Athugasemdir flokks

Engar athugasemdir

Athugasemdir kafla

46. KAFLI
Framleiðsla úr strái, úr espartó eða öðrum fléttiefnum;
körfugerðarvörur og tágasmíði

 

Athugasemdir:

1.      Sem fléttiefni í þessum kafla telst efni í ástandi eða mynd sem hentar til að flétta, bregða eða áþekkrar vinnslu. Til þeirra telst strá, viðja eða tágar, bambus, spanskreyr, sef, reyr, viðarræmur, ræmur úr öðrum jurtaefnum (t.d. barkarræmur, mjó lauf og raffia eða aðrar ræmur unnar úr breiðu laufi), óspunnar náttúrlegar spunatrefjar, einþáttungar og ræmur og þess háttar úr plasti og ræmur úr pappír, en ekki ræmur úr leðri eða samsettu leðri eða flóka eða vefleysum, mannshár, hrosshár, spunaþráður eða spunagarn, eða einþáttungar og ræmur og þess háttar í 54. kafla.

2.      Til þessa kafla telst ekki:

a.      Veggklæðning í nr. 4814.                         

b.      Seglgarn, snæri, reipi eða kaðlar, einnig fléttað (nr. 5607).

c.      Skófatnaður eða höfuðfatnaður eða hlutar til hans í 64. eða 65. kafla.

d.      Ökutæki eða yfirbyggingar fyrir ökutæki úr körfugerðarvörum (87. kafli).

e.      Vörur í 94. kafla (t.d. húsgögn, [ljós og ljósabúnaður][1]).

3.      Sem fléttiefni, fléttur og áþekk framleiðsla úr fléttiefnum, bundnum saman í samhliða þætti í nr. 4601 telst fléttiefni, fléttur og áþekk framleiðsla úr fléttiefnum, lögð hlið við hlið og bundin saman, í plötum, einnig þótt bindiefnin séu úr spunnu spunaefni.


[1] Sbr. 34. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

4601
Fléttur og áþekk framleiðsla úr fléttiefnum, einnig sett saman í ræmur; fléttiefni, fléttur og áþekk framleiðsla úr fléttiefnum, bundin saman í samhliða þætti eða ofin, í plötum, einnig sem fullgerðar vörur (t.d. mottur, ábreiður, skermar):
Athugasemdir
Tollskrárnúmer 4601.1000 fellur brott, sbr. a-lið 32. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

4602
Körfugerðarvörur, tágasmíði og aðrar vörur, unnið beint í endanlega lögun úr fléttiefnum eða gerðar úr vörum í nr. 4601; vörur úr lúffu (loofah):

Hleður tollskrárnúmerum...