrifstofum, í verslunum o.þ.h.:

Hleður tollskrárnúmerum...

4820
Skrár, reikningsskilabækur, minnisbækur, pöntunarbækur, kvittanabækur, skrifblokkir, minnisblokkir, dagbækur og áþekkar vörur, stílabækur, ritundirlög, skjalabindi (einnig lausblaða), bréfamöppur, skjalamöppur, marglaga eyðublöð, samstæður með kalkipappír á milli og önnur skrifföng, úr pappír eða pappa; albúm fyrir sýnishorn og söfn og bókahlífar, úr pappír eða pappa:

Hleður tollskrárnúmerum...

4821
Pappírs- eða pappamiðar alls konar, einnig áprentaðir:

Hleður tollskrárnúmerum...

4822
Kefli, spólur, snældur og áþekkar uppistöður úr pappírsdeigi, pappír eða pappa (einnig gatað eða hert):

Hleður tollskrárnúmerum...

4823
Annar pappír, pappi, sellulósavatt eða vefur úr sellulósatrefjum, skorið í stærðir eða lögun; aðrar vörur úr pappírsdeigi, pappír, pappa, sellulósavatti eða vef úr sellulósatrefjum:
Athugasemdir
Skiptiliður 4823.5 ásamt tollskrárnúmerum fellur brott, sbr. r-lið 34. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...