Kafli 44 Viður og vörur úr viði; viðarkol
Athugasemdir flokks
Engar athugasemdir
Athugasemdir kafla
44. KAFLI
Viður og vörur úr viði; viðarkol
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
a. Viður, sem spænir eða flísar, malaður, mulinn eða í duftformi, sem aðallega er notaður til framleiðslu á ilmvörum, lyfjum eða efnum til varnar gegn eða útrýmingar á skordýrum, sveppum o.þ.h. (nr. 1211).
b. Bambus eða önnur efni viðarkyns sem aðallega eru notuð til fléttunar, óunnið, einnig klofið, sagað eftir endilöngu eða í lengdir (nr. 1401).
c. Viður, sem spænir eða flísar, malaður, mulinn eða í duftformi, sem aðallega er notaður til litunar eða sútunar (nr. 1404).
d. Ávirk viðarkol (nr. 3802).
e. Vörur í nr. 4202.
f. Vörur í 46. kafla.
g. Skófatnaður eða hlutar til hans í 64. kafla.
h. Vörur í 66. kafla (t.d. regnhlífar og göngustafir og hlutar til þeirra).
ij. Vörur í nr. 6808.
k. Glysvarningur í nr. 7117.
l. Vörur í flokki XVI eða flokki XVII (t.d. vélahlutar, kassar, hlífar, hús fyrir vélar og tæki og vagnasmíði).
m. Vörur í flokki XVIII (t.d. klukkukassar og hljóðfæri og hlutar til þeirra).
n. Hlutar til skotvopna (nr. 9305).
o. Vörur í 94. kafla (t.d. húsgögn, [ljós og ljósabúnaður][1], forsmíðaðar byggingar).
p. Vörur í 95. kafla (t.d. leikföng, leikspil, íþróttabúnaður).
[q. Vörur í 96. kafla (t.d. reykjapípur og hlutar til þeirra, hnappar, blýantar [og einfætur, tvífætur, þrífætur og áþekkar vörur), þó ekki burstatré og burstasköft, úr viði, til vara í nr. 9603.][2]
r. Vörur í 97. kafla (t.d. listaverk).
2. Sem hertur viður (densified wood) í þessum kafla telst trjáviður sem fyrir tilstilli kemískrar meðferðar, vinnslu með vélum eða öðrum tækjum hefur fengið aukinn þéttleika eða hörku ásamt auknum styrkleika eða að hann stenst betur kemísk áhrif eða áhrif frá rafmagni (sé um að ræða samanlímd lög verður vinnslan að vera önnur og meiri en traust líming).
3. Til nr. 4414-4421 teljast vörur sem þar eru tilgreindar, úr spónaplötum eða áþekkum plötum, trefjaplötum, lagskipuðum viði, eða hertum viði, eftir því sem við á.
4. Vörur í nr. 4410, 4411 eða 4412 geta verið unnar í þá lögun sem á við um vörur í nr. 4409, sveigðar, báraðar, gataðar, skornar eða gefin önnur lögun en ferningslaga eða rétthyrnd eða unnar á einhvern annan hátt, enda fái þær ekki við það svipmót vara í öðrum vöruliðum.
5. Nr. 4417 tekur ekki til verkfæra ef blöð þeirra, brúnir, yfirborð eða aðrir vinnandi hlutir er gert úr einhverju þeirra efna sem tilgreind eru í 1. athugasemd við 82. kafla.
6. Leiði ekki annað af 1. athugasemd hér að framan eða af orðalagi er með orðinu viður hvarvetna í vöruliðum þessa kafla jafnframt átt við bambus og önnur efni viðarkyns.
[Athugasemdir við undirliði:][3]
[1.][4]Sem viðarkögglar í undirlið 4401.31 teljast aukaafurðir svo sem afklippur, sag eða spæni, frá vélrænni viðarframleiðslu, húsgagnaiðnaði eða annarri viðarúrvinnslu, sem hefur verið kögglað annað hvort beint með þjöppun eða blöndun bindiefnis sem að magni er ekki meira en 3% miðað við þyngd. Slíkir kögglar eru sívalir, að þvermáli ekki yfir 25 mm og ekki yfir 100 mm að lengd.
[2. Sem viðarkubbar í undirlið 4401.32 teljast aukaafurðir svo sem afklippur, sag eða spænir frá vélrænni viðarframleiðslu, húsgagnaiðnaði eða annari viðarúrvinnslu, sem hefur verið kögglað annað hvort beint með þjöppun eða blöndun bindiefnis sem að magni er ekki meira en 3% miðað við þyngd. Slíkir kubbar eru teningslaga, margflata eða sívalir, að minnsta þvermáli meira en 25 mm.
3. Með S-P-F í undirlið 4407.13 er átt við sem búinn er til úr blöndu úr greni, furu og þini þar sem hlutfall hverrar tegundar er breytilegt og óþekkt.
4. Með Hem-þin í undirlið 4407.14 er átt við sem búinn er til úr blöndu úr vesturríkjaþöll (Western hemlock) og þini þar sem hlutfall hverrar tegundar er breytilegt og óþekkt.][5]
[1] Sbr. 33. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[2] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
[3] Sbr. 33. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[4] Sbr. 33. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[5] Sbr. 33. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
4401
Eldiviður í bolum, bútum, greinum, hrísknippum eða áþekkri mynd; viður sem spænir eða agnir; sag og viðarúrgangur og viðarrusl, einnig mótað í boli, kubba, köggla eða áþekka mynd:
Hleður tollskrárnúmerum...
4402
Viðarkol (þar með talin viðarkol úr skurn eða hnetum), einnig mótuð:
Hleður tollskrárnúmerum...
4403
Trjábolir óunnir, einnig birktir eða safaviður fjarlægður, eða gróflega tilhöggnir:
Hleður tollskrárnúmerum...
4404
Viður í tunnubönd; klofnir staurar; stólpar, rimlar og stikur úr viði, yddað en ekki sagað eftir endilöngu; stafir úr viði, grófunnir en ekki renndir, sveigðir eða unnir á annan hátt, nothæfir til framleiðslu á göngustöfum, regnhlífahandföngum, verkfærahandföngum og þess háttar; flöguviður (chipwood) og þess háttar:
Hleður tollskrárnúmerum...
4405
Viðarull; viðarmjöl
Hleður tollskrárnúmerum...
4406
Brautarbitar fyrir járnbrautir eða sporbrautir (þvertré) úr viði:
Hleður tollskrárnúmerum...
4407
Viður sagaður eða höggvinn eftir endilöngu, flagaður eða birktur, einnig heflaður, slípaður eða enda-skeyttur, yfir 6 mm að þykkt:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4408
Þynnur til spónlagningar (þar með taldar þynnur fengnar með því að flaga lagskipaðan við), í krossvið eða áþekkan lagskipaðan við og annar viður, sagaður eftir endilöngu, flagaður eða birktur, einnig heflaður, slípaður, splæstur eða endaskeyttur, ekki yfir 6 mm á þykkt:
Hleður tollskrárnúmerum...
4409
Viður (þar með taldar lengjur og myndræmur í parketgólf, ósamsett) samfellt unninn (continuously shaped) (plægður, grópaður, fasaður, sniðheflaður, v-skeyttur, skrautheflaður, mótaður, rúnnaður eða þess háttar) á hvaða brún, enda eða hlið sem er, einnig heflaður, slípaður eða endaskeyttur:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4410
Spónaplötur, plötur með réttuðum flögum (oriented strand board) (OSB) og áþekkar plötur (t.d. (flöguplötur (waferboard)) úr viði eða öðrum viðarkenndum efnum, einnig mótaðar með resínum eða öðrum lífrænum bindiefnum:
Athugasemdir
Sbr. h-lið 40. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007
Hleður tollskrárnúmerum...
4411
Trefjaplötur og áþekkar plötur úr viði eða öðrum viðarkenndum efnum, einnig límdar saman með resínum eða öðrum lífrænum efnum:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4412
Krossviður, spónlagðar plötur og áþekkur lagskiptur viður:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4413
Hertur viður, í blokkum, plötum, ræmum eða prófíllaga:
Hleður tollskrárnúmerum...
4414
Viðarrammar fyrir málverk, ljósmyndir, spegla eða áþekka hluti:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4415
Umbúðakassar, öskjur, grindur, hylki og áþekkar umbúðir, úr viði; kapalkefli úr viði; vörubretti, kassabretti og önnur farmbretti, úr viði; skjólborð fyrir vörubretti, úr viði:
Hleður tollskrárnúmerum...
4416
Ámur, tunnur, ker, balar og aðrar beykisvörur og hlutar til þeirra, úr viði, þar með taldir tunnustafir:
Hleður tollskrárnúmerum...
4417
Verkfæri, verkfærahlutar, verkfærahandföng, burstatré og handföng fyrir sópa og bursta, úr viði; leistar og blokkir fyrir stígvél og skó, úr viði:
Hleður tollskrárnúmerum...
4418
Trésmíðavörur til bygginga, þar með talið holviðarþiljur, samsett gólfborð og þakspónn:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4419
Borðbúnaður og eldhúsbúnaður, úr viði:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4420
Myndfelldur viður og innlagður viður; skrín og kassar undir skartgripi eða hnífapör og áþekkar vörur, úr viði; styttur og annað skraut, úr viði; viðarhúsgögn sem teljast ekki til 94. kafla:
Hleður tollskrárnúmerum...
4421
Aðrar vörur úr viði:
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir